Vísir - 08.11.1971, Blaðsíða 6

Vísir - 08.11.1971, Blaðsíða 6
V í S IR . Mánudagur 8. nóvember 1971. “ í, 1 Sautján éra Belfast-pHtur dreíf Utd. til dáða — en heimur Asa Hartford er næstum hruninn Heimur Asa Hartford næstum hrundi á föstu- dag. í vikunni var hann seldur frá WBA til Leeds fyrir rúmar 35 milljónir króna og átti að lcika með Leeds gegn Leicest- er á laugardag, þar sem Don Revie ætlaði hon- um mikið hlutverk í framtíðinni. Á föstudag fór hann í læknisskoðun og eftir hana var kaup- unum riftað og hinn 21 árs Skoti yfirgaf lækn- inn grátandi — hann er haldinn einhverjum alv arlegum sjúkdómi, sem ekki var gefinn upp og ferli hans sem knatt- spymumanriS er því sennilega lokið. Á laug- ardag var hann aftur í West Bromwich og horfði á félaga sína tapa gegn Stoke. Sorgleg atvik hafa þarna sett alvarlegt strik í frama- braut ungs manns og þau komu ekki aðeins honum siálfum úr jafnvægi — heldur einnig þeim leikmönnum, sem Asa (gælu- nafn söngvarans fræga A1 Jol- son, sem faðir Asa Hartford dáði svo mjög, að hann skírði soninn því) átti aö leika með á laugardag — Leeds. Liðið hefur ekki í annan tíma leikið verr í haust, en í fyrri hálfleiknum gegn Leicester og var heppið að vera' aðeins einu marki undir. Það skoraði Allister Brown á 26. mín. eftir mistök Gary Sprake. Peter Shilton haföi ekk- ert að gera í marki Leicester og general Leeds-liðsins, Johnny Giles sendi knöttinn allan fyrri hálfleikinn allt annað en til fé- laga sinna, en fyrirhugað var í framtíðinni að Asa tæki stöðu hans í liðinu. En Don Revie talaði vel við leikmenn sína í hléinu og þeim tókst að snúa taflinu við ’i þeim síðari, mest vegoa frábærs leiks Eddie Gray, sem lítið hef- ur leikið með í haust vegna meiðsia. Þessi skozki landsliðs- maður splundraði oft vörn Leicester — og það var eftir sendingar hans, sem tveir aðrir skozkir landsliðsmenn í Leeds- liðinu skoruðu — fyrst fyrirliö- inn Bremner á 7. mín. og s’iðan Peter Lorimer 12 mín. fyrir leikslok. Aðalleikur umferðarinnar var I Manchester-borg, þar sem City og United áttust við á Maine Road leikvelli Manchest- er City. Hver miðj var löngu seldur og rúmlega 63 þúsund áhorfendur voru á vellinum. Liðin voru með sína beztu menn, nema hvaö Denis Law féll á læknisskoðun um morg- uninn og ( hans stað kom ungur piltur Sammy- Mcllory. Hann er Vrskur frá Belfast eins og George Best og varð 17 ára í vikunni. Oft hefur verið skrifað um ótrúlega lei’mi Sammy und- anfarna mánuöi og United hefur gætt hans betur en flestra ann- arra — hann var fyrsti leik- maðurinn, sem hinn nýi fram- kvæmdastjóri, Frank O’Farrell gerði atvinnumannasamning við. „Hann veröur betri en Jimmy Mcllory, (rski landsliös- maðurinn hjá Burnley" hefur verið skrifað en Jimmy setti hvað mestan svip á ensku knatt- spyrnuna fyrir rúmum áratug. Oftast tekur maður lítið mark á slíkum skrifum um unga drengi, en þarna sörínuðust þau. Sammy Mcllory átti „draumaleik" í s'inum fyr$ta deildaleik iyrir Manch. Utd. og vakti mun rneiri athygli en George Best, þegar hann einríig 17 árailék í fyrsta skipti í deilda liðinu, Manchester-liðin sýndu hreint frábæran leik og áhorf- , endur fengu margfalt virði pen- inga sinna (og nú bölvar maður Isl. sjónvarpinu í hljóði og Mið- landaleikjunum, sem það sýnir alltaf í stað þátta BBC) og hinn ungi Sammy skoraði fyrsta mark leiksins á 39. mín. — glæsimark. Áður hafði Alec Stepney verið hetja liðs United og sýnt frábæra markvörzlu, þegar lið City hafði tögl og hagldir í leiknum. En Sammy Mcllory átti eftir að koma meira við sögu. í byrj- un síðarj hálfleiks splundraði hann vöm City — gaf knöttinn til Brian Kidd, sem skoraði og nú virtist allt’ stefna á sigur United. En hinir frægu lands- ilðsmenn City, Francis Lee og Colin Bell, voru á annarri skoö- un. Fyrst skoraði Lee úr víti og s’iðan jafnaði Bell. Leikurinn var á suðupunkti svo náði Uni- ted forustu aftur með marki Johnny Aston eftir sendingu Mcllrey — en rétt fyrir leikslok tókst þriðja enska landsliðs- manninum í framlínu City — Mike Summerbee, aö jafna og Manchester-búar hafa mikið umræðuefni næstu mánuðina. Leikurinn var nokkuð grófur í s.h. Lee og Tony Book, fyrirliði City, vom ásamt hinum 18 ára bakverði United. Tommy O’Neil. bókaðir og hinn bakvörður , Únited Tony Dunne meiddist. Aston kom í stað hans. Og þá em það úrslitin á laugardag: 1. deild Chelsea—Nottm Forest 2 — 0 Coventry—Huddersfield 2—1 Derby —C. Palace -3 — 0 Ipswich —Wolves 2—1 Leeds—Licester 2—1 Liverpool —Arsenal 3 — 2 Manch. City—Manch. Utd. 3 — 3 Newcastle—Southampton 3—1 Tottenham —Everton 3 — 0 W.B.A — Stoke City 0—1 West Ham —Sheff. Utd. 1—2 2. deild Birmingham —Orient 2 — 0 Blackpool—Carlisle 2 — 0 Bristol Citv—Fulham 1—2 Cardiff—Q.P.R. 0—0 Hull City — Norwich 1—.2 Luton—Charlton 1—2 Middlesbro—Preston 0 — 1 Millvall—Watford 3-2 Oxford—Swindon 1—1 Portsmouth — Sunderlanf! 2—2 Sheff. Wed.—Bumley 2—1 Annar stórleikur var á An- field milli Liverpool og Arsenal og Kennedy skoraði strax á 5. mín. fyrri meistarana, en smám saman yfirtók Liverpool Ieikinn og-átti þrjú—fjögur góð tæki- færi áður en Emlyn Hughes tókst að jafna á 43. m’in. Hinn góði leikur Liverpool hélt áfram éftir hlé og Ian Ca'Ilaghan tókst að,: skora á 9. mín. — fyrsta mark- hans í haust. Arsenal- liðið gafst ekkí upp þó á móti blési og spymti á markið — Tommy Smith náði að komast á milli en varð fyrir því óláni að senda knöttinn í eigið mark. Allt 'virtist stefna á jafntefli, en þá urðu mikil mistök \ vörn Arsenaj — John Toshack fékk knöttinn óvaldur, dró vamar- menn að sér og renndi síðan til bakvaröarins Ross, sem skoraði sigurmark Liverpool. Þá vom 3 mín. til leiksloka. Derby er í öðru sæti í deild- inni og vann auðveldan sigur gegn neðsta liðinu C. Palace. Nýi leikmaðurinn Bobby Bell skoraðj sjálfmark f f. h. og stað- an var þv) 1—0 fyrir Derby í hléi. Þegar 4 min. vom af s.h. skoraði Wignall annað mark Derby og eftir það var aðeins spuming hve mörg mörkin yrðu. En það var aöeins eitt skorað — Kevin Hector á 42. mfn. Derby er elnu stigi á eftir Manch. Utd., en segja má, að Malcolm McDonald skoraöi tvö mörk fyrir Newcastle á laug ardag og hefur skorað nær öll mörk liðsins í haust. Hann var keyptur/frá Luton í sumar fyrir 183 þúsund sterlingspund. liöin — aðeins leikið einn leik á útivellj vjð eitt af efstu lið- unum og tapaði þá. Staðan þannig: !i 1. deild er nú Sir Alf Ramsey og svissneska M. Utd. 16 10 4 2 32:17 24 landsliðið, sem leikur gegn Eng- Derby 16 8 7 1 27:11 23 landi á miðvikudag vom á Man. City 16 8 5 3 28:16 21 Whie Hart Lane og sáu Martin Leeds 16 9 3 4 23:15 21 Peters sýna afburðagóðan leik. Sheff. U. 16 9 3 4 26:18 21 Aðeins eitt mark var skorað f Liverpool 16 8 4 4 24:19 20 fyrri hálfleik og gerði það Pratt Tottenh. 15 7 5 3 31:18 19 fyrir Tottenham, en Martin Stoke 16 8 3 5 19:17 19 Chivers sást varla. Hins vegar Arsenal 15 9 0 6 24:17 18 fengu svissnesku landsliðsmenn- W. Ham 16 6 & 5 19:15 17 imir eitthvað að huvsa um. því Coventry 16 5 7 ’ 4 21:24 17 Chivers var hreint afbragð 'i s.h. Chelsea 16 5 5 6 22:22 15 og skoraði tvö mörk fvrir Tott- Ipswich 16 4 7 5 14:15 15 enham og hefur þar með skorað Wolves 16 5 5 6 22:25 15 18 í haust — og nokkur þeirra Leicester 16 4 5 7 15:21 13 vom gegn Keflavík. Þetta var S.pton 16 5 3 8 21:29 13 sjöundi heimasigur Tottenham W.B.A. 16 3 5 8 9:14 11 og Everton hafði aldrei nokkra Everton 16 4 3 9 12:20 11 möguleika í leiknum. í Suður- H.field 17 4 3 10 14:27 11 London vann Chelsea auðveldan N.castle 16 3 4 9 18:25 10 sigur gegn Nottm, Forest. N. Forest 17 2 5 10 19:35 9 Charlie Cooke skoraði fyrra mark Chelsea — hans fyrsta C. Palace 16 3 3 10 10:29 9 — hsím Johnny Giies, Leeds — var langt frá sínu bezta gegn Leicester. .. 0*. í haust — en Peter Osgood, sem lék sinn 200. deildaleik fyrir Chelsea, síðara markið. Bæði mörkin vom skoruð 1 f. h. Derek Dougan skoraði fyrir Úlfana I Ipswich f f.h., en Mike Hil! og nýja leikmanninum frá Leeds, Rod Belfitt, tókst aö skora í s.h. og tryggja sigur Ipswich. Dým leikmennimir hjá Newcastle tryggðu sigur liðsins gegn Southampton — Green skoraði eitt mark en McDonal hin tvö. O’Neil skor- aði fyrir Dýrlingana. Grenhoff skoraði sigurmark Stoke í WBA úr vítaspymu, en Gil Reece, sem lék miðherja hjá Sheff. Utd. V stað Bill Dearden, skoraði bæði mörk liðs síns gegn West Ham sem tapaði f fyrsta skipti f 11 leikjum á laugardaginn. Pop Robson skor- aði mark West Ham. Hurst lék nú með að nýju, en Nígeríumað- urinn Koger var varamaður.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.