Vísir - 02.12.1971, Page 8
9
rt5TR. Ffntmtodagur 2. desember 1971,
vísir
Utgefandi: KeyKjapraat hf.
Framkrœmdastjóri • Sveinn R. Eyjólfsson
. Ritstjóri • Jónas Krístjánsson
íréttastjóri: Jón Birgir*'Pétursson
Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Bröttugötu 3b. Slmar 15610, 11660
Afg. :a : Bröttugötu 3b. Sími 11660
Ritstjóm : Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur)
Áskriftargjald kr. 195 ð mánuöi innanlands
I lausasölu kr. 12.00 eintakið.
Prentsmiðja Vísis — Edda hf.
Engin alþýðuást
Kommúnistar þykjast gjarnan vera sérstakir stuðn-
ingsmenn hvers konar „þjóðfrelsishreyfinga“ úti um
allan heim. Þeim hefur fundizt það líklegt til vinsælda
að koma fram sem málsvarar uppreisnarmanna úti í
löndum, sem bera svo fallegt heiti, þótt oft sé þama
um ótínda glæpaflokka að ræða, þegar betur er að
gáð.1 Hins vegar eiga svokallaðar þjóðfrelsishreyfing-
ar sums staðar í höggi við harðsvíruð stjómvöld.
Þessi stefna kommúnista hefur verið í samræmi
við „línuna“ frá Moskvu og Peking. Stórveldi komm-
únista hafa stutt margs konar uppreisnarmenn, ef
þeir hafa barizt gegn stjómum, sem eru andstæðar
kommúnistaríkjunum. Sú afstaða á sér ofur augljós-
ar orsakir. Það eru hagsmunir eins stórveldis að
grafa undan stjómvöldum, vinveittum öðm stórveldi.
Ef til vill hafa einhverjir ímyndað sér, að stórveldi
kommúnista hafi verið vinsamleg „þjóðfrelsishreyf-
ingum“ vegna þess að þau beri hagsmuni alþýðu
manna fyrir brjósti, og telji uppreisnarmenn þessa
fulltrúa almennings fremur en ríkisstjómir viðkom-
andi landa. Þetta er fjarstæða.
Áhugi Sovétríkjanna og Kína á þjóðfrelsishreyf-
ingum á rætur í ofur venjulegri heimsveldispólitík.
Þetta geta menn séð, ef þeir vilja, til dæmis í afstöðu
þeirra til Austur-Pakistans.
Kínverska alþýðulýðveldið hefur alla tíð verið enn
ákafari málsvari „þjóðfrelsishreyfinga" en Sovétrfk-
in. Nú vita menn, að í Austur-Pakistan hefur allur
landslýður risið gegn einræðisstjóm afturhaldsmanna
í Vestur-Pakistan. Þjóðfrelsishreyfing Austur-Pakist-
an fékk alla þingmenn kjöma í kosningum fyrir einu
ári. f Austur-Pakistan býr fleira fólk en í Vestur-Pak-
istan. En afturhaldsmennimir í ríkisstjórn Vestur-
Pakistans vom ekki tilbúnir að víkja úr sæti fyrir
réttkjörnum fulltrúum alþýðu manna.
f þess stað ætla þeir að ganga milli bols og höfuðs
á þjóðfrelsishreyfingunni. í því skyni hafa stjómar-
hermenn myrt, rænt og ruplað í Austur-Pakistan.
Ástandið þarf ekki frekari lýsingu en að minna á, að
níu milljónir hafa flúið til Indlands undan stjómarlið-
um, yfirgefið aleigu sína og kosið hungurgöngu í
framandi landi fremur en að una ofríki valdhafanna.
Nú mætti ætla, að það væri í samræmi við alþýðu-
ást kínverskra kommúnista, að þeir réttu þjóðfrelsis-
hreyfingunni í Austur-Pakistan hjálparhönd. Þama
er þó augljósasta dæmið, sem fyrirfinnst, um upp-
reisn alþýðunnar gegn einræði afturhaldsmanna. En
þessu er ekki að heilsa.
Þvert á móti á ríkisstjóm Pakistan enga vini betri
en kínverska kommúnista. Kínverskir forystumenn
eru tilbúnir að stuðla að því með vopnum og fé, að Ja
fa Kan sitji við völd í trássi við almenning.
Hvers vegna? Af þeirri einföldu ástæðu, að kín-
verskir kommúnistar halda, að Jaja Kan muni sigra.
Rogers utanríkisráðherra
er enginn vikadrengur
Rogers er einna kunnastur fyrir friðarviðleitni í Mið-Austurlöndum og friðartillögumar, sem
voru við hann kenndar og leiddu til vopnahlés þar. Nú er mikil hætta á, að stríð brjótist út
þar, en Afríkuleiðtogar reyna að miðla málum. Á myndinni eru Afríkumennirnir Senghor
frá Senegal og Gowon frá Nígeríu (thægri) en milli þeirra eru Golda Meir og Zalman forseti
Israels.
Það hefur löngum ver
ið haft við orð, að utan-
ríkisráðherrar Bandaríkj
anna hafi aðeins verið
vikadrengir forsetanna.
I flestum tilvikum hefur
þetta verið nálægt lagi,
þótt undantekningar séu
til, svo sem í tíð Eisen-
howers, en þá var oft
sagt, að utanríkisráð-
herrann, John Foster
Dulles, væri „forseti“
en ekki Eisenhower. —
William P. Rogers er
ekki vikadrengur Nix-
ons þótt forsetinn ráði
mestu um stefnuna, eins
og bandaríska kerfið ger
ir ráð fyrir.
Svipaður ferli Nixons
Utanrikisráðherra Bandaríkj-
anna. sem heimsækir ísland um
þessar mundir. er gamall vinur
Nixons. Þeir kynntust, þegar
þeir voru samtímis iiðsforingjar
I sjóhemum árið 1942. Ferill
þeirra varð svipaður upp frá
því
William P. Rogers er sagður
atorkusamur starfsmaður, sem
heldur sínu jafna geði, hvað
sem á bjátar. Hann er sagður
viöfelldinn maður og greindur,
sem er fljótur að nema stað-
reyndir og hefur sýnt þá hæfi
leika bæöi sem lögfræöingur og
diplómat. Á þessa hæfileika reyn
ir slfellt. Rogérs er víðförull
maður í ráöherrastarfi slnu, og
hann hefur unnið mikið starf
við bætta sambúð Banda-
ríkjanna og Kína og friðarvið-
leitni 1 deilum ísraelsmanna og
Araba.
Rogers er 58 ára, fæddur 23.
júní 1913 I Norfolk og var fað
ir hans umboðsmaður trygginga
félags Móðir hans lézt, þegar
hann var 13 ára, og eftir það
ólst hann upp hjá afa sínum
og ömmu
Vann fyrir sér með
uppþvotti og burstasölu
Hann tók lögfræðipróf og
vann fyrir sér með uppþvotti,
burstasölu og umboðsmennsku
fyrir hljómsveitir, auk þess sem
hann fékk nokkum námsstyrk.
Hann varð fimmti I sínum ár-
gangi á lögfræðiprófinu
Thomas E. Dewey, sem síðar
keppti við Truman forseta í for
setakosningum, gerði Rogers að
aðstoðardómsmála„ráðherra,‘
New York.
Eftir aðra heimsstyrjöld varð
Rogers aðalráðunautur þing-
nefndar, sem gerðj „úttekt" á
varnarmálum, og síðar varð
hann ráðunautur fjárhagsnefnd-
ar og fletti ofan af fjársvikum
í því starfi.
Umdeild „afhjúpun
kommúnista"
Um þær mundir var Nixon
þingmaður 1 fulltrúadeildinnL
IIIIIIIIUII
Umsjón: Haukur Helgason
Þeir unnu þá báðir að afhjúp
un kommúnista I stjórnarkerf-
inu, en þau mál urðu fræg og
mjög umdeild, og eru það enn.
Eisenhower skipaði Rogers
dómsmálaráðherra sinn árið
1957. Rogers varð mjög náinn
forsetanum og einkum Nixon,
sem var varaforseti Þegar Eis-
enhower fékk hjartaáfall árið
1955 og árið 1958, og líkur
voru til, að Nixon tæki við for
setadómi, kvadd; Nixon Rogers
sér til ráðuneytis.
Vinfengi við
Fulbright
Rogers hefur tekizt að eiga
gott samstarf viö þingmenn, en
demókratar hafa sem kunnugt
er meirihluta á þingi, og þeir
hafa gert Nixon marga skrá-
veifuna.
Friðu. hefur hins vegar aö
mestu rfkt milli Rogers per-
sónulega og þingheims. Ful-
bright þingmaður sem hefur ver
ið grimmasti gagnrýnandi Víet-
namstriðsins er félag; Rogers
í golfleik oft á tíðum.
Rogers er 1,85 sm á hæð,
kvæntiy skólasystur sinni, Ad-
ele Langston, og eiga þau þrjá
syn; og eina dóttur.