Vísir - 05.01.1972, Side 6
VÍSIR . Miðvikudagur 5. janúar 1972.
6
cjsa
Á meðan núverandi ástand er í tryggingamálunum geta kaupendur nýrra bíla ekki ekið þeim
um götumar.
BÍLAVIÐSKIPTIN HAFA
STÖÐVAZT í LANDINU
Nýir bilar og nýseldir fá ekki skoðun. Bila-
tryggingarnar fil meðferðar i þremur ráðu-
neytum. Rætt um 5-10.000 kr. sjálfsáhættu
■ Engin bílaviðskipti geta
nú átt sér stað f landinu
vegna þeirrar ákvörðunar
tryggingafélaganna, að gefa
ekki út ný tryggingarskírteini
fyrr en ríkisstjómin hefur tek
ið ákvörðun um það, hvaða
hækkanir hún leyfir á iðgjöld
um ábyrgðartrygginga bif-
reiða. Beiðni tryggingafélag-
anna um hækkun frá því í
marz í fyrra hefur ekki enn
fengið afgreiðslu stjórnvalda.
Eins og skýrt hefur verið frá
ákváðu tryggingafélögin að á-
byrgjast þær bifreiðir, sem þeg
ar væru tryggðar hjá þeim fyrir
áramótin til 20. jan. án þess að
gefa út ný tryggingarskírteini.
Nýinnfluttar bifreiðir til lands-
ins liggja því margar nú ónot-
hæfar, þar sem þær fá ekki trygg
ingu og geta þar af leiðandi ekki
fengið skoðun hjá Bifreiðaeftir-
liti ríkisins. Að þvi er Vísir hef
ur kannað, er hér um allmargar
bifreiðir að ræða. Þá geta við-
skipti með notaðar biifreiðir ekki
átt sér stað, þar sem tryggingar
skírteinin eru bundin við nafn
eigenda.
Eins og skýrt hefur verið frá
fóru tryggingafélögin fram á
45,6% hækkum iðgjaldanna, en
þessi beiðni stendur anzi mikiö
í ríkisstjórninni. Ef þessi hækk
un verður samþykkt þýðir hún
hækkun vísitölunnar um rúml.
þriðjung úr stigi eða sem jafn-
gildir um 80 milljónum króna.
Heyrzt hefur, að ríkisstjórnin
ætli sér „að plata systemið" með
því að láta taka upp 5—10.000
kr. sjálfsáhættu í ábyrgðartrygg
ingunum og leyfa jafnframt ein-
hverja hækkun iðgjaldanna.
FuIItrúar . tfyggingafélaggnna
munu vera orðfiir allþungir í
framan vegna þeirrar tregöu, er
verið hefur í svörum opinberra
aðila við málaleitan þeirra. Og
hefur aöeins tvisvar sirnnum bor
izt svar við bréfum trygginga-
félaganna, en bréf þeirra nema
„legió".
En það eru fleiri en trygginga
félögin sem eru þung í fram-
an. Eirnn ónafngreindur bfleig-
andi, sem Vísir hafði samband
vrð í morgun sagöist hafa gert
sem 1 hans valdi hefði staðið að
fá nýjan amerískan bíl sinn
tiyggðan, jafnvel boðið að
greiöa tvöfalt iðgjald gegn end-
urgreiðslu síðar. — Ég er búinn
að selja hinn bílinn, en nýi eig-
andi hans getur ekki fengið
hann tryggðan og getur þar af
leiðandi ekki notað hann. Nú, ég
á ekki þann bfl lengur, svo að
í raun má ég ekki nota hann
heldur. þó að ég geri það, auð-
vitað við heldur litla hrifningu
nýja eigandans.
Bílatryggingamálin eru nú
komin tid kasta þriggja ráðu-
neyta og eru fulitrúar trygginga
félaganna á flökti milli þeirra
til að fá afgreiðslu mála sinna.
Það er viðskiptamálaráðuneytið,
sem hefur með veröiagsmál að
geta og venður þyí, að sam-
þyfckja hækkun. Tryggingaráðu
neytið er hins vegar yfir trygg
ingum í landinu, en dómsmála-
ráðuneytið veitir leyfi til tiygg
ingastarfsemi og því ber aö sjá
til þess að kanna, hvort félögin
geti rekdð starfsemi sína á hei'l
brigðum grundvelild. — Eikki er
Ijóst upp á hvaða ráðuneyti
stendur núna. — VJ
Auglý:ing
Dönsk stjórnvöld bjóða fram fjóra styrki
handa íslendingum til háskólanáms í Dan-
mörku námsárið 1972—73. Einn styrkjanna
er einkum ætlaður kandídat eða stúdent, sem
leggur stund á danska tungu, danskar bók-
menntir eða sögu Danmerkur, og annar er
ætlaður kennara til náms við Kennaraskóla
Danmerkur. Allir styrkirnir eru miðaðir við
8 mánaða námsdvöl, en til greina kemur að
skipta þeim, ef henta þykir. Styrkf járhæðin er
áætluð um 1.308 danskar krónur á mánuði.
Umsóknum um styrki þessa skal komið til
menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6,
Reykjavík, fyrir 15. febrúar 1972. Umsókn
fylgi staðfest afrit af prófskírteinum ásamt
meðmælum, svo og heilbrigðisvottorð. Sér-
stök umsóknareyðublöð fást í menntamála-
ráðuneytinu.
Menntamálaráðimeytið,
30. desember 1971.
Ódýrari
en aárir!
Shodh
ÍFIGM
ur með
SYR
Breiðholtsbúi, sem ekki er á-
nægður með jólagjöf strætis-
vagnanna skrifan
„Það er ekki nóg að fá vagn-
ana á morgnana, við þurfum að
fá þá á kvöldin líka. Strætis-
vagnaferðimar hingað eru í ó-
lestri og þrátt fyrir jólagjöf SVR
hefur þeim ekki verið kocnið í
lag. Þó þetta sé Breiðholt þá er
það samt stærsta hverfi bæjar-
ins.
Hvernig væri það nú, að SVR
gæfi okkur íbúunum nýársgjöf
og fjölgaði ferðum og láti t. d.
vagnama ganga lengur en til kl.
sjö á 20 minútna fresti. Það eru
margir. sem ljúka ekki vinnu
. sinni iyrr en þá, menn eru aö
fara héim I kvöldmatinn al'lt til
klukkan niu á kvöldin. — Væri
ekki hægt að lengja þann tima,
sem vagnamir ganga á 20 mín.
fresti? Bæta tvedm klukkustund
um við. Ég tel það lágmarksþjón
ustu.
Sigurður Hólm.
Um dans-
skólana
Ari skrifaís
„Ég er sammála mannlnurn,
sem skrifaði hér í blaðið um
danskennara,,mafíuna“ er ber
nú orðið aWtaf fyrir sig ein-
hverju danskennarasambandi
eins og þar sé um einhver al-
þjóðaiög að ræða. — Fyriirfram
greiðsian finnst mér vægast sagt
hæpin, — jafnvel þó að þetta
háa samband (er ekki orðið sam
band fulistórt fyrir 5 eða 6
menn?) fyrirskipi hana.
Og vitaniega er spilað á tii-
finningar bamanna, þegar jóia-
ballið er anars vegar. Það var
gott, þegar dansskólamir risu
hér hver á fætur öðrum. Bkki
veitir af að auka sjálfstraust Is-
lendinga á dansgólifinu. — Hitt
finnst mér verra, þegar svo virð
ist komið að skóiamir em rekn
ir af gróðaffkn eingöngu. Sjálf
ur hef ég horft á æfimgu hjá
bömunum mínum og verð að
segja, mér fannst líti til „dans
kennsiunnar" koma. Sialdanhe-f
ég séð kennara jafn áhugalitla
og einmitt danskennarana (sem
reyndar voru ekki þeir kennar-
ar, sem skráðir voru fyrir skól-
ann). Og gleymist að senda bam
með aurana á nákvæmlega rétt
um tíma em þau rekin heim með
nótu (ég held bara undirritaða
af hinu háa danskennarasam-
bandi) þar sem vonbrigði em lát
in í ljós um að bamiö skuii ekki
hafa komið meö aurana, sem vit
anlega áttu að fara strax inn á
banka tii að fá svoiitia vexti af
þeim. Hugsið ykkur um dans-
kennarar. Þið emð nauðsyniegir,
en þið megið til að dansa tangó-
inn af örlítið minna kappd en nú
er gert“.
HRINGIÐ í
SlMA 1-16-60
KL13-15
---m u rbra u ðstofan |
\A
B<JQRI\lir\lfM
Njálsgata 49 Sími 15105
Auglýsingadeild
VfSIS
ER TIL HÚSA AÐ
HVERFISGÖTU 32
Opið alla virka daga kl. 9-18
nema laugardaga kl. 9-12
SÍMAR 11860 og 15610