Vísir - 24.02.1972, Blaðsíða 3
Visir. Fimmtudagur 24. febrúar 1972.
3
Stöðugt fjölgar
í Sandkassanum!
Nú er ekki eftir nema ein
einasta sýning til viðbótar á
þjóðfélagsádeilu Kent An-
derssen, „Sandkassanum”, en
sú sýning er i Lindarbæ i
kvöld.
Uppselt hefur verið á vel-
flestar sýningar hinna leik-
listarglöðu unglinga i Lindar-
bæ, og ennfremur hefur leik-
flokkurinn sýnt „Kassann”
viða um borgina, bæði á
vinnustöðum og i skólum,
fundum og mannfögnuðum.
Telja ungmennin það ekki úti-
lokað að fara með nokkrar
slikar sýningar til viðbótar, þó
að almennum sýningum i
Lindarbæ ljúki i kvöld.
Þá er það og i bigerð að fara
með leikinn út á land, en engar
sýningar eru þó ákveðnar enn-
þá utan borgarinnar.
Svo sem fram hefur komið i
fréttum eiga leikararnir i
Sandkassanum það sameigin-
legt að biða og vona, að senn
verði settur á stofn rikisleik-
listarskóli, en öll vilja ung-
mennin verða sér úti um hald-
góða leiklistarmenntun. Var
stofnað til sýninganna á Sand-
kassanum með það beinlinis
fyrir augum að vekja athygli á
þörfinni fyrir rikisleiklistar-
Hafa stöðugt bætzt fleiri og
fleiri ungmenni i hópinn á
undanförnum vikum, og áhugi
þeirra allra er óneitanlega
mikill.
Að sögn krakkanna i Sand-
kassanum hafa sýningarnar i
Lindarbæ „borgað brúsann”
að mestu, en tekjurnar af sýn-
ingunum utan Lindarbæjar
hafa orðið hreinn ágóði.
Enginn leikendanna hefur
þegið laun, en ágóðanum
hefur verið ákveðið að verja
til áframhaldandi leiklistar-
starfsemi og þá fyrst og
fremst uppfærslu á nýju leik-
verki innan tiðar. — ÞJM
Árni Blandon heitir hann þessi hýri piltur, en hann fer með hlutverk
lærdómshestsins i Sandkassanum.
Merkja merkisstaði
- frá náttúrufræðilegu sjónarmiði séð
Reykjavik og umhverfi luma á
náttúruundrum, sem fáir þekkja
til nema þá sérfræðingarnir. Nú
ætiar Náttúruverndarnefnd
Reykjavikur að gefa fólki nokkra
innsýn i þau furðuverk, sem m.a.
jarðsagan er.
1 vor verður komið upp skiltum
við ýmsa staði i Reykjavik, sem
þykja merkilegir frá náttúru-
fræðilegu sjónarmiði. Þar má
nefna Háubakkana við Súöarvog,
þar sem hægt er að sjá öll jarðlög
Reykjavikur, ýmsa staði i öskju-
hlið, og klappirnar við Artúns-
höfðann verða einnig merktar.
Eitt slikt skilti er þegar komið
upp. Það er i Nauthólsvikinni,
sem flaggar reyndar öðru skilti,
sem allir kannast við — þessu
með, að sjórinn sé óhæfur til
baða. — SB —
Þjóðleikhúsið fer ekki
á nauðungaruppboð
— en er í fjárþröng samt
„Það er búið að greiöa þennan
fasteignaskatt núna og þvi verður
ekkert nauðungaruppboð”, sagði
Guðlaugur Rósinkrans þjóðleik-
hússtjóri i samtali við Visi.
Búið var aö auglýsa uppboð á
leikhúsinu vegna skulda og sögðu
sumir i gamni að Leikfélag
Reykjavikur myndi bjóða i húsið.
En Guðlaugur sagði, aö einhver
dráttur hefði orðið á millifærslu
ráðuneytanna vegna greiðslu á
fasteignaskatti frá i fyrra og þess
vegna hefði auglýsingin birzt.
Búið Væri að draga þessa skuld
frá framlagi rikisins til Þjóðleik-
hússins á þessu ári og málið þar
með úr sögunni.
Guðlaugur Rósinkranz sagði
framlag rikisins til leikhússins
vera alltof knappt. Það framlag
væri byggt á launum og verðlagi
einu og hálfu ári áður en féð kæmi
til útborgunar að fullu. Þess
vegna vantaði raunverulega
alltaf fé, þótt sýnt væri fyrir fullu
húsi og inn kæmu góðar tekjur.
t maimánuði færi rikið að gera
fjárhagsáætlun fyrir næsta ár á
eftir, og þá væri framlagið til
Þjóðleikhússins miðað við verð-
lag á þeim tima. Vegna sifelldra
hækkana á rekstrarkostnaði væri
upphæðin raunverulega alltaf á
eftir þörfinni.
- SG.
Norræn vegalög samræmd
Samræmdar reglur um umferð á
vegum á Norðurlöndum öllum
munu taka gildi 1. janúar næst-
komandi. Norski samgönguráð-
herrann Steen skýrði frá þessu á
fundi Norðurlandaráðs á þriðju-
dag.
Hann sagði, að hugsanlegt væri,
að reglurnar tækju gildi smám
saman um þetta leyti og færi það
eftir þvi, hve miklu þyrfti aö
breyta i löndunum. — HH
í s^ijili
Kviðlingar á kaupféiagsfundi.
Þar sem tveir Þingeyingar eða
fleiri eru samankomnir, fljúga
kviðlingarnir brátt. Þannig var
það lika á dögunum á aðalfundi
Kaupfélags Þingeyinga, elzta
kaupfélags landsins, sem þá hélt
upp á 90 ára afmælið. Afmælis-
gleðin stóð i tvo daga, á laugar-
daginn var og sunnudag. Margt
var til skemmtunar, margar
ræður og margir heiöraðir. Þetta
afmælisár var ákaflega hagstætt
hjá K.Þ., vörusalan óx um fjórð-
ung, og var rekstrarhagnaðurinn
rúmlega 2.4 milljónir króna. For-
maður félagsstjórnar K.Þ. er Úlf-
ur Indriðason bóndi á Héðins-
höfða, en kaupfélagsstjóri er
Finnur Kristjánsson.
Kona i ábyrgöarstöðu hjá þvi
opinbera.
Kona hefur tekið við miklu
ábyrgðarstarfi hjá þvi opinbera.
Forseti Islands hefur skipað Ingi-
björgu R. Magnúsdóttur deildar-
stjóra hjá heilbrigðis og trygg-
ingamálaráðuneytinu frá 1. nóv.
1971 að telja. Er Ingibjörg eina
konan, sem gegnir sliku embætti
hér á landi.
Þór Vilhjálmsson kjörinn for-
maður Lögfræðingafélagsins.
Hressilegu félagsstarfi var haldið
uppi innan Lögfræðingafélags
.íslands á liðnu starfsári, fjöldi
fræðslufunda haldinn og stéttinni
gefinn kostur á endurmenntun á
námskeiði, sem haldið var, en 75
lögfræðingar notuðu sér þetta
tækifæri. Þór Vilhjálmsson var
kjörinn formaður félagsins á
aðalfundinum nú nýlega. Þor-
valdur Garðar Kristjánsson baðst
undan endurkjöri, en undanfarin
6 ár hefur hann verið formaður.
Varaformaður var kjörinn Jóna-
tan ' Þórmuridsson, en aðrir i
stjórn eru þeir Sigurður Hafstein,
Hrafn Bragason, Stefán Már
Stefánsson, Friðrik Ólafsson og
Knútur Bruun.
Engar rauðsokkur.
Þrátt fyrir að fámennur en hávær
minnihlutahópur rauðsokka vilji
rifa niður sem flest „grindverk”
á milli kynjanna.halda kvenstúd-
entar sinu striki. Konurnar
halda uppi öflugu félagi, Kven-
stúdentafélagi tslands. Nýlega
var Ingibjörg Guðmundsdóttir
kjörin formaður félagsins á aðal-
fundi þess. Aðrar i stjórn eru
Brynhildur Kjartansdóttir, Elin
Guðm annsdóttir, Guðrún
Erlendsdóttir, Helga Einarsdótt-
ir, Helga M. Björnsdóttir, Kristin
Kaaber, Nína Gisladóttir, Signý
Sen og Sjöfn Sigurbjörnsdóttir.
Sem sagt, hið vasklegasta liö,
sem "lætur margt jákvætt af sér
leiða.
Ný log um byggingasamvinnufé-
lögin.
Með samvinnu um byggingar
ibúða hefur mörgum manninum
tekizt, með erfiðismunum þó, að
reisa sér og fjölskyldunni þak yfir
höfuðið. Einhverjir agnúar munu
þó vera á löggjöfinni um bygg-
ingasam vinnufélög að áliti
félagsmálaráðherra, þvi nú ný-
lega skipaöi hann 5 manna nefnd
undir stjórn Guðjóns Hansen,
tryggingafræðings og á hún að
endurskoða lögin og semja frum-
varp til laga um byggingasam-
vinnufélög. Auk Guðjóns eru i
nefndinni þeir Björn Hermanns-
son, skrifstofustjóri, Björn Jóns-
son, skrifstofumaður, Hallgrimur
Dalberg, skrifstofustjóri og Þor-
valdur Jóhannesson skrifstofu-
maður.
Iiöftin hefta húsbyggingar lág-
launamannsins.
Höft hafa verið sett á innflutning
á erlendu byggingarefni, og hefur
áður verið sagt frá þeim aðgerð-
um hér i blaðinu. Að áliti bygg-
ingafróðra manna mun niðurfell-
ingin á gjaldfresti virka á þá hús-
byggjendur, sem til þessa hafa
getað fengið lánað i bygginga-
vöruverzlunum vegna þessara
erlendu lána. Meistarasamband
byggingamanna tók málið fyrir á
fundi sinum 5. febrúar og mót-
mælti harðlega ákvörðun þessari.
TEKK-KRISTALL
Skólavörðustíg 16 - Sími 13.111