Vísir - 14.03.1972, Page 1
62. árg. —Þriöjudagur 14. marz 1972 — 62.tbl.
STERKIR STRÁKAR í
TJARNAR-MENNTÓ
Þeir eru sterkir.-strákarnir i Menntaskólanuin viö Tjörnina,
og réttast fyrir stráka úr öörum skólum að iáta stelpurnar þeirra
i friði — annars verður þeim bara lyft upp og fleygt út í Tjörn.
Einn þessara sterku stráka, Rúnar Gislason, geröi sér iitið fyrir
og setti fjögur islandsmet I lyftingum á meistaramótinu, sem
hófst i gær, náði árangri, sem er með þvi bezta sem gerist á
Noröurlöndum i þessari iþrótt. Sjá nánar Iþróttir I opnu
2071, -
eða fyrr?
„Það þarf að endurbyggja
helminginn af þaki gamla
hússins að Litla—Hrauni”,
sagði Jón Thors, i dóms-
málaráðuneytinu, er Visir
ræddi við hann i morgun, en
Jón var ásamt sérfræðingum
að Litla—Hrauni i gærdag að
kann skemmdir.
,,Ég held menn hafi ekki
gert sér alveg grein fyrir þvi
enn, hve miklar þessar
skemmdir eru i peningum —
en þetta er talsvert. Reyndar
kemst nýja álman mjög
fljótlega I gagnið en eldri
byggingin er illa farin”.
Sjá grein bls. 2—3
um fangelsismálin
Frúin með gamla
hattinn karlsins
Tizkunýjungar geta verið
gamlar og eru það ef til vill
alltaf að einhverju leyti. En
það er nýtt, þegar
karlmannahattar eru teknir
fram úr fataskápum, settur
á þá borði og siðan notaðir af
kvenfólkinu við buxna-
dragtir. Frá þessari tizku-
nýjung og fleirum segir á
bls. 7 I blaðinu i dag.
Einkaspœjarinn
fann son Brandos
illa haldinn hjá
hippum
Sjá bls. 5
Lesendur
hafa orðið
Mörg bréf frá lesendum ábls.
2 i dag, — og fjöldi biður
birtingar til morguns —
Blaðamaður ræðir við
lesendur i sima 11660 frá
13—15 daglega.
Síðustu fréttir:
Rétt fyrir hádeg-
ið fundust norsku
skólabörnin
12 eftir
2/o sálarhringa
leit heil á húfi
Sjá bls. 5
Bíða Skeiðarárhlaups
Spenningur meðal vísindamanna — Undirbúa ferð austur
##
Snjóboltaveður
— segja krakkarnir
Mönnum er hollast að gæta sin á hálkunni i dag, hér á götum
borgarinnar. Reyndar verður frostlaust I dag, að þvi Veöurstof-
an segir, en ekki nægilega hlýtt til aö eyða þessari föl sem féll i
nótt.
Þaðer austanátt núna og verður væntanlega áfram á morgun,
og hitastigið er aðeins eitt.
Sennilega verður litilsháttar rigning, en ekki mun hún duga til
að taka upp snjó af götum, að þvi hann Jónas Jakobsson á Veður-
stofunni tjáði Visi i morgun.
Snjókoma er á Vesturlandi allt frá Snæfellsnesi og vestur um
og einnig á norðurlandi. Frost er á þessu svæði frá tveimur og
niður i fimm stig.
Hitastigið er hæst I Vestmannaeyjum, fimm stig, og verður
svo væntanlega lika á morgun, þ.e. óbreytt verður hér sunnan-
lands — en likast til verður ekki mikill snjór fyrir krakka að
byggja stórhýsi úr.
Við rákumst á þessa stráka i morgun niðri i Hallargarði og
þeir sögðu að nú væri snjórinn alveg hæfilega blautur til að
hnoða úr honum snjókúlur. Hvað á að gera við snjókúlur?
Nei nei, við segjum ekkifrá þvi! — GG
Vísindamenn bíða spennt-
ireftir Skeiðarárhlaupinu
sem búizt er við að verði
um eða eftir helgi. Það er
vegurinn yfir Skeiðarár-
sand, sem gerir Skeiðar-
árhlaupið enn forvitni-
legra en áður að þessu
sinni, en í sumar á að
hefja framkvæmdir við
undirbúning að vegalagn-
ingu á Skeiðarársandi.
I dag munu visindamenn frá
ýmsum stofnunum ráða ráðum
sinum um verkaskiptingu og
framkvæmd á athugunum á
þessuSkeiðarárhlaupi. Munu þeir
hafa aðalbækistöðvar i öræfun-
um i Skaftafelli og á Svinafelli og
hafa þyrlu tii notkunar. Ennfrem-
ur er áhugi á að senda leiðangra
til Grimsvatna fyrir og eftir
hlaup.
Ragnar Stefánsson bóndi i
Skaftafelli sagði i morgun að litið
hefði vaxið i Skeiðará yfir nótt-
ina. „Þetta kemur hægt og sig-
andi”. Hann sagði vatniö i ánni
ekki vera orðið nema hálft
sumarvatn. „Það má greina vöxt
dag frá degi samt og vatnið er svo
dökkt, að hlaup er i aösigi og
jökulfýlan er orðin stöðug. „Hann
taldi ekki ósennilegt, að hlaupið
geti orðið um helgi eða i næstu
viku.
Sigurjón Rist vatnamælinga-
maður kom i nótt austan af sönd-
um þar sem hann hefur verið við
mælingar, en nokkrir dagar eru
liðnir frá þvi, að visindamenn
gerðu sér ljóst, að hlaup gæti ver-
ið i aðsigi.
„Ég átti von á þessu hlaupi og
var að mæla þarna árnar með si-
ritandi mæli austur við Sandgigj-
arkvisl en Skeiðarárhlaup getur
alltaf komið þangað vestur á
sand. Þetta eru formföst og vel-
siðuð hlaup, Skeiðarárhlaupin, og
haga sér aíltaf eins, vaxa hægt.
Linuritin úr þessum hlaupum lita
lika allt öðru visi út en ef stifla
brestur, sem skeður mjög snöggt
og dregur hala á eftir sér. Jökul-
hlaupin eru lengi að vaxa og ná
hámarki og detta venjulega niður
á fáum klukkutimum. Skeiðarár-
hlaupin eru vegna þess, að áin er
að vikka farveginn út og jökullinn
gefur hægt og rólega eftir. Það
eru tvö mikilvpg atriði i sam-
bandi við stórhlaup. Annað er, að
það sé mjög mikið vatn og hitt, að
flóðtoppurinn risi mjög hátt. Það
þarf að gera greinarmun á þess-
um tveim atriðum, heildarvatns-
magninu, sem sést af Grimsvötn-
unum þegar hækkar i þeim og
hinsvegar flóðgusunni, en það er
einna afdrifarikast i sambandi
við brúargerðina hyað flóðgusan
ris hátt. Vatnsmagnið er mælt i
rúmkilómetrum og hefur venju-
lega veriö 3-4 kúbikkilómetrar, en
flóðgusan er mæld i teningsmetr-
um á sekúndu, sem getur orðið
breytilegt frá einu hlaupi til ann-
ars eftir þvi hvað hlaupið dreifist
á langan tima. Ef hlaupið kemur
snöggt er flóðgusan stærri. Sið-
ustu hlaup hafa verið 7-10 þúsund
teningsmetrar á sekúndu. Það er
sæmilega þægilegt að bera saman
hlaupin vegna lækkunarinnar,
sem verður á Grimsvötnum, og
það þyrfti að senda leiðangur
þangað núna og eins þegar hlaup-
ið er afstaðið.
Það er ákaflega mikils virði að
fá þetta hlaup núna til þess að
geta rannsakað það og i öðru lagi
eiga ýmsar mælingar að gerast
þarna i sumar og þá er betra að
hafa ekki hlaup yfir höfðinu á sér.
Einnig er óþægilegra að gera
mælingar, þegar kominn er mikill
sumarvöxtur i árnar. Þetta er þvi
mjög þægilegur timi.”
Helgi Hallgrimsson verk-
fræðingur hjá Vegamálaskrif-
stofunni sagði, að visindamenn
væru að búa sig undir að fara
austur, menn frá vegamálaskrif-
stofunni, raunvisindastofnuninr.i
og Orkustofnuninni, einnig mun
Jöklarannsóknafélagið taka þátt
i þessum athugunum.
Mikilvægast sé við þetta hlaup
að það geti lagt til grundvöllinn
að áætlunum um vegagerð yfir
Skeiðarársand og geti haft i för
með sér vissar breytingar á
áætlununum. „Þetta er fyrsta
Skeiðarárhlaupið, sem verður at-
hugað með vegalagninguna i
huga. Það hefur afskaplega mikla
þýðingu að fá þetta hlaup áður en
lokakönnun fer fram á mann-
virkjum.” —SB —
Steinsteypugafl
í stað Esjunnar
„Hérna hefur verið fegurst útsýni i Reykjavík I góðu veðri”.
segir verkfræðingur einn, ibúi við Kleppsveg. Þarna höfðu þeir f
Klcppsholtinu Kollafjörðinn, Viðey, Akrafjall, Skarðsheiði og
Esju fyrir augum. En svo komu skipulagsyfirvöldin til sögunnar
með geysimiklar vöruskemmur með steinsteypta gafla, sem
byrgja útsýniö fyrir fólkinu. Grár steinninn hlasir nú við I staö
landslagsins áður. „Þaö er sorglegt að skipulagsyfirvöldin
skyldu ekki finna aöra leið en þessa”, segir verkfræðingurinn I
viðtali I blaðinu'I dag. SJA BAKSÍÐU
mm