Vísir - 14.03.1972, Qupperneq 5
Visir. Þriöjudagur 14. marz 1972.
5
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
„Þetta er skripaleikur,” segir
Mansfield.
Dauðinn
kvaddi dyra
Leiðtogar þingsins vilja Haukur Helgason
afnema prófkjor í fylkjum
A soma tíma ganga Flórídabúar til spennandi prófkosninga
Meðan frambjóðendur
biða úrslita í próf-
koSningunum i Flórida
fylki i dag, eru próf-
kosningarnar kallaðar
„skripaleikur” á banda
riska þinginu og
óverðugar lýðræðinu.
Tveir áhrifamestu þing-
menn i öldungadeild-
inni, „gömlu jaxlarnir”
Mike Mansfield og
George Aitken lögðu
fram tillögu i gær um, að
hætt yrði við allar próf-
kosingar i fylkjunum, en
i staðinn yrðu próf
kosningar um allt
landið.
Demókratinn Mansfield er
þingflokksformaður flokks sins i
öldungadeildinni, og Aitken er
fremstur repúblikana i utanrikis-
nefnd. Þeir gerðu gys að próf-
kosningum og sögðu, að fram-
bjóðendur fari af stað i kosninga-
baráttu, um leið og þeir „séu
búnir i skólanum”. Mansfield for-
dæmdi það, sem hann kallaði
sirkusandrúmsloft i prófkosn-
ingunum i i fylkjunum.
Með núverandi fyrirkomulagi
eru prófkosningar i mörgum
fylkjum, þarsem margir berjast.
Mansfield-Aitken tillagan þarf að
fá fylgi tveggja þriðju hluta i
bæði öldungadeild og fulltrúaeild,
eigi hún að ná fram að ganga.
Eftir það yrðu þrir fjórðu fylkis-
þinganna að staðfesta hana, áður
en hún yrði að lögum.
Aður hefur verið reynt að
breyta reglum um prófkosningar,
en mistekizt. Mansfield segist
ekki vera ýkjabjartsýnn, á að
eitthvað gangi i ár, en hann lagði
áherzlu á þá skoðun sina, að það
væri knýjandi nauðsyn að gera
eitthvað til,,að bjarga kosninga-
kerfinu”, áður en það yrði of
seint.
Akstur skólabarna aöalmál
Þessi tillaga kom fram á
„versta tima”. t dag ganga ibúar
i Flórida til prófkosninga, og
mikil spenna um úrslitin. Flestir
spá þvi, að George Wallace
fylkisstjóri i Alabama muni sigra
i prófkosningu demókrataflokks-
ins i suðurrikinu Flórida. Wallace
hefur hins vegar enga möguleika
á framboði fyrir demókrata-
flokkinn, enda mun þetta hafa
farið sérstaklega i taugarnar á
Mansfield.
Annars er þess beðið með eftir-
væntingu,. hvernig hlutföllin
verða milli aðalkeppinauta um
framboð demókrata, Edmund
Muskie og Hubert Humphrey. I
prófkosningunum i New Hamphs-
hire, þar sem Muskie fékk mest
fylgið, var Humphrey ekki i
framboði.
I Flórida koma einnig til sög-
unnar meðal demókrata þing-
maðurinn Henry Jackson og John
Lindsay borgarstjóri i New York.
Aðalmálið er, hvort stjórnar-
völd geti fyrirskipað akstur
skólabarna milli staða til að
blanda hvitum og svörtum i
skólana. Þetta er mikið hitamál i
þessu suðurriki, og mun það
verða vatn á myllu George
Wallace.
Þvi er búizt við, að metkjörsókn
verði i Flórida i dag.
Sonur Brandos fannst illa haldinn með hippa
Ungur maður í Belfast
særðist til ólifis í gær-
kvöldi, þegar þrír
óþekktir menn skutu á
hann á dyraþrepum
heimilis hans.
Sjónarvottar segja, að mennir-
nir hafi ekið upp og niður götuna
mörgum sinnum, áður en þeir
staðnæmdust fyrir utan húsið,
þar sem ungi maðurinn bjó.
Þeir hringdu þá dyrabjöllu og
skutu manninn, þegar hann kom
til dyra.
Ekið var með hann til sjúkra-
húss, en þar lézt hann klukku-
stund seinna. Hann mun hafa
verið 19 — 20 ára gamall.
Lögreglan vildi i nótt ekki gefa
upp nafn mannsins eða segja
neitt um tilefni morðsins.
Leikarinn Marlon
Brando fékk i gær leyfi
til að taka 13 ára son
sinn Christian með sér
til Parisar, eftir að það
hafði verið borið fyrir
dómstól, að fráskilin
kona Brandos, Anna
Kashfi, hefði reynt að
fela drenginn i af-
skekktu fiskimanna-
þorpi i Mexikó.
Einkaspæjari, sem Brando
hafði fengið til að hafa uppi á
drengnum, fann Christian með
aðstoð mexikönsku lögreglunnar I
hópi hippa, sem höfðu búðir i
mexikanska þorpinu. Er sagt, að
drengurinn hafi verið hálfnakinn
og sjúkur, þegar hann fannst i
tjaldi.
Leynilögreglumaðurinn, Jay
Armes, sagði réttinum að hanri
hefði notað þyrlu til að finna búðir
hippanna. Mexikanska lögreglan
væri að yfirheyra hippana, sem
voru sex karlmenn og tvær konur.
Einn hippanna sagði, að móðir-
in hefði boðið sér mikið fé fyrir að
hafa soninn hjá sér um skeið.
Anna Kashfi, sem skildi við
Brando árið 1959, neitar að hafa
boðið nokkrum manni fé fyrir að
hafa drenginn. Hún féllst hins
vegar á úrskurð dómstólsins þess
efnis, að Christian skuli vera hjá
Brando i Paris til 21. april. Þá
verði spurningin um, hvort for-
eldra skuli hafa drenginn, aftur
tekin fyrir við dómstólinn i Santa
Monica i Kaliforniu.
TÓLF BÖRN TÝND
Verða að breyta
varnarkerfinu
Bretar verða væntan-
lega að breyta heilmiklu
i vörnum sinum vegna
njósna liðsforingja i sjó-
hernum. Liðsforinginn
hafði gefið Sovétmönn-
um upplýsingar um
varnir Bretlands, og eru
þær taldar hafa verið
mjög mikilvægar.
Njósnastarfsemi hins 31s árs
gamla liðsforingja mun einnig
hafa ógæfuleg áhrif á varnarkerfi
i öðrum vestrænum löndum, að
sögn brezku fréttastofunnar The
Press Association.
Talsmaður brezka varnar-
málaráðuneytisins neitaði í gær-
kvöldi að svara spurningum
blaðamanna um þetta efni.
David Bingham var i gær
dæmdur i 21s árs fangelsi fyrir
njósnir.
Meðal leyndarmála sem hann
sagði Rússum voru upplýsingar
um, hvernig flotadeildir Atlants-
hafsbandalagsins skyldu skipa
sér i striði.
Bretar eru sagðir byrjaðir að
gera nýjar áætlanir nú þegar.
„Helmingur mann-
kyns vannœrður"
Nóbelsverðlaunahafinn dr.
Norman Borlaug segir, að helm-
ingur mannkyns sé vannærður og
heimsfriðurinn geti ekki byggzt á
tómum mögum.
Visindamaðurinn, sem fékk
friðarverðlaun Nóbels árið 1970
fyrir brautryðjendastarf i þróun
nýrra korntegunda, „grænu bylt-
inguna”, sagði á 37. bandarisku
ráðstefnunni um náttúruauðlegð
og dýravernd, að meginverkefnið
i þjóðfélagslegum réttlætismál-
efnum sé að tryggja næga nær
ingarmikla fæðu fyrir allt rnann-
kynið.
Borlaug fjallaði um of-
fjölgunarvandamálið, sem hann
kallaði ógnun við allt menningar-
samfélag á jörðu. Hann benti á
ástandið i borgum eins og New
York, Kalkútta, Dakka, Mexikó-'
borg og Tókió og sagði, að það
mundi fljótt komast á það stig, að
ókleift yrði að stjórna borgunum
skynsamlega. Tækist ekki að
hemja óskapnaðinn, sem of-
fjölgunin væri, mundu vandamál
á mörgum sviðum fljótt verða
háskaleg.
Klukkan fimm i
morgun héldu 70 her-
menn i 14 snjóbílum
áfram leitinni að skóla-
börnum, sem hafa týnzt
á Altevatnssvæðinu suð-
austan Bardufoss, ásamt
kennara og tveimur
öðrum mönnum.
Börnin eru frá gagnfræðaskóla
Maalselv og eru 16—17 ára. Leitin
verður hert, þegar liður á daginn.
Ef veður batnar á þessum
slóðum, verða flugvélar og þyrlur
sendar á vettvang.
Alls tóku 23 börn þátt i skiða-
ferðinni, sem hafði þessar hör-
mulegu afleiðingar. Ellefu þeirra
komu til björgunarstöðva i Innset
við Altevatn seint i gærkvöldi.
Barnanna var saknað á sunnu-
daginn. Þá höfðu tólf nemendur
og kennari skilizt við aðra i
hópnum. Enginn hefur séð þau,
siðan þau fóru frá skála um þrjú-
leytið á sunnudag.
Auk þess er tveggja manna
saknað, sem siðast sáust á sunnu-
dagskvöld norðan Altevatns.
Mesta sprenging mannkynssögunnar
Þetta mun vera öflugasta spreng-
ing mannkynssögunnar, fyrir ut-
an kjarnorkusprengingarnar.
Fyrirtæki i Bandarlkjunum braut
koparnámu með svo öflugum
hætti, og þótti ekki duga minna
til, svo að unnt væri að vinna
koparinn i námunni.
Sprengingin var gerð I Arisona-
fylki og stóð að henni Ranchers-
námufélagið.