Vísir - 14.03.1972, Síða 6

Vísir - 14.03.1972, Síða 6
6 Visir. Þriöjudagur 14. marz 1972. VISIR Otgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: * Fréttastjóri: Ritstjórnarfulltrúi: Auglýsingastjóri: Auglýsingar: Afgreiðsla: Ritstjóm: Reykjaprent hf. Sveinn R. Eyjólfsson Jónas Kristjánsson Jón Birgir Pétursson Valdimar H. Jóhannesson Skúli G. Jóhannesson Hverfisgötu 32. Simar 15610 11660 Hverfisgötu 32. Simi 11660 Siðumúla 14. Simi 11660 ( 5 línuri Askriftargjald kr. 225 á mánuöi inranlands i lausasölu kr. 15.00 eintakiö. Blaöaprent hf. Þegar hœkkun er lœkkun Margir eru óneitanlega orðnir nokkuð ruglaðir i riminu eftir skattaumræður siðustu vikna. 1 dag- blöðum og á alþingi hefur verið slegizt hart með og móti skattafrumvörpunum tveimur, sem rikis- stjórnin hefur nú fengið endanlega samþykkt. Bilið milli hinna gagnstæðu fullyrðinga um frumvörpin virtist breikka undir lokin, og gerði það málið enn flóknara i augum fólks. Hámarki náði slagurinn i Timanum á miðvikudaginn, þegar aðalfyrirsögnin hljóðaði: Skattar lækka á þorra gjaldenda.” Eðlilegt er, að nú verði nokkurt hlé á þessum skattadeilum. Málflutningur andstæðinga skatta- frumvarpanna tveggja hefur undanfarna mánuði einkum beinzt að þvi að hindra framgang þeirra eða fá að minnsta kosti verstu agnúana sniðna af þeim. Þetta hefur ekki tekizt. Næsta lota málsins hefst þvi væntanlega ekki fyrr en i júni, þegar Timinn þarf að fara útskýra fyrir fólkinu með skattseðlana sina, að skattahækkunin sé i raun og veru skattalækkun. Lœkkun skal það vera Á timabili virtist svo sem árangur deilnanna mundi verða meiri. í röðum stjórnarsinna kom fram megn óánægja með stefnu frumvarpanna. Ýmis gagnrýnisatriði, sem fram komu, virtust hafa náð eyrum landsfeðranna. Frumvörpin áttu að koma til annarrar umræðu á alþingi 20. janúar, en komu ekki fram fyrr en 6. marz, þvi að endurskoðun á þeim tók miklu lengri tima en áætlað hafði verið. En þrátt fyrir þessa bið urðu breytingarnar sama sem engar. 1 Um þessar mundir færðist aukinn kraftur i vörn stuðningsmanna frumvarpanna. Dagblöð rikis- stjórnarinnar tóku að stappa stálinu i sina menn, áreiðanlega með það i huga að hindra þá i að hlaupast undan merkjum á örlagastundu. Timinn og Þjóðviljinn kváðu æ fastar að orði og enduðu með þvi að fullyrða, að skattar mundu lækka á þorra gjaldenda. Timinn reiknaði út, að menn þyrftu að hafa yfir 750 þúsund króna brúttótekjur til að fá hærri skatta, og Þjóðviljinn reiknaði út, að meiri hluti fólks hefði innan við 300 þúsund króna brúttó- tekjur. 1 þessu felst sá sannleiksvottur, að skattar til sveitarfélagsins, útsvörin, munu yfirleitt ekki hækka hjá fólki. En það munu hins vegar rikisskatt- arnir gera svo um munar. Enda er ekki hægt að auka með fjárlögum útgjöld rikisins um 50% á einu ári, án þess að krækja sér i tekjur á móti. Og það hefur rikisstjórnin einmitt gert með skatta- frumvörpum sinum. Endimörk reiknilistarinnar Fylgjendur og andstæðingar nýju skattalaganna geta haldið áfram að reikna út áhrif þeirra. Þó er það i sjálfu sér marklitið, þvi að almenningur veit af gamalli reynslu, að út úr slikum dæmum er yfir- leitt hægt að fá hverja þá útkomu sem reiknimeist- aranum sýnist. Og svo koma auðvitað skattseðlarn- ir i sumar. Þá þarf fólk enga útreikninga lengur, heldur sér staðreyndirnar, svart á hvitu. Og þá verður útskýringaþrautin þyngri hjá Timanum og Þjóðviljanum. \\ Hin dæmdu —Clifford Irving, Richard Suskind og Edith Irving. Héldu Hughes of veikan til að verja hendur sínar .Svikarar aldarinnar Upp koma svik um siöir, og þau, sem stóöu aö hinum fölsuöu „endurm inningum ” Howard Hughes, hafa hlotiö dóm. Dóm- stóliinn komst aö þvf, aö þau heföu taliö, aö Hughes væri ann aöhvort látinn eöa svo likamlega eöa andlega vanheill, aö hann mundi ekki geta boriö hönd fyrir höfuö sér, þegar „endurminning- arnar” yröu birtar. Clifford Ir- ving, kona hans og aöstoöar- maöurinn Suskind töldu sér visar tugmilljónir króna fyrir fölsunina. Dómstóll I New York fann rit- höfundinn Irving og „rannsak- andann” Suskind, seka um samsæri. Kona Irvings, Edith, var einnig sek fundin, Hún haföi stoliö nafnskirteini frá konu fyrr- verandi eiginmanns sins, dulbúiö sig og tekiö viö fé, 650 þúsund dölum eöa um 57 milljónum króna, frá útgáfufyrirtækinu McGraw-HiIl, sem ætlaöi aö gefa „endurminningarnar” út i góöri trú, aö þær væru verk Howard Hughes sjálfs, sem heföi lesiö Irving fyrir, Edith hremmdi peningana i svissneskum banka undir nafninu Helga Hughes, og hún og samsærismennirnir bjuggust til aö eyöa þeim og voru komin nokkuö áleiöis meö þaö þegar svikin komust upp. Fékk hugmyndina af timariti. Dómarnir fjalla aöeins um sekt, en eftir er aö kveða á um refsingu. Samtals fela þessir dómar I sér refsingu fyrir sak- borninga, sem er allt aö 100 ára fangelsi: ef lögð verður á hámarksrefsing fyrir hvert brot. Niöurstöður dómsins segja, aö einhvern tima eftir jól árið 1970 hafi Irving komiö fölsunin i hug, eftir að hann haföi lesiö timarits- grein, þar sem greint var frá sér- vizku Hughes og sýndar ellefu handskrifaöar llnur með hendi milljarðamæringsins. Siöan hitti Irving Suskind, sem fékkst við ýmiss konar athuganir gegn þóknun, ellegar kannski frekar „njósnir”, og ræddi við hann um möguleika á að „búa til” sjálfsævisögu Hughes. Nokkrum dögum siðar hittust þeir Irving og Suskind enn á eyjunni Ibiza og urðu sammála um að leggja I þetta fyrirtæki. Léku Hughes til skiptis Þeir kumpánar gerðu „á kveðnar rannsóknir” og sömdu segulbandsupptökur, þar sem þeir skiptust á að leika hlutverk Hughes og viötalanda hans (Irving). Þetta tókst svo vel að lengi vafðist fyrir mönnum, hvort Hughes hefði sjálfur talað á þessi bönd. dœmdir sekir — hómarksrefsing fyrir brotin 100 ór Irving falsaði siðan bréf með Irving hafði fengið rithönd Hughes og önnur skjöl, R7 ~ sem hann hélt svo fram, að hann D< »** niiiijoiin . heföi fengið frá Hughes, Einnig falsaði hann áritun á vegabréf konu sinnar, svo að hún gæti komið fram sem „Helga Hughes”. Stal 1500 siðna afriti i þingbókasafni. Irving og Suskind notuðu margs konar heimildir fyrir verkiö. Töluvert af því var unniö upp úr gögnum í almenningsbókasafni I New York. Þeir notuðu einnig óbirt handrit, sem rithöfundurinn James Phelan hafði tekið saman og voru endurminningar fyrrver- andi aðstoðarmanns Hughes, UMSJON: HAUKUR HELGASON Noah Dietrich að nafni. Þetta verk hafði ekki fengizt útgefið og þótti heldurléleg smiði. Það hafði hins vegar farið um hendur margra I tilraunum höfundar til að koma því á prént, og á þeirri leið komust þeir Irving og Suskind yfir það og gerðu ljósrit. Irving stal I bókasafni banda- riska þingsins I Washington 1500 blaðsfðna afriti af vitnisburði Howard Hughes fyrir þingnefnd, frá árinu 1947. Auðmaðurinn haföi verið kallaður fyrir nefnd- ina í rannsókn hennar á stríðs- gróöa. Clifford Irving, 41 árs, og Edith kona hans, 36 ára, voru dæmd fyrir margs konar lagabrot, samsæri um fjársvik og þrettán lagabrot varðandi glæpsamlegar falsanir og stórþjófnað. Irving og Suskind, 46 ára, voru dæmdir sekir um meinsæri, sem þeir höfðu svarið I janúar, er þeir sögðust fyrir rétti hafa hitt Hughes vegn endurminninganna. Dómstóllinn I New York hafði fjallaö um málið I sex vikur. Útgáfufyrirtækið hafði látið Irving hafa 765 þúsund dali (67,3 milljónir króna) og hlutur Suskinds af fengnum var 65 Þúsunddalir (5,7 milljónir króna). Slíkur falsari var Irving, aö sérfræðingar um skrift og tal höfðu undirritað plögg þess efnis, að þeir væru vissir um, að þar væri Howard Hughes kominn, þegar aðeins var um eftirlikingar Irvings að ræða. IÞRVINGS AÐ RÆÐAÚ Howard Hughes fór, sem kunnugt er, huldu höfði, meðan mál þetta stóð. í fyrstu kom hann fram á blaðamannafundi i sima, og röddin sagði að „endurminn- ingarnar” væru fölsun.Þá hófust miklar getgátur um það, hvort „röddin i slmanum væri fölsun eða ekki”, Niðurstöður rann- sóknar, sem þá hófst, eru þær sem hér er sagt frá. Búizt er við að Edith og Suskind muni fá skilorðsbundna dóma, en Irving sjálfur verði sendur I fangelsi, enda hafi hann verið potturinn og pannan i þessum „svikum aldarinnar”. Skyldi Howard saman? Hughes hafa glott yfir öllu

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.