Vísir - 14.03.1972, Síða 7
Visir. Þriðjudagur 14. marz 1972.
Sitt af hvoru tagi
Umsjón:
Svanlaug Baldursdóttir
tízku
Það lifnar yfir flestu, þegar
daginn lengir. Og það er ekki til-
viljun, að fataframleiðendur
hafa sýningar á framleiðslu
sinni einmitt, þegar liður að
vori. Flesta langar þá til að
endurnýja sig dálitið, kannski
með þvi að fá sér eitthvað nýtt i
klæðaskápinn.
Myndirnar á siðunni koma
úr ýmsum áttum, en eiga það
sameiginlegt að vera það, sem
verður i tizku i sumar. Sumt er
ekki alveg nýtt af nálinni, ef
miðað er við það, sem sézt hefur
hér heima i verzlunum. Þar
kemur þó annað til. Nýjungar i
klæðnaði koma hingað mun fyrr
en áður var og jafnvel fyrr en til
nágrannalandanna. Skórnir
með þykku sólunum sáust hér
t.d. i fyrra. en þeir munu senni-
lega slá alveg i gegn i sumar
jafnvel hjá þeim, sem hafa haft.
einhverjar efasemdir um þá
áður.
Skórnir eru undantekningar-
laust með þykkum sólum og
hælum og yfirleitt úr leðri.
* **. - :
■ ■ og skór úr leðri
Skreytingin er auga eða munnur, sem þóttu
einna sniðugustu tréskórnir á dönsku skó-
sýningunni.
Fyrir skömmu héldu danskir
skóframleiðendur sýningu á
bæði innfluttri og innlendri
vöru, skófatnaði. Tréskórnir eru
þar enn sem fyrr vinsælir.
Sumir þeirra eru með hærri hæl
en áður.
I Paris hefur hinn þekkti hár-
greiðslum. Alexandre sýnt
vorhárgreiðsluna, sem sést á
einni myndinni. Hárið er stutt-
klippt og slétt, en toppurinn er
látinn sveigjast upp og hliðar-
Herrahatturinn í nýrri útgáfu
hárið beygist fram. Það mun
vera auðvelt að gera þessa
greiðslu heima fyrir með þvi að
nota handhárþurrku eða lokka-
töng, ef einhverjar eiga slika.
Hatturinn virðist vera að
koma aftur i tizku, eftir að
Vorgreiðsla frá
Paris.
a.m.k. yngra kvenfólk hefur
gengið i nokkur ár höfuðfata-
laust yfir sumartímann. Ýmsar
útgáfur eru til af vorhattinum
bæði með og án slörs. En sá
skemmtilegasti er kannski
gamli herrahatturinn, sem er
nú i hátizku — jafnvel á konum.í
biaðinu, sem þessi mynd birtist
i, var mælt með þvi að setja
breitt band i kringum kollinn og
hafa hattinn við jakka og sið-
buxur.
—SB-
Frá vöggu til grafar
Fallegar skreytingar
Blómvendir i mik
úrvali.
Daglega ný blóm
Mikið úrval af
■nýjum vörum. —
Gjörið svo vel að lita
inn.
Sendum um allan bæ
Silla og Valdahúsinu
Álfheimum 74. Simi 23523.
Herbergi
Reglusöm stúlka óskar eftir herbergi,
húshjálp getur komið til greina. Upp-
lýsingar i sima 24680 eftir kl. 6.
HJÁLP
Kona með 3 börn óskar eftir ibúð um
mánaðamótin. örugg greiðsla. Reglu-
semi.
Upplýsingar i sima 20854 milli 5 og 7.
Pressa til sölu
Viljum selja glussapressu, sem getur
pressað allt að 150 kg á fercm. Gæti hentað
vélaverkstæðum til ýmissa nota, t.d. rétt-
ingar á stáli. Upplýsingar gefur Jóhannes
Borgfjörð, simi 11660 kl. 8—17 alla daga.
BARNASTOLAR
með öryggisbeltum
LEIKFANGAVER
Klapparstíg 40 - Simi 12631