Vísir - 14.03.1972, Blaðsíða 8

Vísir - 14.03.1972, Blaðsíða 8
 BYRJUÐU FYRIR 3 ARUM - ERU NÚ í ÚRSLITUM! r Grótta ó heimaleikinn fyrst í úrslitum 2. deildar gegn Armanni Það eru ekki nema þrjú ár síðan Gróttuliðið sást fyrst i 2. deildinni í hand- knattleik. Strax i byrjun voru Seltirningarnir hress- ir og kátir leikmenn, og vildu ógjarnan verða af stigunum. Fyrsta árið urðu þeir 3. í deildinni og sama sæti skipuðu þeir i fyrra. t ár eru Gróttumenn i úrslitun- um i 2. deild gegn Armanni, unnu sinn riðil glæsilega. Fyrri leikinn eiga þeir heima. Leikurinn fer fram i iþróttahúsinu á Seltjarnar- nesi á fimmtudagskvöldið kl. 20.30. Heimaleikur Ármanns er svo i iþróttahöllinni i Laugardal 22. marz. „Öneitanlega geri ég mér góöar vonir með mitt lið”, sagði Stefán Agústsson, fomaður Gróttu i gær. „Möguleikar okkar eru miklir, þvi liöið er i stórframför hjá okk- ur, — Armanni hefur hinsvegar hrakað verulega að mér finnst”. — Og hvað svo um 1. deildina? „Ég reikna með að þaö mundi ganga erfiðlega þar. Dæmið mundi gjörbreytast hjá okkur frá þvi sem verið hefur i vetur. Areiðanlega mundum við verða þar i fallhættu. Hinsvegar höldum við áfram að byggja upp yngri flokkana okkar, ágætir leikmenn eru i 2. og 3. flokki, og næstu árin veröa þeir teknir inn i liðiö. Það má þvi segja aö við séum mjög bjartsýnir á framtiöina”, sagöi Stefán. — JBP - Tvö heimsmet í lyftingum A móti i Ulm i Vestur-Þýzka- aði 120 kg. i fluguvigt — 2.5 kg. landi nýlega voru sett tvö ný meira en gamia metið. heimsmet i iyftingum. Adam i fjaðurvigt pressaði Ungverj- Gnatov frá Sovétrikjunum setti inn Imri Foeldi 137.5 kg. — og nýtt heimsmet, þegar hann press- bætti eldra heimsmet um hálft Vlsir. Þriðjudagur 14. marz 1972. Visir. Þriðjudagur 14. marz 1972. sjötta sinn til keppni í Polarcup — og leikmennirnir verða með auglýsingar á búningum „Þaðer ekkert því til fyr- irstöðu, að íslenzka lands- liðið i Polarcup í körfu- knattleik verði með auglýs- ingar á búningum leik- manna", sagði einn af forustumönnum keppninn- ar, þegar KKI leitaði álits Svía um þettaatriði.Og það verða því körfuknattleiks- menn okkar, sem riða á vaðið með auglýsingar i landsleikjum og standa nú yfir samningar hverjir auglýsa. Sjötta Polarcupkeppnin, sem er Noröurlandamót, verður háö i Stokkhólmi um næstu mánaða- mót og taka allar Noröurlanda- þjóöirnar þátt I keppninni aö venju. Slik keppni var háð fyrst I Stokkhólmi 1962 og nú er búið að fara hringinn - halda hana i öllum Noröurlöndunum og þvi er komið aö Stokkhólmi aftur. island hefur verið með i þessari keppni frá byrjun og alltaf orðiö i sama sætinu - þvi þriðja - og rööin hefur reyndar alltaf verið hin sama frá upphafi, Finnar i efsta sæti, þá Sviar, siðan Islendingar, Danir og Norðmenn hafa rekiö lestina frá þvi þeir hófu þátttöku i keppninni. Tólf leikmenn halda til Stokk- hólms 29. marz og eru þeir þessir. Frá Armanni Björn Christensen og Jón Sigurösson. Frá 1R Agnar Friðriksson, Birgir Jakobsson og Kristinn Jörundsson. Frá KR Einar Bollason, Bjarni Jóhannes- son, Kolbeinn Pálsson og Kristinn Stefánsson. Frá UMFS Gunnar Gunnarsson og frá Val Þórir Magnússon og Kári Marisson. Fararstjóri verður Hólmsteinn Sigurösson, þjálfari Guðmundur Þorsteinsson, og frá landsliðs- nefnd fara Ólafur Thorlacius og Björn Jóhannsson. Einn islenzkur dómari dæmir i keppninni, Erlendur Eysteinsson. Fyrsti leikur islands verður við Norðmenn 31. marz. Daginn eftir 1. april verður róðurinn mjög þungur, en þá mætir islenzka liðiö fyrst þvi sænska og svo þvi finn- ska siöar um daginn. Siðasti leik- ur íslands verður við Dani 2. april. Stefnt er aö þvi, að islenzku landsliðsmennirnir veröi i æfingabúðum 25. og 26. marz. - hsim. Nú fann Derby engan lykil að vopnabúrinu — og Arsenal vann 1-0 i bikarkeppninni þó Derby œtti 75% af leiknum Meistarar Arsenal eru komnir i sjöttu umferð ensku bikarkeppninnar, sem veröur háð á laugardag. i gærkvöldi sigraði Arsenal Derby County með eina mark- inu, sem skorað var í leiknum. Frábær vam- arleikur Arsenal tryggði þann sigur, þótt svo Derby-leikmennirnir næðu yfirtökum í leikn- um og væru í sókn um 75% af leiktímanum. En þeim tókst aldrei að rjúfa skörð í varnarvegg Arsenal — fundu aldrei lykil til að opna vopna- búrið og því standa leik- menn Arsenal uppi sem sigurvegarar í leiknum og mæta nágrönnum sín- um i Lundúnum — 2. deildarliðinu Orient — i sjöttu umferð, en Orient hefur unnið það afrek i keppninni að sigra bæði Leicester og Chelsea. Þetta var i þriðja sinn, sem Arsenal og Derby mættust i 5. umferðinni og nú var leikið á Fil- bert Street, leikvelli Leicester. Hver einasti aðgöngumiði seldist — áhorfendur voru yfir fjörutiu þúsund. Derby byrjaði með miklum krafti — eins og leikmenn liðsins ætluðu að greiða mótherjum sin- um rothögg þegar i fyrstu lotu. En þetta fór á aðra leið —■ og hvi- lik gjöf var leikmönnum Arsenal allt i einu færð. John McGovern, hinni ungi, skozki framvörður Derby var með knöttinn á fjórðu min. og gat gert við hann allt sem hann vildi — enginn truflaði hann. En allt í einu og algerlega að óþörfu gaf hann knöttinn aftur — ætlaði markmanni sinum Boulton hann, en þetta fór á aðra leið. Sendingin var algjörlega mis- heppnuð. Ray Kennedy fékk knöttinn rétt fyrir framan vita- teig — lék áfram og spyrnti efst i markhornið. 1-0. Þetta mark mótaöi leikinn. Arsenal hugsaði mest um aö tryggja það, sem liðinu hafði hlotnazt — halda þessu eina marki. Varnarleikurinn var geysisterkur meö fyrirliðann Frank McLintock i broddi fylk- ingar, og vissulega þekkti þessi fyrrum Leicester-leikmaður allar aðstæðurá Filbert Street. Völlur- inn var lika frábær '— þakinn plasti, þegar ekki er leikið. Arsenal var með niu manna varnarvegg — aðeins þeir Charlie George og Ray Kennedy voru broddar i sókninni og vissulega geta þeir verið stórhættulegir i snöggum upphlaupum — en George féll nú algjörlega i rang- stöðunet Derby. Og leikurinn sniglaðist áfram. Derby sótti, Arsenal varöist og svo frábær var varnarl. Lun- dúnaliðsins að mark þess komst varla i hættu. Þó tókst irska bak- verðinum Pat Rice eitt sinn að hreinsa af marklinu Arsenal um miðjan siðari hálfleikinn. En það var það lengsta, sem Derby komst. Undir lokin fór varamað- ur Derby — Terry Hennessey inn á i stað McGovern og McFarland var drifinn i sóknina — en ekki tókst að bjarga leiknum. Arsenal notaði ekki varamann sinn, John Radford, en þess má geta að hann lék gegn Newcastle sl. iaugardag, en Frank McLintock var þá ekki með. Eins og áöur segir mætir Ar- senal nágrönnum sinum i Austur- Lundúnum i sjöttu umferð og verður leikið á leikvelli Orient — Leyton Stadion. Leikurinn verður á laugardag. Aðrir leikir i um- ferðinni eru milli Leeds- Tottenham á Elland Road i Leeds, Manch. Utd.-Stoke á Old Trafford i Manchester, og Bir- mingham-Huddersfield á St.Andrews-leikvanginum i Birmingham. Gamall kunningi islenzka knattspyrnumanna, Noel Cant- well, sem lengi var fyrirliði irska landsliðsins, var rekinn i gær frá Coventry, en hann hefur verið framkvæmdastjóri þar i nokkur ár. Hann var leikmaður með West Ham i fyrstu, en var siðan fyrir- liði Manch.Utd. um árabil og meðal annars, þegar Manch.Utd sigraði I bikarkeppninni 1963. Nokkru áður hafði hann leikið hér á Laugardalsvellinum og eru mörgum minnistæð átök hans og Harðar Felixsonar — en bakvörð- urinn Cantwell var miðherji irska landsliðsins. Þessi uppsögn hjá Coventry vakti mikinn úlfaþyt i gær. Ian St.John, sem var aðstoðarfram- kvæmdastjóri Coventry og leik- maður (áöur Liverpool) sagði upp stöðu sinni á stundinni og einnig yfirþjálfarinn, Tony Waiters, fyrrum markvöröur Blackpool og enska landsliðsins. En þannig er starf þeirra, sem stjórna ensku atvinnuliðunum — stöðug óvissa um framtiöina, og framkvæmdastjórastaða Coven- try er nú talið eitt „heitasta sæt- iö” á Englandi og er þá mikið sagt. — hsim. Knattspyrnumaður úr Fram setti fjögur íslandsmet í lyftingum! Ákveöinn á svip stekkur Ungverjinn Major aö ránni i hástökkinu. Major var maður Evrópumótsins Við sögðum frá helzta ár- angri á Evrópumeistaramótinu i Grenoble í frjálsum íþróttum (innanhúss) í blaðinu i gær — en þar komst Þorsteinn Þor- steinsson i úrslit 800 m. hlaups- ins og varð sjöundi. Keppni i hástökki og stangarstökki var hápunktur keppninnar. Ungverj- inn Major vann óvænt hástökkið, þegar hann stökk yfir 2.24 m. og náði þar með einum bezta árangri i grein- inni. Hann sigraði Evrópumeistarann frá Helsinki, Kestutis Sjapka og Major var heiöraður sem bezti maður móts- ins. Wolfgang Nordwig, sá margfaldi meistari, fékk óvænta keppni frá Svi- anum Hans Lagerquist. Að visu sigraði Nordwig og báðir stukku yfir 5.40 m, en Hans hafði áður stokkiö hæst 5.28 m. Heimsmet var sett i þristökki innan- húss og var Ólympiumeistarinn Viktor Sanajev þar að verki. Einnig var sett heimsmet i hástökki hvenna — og þess má geta, að austur-þýzki kúluvarp- arinn Hartmut Briesenick náði sigur- kasti sinu i siöustu umferð. Helztu úrslit i keppninni urðu þessi: Þristökk 1. Sanejev, Sovét, 16.97 2. Corbu, Rúmenia, 16.89 3. Tsjevtsjenko, Sovét, 16.73 4. Bessonnov, Sovét, 16.58 5. Spasojevic, Júgó. 16.29 Langstökk 1. M.Klauss, A-Þýzk. 8.02 2. Baumgarter, V-Þ. 7.99 3. Broz, Júgósl. 7.88 4. M.Rak, Júgósl. 7.86 5. Lepik, Sovét, 7.82 50 m. hlaup 1. Borzov, Sovét, 5.75 2. Korneljuk, Sovét, 5.80 3. Georgoulos, Grikk. 5.80 4. Wucherer, V-Þ. 5.84 5. R.Vilen, Finnl. 5.93 Hástökk 1. I.Major, Ung. 2.24 2. Sjapka, Sovét, 2.22 3. Tarmak, Sovét, 2.22 4. Dahlgren, Sviþ. 2.17 5. Maly, Tékk. 2.17 400 m. hlaup 1. Hucklens, V-Þ. 47.24 2. Reicht, A-Þ. 47.42 3. Muller, A-Þ. 47.42 4. Gabernet, Spáni, 47.66 Kúluvarp 1. Briesenick, A-Þ. 20.67 2. Komar, Pólland, 20.32 3. Brabec, Tékk. 19.94 4. Cothernburg, A-Þ. 19.90 5. Brouzet, Frakkl. 19.80 3000 m. Iilaup 1. Grustimsj, Sovét, 8:02.85 2. Aleksatsjim, Sovét, 8:03.20 3. Brugger, V-Þýzk. 8:05.07 4. Ornelis, Belgiu, 8:11.43 5. Per Halle, Nor. 8:15.49 50 m. grindahluap. 1. Gay Drut, Frakkl. 6.51 2. Schumann, V-Þýzk. 6.58 3. Moshiashvilij, Sov. 6.59 4. Jozwik, Póll. 6.63 5. M.Noe, Frakkl. 6.67 Stangarstökk. 1. Nordwig, A-Þýzk. 5.40 2. Lagerquist, Sviþ. 5.40 3. Kalliomaki, Finnl. 5.30 4. Isakov, Sovét, Konur. 5.20 Kúluvarp. 1. Tsjishova, Sovét, 19.41 2. Ivanova, Sovét, 18.54 3. Adam, A-Þýzk. 18.30 400 m. hlaup. 1. Fyese, V-Þýzk. 53.36 2. Bodding, V-Þýzk. 54.60 3. Weimstein, V-Þýzk. 54.73 800 m. hlaup. 1. Hoffmeister, A-Þýzk. 2:04.83 2. Silai, Rúmeniu, 2:05.17 3. Zlateva, Búlgariu, 2:05.50 Langstökk. 1. Roesen, V-Þýzk. 6.58 2. Antenen, Sviss, 6.42 3. Nygrynova, Tékk. 6.39 50 m. hlaup. 1. Stecher, A-Þýzk. 6.25 2. Richter, V-Þýzk. 6.28 3. Telliez, Frakkl. 6.31 Hástökk. 1. Schmidt, A-Þýzk. 1.90 2. Gildemeister, A-Þ. 1.84 3. Blagoeva, Búl. 1.84 5. Ejstrup, Danm. 1.80 —Ég hef mjög gaman af lyftingum og æft vel í vetur og þess vegna er árangur minn nú miklu betri en áður, sagði Rúnar Gislason, nitján ára piltur, sem stundar nám i Mennta- skólanum við Tjörnina eftir að hann hafði sett f jögur ný íslandsmet í lyftingum á meistaramótinu, sem hófst í Laugardalshöllinni i gær- kvöldi. Rúnar keppir í létt- vigt — keppendur innan við 67.5 kiló — og bættí metið samanlagt um átján kíló — lyfti samtals 300 kílóum. En það er ekki aðeins i lyft- ingum, sem þessi ungi iþrótta- maður hefur vakið á sér athygli i iþróttum. Hann lék marga leiki i meistaraflokki Fram i knatt- spyrnunni i fyrra og var i liðinu, sem sigraði i meistarakeppni Knattspyrnusambands islands og hlaut Reykjavikurmeistaratitil- inn — og auk þess var Rúnar liðtækur sundmaður i eina tið. — Ég hef æft knattspyrnu litið i vetur — lyftingarnar og námið hafa tekið mest allan tima minn, og ég veit ekki hvort mér tekst aö komast i Fram-liðiö i sumar, sagði Rúnar ennfremur. t lyftingunum keppir hann fyrir Armann og á mótinu, sem hófst i gær, beindist athyglin langmest aö honum. — Þetta er með þvi allrabezta, sem næst á Norður- löndum, sagði einn af starfs- mönnum mótsins, þegar Rúnar hafði lyft samtals 300 kilóum i léttvigtinni. Fyrst bætti hann metiö i pressu um 7.5kg. lyfti 100 kg. Þá kom aö snörun og þar lyfti Rúnar 87.5 kg. Rúnar Gislason meö 112.5 kg. I takinu og rétt á eftir reisti hann sig snarlega upp. — aftur islandsmet. Og i jafn- hendingu lyfti Rúnar 112.5 kg. og bætti islandsmetið þar um 2.5 kg. eins og i snörun, Og samtals gerir þetta 300 kg. Úrslit i öörum vigtum i gær urðu þau, að Kristinn Asgeirsson, Selfossi, sigraði I flugvigt, iyfti samtals 142.5 kg. Kári Eliason, Armanni, sigraði i drengjavigt,, lyfti samtals 197.5 kg. og munaði sáralitlu, að hann setti islands- met, einkum i jafnhendingu. Meistaramótið I lyftingum heldur áfram i Laugardalshöll- inni i kvöld og hefst kl. átta. Þá verður keppt i þyngri flokkunum og þeir Óskar Sigurpálsson og Guðmundur Sigurðsson munu reyna við lámarksafrek Ólym- piunefndar islands fyrir Mun- chen—leikana ef aö likum lætur — og vafasamt að islandsmetin standist þau átök. —hsim. Hrifnir? : ■ Þeir eru ekki alltaf hrifnir af J brögðunum i dag i glimunni, ■ gömlu fegurðarglímukapp ■ arnir. Hér fylgjast fjórir ■ glimukappar meö Skjaldar- JJ glímu Ármanns siöastliöinn ■ sunnudag, en þeir settu mörk 3 sin á glimuna hér á árum áö- ■ ur en á misjöfnum tima þá. 3 Frá vinstriSkúli Þorleifsson, ■ Þorsteinn Kristjánsson, 3 Jörgen Þorbergsson og ■ Hilmar Bjarnason. 3 Ljósmynd BB. ■ Vikingur vann Val 1:0 Víkingur sigraði Val 1-0 á Vetrarmóti KRR’ á Melavellinum i gær- kvöldi. Jóhannes Bárðarson skoraði markið. Þá- gerðu Þróttur og Ármann jafntefli 1—1. Staðan í mótinu er nú þannig, að Víkingurer í efsta sæti með 5 stig. Þróttur hefur 3 — hvort tveggja eftir 3 leiki. Fram hefur 2 stig eftir 2 leiki, og KR einnig. Valur hefur 2 stig eftir 3 leiki og Ármann einnig. I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.