Vísir - 21.03.1972, Page 5
Visir. Þriðjudagur 21. marz 1972.
5
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
JARÐSKJÁLFTAR
OG FLÓÐ RÍÐA
YFIR
Meira en 10 þúsundir
manna misstu heimili sín í
bænum Piura í Perú í gær.
þegar áin Piura flæddi yfir
bakka sína. Vitað var, að
sjö höfðu farizt og væntan-
lega fleiri. 400 hús hrundu
þar, og 2000 önnur eru ónot-
hæf.
Jarðskjálftar skóku norður-
hluta Perú i gærmorgun, og vitað
var, að sjö höföu farizt og 50
slasazt.
Jarðskjálftarnir eyðilögðu
istóran hluta bæjarins Juanjui,
sem er smábær.
Fyrstu jarðskjálftarnir mæld-
ust 6,5 stig á Richtermæli. Þrir
jarðskjálftakippir komu á eftir
næstu þrjár og hálfa klukku-
stundina.
Flugvöllur við bæinn Juanjui
eyðilagðist einnig, og seinast i
gærkveldi var ekki annað sam
band við bæinn en um útvarp.
Sjónarvottur einn segir, að
hræðilegt hafi verið að sjá bæinn
eftir jarðskjálftann.
Bæirnir Chachapoas, Totora og
Pama urðu einnig fyrir jarð-
skjálftum, en þaðan hafa ekki
borizt fréttir um manntjón eða
eignatjón.
Stjórnin i Lima mun senda flug-
vélar til að aðstoða fólkið. Flestar
björgunarsveitir höfðu nógu að
sinna . á flóða svæðinu.
t morgun var sagt, að 80 hefðu
farizt i flóðum. Vatniö var i
tveggja metra hæð i bænum
Piura. Flóðið eyðilagði baðmull,
ávexti og grænmeti fyrir um 400
milljónir króna i bænum að sögn
heimamanna.
Regnið sem hefur valdið flóðum
viða i Perú undanfarnar vikur,
hélt áfram i gær án afláts i
norðurhluta landsins. Annars
staðar i landinu varð hlé á rign-
ingu.
-40 fórust i október i fyrra i
flóðum i fjallasvæðum i suð-
austur-Perú. t mai 1970 týndu um
70 þúsund manns lifi i jarð-
skjálftum, sem meðal annars
lögðu bæinn Chimbote i rúst.
Mál blökkustúlkunnar Angelu
Davies stendur nú í Kaliforniu
Fá sakamál hafa vakið jafn mikla
heimsathygli og þetta. Angela
virðist ekki alveg hafa glatað
trúnni á „réttarfar hvita manns-
ins og kerfisins”, þvi að hún hefur
samþykkt kviðdóm, sem ein-
göngu er skipaður hvitu fóiki og
lýst þvf yfir i ræðu i réttarsalnum,
að hún teiji, að kviðdómendur
muni úrskurða eftir beztu getu og
vitund.
Á myndinni er Angela og
franski lögfræðingurinn Jules
Borker i hléi á réttarhöldunum.
Borker er formaður franskrar
Angelu Davies nefndar, en hann
er framkvæmdastjóri Parisar-
deiidar lögfræðingasamtakanna
frönsku.
Sprengjutilrœði í
verzlunargötu
í Belfast í gœr
MESTA
MORÐÁRÁSIN
Brýn nauðsyn d frumkvæði brezku stjórnarinnar
Sprengjutilræðið í versl-
unargötu í Belfast í gær,
sýnir, að brýn nauðsyn er a,
að Bretar leggi fram til-
lögur, sem gætu stuðlað að
friði, segja fréttamenn í N-
írlandi i morgun.
Margir kalla sprenginguna,
sem varð i Donegallstræti i gær,
mestu morðárásina frá þvi að á-
tökin i N-lrlandi byrjuðu árið
1969. Brezk blöð i morgun segja
hroðalegar sögur frá Belfast.
Blaðið Daily Mirror birtir til
dæmis tvær ljósmyndir af ungri
stúlku i blóði sinu.
Stjórnmálamenn i irska
lyðveldinu láta i ljós ótta um, að
borgarastyrjöld geti brotizt út
innan fárra vikna, ef friðartillög-
ur, sem brezka stjórnin hefur
boðað til ryðja ekki braut fyrir
friðsamlegri sambúð mótmæl
enda og kaþólskra.
Edward Heath forsætisráð-
herra hyggst ræða við Brian
Faulkner foráætisráðherra N-ír-
lands um væntanlegar friðartil-
lögur á fundi i London á morgun.
Ekki er vitað, hvort Heath mun
birta áætlunina strax eftir þann
fund, en Maudling innanrikisráð-
herra hefur sagt, aö tillögurnar
komi væntanlega fram i næstu
viku
Fólk ginnt
Hermdarverkamenn á Norður-
trlandi virðast hafa ginnt fólk til
að safnast saman i aðalgötu i Bel-
fast i gær, og siðan sprengdu þeir
sprengju. Sex munu hafa beðið
bana, og meira en hundrað særð-
ust.
Sjónarvottar segja að
sprengjustaðurinn hafi verið vig-
velli likastur. Sundurtættir bilar
og fólk i blóöi sinu lá á við og
dreif.
Eitt barn beið bana. Meðal
hinna föllnu voru tveir lögreglu-
þjónar.
Þrir af foringjum IRA--
hreyfingarinnar fengu sprengjur
sendar i pósti i gær. Ein
sprengjan sprakk á heimili Sean
Maxstioffan, foringja róttæka
arms IRA. Hann særðist á andliti
og höndum. önnur sprengja i
poka sprakk á skrifstofu Sinn
Fein, sem er pólitiski hluti IRA.
Gjaldkeri, Tony Ryan, slapp með
minni háttar brunasár.
Umsjón: Haukur Helgason
Itoward Hughes, eins og hann
ieit út árið 1947.
Er þetta
Auðmaðurinn Howard
Hughes hefur flutt bækistöðvar
sinar til Vancouver i Kanada,
heimamönnum til mikillar
gleði. Þangað kom hann einn
daginn i náttfötum og slopp, það
vita menn. Ljósmyndari einn
þóttist hafa himin höndum tekið
og Ijósmyndaði aldraðan mann,
sem birtist i hóteli með lifvörð-
um. Ljósmynd er ekki til
Kins og hann er kannski i dag.
Hughes?
pressuheiminum af Howard
llughes siðan 1947, svo að hann
mun liafa breytzt töluvert, og
menn vita litið, hvernig þessi
inest umræddi maður ársins
1972 litur út.
Þó kom i ljós, að engan veginn
var vist, að maðurinn hefði ver-
ið Hughes. Þessi mynd, sem við
birtum hér, fer þvi um heiminn
óstaðfest.
BÓLUSÓTT í
JÚGÓSLAVIU
Átta tilfelli af bólusótt
hafa orðið i þorpum í
Kosovo-héraði i suðaustur-
hluta Júgóslavíu, að sögn
embættismanns í félags-
málaráðuneytinu í Belgrad
i gærkvödli.
Þetta er sagt vera i fyrsta sinn i
40 ár, að bólusóttar verður vart i
Júgóslaviu.
Hópur lækna er farinn til
héraðsins til að bólusetja fólk.
Hinir sjúku, og allir, sem hafa
haft samgang við þá, hafa verið
fluttir i sjúkrahús eitt i bænum
Djakovica, sem er nokkra kiló-
metra frá landamærum Albaniu.
Meðal þessa fólks eru fjórir, sem
talið er, að hafi smitazt, þót, það
sé enn ekki vitað með vissu.
Læknar telja, að sóttin hafi bor-
izt til Júgóslaviu frá Mið-Austur-
löndum.
Verkfall brotið
Helmingur 5000 verk-
fallsmanna i rikis-skipasmiða-
stöðinni i E1 Ferrol á Spáni hóf
vinnu i gær, eftir að rikisstjórnin
hafði hótað að lýsa yfir neyðará-
standi og fara með verkfallsmenn
i samræmi við það, cf þcir féllu
ekki frá kröfum um hærri laun.
Búizt er við, að aðrir verka-
menn, sem eru i verkfalli hefji
vinnu i dag.
Skipasmiðastööin smiðar
tundurspilla fyrir spænska flot-
ann og hefur nú verið lokuð siðan
lO.marz vegna vinnudeilna. Þann
dag féllu tveir menn fyrir lög-
reglu i blóðugum átökum.
Kröfur verkamanna um hærri
laun til að mæta stöðugt hækk-
andi verðlagi á Norður-Spáni
hafa aukið ólguna á vinnumark-
aði i landinu. Margir verkamenn
eru óánægðir með kjarasamning-
ana, sem verkalýðsfélögin sem
eru undir stjórn rikisins hafa
gert. Verkamenn krefjast sjálf-
stæðari aðildar að samningum.
Spænska stjórnin kennir
kommúnistum um, hvernig
komið er.
Muskie á tveimur
vígstöðvum
Edmund Muskie berst á
morgun á tveimur vig-
stöövum í prófkosningum í
lllinois. Hann gerir tilraun
til aö vinna aftur eitthvaö
af þvi sem hann tapaði við
úrslitin í New Hamphshire
og Flórida.
Eini keppinautur hans um
fulltrúa, er McGovern, og barizt
er um 160 fulltrúa á flokksþing
demókrata. t skoðanakönnun um
vinsældir sem fer fram jafnframt
en hefur ekki gildi við skipun full-
trúa, er McCarthy þingmaður
eini keppinautur Muskies.
Aðrir frambjóðendur hafa
„hoppað yfir” Illinois og þeir ein-
beita sér að prófkosningum i
Wisconsin 4.april.