Vísir


Vísir - 21.03.1972, Qupperneq 9

Vísir - 21.03.1972, Qupperneq 9
 Visir. Þriðjudagur 21. marz 1972. Visir. Þriöjudagur 21. marz 1972. Sundfólkið unga frá Akranesi — með afreksmanninn Guðjón Guðmundsson i broddi fylkingar — vakti mikla athygli i Bikarkeppni SSÍ um helgina og þessi fámenni, en harðskeytti hópur, náði fjórða sæti i stigakeppni félaganna. Og ef Finnur Garðarsson, sem er gamall Akurnesingur, hefði keppt fyrir okkur, hefðum við bara unnið, sagði Akurnesingur einn eftir keppnina. En hvað um það — hér er mynd af sundfólkinu frá Akranesi ásamt þjálfara sinum, Helga Hannessyni. Ljósm. BB. Grimmir Búlgarar en Norðmenn sigruðu 17:11 — Fjórum leikmanna Búlgara var vísað af leikvelli Noregur sigraði Búlgariu 17-11 i hínum þýðingar- mikla ,,taugaleik" i for- keppninni á Spáni i gær- kvöldi og voru Norðmenn mjög ánægðir eftir þann sigur, þvi taugar Norð- manna hafa ekki verið í lagi síðan þeir gerðu jafn- teflið við island á laugar- dag, að sögn fréttamanns NTB, Hakon Dehlin. Þennan leik áttum við að vinna með meiri mun, segir Hakon enn- fremur. Búlgarar voru heldur litlir skotmenn — og það var heppni fyrir okkur. Við vorum lika ekki eins ákafir i skotum nú og gegn íslandi — og það gaf betri raun. En Búlgarar voru með mjög góðan markmann, þar sem Georgiev var — og áttu tvo góða útileikmenn, Angelov og Jor- danov. En þeir voru mjög grimmir i öllum aðgerðum sinum og fjórum þeirra var visað af leikvelli um stund, þvi rúmensku dómararnir Cirigeanu og Sidea dæmdu venju vel og leyfðu ekki hinn grófa leik. Einum norskum leikmanni, Pal Cappelen, var vis- að af leikvelli. Áhorfendur gerðu ekki betur en að hálffylla höllina i San Sebastian — voru milli 800- 900. Fyrir Noreg skoruðu i leiknum Jon Reinertsen 6, þar af tvö úr vitum, Inge Hansen 3, Sten Oster 2, Harald Tyrdal 4, Cappelen 1 og Wangh 1. Úrslit á Spáni Úrslit i forkeppninni á Spáni i Itiðill 2 gær urðu þessi: Sovétrikin-Sviss Pólland-Spánn ltiðill 1 Noregur-Búlgaria 17-11 Ísland-Austurriki 25-19 Slaðan er nú þannig. 22-12 21-16 Slaðan i riðlinum er þannig: island 2 11 0 39-33 3 Noregur 2 1 1 0 31-25 3 Búlgaria 2 10 1 26-28 2 Austurriki 2 0 0 1 30-40 0 Þar með Itefur Austurriki ekki lengur ntöguleika á ólyntpiu- leikunum, markatalan er oröin I svo óhagstæð, þó svo liðinu tækist að sigra Noreg, og island Búlgariu. Sovét. I’ólland Spánn Sviss 2 2 0 0 39-25 4 2 10 1 34-33 2 2 10 1 35-33 2 2 0 0 1 24-41 0 Þarna er sama sagan. Sviss er úr spilinu. Næstu leikir verða á inorgun. Þá leika Noregur- Austurriki og Ísland-Búlgaria i San Sebastian, en Sovétrikin- Spánn, og Pólland-Sviss i Bareelona. -hsim. Gustavo Thoeni, italiu, og Anna-Maria Pröll veifa verðlaunum þeim, sem þau hlutu sem HM-meistarar. Það cr annað áriö i röð, sent þau sigra i keppninni um heimsbikarinn. G. Thoeni í efsta sœti Hinn frábæri, italski skíöamaöur Gustavo Thoeni skauzt upp í efsta sætiö i keppninni um heimsbikarinn, þegar hann varð annar í siöustu keppn- inni i Pra Loup í Frakk- landi á sunnudag. Hann hlaut 152 stig og titilinn heimsmeistari i alpagrein- um 1972. Frakkinn Henri Duvillard, sem lengi var f<;tur, varö i ööru sæti meö ■n i þriðja sæti var Edmund Bruggmann, Sviss, með 140 stig. Bruggmann sigraði i stór- sviginu i Pra Laup og hefur verið mjög sigursæll að undanförnu, en hann hóf keppnina ekki nógu vel til að krækja sér i heims- meistaratitilinn. Úrslit i keppninni á sunnudag urðuþessi: 1. Bruggmann 2:27.13 min. 2. Thoeni 2:27.91 min. 3. Roger Rossat-Mignod, Frakk- landi, 2:28.23 min. 4. Duvillard 2:29.15 min. 5. David Zwilling, Austurriki, 2:29.49 og 6. Alfred Hagn, Vestur-Þýzkaalndi, 2:30.02 min. Efstu menn i keppninni um heimsbikarinn urðu þessir menn. Thoeni 154 stig. 2. Dullvillard 142 stig. Bruggmann 140 stig. 4. Jean-Noel Augert, Frakklandi, 125 stig. 5. Bernard Russi, Sviss, . 114 stig. 6. Andrej Bachleda, Pól- landi, 109 stig. 7. Rolando Thoeni, ltaliu, 93 stig. 8. Karl Schranz, Austurriki, 83 stig, en hann var með hæsta stigatölu, þegar hann hætti keppni eftir að hann fékk ekki að keppa á ólympiu- leikunum i Sapporo. 9. Mike Lafferty, Bandarikjunum, 63 stig 'og 10. Heini Messner, Austurriki, 61 stig. Munchen í seilingu eftir sigurínn gegn Austurríki tslenzka landsliðið i handknattleik er nú aðeins i seilingarfjarlægð frá þátttöku i Ólympiuleikunum í Mtin- i chen i haust eftir góðan sigur gegn Austurriki i San Sebastian. Lokatölur ' voru 25-19 og vissulega hefði verið hægt að punta betur upp á þær, en góðir menn voru hvildir langtimum 1 saman og öllum, sem valdir voru til 1 leiksins, gefiö tækifæri að vera sem mest með. Þetta styrkir félagsskapinn innbyröis og þvi allra góðra gjalda vert. Nú er aðeins að ná stigi gegn Búlgariu annað kvöld og farðseðlarnir til Múnchen eru tryggðir — en tap i þeim leik þýðir þó ekki aö öll von sé úti. Þá kemur til barátta viðSpán, sem tapaði illa fyrir Pólverjum I gærkvöidi i Barcelona, um- fimmta og siðasta lausa sætið á Múnchenleikana. —tsland átti i litlum erfiðleikum með aö vinna Austurríki 25-19 — þó svo Austurrikismenn hefðu yfirhöndina 6-4 um tima í fyrri hálfleik, segir Hakon Dehlin, fréttamaður NTB. En islenzku leikmennirnir snéru leiknum sér i hag og skoruðu fjögur mörk i röð og i siðari hálfleik hafði liðið átta mörk yfir, en vegna hættulegra hraðupphlaupa og linuspils tókst Austurrikismönnum að minnka muninn aðeins i lokin, segir Hakon ennfremur. Norsku leikmennirnir horfðu á leik inn og þeir vita ósköp vel hvað þeir eiga að gera til þess, að ná betra markahlutfalli en ísland i keppninni um fyrsta sætið i riðlinum — og þar með keppni um efsta sætið i keppninni i Madrid. En það er þó ekki þýðingar- mest — sigur gegn Austurriki tryggir okkur sæti i Múnchen, þó við fáum ekki hin nauðsynlegu mörk til að verða ofar tslendingum. Og að auki erum við ekki svo vissir um, að tslendingum takizt að sigra Búlgariu, en Búlgarar leika i harðasta lagi fyrir hina teknisku leikmenn frá Sögueyjunni, segir fréttamaðurinn að lokum. tslenzka liðið byrjaði ekki vel i leiknum gegn Austurriki og á fyrstu minútunum tókst Austurriki að ná þriggja marka forustu. En það stóð ekki lengi. Gisli Blöndal, Val, sem hvilt hefur siðustu tvo leikina, kom inn á og átti skinandi leik. Hann skoraði jafnt og þétt hjá Austurrikismönnum — fimm mörk i fyrri hálfleik og sjö mörk alls i leiknum, þrátt fyrir meiösli, sem hann hlaut — og leikurinn snérist tslandi i hag. tsland haföi íjögur mörk yfir i hálfleik og þeir Geir Hallsteinsson og Axel Axelsson voru einnig iðnir við að skora. Staðan var 12-8. Fyrstu minúturnar i siðari hálfleik voru — eins og hefur verið nær undan- tekningarlaust áður, nema gegn Noregi — afleitar og liðinu tókst foks að skora eftir niu minútur, þegar Axel sendi knöttinn i markíö. 'En Austurrikismenn voru litið skárri og höfðu aðeins skorað eitt mark á þvi timabili, svo staðan var 13-9. En þá kom góður kafli islenzka liös ins og mörkin hlóðust upp. Það skoraði fjögur næstu mörk — fyrst Björgvin Björvinsson af linu, þá Ólafur, Viðar og Gisli. Staðan varð 17-9 og greinilegt að hverju stefndi. Loks á 15 min tókst Austurrikismönnum að skora annað mark sitt i hálfleiknum — en Viðar svaraði strax og svo skoraði Gisli ekki úr viti, annað vitið i leiknum, sem mis- notað var, þvi Geir skoraði ekki i upp- hafi. Austurrikismenn minnkuðu mun- inn i 18-12, en svo bættu þeir Gisli og Ágúst tveimur mörkum við. Lokaminutur leiksin áttu litið skylt við handknattleik og alls konar rósir sáust þá hjá báðum liðum — skotið i tima og ótima, og hraðupphlaup runnu út i sandinn vegna fúms. En sex marka munur var i lokin og góður sigur i höfn. Gisli var markhæstur islenzku leik- mannanna með 7 mörk — nýtti allar skottilraunir sinar til marka, nema vitið, sem áður er minnst á — og er það vel af sér vikið. Geir Hallsteinsson skoraði 6 mörk, Axel 4, Agist ögmundsson, Viðar og Gunnsteinn 2 hver, Ólafur og Björgvin 1 hvor. hsim. Gisli Blöndal var marksækinn I gær- kvöldi cftir hvild i leikjunum gegn Belgiu og Noregi. Hann skoraði sjö mörk — i átta tilraunum!! Fimm stiga forskot Manch. City í 1. deild 48 þúsund áhorfendur á Maine Road í Manchester komu til að sjá nýja leik- manninn Rodney Marsh, þegar hann lék sinn fyrsta leik fyrir Manch. City á laugardag, en liðið keypti hann frá gömlum kunn- ingjum, QPR. Marsh átti góðan leik og City hafði al- gjöra yfirburði gegn Chelsea, en sigraði þó aðeins 1-0. Tommy Boðth, sem lék á ný eftir meiðsli, skoraði sigurmarkið í fyrri hálfleik. Manch City hefur 49 stig og 5 stiga forskot i 1. deild, en Derby, sem sigraði Leicester 3-0, er komiö i annað sæti meö 44 stig — hefur leikið tveimur leikjum minna en City. Leeds hefur 43 stig og er með þrem leikjum minna. Þeir John O Hare, Alan Durban og Kevin Hector skoruðu fyrir Derby. Liverpool sigraði Newcastle létt á laugardaginn 5-0 og er í 4 sæti. Lawler, Toshach, Keegan, Hughes og Highway skoruðu. C.Palace tapaði heima fyrir úlfunum og þar skoruðu þeir McCalli og Dougan fyrir Úlfana. Fyrirliði Dýrling- anna, Terry Paine, var rekinn af velli i Ipswich, en Southhampton náði þá dýrmætu stigi i 1-1 jafntefli. Robinson skoraði tvö af mörkum West Ham, Hurst og Brooking eitt hvor i 4-2sigri gegn Nottm. Forest, en McKenzie skoraði bæði mörk Forest — og lið Forest virðist nú dæmt til að falla. Það hefur aðeins 17 stig, en næst er Huddersfíeld með 20 Southhampton og Crystal Palace 23 stig. 1 2.deild eru Norwich og Milvall efst með 44 stig eftir 33 leiki, Sunderland hefur 39 stig eftir 32 leiki og Birmingham 38 stig eftir 31 leik. Sömu stigatölu hafa einnig QPR og Middlesbro, en hafa leikið fleiri leiki og geta varla lengur gert sér von um að komast á ný i l.deild. -hsim- Stúdentar lögðu spilin ó borðið og sigruðu HSK með 70 iS-menn virðast hafa at- hugað sinn gang mjög vel eftir óvenju slappan leik gegn Val á fimmtudaginn, og mættu nú til leiks gegn HSK sem gerbreytt liö frá þeim leik. Sigruðu stúd entarnir i miklum baráttuleik meö 70 stigum gegn 60, og eru þar með í fjórða sæti i mótinu, næst á eftir Val, sem hefur jafn- mörg stig, en hagstæðara hlutfall í skorun. Ekki gekk vel i byrjun að hitta körfuna, og þegar fimm minútur voru liðnar, höfðu liðin aðeins skorað 8 stig samtals, 1S 5 og HSK 3. ÍS tók þá góöa skorpu, og náði 15 stiga forystu, 20-5, og skömmu siðar fór munurinn upp i 21 stig, 30-9. HSK tók þá loks við sér, og tókst að minnka muninn i 12 stig fyrir hlé, 36-24. Allan siðari hálfleik tókst 1S að halda kringum tiu stiga forystu, þar til á 17. minútu, að HSK Enn kemur Þróttur ó óvart Þróttur kom enn á óvart í gær á Hraðkeppnismóti Handknattleiksráðs Reyk- javíkur og sigraði Hauka með 9-7 í Laugardalshöll- inni. Hefur liðið þvi unnið báða leiki sína i keppninni, fyrst KR. Fram og Valur eru einnig tap laus, en önnur liö hafa tapað leik- jum, sum tveimur eins og Fylkir, Breiðablik og KR og eftir tvo tap- leiki eru liðin úr keppninni. Úrslit i gærkvöldi urðu þessi: Fram-Ármann 11-9 Valur-FH 10-9 ÍR-Fylkir 11-5 Þróttur-Haukar 9-7 Grótta-Breiðablik 10-4 Vikingur-KR 10-9 Ekki er enn fullakveðið hvenær næsta leikkvöid verður—hsim. — 60 í miklum baróttuleik minnkaði forskot stúdenta i 5 stig, 62-57. Lokatölur urðu hins vegar. eins og áður sagði, 70-60 fyrir fS. Ekki gekk lið HSK heilt til skógar að þessu sinni. þvi sjálfan ..höfuðpaurinn" vantaði, Anton Bjarnason, sem var að keppa i ts- landsmóti i blaki á sama tima með liði tþróttakennaraskólans á Laugarvatni. Þórður Óskarsson hitti ágætlega i leiknum og skor- aði 19 stig, en Einar Sigfússon skoraði 11. Mikið jafnrétti rikti i skiptingu stiga milli leikmanna tS, en Bjarni Gunnar Sveinsson, Steinn Sveinsson og Ingi Stefáns- son skoruðu allir 14 stig hver, og Stefán Þórarinsson og Jónas Haraldsson skoruðu sin 12 stigin hvor. Borðtennis Annað Reykjavikurmótið i borðtennnis hefst i Laugar- dalshöllinni kl. 6 i kvöld með einliðaleik ungtinga. Klukkutima siðar hefst svo keppni i tviliðaleik karla og einliðaleik kvenna. Að loknum þeim leikjum hefst tvenndarkeppni og tviliða- leikur kvenna. Útsláttar- keppni verður viðhöfð. Nú verð i fyrsta sinn notaðar talningatöflur við hvert borð og auðveldar það áhorfendum mjög að fylgjast með keppninni. Mótsstjóri er Sveinn Áki Lúðviksson. Mares til Víkings í tvö ór — og tvœr utanferðir Víkings fyrirhugaðar Einn kunnasti hand- knattleiksmaður heims, Tékkinn Votja Mares, mun verða þjálfari hjá Viking næstu tvö árin — frá og með 1. ágúst næstkoinaiuli. Það má þvi segja, að skammt sé stórra luiggva á milli hjá Vikingum. A dögunum tóku þeir heiin tvö erlend hand- knattleikslið og ráða nú Mares, sem um lungt árabil var fyrirliði tékkneska landsliðsins og tvivegis heimsmeistari. til tveggja.. ára, en áður hefur þjálfari aldrei verið ráðinn til svo langs tima hingað. Arni Arnason, einn af for- ustumöiinum Vikings, fór nýlega i verzlunarferð til Þýzkalands og brá sér þá yfir lil Tékkóslóvakiu. Þar gerði liann samning við Mares, sem mun taka við þjálfuu Vikings I. ágúst. Meistaraflokkur Vikings fer til Þýzkalands i haust — siðustu vikuua i september.. — i boði IISV, sein hér var á\ dögunum og lagði Vikingur þvi mikla áherzlu a, að Mares tæki sem fyrst við þjálfun liðsins. Þá fer Vikingur til Tékkóslóvakiu i boði Gottwaldov sumarið 1973. -Iisim. Hœttur TtERB straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörg- um mynztrum og litum. Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverj- um sem hlýtur. Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og lífgið upp á litina í svefnherberginu. Reynið Night and Day og sannfærizt. Jean Beranger, þjálfari franska skiðalandsliðsins, sagði stöðu sinni lausri aðeins þremur klukkustundum eftir, að ttalinn Gustavo Thoeni sigraði i keppn- inni um heimsbikarinn. Franska skiðafólkinu gekk illa i vetur og útslagið varð á sunnudag, þegar Duvillard tapaði heimsmeistara- titlinum i siðustu keppninni. Beranger hefur verið aðalþjálf- ari Frakka i tiu ár, en i vetur hefur hann veriö gagnrýndur mjög fyrir þjálfun sina. Hann segir þá uppsögnina vera af per- sónulegum ástæðum, en ekki vegna slaksárangursFrakka eða gagnrýni. Leeds dró Birmingham t gær var dregið i undanúrslit ensku bikarkeppninnar i Lundún- um. Fyrsta lið, sem kom úr hattin- um var Birmingham og siðan Leeds. Þessi lið leika þvi saman og verður leikið á hinum frábæra velli Sheff. Wed.-Hillsborough i Sheffield. Sigurvegarinn i aukaleik Manch. Utd. og Stoke City, en sá leikur verður háður i Stoke á morgun, leikur við bikarmeistara Arsenal. Leikið verður á Villa Park i Birmingham. Undanúrslit- in verða leikin 15. april.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.