Vísir - 06.06.1972, Side 1
62. árg.—þriðjudaginn 6. júni 1972—125 tbl.
Keppir hún fyrir
Tæplega Hiára islenzk stúlka,
sem bvr i Kandarikjunum,
liefur vakið mikla athygli fyrir
fræknleik sinn i skiðaiþróttum,
— einkum bruninu, sem fáar
konur fást til að taka þátt i, enda
háskaleg iþrótt. Knda þótt
Aslaug Úlfarsdóttir sé i raun
islendingur, vilja Bandankja-
okkur eða USA?
menn bjóða lienni að æfa hjá
einum frægasta skiðaþjálfara
heims i Frakklandi, — og stlla
upp á að hún verði meðal
Oly mpíuþátttakenda 1976, i
Denver. Kn keppir hún þá sem
islendingur eða Bandaríkja-
maður?
—SJA BLS. 8 og 9
Skrúfar kokkaverkfall
fyrir vínveitingar?
B MölU
— Hanníbal fœr daglega skýrslu til Svíþjóðar
„Við höfum rætt þetta
mál og það er atriði sem
þarf athugunar við, hvort
draga eigi úr vinveitingum
þegar ekki er hægt að selja
heitan mat" sagði Baldur
Möller hjá dómsmálaráðu-
neytinu i samtali við Vísi i
morgun.
Eitt meginskilyrði þess að fá
vinveitingaleyfi er að geta boðið
gestum uppá heitan mat og þvi er
það spursmál hvort hótelin megi
selja vin þegar þau geta ekki selt
heitar máltiðir. Baldur Möller
taldi liklegt, að ekki væri unnt að
banna vinsölu i kokkaverkfallinu,
en sagði að málið væri i athugun
hjá ráðuneytinu.
Samkomulagshorfur i mat-
sveinaverkfallinu eru taldar
slæmar eins og málin standa
núna. Enginn sáttafundur var i
gær og hefur nýr fundur ekki
verið boðaður. llannibal Valdi-
marsson samgönguráðherra
dvelur nú i Sviþjóð og Magnús
Torfi, sem er varamaður Hanni-
bals i samgöngumálum, er einnig
erlendis.
Ilannibal hefur hins vegar
fengið skýrslur um gang mála á
hverjum degi til Sviþjóðar, en
ekki er ákveðið hvenær hann
kemur heim eða hvort hann flýtir
för sinni vegna þess ástands, sem
verkfallið hefur skapaö. —SG
Bros hótelgesta
farin að stirðna
— smurða brauðið
ekki spennandi lengur
— Gætum við fengið grillaðu
kjúklinga, sögðu elskulegir mcnn
sem brugðu sér i veitingast.
Neðribæ i gærdag. Afgreiöslu-
stúlkan tók þcirri bón vel og eftir
skamma stund höfðu þeir fengið
ilmandi kjúklinga á borð sitt. Kn
þá kom i Ijós að hcr voru verk-
fallsverðir matsveina á ferö.
Þyngdist mjög á þeim brúnin,
þegar þeir fengu óskir sinar upp-
fylltar, og gengu þeir inn i kokk-
hús staðarins og slökktu þar á
eldunartækjum. Eigandinn stóð
þá i eldamennsku og tók hann þvi
viðsfjarri að leggja niður störf.
Hann væri ekki i Félagi
matreiðslumanna og þvi kærði
hann sig kollóttan um þettaverk-
fall. Fór hann með sigur af hólmi
og saddi hungur manna allt til
kvölds.
Hótelgestir brostu út undir eyru
i hádeginu i gær, þegar þeim var
réttur smurbrauðslisti i mat-
sölum. Erlendum gestum þótti
þetta hin bezta tilbreytni og
hugðu gott til glóðarinnar að geta
sagt frá þessu ævintýri þegar
heim kæmi. En brosið var farið
að stirðna i gærkvöldi, þegar
brauðlistinn var réttur þeim á
ný. Fraus það alveg á sumum
gestum og kvörtuðu þeir
hástöfum yfir þvi að geta ekki
fengið neinn heitan mat.
Hðtel Esja hefur gripið til þess
ráðs að selja snarl aðeins til
hótelgesta og þar er morgun-
verðarborð til afnota fyrir gesti
allt til kvölds. Hins vegar hefur
Hótel Loftleiðir orðið að endur-
greiða sumum gesta sinna kalda
borðið sem þeir greiddu fyrir við
komuna hingað. Stærri hótelin
hafa gert ráðstafanir til að láta
fréttir af verkfallinu berast til
viðskiptavina sem væntanlegir
eru þessa dagana, svo þeir viti að
hverju þeir ganga þegar þeir eru
komnir til landsins. —SG
Sólskin í dag og ó morgun
Það er útlit fyrir ágætis veður
bæði sunnan og vestan til á land-
inu i dag, hægviðri og sólskin,
segja þeir á Veðurstofunni.
Og ekki nóg meö það, því að
mjög sennilega ætlar þetta ágæta
veöur að haldast langt fram á
morgundaginn.
Þeir þurfa svo sannarlega ekki
að kvarta túristarnir sem hafast
við i tjöldunum f Laugardalnum.
Reykjavikin er eins gestrisin og
henni framast er unnt.
Sennilega verða kápur og
frakkar algjörar óþarfaflikur i
dag, þvi hita er spáð frá 10-14 stig.
i morgun var reyndar ekki nema
7 stiga hiti hér sunnanlands, og
ekki nema 4 stiga hiti norðan til á
landinu.
En sé fariö á aðrar slóöir, þá er
þar i dag skýjað og sennilega nær
ekki að létta þar til þótt liöi á
daginn.
Gott veður,
gott fólk!
Visismenn yfirgafu sól-
bakaðar skrifstofur blaösins
eins fljótt og auðið var, — þeir
sem voru svo heppnir aö vera
sendir út i sólina I gærdag. Þeir
tóku tali nokkra ágæta menn og
konur.
pessi nroshyra og lallega
stúlka var ein af þeim sem varð
fyrir barðinu á þeim, en hún var
i óða önn aö ditta að blómabeö-
um i Laugardalnum.
Sjá Visir spyr og góðveðurs-
rabb á bls :t.
r
„Islenzka stjórnin
að falli komin",
segir NTB
„Flestir islendingar telja
að þingslit verði í haust og
að þá fari aftur fram
kosningar, eða að mynduð
v e r ð i m i n n i h I u t a -
stjórn..samsteypustjórnin á
islandi ræður ekki við verð-
hólguna, eða kemst ekki
niður á neitt ráð til aö leysa
úr henni. Stjórnarkreppa á
islandi... segir Helge
Gieverholt, fréttastjóri Ntb,
sem nýlega var á islandi. Sjá
bls. 5.'
Lax, lax, lax
— handa
Ameríkönum
Það cr ódýrast að veiða á
islandi. Það er heilsusam-
legast, skemmtilegast og
frumlegast...eða þannig er
amk. inntak greinar, sem i
vor birtist i viðlesnu banda-
risku veiðimannatímariti.
Segir þar að allar islenzkar
laxveiðiár séu tærar, fagrar
og fullar af laxi!
Sjá grein á bls. 6.
Silungsrœkt
fyrir Fríkirkjuna
Það þykir bera vott um
kristilegt hugarfar að plægja
akur náungans. Hann verður
þvi að teljast sannkristinn
hann Sigurður Jónsson, sem
hefur vcrið aö dunda við að
rækta silung og jafnvel lax i
Tjörninni. Við „stóðum hann
að verki”, þar sem hann var
að hleypa niður silungs-
seiðum. — Og fyrir hvcrn?
Að þvi er bezt er vitað á
Frikirkjan veiðiréttinn i
Tjörninni.
Sjá bls 2.
Norska ungfrúin
Feguröardrottningar þeirra
„frænda vorra” Norðmanna
hafa oft þótt einstaklega vel
af guði gerðar og hlotið
marga stóra titla á alheims-
sýningum. Við hirtum mynd
af nýkjörinni „frænku” vorri
á NÚ-siöunni á bls 4.
Dýraverndarmenn
ekki sofnaðir
á verðinum
Þvi hefur verið haldiö fram
af lesanda i dálkinum
Lesendur hafa orðið, að
dýraverndunarfélögin svæfu
á verðinum, Nú svara dýra-
verndunarmenn i dag og
kveöast ætla að hafa sam-
band við hcstamannafélagið
Fák út af meintri illri með-
ferð á hrossum. — Sjá bls 2.