Vísir - 06.06.1972, Side 2

Vísir - 06.06.1972, Side 2
2 VÍSIR. Þriðjudagur 6. júni 1972. VfCIRSPYR: Finnst yöur, aö þér hafið nægan tíma til að njóta sólarinnar? Jóhanna Jóhannesdóttir, starfst. hjá Nóa: Já, svo framarlega sem sólinni þóknastaðskina, þá hef ég góðan tima til að njóta hennar. Lára Þórarinsdóttir, nemandi: Nei. Ég gef mér mjög litinn tima til þess að sleikja sólskinið, vegna þess að vinnutiminn leyfir það ekki. Þórdis llauksdóttir: nemandi: Nei, eiginlega ekki. Annars reyn- ir maður auðvitað að nota öll tækifæri, sem gefast frá vinnu, en þau eru alltof fá. Erlendur Vigfússon, verka- maður: Ég veit það nú satt að segja ekki. Jú, ætli maður hafi ekki nokkuð góðan tima til þess. Ég vinn nefnilega þannig vinnu, að ég gæti svo sem legið á Arnar- hólstúninu hálfan daginn eða svo. Sigmundur Simonarson,rafvirki: Það vill nú svo til, að ég er i sumarfrii og get þess vegna leyft mér að slappa aðeins af i sólinni. Að öðru leyti hef ég ekki tima til þess, þar sem ég vinn inni við alla daga. Þórdis Bjarnadóttir, bankamær: Nei, alls ekki. Eini timinn, sem ég hef til sólbaða, er um helgar, og þá er sólin yfirleitt annars staðar en hún á að vera, eða þá ég orðin of þreytt til að njóta hennar. Á Fríkirkjan veiðirétt að •• • • Tjornmm? spyr silungsrœktarmaður í Tjörninni Silungsrækt i Tjörn- inni er hafin að minnsta kosti ,,stóðum við einn að verki” um hádegis- bilið á laugardaginn. Sigurður Jónsson, hinn gamalkunni skákmað- ur bograði yfir fötu i suðurtjörninni, fullri af bleikjuseiðum. „Nei nei, þetta er ekki fyrsta sinn sem ég sleppi seiðum hérna i Tjörninni,” sagði Sigurður, „mér datt i hug að reyna þetta fyrst i sept. s.l. og setti þá niður dálitinn slatta af seiðum. Ég get ekki séð að nokkur geti bannað mér þetta og lit á þessa iðju sem náttúru vernd fremur en skemmdar- verk. Það er merkilegt, að engum skuli hafa dottið þetta i hug fyrr, vegna þess að það er ekkert þvi til fyrirstöðu, að rækta góðan silung i Tjörninni. Nóg æti er fyrir hann, vatnið er volgt og botnfrýs ekki, og svo á hann greiða leið út i sjó. Silungurinn verður ekki ónáð- aður af öndunum errda«£ru þetta ekki fiskiendur heldur lifa þær á svifi og alls konar jurtum. Ég hef lika prófað laxaseiði hérna, en þetta er nú bara sak- laust hobbi hjá mér,” segir Sig- urður, sem hefur góða reynslu af ýmiss konar dýrarækt, hefur m.a. tamið mink og á Land- búnaðarsýningunni 1968 sýndi hann tvo hrafna sem hann hafði tamið og margir muna eflaust eftir. Það væri vissulega gaman að fylgjast með þessum tilraunum Sigurðar og hvort fleiri fetuðu ekki i fótspor hans. 1 erlendum borgum þekkist það að i tjörn- um og lækjum sé ræktaður fiskur og er það algeng sjón, að menn stundi þar veiðar sinar I ró og spekt. Sigurður kvaðst að lokum hafa heyrt það af göml- um munnmælum, að Tjörnin væri álagablettur og að Fri- kirkjan I Rvk. ætti veiðirétt aö henni, en skyldi það aftra mönn- um nokkuð frá þvi að rækta sinn silung i friði? Siguröur Jónsson með bleikjuseiði i iófanum, tilbúinn aö sleppa því í Tjörnina. ■ Ferðir um hálendið í byrjun júlí Sagt var frá hálendisferðum Kerðaskrifstofu Úlfars Jacobsen og Guömundar Jónassonar fyrir stuttu í blaðinu, en það eru fleiri aöilar, sem sjá almenningj fyrir ferðuin um hálendið. Ferðafélag tslands hefur um margra ára skeið séð um að koma fólkinu á hálendið og annað, og fyrsta ferðin um hálendið veröur farin 7. júli, og stendur sú ferð I 8 daga. LESENDUR JkHAFA /áWi orðið „III meðferð á hestum" Undir þessari fyrirsögn, i Visi, 2. þ.m., er spurt, hvort Dýra- verndunarfélagið sé ekki lengur starfandi, eða hvort það hafi sofn- að á verðinum. Og tilefni spurn- inganna er það, að spyrjandi hef- ur „oftar en einu sinni séð menn festa hesta sina aftan i bila og aka siðan um allar trissur með hest- inn bundinn við bilinn”. Af frh. kemur i ljós, að spyrjandi hlýtur að hafa séð þetta nokkrum sinn- um, þvi að hann segir: „Sumir aka að visu hægt og varlega, en þvi miður er ekki hægt að segja það um alia.” Og úr þvi að hann hefur séð þá „aka um allar triss- ur”, hlýtur hann aö hafa fylgzt nokkuð með þeim og trúlega tekið númer einhverra bilanna. Og þar sem spyrjandi er áhugamaður Ferðir Ferðafélagsins eru að þvi leyti frábrugðnar öðrum ferð- um, að fólk verður algjörlega að sjá sér fyrir fæði sjálft, en i stað þess að búa i tjöldum er búið i húsum félagsins viðs vegar um landið Alls verða farnar 27 mis- munandi sumarferðir á vegum Ferðafélagsins i sumar, sumar eru aðeins helgarferðir og er þá farið i hálendisferðir. Getur fólk dvalið á fjöllum viku og beðið eftir næstu ferð, ef það óskar þess. Aðrar eru lengri ferðir og er sú lengsta 12 daga ferð, sem farin hefur verið um árabil. Sú ferð verður farin 9.‘ágúst, og verður þá farið um öræfin um Gæsavatnaleiðina. Og það má nefna þær fleiri hálendisferðirnar. 14. júli verður farið í Kerlingarfjöllin fyrst, og um góða meðferð á hestum, hefði hann átt að gefa stj. DR upplýs- ingar um númerin i stað þess, að þvi er virðist, ganga að þvi gefnu, að stjórnin eða félagsmenn vissu þau. Stjórn DR er spyrjanda eigi að siður þakklát. Athugasemdir 24. ágúst verður farin 4 daga ferð i Trölladyngju, og siðan verður önnur 12 daga ferð i ágúst, og verður þá farið um Norðaustur- land, um Borgarfjörð, Snæfell og fleira. Enn hefur ekki verið fært á hálendið en senn liður að þvi að allir sem vettlingi geta valdið fái tækifæri til þess að skoða sig um á þeim slóðum svo og annars staðar. EA. hans ber án efa fyrir augu margra hesteigenda, og vonandi hinna seku. Og trúlega taka þeir þær til greina, þvi að vafalaust má telja, að hestaeigendur vilja fara vel með hesta sina, þótt fyrir komi misbrestur, — en varla af á- setningi. — Enda hefur eigandinn þvi meira yndi af hesti sinum sem hann fer betur með hann. Stjórn DR mun hafa samband við stjórn Fáks i sambandi við þetta mál. — fyrirfram er vist, að hún mun gera sitt bezta til að fyrirbyggja slæma meðferð á hestum. M. Skaftfells Bréf um mjólkur- hœkkunina Lesandi einn hringdi i blaðið og vakti máls ij á mjólkur- hækkununum, sem sifellt hafa dunið yfir undanfarin ár. Eitt væri þó einkennilegt, að þegar mjólkin hækkar, þá hefur t.d verð á rjómais alltaf staðið i stað siðan 1962, utan eina hækkun sem var svo lagfærð, svo isinn komst i sama verð aftur. Hvernig er það, er rjóminn kannski greiddur niður eins og sumar land- búnaðarvörur?

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.