Vísir - 06.06.1972, Page 16
Frumsýning
S txt
i miðju
stúdentsprófi
Þaö hefur löngum þótt
ærinn starfi aö lesa undir
stúdentspróf, sömuleiðis
aö leika sitt fyrsta stóra
hlutverk, en aö gera hvort
tveggja i senn, þaö gerist
ekki á hverjum degi.
Þaö gerist nú samt i
dag, að 19 ára menntaskóla-
stúlka Ragnheiður Steindórs-
dóttir, leikur fyrsta stóra
hlutverkið sitt i Iðnó, og hún er
jafnframt i miðju stúdentsprófi.
Við hittum Ragnheiði i
morgun, þar sem hún var að
lesa niðri i Menntaskóla og
fengum að tefja hana i nokkrar
minútur frá próflestrinum.
Frumsýningin er i kvöld, og
Ragnheiður kveðst hafa vaknað
klukkan 7 i morgun til þess að
lesa. Það er i leikriti Jökuls
Jakobssonar, D&minó, sem
Ragnheiður leikur fyrsta hlut-
verk sitt i Iðnó, en hún hefur áð-
ur leikið titilhlutverkið i
Lysiströtu á Herranótt.
Ragnheiður er dóttir leikar-
anna Steindórs Hjörleifssonar
og Margrétar ólafsdóttur.
,,Ég er nú orðin dálitið þreytt,
en ég gleymi leikhúsinu að
mestu meðan á próflestrinurri
stendur. Svo ranka ég við mér
klukkutima áður en ég fer inn á
svið og þá kemur skrekkurinn.”
,,Hvort er erfiðara frum-
sýningin eða próflesturinn.”
,,Ég er hræddari við prófið.”
Ætiar þú að biða eftir rikis-
leiklistarskóla, eða fara i
Háskóla?”
„Ætli það verði ekki of löng
bið eftir rikisleiklistarskólan-
um, en ég hef áhuga á að fara út
að læra leiklist. Annars er allt
óákveðið, ég hef ekki tima til
þess að hugsa um það i bili.” Og
þar með var Ragnheiður horf-
in inn aftur með bækurnar
sinar. ÞS.
•*----------------m.
Það er strembinn dagur hjá Ragnheiði i dag,
en frumsýningarskrekkurinn dregur ekkert úr
próflestrinum. Hún ætlar sér að lesá i allan
dag. ,,Ég gleymi leikhúsinu að mestu á
meðan,” segir hún.
Stýrimenn sluppu með skrekkinn
Miðar lítið hjá senumönnum
— leiksviðsmenn Þjóðleikhússins standa i samningaþófi við ríkið
— vilja launahœkkun til jafns við senumenn Sjónvarpsins
Starfsmenn á sviði Þjóðleik-
hússins eiga enn i samningaþófi
við rikisvaldið. Vilja þeir fá sig
hækkaða upp um launaflokka,
cins og Vlsir skýrði frá fyrir
skömmu.
Enn mun litið hafa mjakazt i átt
til samkomulags, senumenn
gegna sinum störfum i myrkrinu
að tjaldabaki, en þeir vonast til að
Fólki er ráðlagt að baða sig
ekki i Nauthólsvikinni þetta sum-
arið, en reyna að notast hclriur
við sunrilaugar eða aðra heppi-
lega staði.
Mengunin og óhreinindin eru
orðin það mikil, að Nauthólsvikin
er ekki lengur talinn nothæfur
baðstaður, að minnsta kosti ekki
þar til næsta sumar.
En hvernig skyldi það vera með
baðstrendur á sólarlöndum? Eru
fá fram launahækkun, hliðstæða
þeirri sem sjónvarpsmenn, þeir
er hliðstæð störf vinna, fengu i
vetur. Senumenn Þjóðleikhússins
er i 11. - 13. launaflokki, en sjón-
varpsmenn voru hækkaðir allt
upp i 16. launaflokk.
Samkvæmt samningunum eru
senumenn skikkaðir til að vinna
vissa aukavinnu, þannig að lítið
þær nógu hreinar og ómeng-
aðar til þess að hægt sé að birta
freistandi auglýsingar um sólina
og bláan sjó við gylltar strendur?
Þeir sem bezt vita, segja
strendurnar sums staðar i
Evrópu siður en svo hreinni en
hériendis, en samt eru þær taldar
hæfar til notkunar og auglýstar
stöðugt.
Ekki er hægt að segja nokkuð
um hve mengun i Nauthólsvik er
mun þýða fyrir þá að beita auka-
vinnuverkfalli kröfum sinum til
framdráttar.
,,Það eru alltaf fundir annað
slagið um þetta” sagði senu-
maður einn, er Visir ræddi við i
morgun, „en það er ósköp tak-
markað sem gerist á hverjum
þeirra, held ég” —GG
mikil, að þvi er Þórhallur
Halldórsson tjáði blaðinu i
morgun, en eftir að gerlagróður
þar hefur verið rannsakaður,
hefur það komið i ljós að stað-
urinn er alls ekki hæfur til þess að
baða sig i.
Víðtækari rannsóknir þurfa
samt að fara fram til þess að hægt
sé að segja um hve mengun er á
háu stigi.
—EA
„Það er fljótt að koma uppi
geysiháar upphæðir við hvert
skip sem stöðvast” sagði Björg-
vin Sigurðsson framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambandsins
i samtali við Visi i morgun.
Mónudags-
afréttarinn
var of sterkur
Það var mánudagur i mörgum i
gær, alveg greinilega — enda
sjómannadagurinn þar á undan.
Og aflciðingarnar voru svo
hrikalegar hjá sumum, að þeir
hreinlega af báru það ekki öðru
visi en rétta sig ögn af.
En það bar meira á þessu á
götum borgarinnar i gær en aðra
mánudaga, þótt þá hafi kannski
staðið svipað á. Sólin laðaði alla
út í blíðviðrið, en i hitanum sveif
afréttarinn hressilega á menn. —
Þegar klukkan var orðin sjö, var
lika búið að stinga 18 manns inn i
Hverfissteininnn fyrir ölvun á al-
mannafæri.
Og þegar sólarhringurinn var
liðinn, var búið að setja alls 34
inn i fangageymslurnar fyrir
sömu sakir. — Það slagar hátt i
venjulegt gamlárskvöld og þau
föstudagskvöld, sem allt ætlar
um koll að keyra. GP
Skipaeigendur hafa ákveöiö aö
ekki komi til skaðabótakröfu á
hendur stýrimönnum vegna verk-
falls þeirra, sem félagsdómur
dæmdi ólöglegt i gær. Raunar var
það skilyrði sett, þegar verkfall-
inu var frestað eftir að það hafði
staðið i fjóra daga, a'ð atvinnu-
rekendur féllu frá skaðabóta-
kröfum. Er ljóst að slikar kröfur
hefðu skipt stórum upphæðum
þar sem bæði er um að ræða
rekstrartap og launagreiðslur til
skipverja. —SG.
Stunda enn
skíðaíþrótt
í Bláfjöllum
Enda þótt veturinn hafi ekki
verið snjóþungur og vorið verið
blitt, þá voru talsvcrt margir enn
á skiðum i Bláfjöllunum um
siðustu helgi i geysigóðu veðri.
Einn skfðamaðurinn sagði i við-
tali við Visi að snjór hefði náð
alveg niður á sléttu, og skilyrðin
skinandi góð. Hinsvegar kvaðst
hann ekki búast við að hægt
mundi að fara þarna á skiði um
næstu helgi, hlýindin væru slík, og
snjólagið, sem þar var um siðustu
heigi var orðið ærið þunnt.
—JBP—
Nauthólsvíkin hreinni
en margar baðstrendur?
Gifting að heiðnum sið í Grábrókarhrauni
„Þetta var afskap-
lega eftirminnileg nótt.
Við vorum liklega um
70 manns, sem þarna
vorum viðstödd, þar á
meðal allt starfsfólkið
hér á Bifröst. Það er
ekki á hverjum degi
sem maður er við-
staddur svona ánægju-
lega og óvenjulega at-
burði.”
— sagði Guðlaug
Einarsdóttir, ein af starfs-
stúlkunum á Bifröst i morgun,
þegar blaðið hringdi til hennar
og innti hana eftir brúðkaups-
vígslu þeirri, sem fór fram i
Grábrókarhraum vio soiarupp-
rás i gærmorgun. Þar voru gefin
saman þau Joan Halifax, mann-
fræðingur frá Miami og dr.
Stanislav Grof, geðlæknir frá
Baltimore, samkvæmt eldforn-
um siðareglum og framkvæmdi
athöfnina séra Huston Smith
prófessor i samanburðartrú-
fræði.
„Þarna voru viðstaddir þrir
erlendir prestar, þar af einn
lúterskur. Þau töldu liklegt að
þessi gifting yrði talin lögleg i
Bandarikjunum, en það verður
athugað betur, þegar þau koma
. þangað”. sagði Guðlaug.
„Eigið þið nokkuð von á að
fleiri láti vigja sig þarna i
hrauninu?”
„Það er ekki gott að vita.
Ekkert hefðum við á móti þvi
hérna á Bifröst. Þetta var alveg
sérstaklega hátiðleg og falleg
athöfn, enda veðrið einstaklega
fallegt, þótt ekki væri mjög
hlýtt. Presturinn, og brúðgum-
inn voru báðir i islenzkum lopa-
peysum, en brúðurin var í is-
lenzkum skautbúningi. ” —
sagði Guðlaug ennfremur.
Brúðhjónin voru á alþjóðlegri
ráðstefnu um sálfræði og sál-
ræna liffræði þarna á Bifröst, en
eru nú farin upp i Þórsmörk
meðallmörgum ráðstefnugesta.
ÞS.