Vísir - 08.06.1972, Blaðsíða 1
vísm
62. árg.—Fimmtudagur 8. júní 1972—127 tbl.
Betra að aka Starr en Lennon?
John Lennon og spúsa hans
Yoko Ono hafa fengið heldur
kaidar kveðjur frá fyrrverandi
einkabilstjóra sinum nú ný-
verið, þegar sá góði maður tók
sig til og skrifaði um hjúin. —
Kingo Starr fær hinsvegar hina
beztu einkunn hjá sinum bil-
stjóra, þannig að svo virðist
sem hvaða skólastjóri sem er
gæti notað Kingo sem heppilega
fyrirmynd skólaæskunnar. —
Kannski hefur þó aðeins verið
þægilegra að aka trymmlinum
en þeim Lennon og Yoko.
Sjá bls. 12
Gjöfina á
helzt aldrei
að nota
„Vonandi verður þessi gjöf
aldrei notuð”, sögðu Sport-
vinir, félag, sem hefur það á
stefnuskrá sinni að styrkja
knattspyrnumenn Kefla-
vikur, þegar þeir gáfu þeim
góða gjöf á dögunum, og
engin furða þótt þeir létu
þessi orð fylgja gjöfinni. —
Sjá iþróttir i opnu
Ekki reiknað
með börnum
Flestir borgarbúar lenda
einhvern tima i þvi að fara
með börn um bæinn. — Það
er þvi undarlegt, að það er
eins og hvergi sé gert ráð
fyrir börnum, nema lok-
uðum inni á heimiium eða
einstaka leikvelli. Við
komumst yfirleitt ekki með
litilbörninn i verzlanir, ekki
upp og niður stiga, gang-
brautirnar eru ekki ætlaðar
vögnum eða kerrum, ennþá
siður strætisvagninn og
hvergi i miðbænum er af-
drep, þar sem hægt er með
góðu móti að gefa börnum og
skipta á þeim. — Sjá nánar á
Inn-siðu bls 9
Róbert:
Tevje í Þýzkalandi
Gúðmundsen
á íslandi
Það er ekki deyfðinni og
fásinninu fyrir að fara hjá
honum Kóbert á næstunni.
Nú vilja þjóðverjar fá að sjá
hann i hlutverki Tevje i Fið-
laranum á þakinu, en á
siðasta ári sáu þeir hann
sem Zorba og likaði vist vel.
Hann fer þvi til Niirnberg
næsta vor, en sitthvað kann
að gerast á meðan. Það þarf
t.d. einhver að leika Gúð-
mundsen i Brekkukotsannál.
Sjá bls. 4
SPRENGJU-
HÓTANIR
STJÓRN-
LEYSINGJA
...börn eru scnd heim úr
skólum, lögreglan leitar að
sprengjum i hverjum einasta
bil sem til eða frá Frankfurt
kemur... dularfullir menn
hringja og segja sprengju
springa „einhvers staðar” á
milli klukkan 13 - 14. Lög-
reglan i V-Þýzkalandi er
oröin þreytt á stjórn-
leysingjanum Ulriku
Meinhof og liðsmönnum
hennar, sem halda áfram að
erta fólk, þótt annar foringi
Meinhof-hópsins, Andreas
Baader, sé nú i höndum lög-
reglunnar. Sjá bls. 6
Hœkkar blokkin? — Lœkkar ekki
Ymsir, a.m.k. meðal
minni spámanna, hafa
beðið þess með öndina i
hálsinum, hvernig
markaðsverðið á þorsk-
blokkinni þróaðist i
Bandarikjunum. Fyrir
nokkrum vikum varð
vart ákveðinnar ,,tauga-
veiklunar” á markaðin-
um og urðu þvi margir
uggandi um, að blokkar-
verðið, sem hefur verið
mjög hátt undanfarin
tvö ár og farið hækk-
andi, væri nú að lækka
aftur.
Opinbert markaðs-
verð var skráö 47 sent fyrir pund-
ið í þorskblokk í lok april og
markaðurinn sagður mjög traust-
ur. Um miðjan mai var markaðs-
verðið skráð 45-47 sent og mark-
aðurinn sagður óákveöinn og 24.
mai var verðið skráð 45 sent, þó
að sölur á 47 sent væru þekktar.
Þeim, sem mundu eftir upphafi
verðfallsins mikla, sem varð á
þorskblokkinni 1966, fannst margt
minna sig á þann tima. Þá hófst
verðfallið einmitt á þann hátt, að
einn stór kaupandi pindi niður
nokkurt magn um tima.
Visir hefur nú kannað, að þessi
„taugaveiklun” hefur ekki komið
niður á islenzkum útflutningi
freðfisks á Bandarlkjamarkaö.
Islenzku fyrirtækin tvö, Iceland
Product (SÍS) og Coldwater (SH),
hafa keypt alla þorskblokk, sem
héðan hefur veriö send, á 47 sent
undanfarið, þrátt fyrir að lægri
verð þekktust á markaöinum.
Þaö er ekki einasta, að þorsk-
blokkin hefur haldizt alveg i
hæsta verði, heldur er margt sem
bendir til þess, aö verðið geti
jafnvel hækkaö eða a.m.k. ekki
lækkað. Merki þess er t.d. þaö, aö
verðið fyrir fryst flök i 5 punda
pakningum hefur nýlega hækkað i
70 sent pundið, en þau voru i 56
sentum fyrir ári. Islenzku flökin
eru i hærra verði en flök frá nokk-
urri annarri þjóð. Þannig erverðif
á þorskflökum frá Kanada i 61-62
sentum. útilokað hefur reynzt að
fullnægja eftirspurninni eftir
islenzku flökunum, en þau eru
mest notuö i fish&chip búöum,
þ.e. þeim, sem vilja aðeins bjóða
það bezta.
Astæðan fyrir þessari tauga-
veiklun, sem gætti á markaðinum
um tima, er talin vera sú fyrst og
fremst, að töluvert var boöið
fram af þorskblokk, sem aðeins
hentaöii svokallaöa „fishsticks”,
en framleiðsla þess hefur
minnkað nokkuð, meöan eftir-
spurnin eftir öörum framleiðslu-
greinum fiskréttaverksmiðianna
heíur aukizt. Þá hefur fundizt ný
fisktegund, Alaska pollock,
Alaskaufsi (sem likist raunar
meira þorski), sem hentar vel til
framleiðsluá fiskstautum. Veröið
á Alaskaufsanum er lægra, og
hefur það þvi valdið nokkurri
verðlækkun á blokkinni, sem sér-
staklega er sniðin fyrir fisk-
stautaframleiðslu.
Þess skal getið, að fljótlega
finnst fyrir þvi hér á landi, þegar
verðsveiflur veröa á freðfiskinum
á Bandarikjamarkaöj eða 53.229
tonn. Verðbreyting sem sam-
svarar einu senti, samsvarar þvi
um 100 milljónum króna miðað
viö ársgrundvöll.
-VJ.
* £ \ t Sipi. % fz■f;am A
'i-iBf SSf iBSM
. cií *». iu' W rH,-
Sól og svali
Lögreglan á fíknilyfjanámskeiði
Lögregluþjónar I Reykjavik bg
einnig úr nærliggjandi bæjar-
f élögum sitja þessa dagana á
skólabekk, en á þriðjudaginn
hófst hjá þeim fikniefnanám-
skeið.
„Þeir fóru til Bandarikjanna i
vetur, Asgeir Friöjónsson, full-
trúi, og Guömundur Hermanns-
son, yfirlögregluþjónn, og sóttu
námskeiö hjá FBI — alrikislög-
reglu USA — um fikniefni. Og nú
eru þeir aö miöla þeirri þekkingu,
sem þeir öfluöu sér þar” sagöi
Bjarki Eliasson, yfirlögregiu-
þjónn, aöspuröur um námskeiöiö.
„Þaö er um aö ræöa tilsögn i
þvi, hvernig menn geti þekkt
þessi efni, hass, LSD og önnur al-
gengustu fikniefni. Hvernig hægt
sé aö þekkja áhrifin af þeim,
hvernig greina megi þau frá
hvort öröru.. o.s.frv.” hélt Bjarki
áfram.
Lögreglumennirnit sækja þessi
námskeið, sem standa yfir fram
að næstu helgi, I fristundum
sinum, og gefst lögregluþjónum
utan af landi einnig kostur á að
nýta þau. —GP
Þó að hitinn hafi ekki farið
upp i nema 9 stig i Reykjavik
i gær, létu borgarbúar það
ekki aftra sér frá þvi að fara
i sólbaö. V.eðrið hefur lika
veriö cinstaklcga fallegt
þessa viku, sól og bliða upp á
hvern dag, þótt ekki sé hægt
aö tala um veröulegan hita.
1 morgun var aöeins fjögurra
stiga hiti i Reykjav. og spáir
■Veðurstofan svipuöu veöri
áfram og aö hlýni þegar
lföur á daginn. Gróðurinn
hefur hins vegar ekki haft
sérlega gott af þessari veð-
ráttu, varla hefur komið
dropi úr lofti svo dögum
skiptir. Þessi mynd var tekin
á Austurvelli i gær, þar sem
unnið er aö gróðursetningu
fyrir 17. júni. þs
Lœknar fengu 30—40%
Sfá baksíðu