Vísir - 08.06.1972, Page 10
10
VtSIR. Fimmtudagur 8. júní 1972.
VÍSIR. Fimmtudagur 8. júni 1972.
11
ÞRÍBÆTTI HÁSTÖKKSMETIÐ Sini
— og er nú aðeins 4 sm fró OL-lógmarkinu
Að öllum líkindum hefur einvigið kraftajötnanna
tveggja i kúluvarpinu, þeirra Guðmundar
Hermannssonar og Hreins Halldórssonar, verið
mönnum efst i huga, þegar júni-mót frjálsiþrótta-
manna hófst i Laugardalnum i gærkvöldi. Það var
hins vegar veikara kynið, sem vann sér hylli við-
staddra með þvi að setja ný íslandsmet i þremur
greinum þennan fyrri dag mótsins, sem lýkur i
kvöld.
Það kostar átök að stökkva hátt 17 metra I langstökkinu.
Hin bráðefnilega frjálsiþrótta-
kona, Lára Sveinsdóttir, sem
fyrir skömmu setti tslandsmet i
hástökki kvenna, 1,58, þrisló nú
það met, sem verður aö teljast
frábær árangur hjá hinni korn-
ungu iþróttakonu. Lára sló met
sitt fyrst með þvi aö stökkva 1,59
og lét hækka 11,60. Þá var hækkað
1 1,62 og Lára fór einnig yfir þá
hæð viö mikinn fögnuð áhorfenda.
Hún reyndi aö lokum viö OL-lág-
markið, 1,66, og var mjög nærri
þvi að fara þá hæð. Varla stendur
sú hæð lengi i vegi fyrir Láru.
Arndis Björnsdóttir, UMSK,
önnur mjög efnileg ung frjáls-
iþróttakona, sem i fyrra setti
tslandsmet i spjótkasti kvenna,
38,66 metra, tvibætti þann
árangur i gærkvöld. Kastaöi hún
fyrst 39,38 metra, en bætti svo um
betur og kastaði 39,60 metra.
Loks sló Ragnhildur Pálsdóttir,
UMSK, metið i 800 metra hlaupi
kvenna, sem Ingunn Einarsdóttir
setti i fyrra, er hún hljóp á 2.27,0.
Ragnhildur bætti met Ingunnar
um 5 sekúndur sléttar, og hljóp á
2 minútum og 22 sekúndum.
Minna varð úr kúluvarpsein-
viginu i karlaflokki en á horfðist,
þvi Guðmundur Hermannsson
sigraði auðveldlega hinn harð-
snúna Strandamann, Hrein
Halldórsson, og kastaði 17,62
metra. Hreinn kastaði „aðeins”
16,81 metra, og i þriðja sæti varð
Erlendur Valdimarsson sem
kastaöi 16,35 metra.
Ekki hjuggu keppendur i hlaup-
unum nærri tslandsmetum.
Bjarni Stefánsson sigraöi i 200
metra hlaupi á 21,9 sekúndum, og
annar varð Vilmundur Vilhjálms-
son á 22,9 sekundum. t 800 metra
hlaupinu náði Ágúst Asgeirsson
beztum tima, 1.56,5, en i öðru sæti
varö Böðvar Sigurjónsson á
1,58,8. Jón Sigurðsson, HSK, varö
nokkuð langt á undan 2. manni i
5000 metrunum, hljóp á 15.53,8.
Borgþór Magnússon sigraði i 400
metra grindahlaupi karla, hljóp á
57,8 sekúndum, en Kristján
Magnússon hljóp á 64,8. Sveit KR
kom fyrst i mark i 4x100 metra
hlaupi, og hljóp á 44,7 sekúndum.
Ásbjörn Sveinsson, UMSK, og
Elias Sveinsson tR, háðu harða
baráttu um efsta sætið i spjót-
kastinu, og varð Ásbjörn hlut-
skarpari og kastaði 58, 34 metra.
Elias Sveinsson kastaöi spjótinu
58,06 metra, nýkominn úr
hástökkskeppninni, þar sem hann
sigraði á 1,95, en Hafsteinn
Jóhannesson, UMSK, varð annað
með 1,90.
Kristin Björnsdóttir vann 100
metra grindahlaup kvenna, hljóp
á 17,3 sekúndum. Lára Sveins-
dóttir sigraði i 200 metrunum,
hljóp á 26, 5 sekúndum, en hún
var einnig i sveit Armanns, sem
sigraði i 4x100 metra hlaupi
kvenna, en systir hennar, Sigrún,
hljóp þar lokasprettinn fyrir
Armann. I kúluvarpi sigraði
Gunnþórunn Geirsdóttir, UMSK,
sem kastaöi kúlunni 10,37 metra.
gþ
Enginn drykkur er eins og Coca-Cola
Coca-Cola hefir hið ferska, lifandi bragð,
sem fullnægir smekk hins nýja tíma
Coca-Cola - Það er drykkurinn
Lára Sveinsdóttir úr Armanni
rennir sér hér yfir 1,62 metra, —
og setur enn eitt Islandsmetið i
hástökkinu. Hún stekkur með
hinum skemmtilega Fosbury-
stll.
íþróttamenn í
byggingaham
Það er greinilegt, að
íþróttahreyf ingin er að
byggja yfir sig og sína, —
a.m.k. er áhuginn aug-
Ijós, þegar gluggað er í
plögg frá fundum bygg-
ingarnefndar i Reykja-
vík.
Á dögunum voru þar t.d.
þrjár umsóknir frá
iþróttafélögum og sam-
tökum, þar sem sótt var
um leyfi til að byggja.
íSí sótti um leyfi til að
byggja skrifstofuhús úr
steinsteypu við íþrótta-
húsið í Laugardal, 256.3
fermetrar að stærð, 2190
rúmmetrar. Erindinu var
frestað.
Þá fóru Ármenningar
fram á að fá að byggja
íþróttahús úr steinsteypu
á lóð sinni við Sigtún, 801
fermetra að stærð, 5290
rúmmetrar. Einnig þeirra
málaleitan var frestað.
Þá sendi TBR, Tennis
og badmintonf élag
Reykjavíkur, fyrirspurn
um, hvort leyft yrði að
byggja íþróttahús sam-
kvæmt teikningu, sem fé-
lagið sendi. Hús þetta á að
standa á lóðinni nr. 1 við
Gnoðarvog. Bygginga-
fulltrúa var valið að
svara.
Þá hefur verið sagt frá
því að Þróttur hugsar til
hreifings, i félagsheimila-
málum, og vitað er, að
mörg önnur félög eru
alvarlega að hugsa til
hreifings, enda full þörf
fyrirfleiri slík mannvirki,
eins og kunnugt er.
Óttuðust finnska jöfnun
— en svo bœttu Danir tveim mörkum við undir leikslokin
Danska landsliðið, sem við eig-
um eftir að leika við í næsta mán-
uði, vann Finnland í gærkvöldi í
knattspyrnuleik á Idrætsparken i
Kaupmannahöfn með 3:0.
Þrátt fyrir svo stóran sigur voru áhorf-
endurnir 25 þúsund logandi hræddir um að
Finnarnir jöfnuðu leikana i 1:1, þegar
eftir voru 8 mínútur af leiknum, þvi
finnska sóknin var oft stórhættuleg, enda
þótt Danir ættu 80 af 90 minútum leiksins
að sögn NTB-fréttastofunnar.
Máttu Finnar þakka Ranta markverði,
að ekki fór verr. i hálfleik var staðan 0:0,
en eftir einnar minútu leik i seinni hálfleik
skoraði Jörgen Kristensen eftir skemmti-
legan einleik. Sjö min. fyrir leikslok skor-
aði hann enn, en á 41. min. siðari hálfleiks
skoraði svo Kristen Bjerre úr vitaspyrnu.
t unglingalandsleik á sama tima i
Kuoþio i Finnlandi unnu Danir með 4:0 lið
Finnanna, einnig þar var staðan 0:0 i
hálfleik.
Hœttir eftir 32 ára
stjórnarstörf í Haukum
Það er ekki venjulegt, að menn sitji 32
ár i stjórn iþróttafélaga, — en það gerði
Jón Egilsson, aðalgjaldkcri I stjórn
Ilauka i Hafnarfirði. Hann baðst undan
endurkjöri, þegar félagið hélt aðalfund
sinn nú i vor. Þegar Jón kvaddi kassann
þeirra Haukanna, var hið bezta ástand i
fjármálum, en fjárhagurinn hefur batnað
mjög með tilkomu getraunaseðlanna og
tekna, sem félögin fá af sölu þeirra.
1 stjórn Hauka fyrir næsta starfsár voru
kosnir þeir Garðar Halldórsson, formað-
ur, Magnús Guðjónsson, Egill Strange,
Bjarni Linnet, Jón Kr. Jóhannesson, Sig-
urður Kristinsson og Sigurjón Gunnars-
son.
Formaður handknattleiksdeildar er
Hermann Þórðarson, en formaður knatt-
spyrnudeildar örn Sigurðsson. Formaður
körfuknattleiksdeildar er Eirlkur Skarp-
héðinsson, endurskoðendur þeir Eggert
Isaksen og Vilhjálmur Skúlason.
MEISTARARNIR REÐU
EKKERT VIÐ KÁRA
— sem skoraði 3 mörk í sigurleik Akureyrar í gœr
Akureyringar flykktust á
völlinn i gærkvöldi, þegar
2. deildarlið þeirra keppti
við islandsmeistara Kefla-
vikur á minningarleiknum
um Jakob Jakobsson, — og
þeir voru sannarlega ekki
sviknir um góða skemmt-
un. Lið þeirra vann
leikinn verðskuldað með
4:3 eftir ágætan leik, sem
mundi sóma sér betur í 1.
deild en þeirri annarri.
Heimaliðið var mjög ráðandi
allan leikinn.ef frá eru taldar
fyrstu minúturnar og þær siöustu.
Einar 16 rangstöður voru
dæmdar á Akureyringa, þvi Kefl-
vikingar héldu uppi rang-
stöðu”taktík.'’
Keflvíkingar urðu fyrri til að
skora. Steinar Jóhannsson not-
færði sér það, þegar vörn Akur-
eyrar riðlaðist, skaut, og boltinn
hrökk i stöng og inn.
Tiu minútum siöar jafnar
Sigurbjörn Gunnarsson af stuttu
færi. Það var framtak Kára, sem
þarna skapaði mark, en Sigbjörn
gat athafnað sig, þar sem hann
var i stuttu færi við markið. A 38.
min. kom fallegasta mark
leiksins, nokkuð sem sjaldan sést
i leikjum. Jóhannes Atlason tók
innkast um miðbik vallar-
helmingsins, varpaði langt inn á
Magnús Jónatansson, sem
nikkaði boltanum laglega fram á
við til Kára Arnasonar, sem
leyföi knettinum eigi að heldur að
snerta joröu, en afgreiddi hann
samstundis með mikilli neglingu
alveg óverjandi fyrir Reyni
markvörð. Skotið var af vitateig,
eða rétt innan hans.
t seinni hálfleik náðu
Akureyiingar fljótlega tveggja
marka forystu með 3:1. Reynir
hljóp nokkuð glannalega út úr
markinu, og það var létt verk
fyrir Kára að skora i autt og yfir-
gefið markið. Þetta var á .54.
minútu leiksins.
Á 73. minútu minnkar Grétar
Magnússon muninn fyrir
Keflavik eftir laglegt samstarf
við Friðrik Ragnarsson, sem var
nýkominn inn á völlinn. Þetta
setti spennu i leikinn og gerði
hann skemmtilegri á aö horfa.
Og fslandsmeistararnir jöfnuðu
4 minútum siðar. Ólafur Július-
son skoraði beint úr hornspyrnu,
glæsilegt mark. Boltinn sveif i
góðum boga fyrir markið, snún-
ingurinn var viðsjárverður, og
enda þótt Árni markvörður næði
rétt að góma knöttinn, nægöi það
ekki til, boltinn fór i netiö. f þessu
tilviki hafði Ólafur ekki aðstoð
vindsins viö að skora, en notaði
eingöngu snúning i spyrnunni.
Sjö minútur voru til leiksloka,
þegar Kári skoraði sigurmarkið
og sitt þriðja mark i einhverjum
glæsilegasta leik, sem hann hefur
leikiö um árabil. Hinn fljóti og
áræðni nýliði, Ómar Friðriksson.
lék þarna á vörnina, datt, en
kraflaöi sig upp undur hratt, og
kom boltanum loks fyrir fætur
Kára sem var ekki seinn að not-
færa sér tækifærið og skora.
< s-.,*
Hér leggja hlaupararnir upp I 800 metra hlaupið, en tveir ungir hlauparar hlupu á góðum tjmhm undir 2 mínútunum
Gjöf sem vonandi
verður aldrei notuð
Það er ekki venjan að láta
þess getið um leið og gjöf er
gefin, — ,,að vonandi verði hún
aldrei notuð.” Þetta fylgir þó
gjöf Sportmanna IBK, hins nýja
félagsskapar áhugamannanna,
sem fylgja Keflavikurliðinu i
knattspyrnu áð málum.
Gjöfin er nefnilega trygging,
sem Sportmenn tóku handa
leikmönnum IBK, og er þetta
fyrsta framlag félagsins til
knattspyrnunnar i bænum. Var
það álit félaganna i Sport-
mönnum, aö þetta mál skyldi
verða sett öðru ofar og fór svo,
að tekin var trygging, sem
gerir ráð fyrir tryggingabótum,
— 1 milljón við dauða eða 100%
örorku, 5000 kr. slysabætur á
viku eftir 14 daga frá vinnu.
Og þessu íylgir vitanlega sú
ósk, að gjöfina þurfi aldrei að
nota. En trygging er trygging,
— og slysin geta hent alla. Þvi
er hér um hina ágætustu gjöf að
ræða. í siðustu viku afhenti for-
maður Sportmanna, Jóhann
Pétursson, Hafsteini Guð-
mundssyni formanni tBK trygg-
ingaskirteiniö.
Akureyringar eru greinilega
ekki á þvi að tapa minningar-
leikjunum. Þetta var7. leikurinn,
— 5 hafa þeir unnið, eitt jafntefli
gerðu þeir við Val, en töpuðu i
fyrra fyrir KR.
Langbezti leikmaöur IBA var
Kári, eins og fyrr greinir.
Magnús Jónatansson, sem menn
voru i vafa um, hvort ætti að
setja i liðið, sannaði gildi sitt og
var mjög góöur. 1 liði Keflavikur
var Grétar Magnússson beztur,
en Ólafur Júliusson og Albert
Hjálmarsson léku prýðilega.
Bjarni Bjarnason dæmdi
leikinn af prýði, en sannar-
lega voru áhorfendur ekki allt of
ánægðir með „heima” liriu-
vörðinn, Rafn Hjaltalin, sem var i
einkar erfiðri aðstööu, svo mikiö
mæddi á honum varðandi rang-
stöðudómana. En áreiöanlega
vann hann verk sitt af fyllstu
samvizkusemi. — sbj.