Vísir - 08.06.1972, Blaðsíða 13
VÍSIR. Fimmtudagur 8. júni 1972.
13
VOLKSWAGENEIGENDUR
hljoðkútar í
VOLKSWAGEN 1200 OG 1300
ÖLL VERÐ ÓTRÚLEGA HAGSTÆD.
■ varahlutir
Suðurlandsbraut 12 - Itaykjavfk - Sími 34510
Utboð
Fyrstu fermingarbörnin
i nýju kirkjunni
Hér getur aö lita nokkrar ungar
stúlkur, sem voru aö ganga i
fulloröinna manna tölu á
dögunum i Hverageröiskirkjunni
nýju. Þær voru i hópi fyrstu
fermingarbarnanna i kirkjunni,
hátiölegar og settlegar á svip.
Myndina tók tsak Jónsson.
Vara við verðbólgu
Meöal samþykkta á aðalfundi
Sölumiðstöðvar hraöfrysti-
húsanna i siöustu viku var varað
við hraðvaxandi veröbólgu, sem
sé'rstaklega kemur hart niður á
útflutningsframleiöslunni, og var
skorað á stjórnvöld að gera allt,
sem i þeirra valdi stendur til að
hefta verðbólguna. í stjórn
S.H. næsta starfsár eru þessir
menn: Gunnar Guðjónsson, for-
maður, Einar Sigurðsson
varaform., Guðfinnur Einarsson,
ritari, Einar Sigurjónsson, Gisli
Konráðsson, Ingvar Vilhjálms-
son, ólafur Jónsson, Rögnvaldur
Ólafsson og Tryggvi ófeigsson.
Bólusett gegn mænusótt
— og það án endurgjalds
Það er áreiðanlega vinsælt að
þurfa ei að borga svo mikið sem
fimmeyring fyrir að fá bólu-
setningu gegn mænusott, en nú er
bólusetningin hafin i Heilsu-
verndarstöð Reykjavikur. Er
ónæmisaðgerðin ætluö fólki frá 18
ára aldri, sem ekki hefur látið
bólusetja sig s.l. 5 ár.
Þakkar hugulsemi
islenzkra bænda
Gisli Kristjánsson ritstjóri Freys
hitti dýralækni Grænlendinga,
Kirkegaard Petersen, nýlega aö
máli á Keflavíkurflugvelli. Bað
dýralæknirinn Gisla að koma á
framfæri beztu þökkum til
islenzkra aðila, sem buðu græn-
lenzkum bændum; hey, sem að
visu aldrei komst þangað þótt
þess væri mikil þörf, þvi
flutningsskilyrði voru mjög
erfið i vetur og vor. Sagöi
dýralæknirinn mikinn áhuga hjá
grænlenzkum bændum að heim-
sækja starfsbræður sina hér á
landi sem fyrst.
r
Þrir sækja um skóla-
meistaraembætti
Þrjár umsóknir bárust um laust
embætti við Menntaskólann á
Akureyri. Umsækjendur eru þeir
Gunnar Ragnarsson, skólastjóri á
Bolungarvik, séra Skarphéðinn
Pétursson, prófastur i Bjarnanesi
og Tryggvi Gislason lektor i
Berge n.
Dragnót takmörkuð
Leyfi verða veitt á þessu sumri á
sömu timum og sömu svæöum og
i fyrra til dragnótaveiða. Þó er
gerð sú breyting á veiðisvæöum
samkvæmt leyfunum nú að
innanverður Húnaflói verður
lokaður fyrir dragnótaveiðum
innan linu frá Gjögurvita þvert
fyrir fjörðinn að Kálfshamarsvlk.
Leyfisbréfin heimila handhöfum
veiðar frá 15. júni til 31. október,
en fyrir Norðurlandi hefst veiöin
þó ekki fyrr en 15 júni, en lýkur
30. nóvember.
Ganga nú aðeins
úr Hafnarfirði
Þrátt fyrir þá allsherjar trimm-
öld, sem yfir heiminn gengur,
styttist sifellt sú vegalengd, sem
hernámsandstæðingar ganga til
að vekja athygli á kröfum sinum i
herstöðvarmálunum. Á sunnu-
daginn ganga þeir úr Hafnarfirði,
doka við i Kópavogi, þar sem
stuttur útifundur verður haldinn,
en endað verður á útifundi i miö-
bæ Reykjavikur. Það er Miðnefnd
herstöðvaandstæðinga, sem
stendur fyrir göngunni og fundun-
um. Safnazt verður saman i
Hafnarfirði kl. um 7 á sunnudags-
kvöld, þar sem byrjað veröur
með fundi, en útifundurinn við
Miöbæjarskólann veröur kl. 11
um kvöldið.
Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar
óskar eftir tilboðum i smiði og upp-
setningu á:
1. skápum
2. eldhúsinnréttingum
i 200 ibúðir i Breiðholti III, suður. tJtboðs-
gögn afhent i skrifstofu F.B., Lágmúla 9,
föstudaginn 9. júní gegn 2000 kr. skila-
tryggingu.
HJUKRUNARKONUR
Fjórar hjúkrunarkonur óskast að Heilsu-
verndarstöð Reykjavikur 1. september
n.k. Hjúkrunarkonur, sem hyggja á fram-
haldsnám i heilsuvernd, ganga fyrir. For-
stöðukona veitir nánari upplýsingar i
sima 22400 frá kl. 9-12.
Heilsuverndarstöð Reykjavikur
íbúð óskust
Góð 4ra herbergja ibúð óskast til leigu frá
20. júli, með eða án húsgagna, fyrir norska
6 manna fjölskyldu, mjög reglusama.
Helzt i Mosfellssveit eða Reykjavik. Uppl.
i sima 66300 og 66303.
Álafoss h.f.
Festi auglýsir
Sundbolir, bikini, sundskýlur,
Heildsölubirgðir. Festi. Simar 10550 og
10590
Landsbanki Íslands
Grindavík
Höfum opnað í nýjum húsa
kynnum við Víkurbraut 25.
Afgreiðslutími mónudaga til
föstudaga kl. 9,30 til 12,30
og kl. 13,30 til 15,30.
Sími 92 - 8179.
Bankinn annast öll innlend
og erlend viðskipti.
LANDSBANKI ÍSLANDS