Vísir - 22.06.1972, Síða 1

Vísir - 22.06.1972, Síða 1
VISIR 62. árg. Fimmtudagur 22. júni 1972 138 tbl. Dœmt í klukku- málinu frœga! Sérráðsdómstóll KIIR tók klukkumálið fræga fyrir i gær- kvöldi — það er kæru KR vegna þess að leiktimi i leik KR og Keflavik á dögunum i 1. deild hefði verið alltof langur. Niður- staða dóinsins var að úrslit leiksins skyldu gilda — scm sagt kæru KR var synjað. Keflvík- ingar sigruðu i leiknum með 3-1. Sjá nánar iþróttir i opnu Víðar en á Mallorca Það eru viöar baðstrendur en suður á henni Mallorca eða Costa del Sol. í Eyjum er Costa del Klauf og við Stokkseyri og Eyrarbakka er skinandi aðstaða. „Dýrðleg aðstaða” sögðu simastúlk- urnar. — „Höfum ekki séð það betra. Allt tilbúið frá náttúrunnar hendi”. Sjá bls. 3 Rafmagnsbíll frá Toyota Þeir ætla að hefja fram- leiðslu rafknúins fólksbils hjá Toyota i Japan. 1 gær skýrðu talsmenn Toyota frá þvi k fundi, að skammt yrði nú að biða þess, aö rafknúinn bill kæmi á almennan mark- að. sjá nánar á bls. 5 Skœruliðar öflugir Skæruliðahreyfingar i Mið- austuriöndum eru margar og sumar öflugar. Margar þeirra njóta fjárhags- legs stuðnings Kina, N-Kóreu eða vinstri afla i Evrópu. Nánari útlistun á skæruliðasveitum er á bls. 6 Vatnið og börnin Hvað getum við gert til þess að koma i veg fyrir vatns- hræðslu hjá börnum? Hvenær er óhætt aö fara með börn i laugar? — Þessar spurningar og ýmsar fleiri sem snerta vatn og börn eru teknar fyrir á Innsiðunni i dag. Sjá bls. 7 Enn leitdð að Ingólfsbœ Fornleifarannsóknirnar i bæjarrústunum frá land- námstið við Túngötu eru að hefjast aftur. Sænskú fornleifa- f r æ ð i n g a r n ir , Bengt Schönback og kona hans Else Nordahl, sem unnu að uppgreftrinum I fyrra, komu hingaö til lands um helgina til þess að halda áfram rannsóknunum I sumar.. Að þessu sinni hyggjast þau færa sig til i Grjóta- þorpinu við uppgröftinn, en láta staðar numið i bili, þar sem grafið var i fyrra. Sjá nánar stutt spjall við Bengt Schönbáck, safnvörð frá Statens Ilistoriska Museum i Stokkhólmi, en það er á bls. 2. Hamranesmálið: Skipið hefði sokkið strax ef tundurdufI hefði sökkt þvi Sjá baksíðu VERÐA SKIPAFELOGIN AÐ ENDURGREIÐA MILLJÓNIR? í Sjó- og verzlunardómi Iteykjavikur var þingfest á föstu- daginn mál, sem fyrirtækið „islenzkur útflutningur h.f." hefur höfðaö á hendur Eimskipa- félagi islands fyrir brot á laga- ákvæðum, sem banna verð- hækkanir á vörum og þjónustu án leyfis ríkisstjórnarinnar. Krefst fyrirtækið ki. 76 þúsunda endurgreiöslu úr hendi Eim- skipafélagsins vegna hækkana á flutningsgjöldum sem tóku gildi i janúar. og fyrirtækið telur ólög- mætar. Nái kröfur fyrirtækisins fram að ganga, má búast við þvf, að Eimskipafélagiö og reyndar einnig skipadeild SIS þurfi að endurgreiöa útflytjendum veru- legar fjárhæðir vegna of hárra flutningsgjalda á undanförnum mánuðum. í janúar s.l. voru gerðir samningar milli Eimskipa- félagsins og Sölumiðstöðvar hraöfrystihúsanna um hækkun á flutningsgjöldum. Samkvæmt honum skyldu flutningsgjöld t.d. á rækju hækka milli 25-30% (sem var talsvert meiri hækkun en á flutningsgjöldum annarra fiskafurða). — Þetta olli óánægju meðal rækjuframleiðenda og töldu þeir, að SH, sem flytur út tiltölulega litið af rækju, heföi hingað til borið fyrir borð hags- muni þeirra vegna hagsmuna annarra greina i fiskiönaöinum. — Þessir samningar SH og Eim- skipafélagsins voru bornir undir verðlagsnefnd til staðfestingar og samþykkti hún, að láta samninginn „óátalinn”. Eimskipafélagiö hefur gert öðrum fiskútflytjendum, sem ekki voru aöilar að þessum samningi SH að greiða flutnings- gjöld eftir honum. Skipadeild SIS mun hafa gert svipaða samninga viö hraðfrysti- hús SIS. En allt frá árinu 1970 hafa verið i gildi lagaákvæði sem banna allar hækkanir á vörum og þjónustu án sérstaks samþykkis verðlagsnefndar og rikis- stjórnarinnar. — Og byggir fyrirtækið „tslenzkur útflutningur h.f." kröfur sinar á þvi að þessar hækkanir á flutningsgjöldum skipafélaganna i jan. s.l. séu ólöglegar þar sem rikisstjórnin hafi ekki samþykkt þær. Er þvi meira aö segja haldið fram af hálfu fyrirtækisins i greinargerð við stefnu málsins, að þessar hækkanir séu jafnvel ekki bindandi fyrir SH, þar sem rikisstjórnin hafi ekki samþykkt samning SH viö Eimskipafélag Islands. Þótt kröfur þessa eina fyrir- tækis nemi ekki meiru en kr. 76 þús. eru hér i húfi milljónir króna, þar sem hér er um að ræða próf- mál um gildi þessara hækkana á flutningsgjöldunum. Augljóslega munu aðrir útflytjendur fylgjast með niðurstöðu málsins, og nái kröfur fyrirtækisins fram að ganga, eins og áður sagði, er þess vart að vænta, að aðrir biði boðanna við að krefjast endur- greiðslu sér til handa einnig. -GP. Telja hœkkun flutningsgjalda ólöglega og höfða mál BLÓMLEG í BLÓMUM Hún er sumarleg og blómleg unga stúlkan hérna á myndinni, hún Linda Leifsdóttir, og sennilega veröur mikiö um hennar lika á götunum I dag. Þeir segja jú að i góöa veðrinu viröist allt kvenfólk fallegra, og útlitið er gott i dag bæöi hvaö viövikur veöri og kvenfólki. Veðurstofan segir rólega noröanátt viðast hvar á landinu, og hér i Reykjav. og langt austur i öræfi er léttskýjaö, hlýtt og mjög gott veður. Breytingar verða mjög hægfara. Sennilega helzt þetta veöur i allan dag og mjög liklega á morgun lika. Og þaö væri vonandi aö þaö fari ekki aö snúast upp i verrg er líður aö helginni. Frá Noröurlandi og Aust fjörðum er ekki sömu sögu aö segja, þar er viðast hvar þoka eða súld, og hiti ekki nema 5-7 stig, en hér i Reykjavik var 10 stiga hiti i morgun. —EA

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.