Vísir - 22.06.1972, Blaðsíða 4

Vísir - 22.06.1972, Blaðsíða 4
4 VÍSIR. Fimmtudagur 22. júni 1972. • Ungur maður óskast nú þegar til afgreiðslu og lagerstarfa i matvöruverzlun, ekki yngri en 20 ára. Um sumarvinnu er ekki að ræða. Úppl. ekki gefnar i sima. Söebechsverzlun Iláaleitisbraut 58-60. Stofublóm litið helti til leiðbeiningar Um þroska blóma Um heilbrigði blóma Um þrif blóma eftir óla Val Hansson Blómin endurgjalda umhyggjuna Fæst i bókabúðum og blómasölum Útgefandi ____________________nú 17 óra: Lofið mér að vera áfram í fangelsinu. Hér fœ ég mat á hverjum degi og hef frið fyrir pabba..... ,,..af þvi að danskt réttarfar er skripaleikur!” útskýrðu þau. Umsjón: Þórarinn Jón Magnússon Það kom öllum í réttar- salnum í Fjerritslev í Dan- mörku óneitanlega á óvart, er 17 ára drengur andvarp- aði feginsamlega þegar þar var kveðinn upp yfir hon- um fangelsisdómur. ,,Ég væri því þakklátur, ef þið gætuð framlengt fangelsis- vistina eitthvað," sagði hann. Og viðstaddir urðu enn meira undrandi. En pilturinn útskýrði mál sitt: „Ég er ánægður með þá daga, sem ég hef þegar varið i fangelsinu ykkar. Það er svo dá- samlegt, að fá loksins tækifæri til að borða sig mettan. Ég hef aldrei kynnst svo góðum stað sem fangelsinu. Hér vil ég gjarnan vera sem lengst. — Bara ekki i námunda við pabba.” Drengurinn er, ásamt 44ra ára föður sinum (atvinnulaus og sjö barna faðir) og yngri bróður sin- um, 16 ára gömlum, sakaður um hlutdeild i fjölda innbrota i sum- arbústaði og ránum þaðan. Fað- irinn er einnig bak við lás og slá, en bara i allt öðru fangelsi. Haldið aðskildum. Sonurinn 17 ára leitaði sjálfur á náðir lögreglunnar og óskaði eftir að komast undan föður sinum, og eftir að hann haföi játað á sig þátttöku i innbrotun föður sins fékk hann yfir sig hótanir og böl- bænir hans. Siðan hafa þeir feðgar ekki litið hvorn annan aug- um. Þeim var ekið i sitt hvort fangelsið i sinn hvorum lögreglu- bilnum. Og þeir eru leiddir fyrir. réttinn hvor i sinu lagi. Á meðan svo faðirinn mótmælti fangelsuninni og krafðist þess að verða látinn laus til að geta unnið fyrir börnum sinum og heimili, Við sögðum frá þvi á sinum tima, þegar nokkur ungmenni tóku sig til og háttuðu sig á áhorfendapöllum Bella Centret i Kaupmannahöfn undir sýningu á söngteiknum „0, Kalkútta”. Við sögðum lika frá þvi, þegar sömu ungmcnni tindu af sér spjarirnar nokkru seinna og þá undir sýningu balletts Flemmings Flint, „Sigur dauðans”. Mál þessara striplinga var fyrir nokkrum dögum tekiö fyrir rétt og ungmennunum gert að mæta til að svara til saka. Þau mættu öll á réttum stað og á réttri stundu — en var tafarlaust visað úr réttarsalnum. Þau mættu n'efnilega með rauðmáluð nef og berrössuð. öll að tveimur undan skildum, — þeim var haldið eftir og leyft að gera grein fyrir fram- komu félaga sinna i leikhúsunum. Annar þeirra, ungur piltur, svaraði, að hann hefði i Bella Contret striplast svona rétt til að kanna viðbrögð fólks. „Okkur var umsvifalaust visað með valdi úr salnum og kölluð öllum illum Leikstjórinn, sem viðstaddur var sýninguna átti ekki orð til að lýsa fyrirlitningu sinni á „dónaskap” ungmennanna. „Þar opinberaði hann tviskinnunginn, sem rikjandi er,” sagði pilturinn fyrir fór sonurinn einungis orðum um hina góðu aðhlynningu, sem hann nyti i fangelsinu. — Það leikur enginn vafi á þvi, að drengurinn getur komizt til manns upp á eigin spýtur, verði hann rekinn að heiman, fullyrða þeir, sem hafa kynnst honum i fangelsinu og viö réttarhöldin. Hann er vingjarnlegur og um- gengnisgóður, og hann er mjög fjölhæfur. Með handlagni sinni hefur hann getað gert — og komið i verð — svo marga nytsama hluti, að hann hefur ráð á að hafa hjá sér i fengelsisklefanum bæði útvarp og sjónvarp. Dómarinn var i fyrstu andvigur þvi, að framlengja gæzluvarð- hald drengsins, en eftir að hann hafði sjálfur farið þess á leit, að fá að dvelja þar lengur, fyígdi dómarinn ósk yfirvaldanna um að framlengja gæzluvarðhaldið um eina viku. Faðirinn skammast. Faðirinn hefur aftur á móti rif- ist og skammast viðstöðulaust yfir þvi ranglæti, sem hann er beittur. — Hér er ég skikkaður til að sitja aðgerðarlaus i fangelsinu, einmitt núna, á þessum árstima, sem við hinir atvinnulausu höfum möguleika á að fá einhverja vinnu. En þið eruð nógu sam- vizkulausir til að kæra ykkur koll- ótta um það, sagði hann, þegar hann var hnepptur i varðhalds- vistina fyrir um það bil þremur vikum. Faðirinn, synirnir tveir og 19 ára gamall félagi þeirra hafa nú þegar játað á sig ein tuttugu inn- brot og ránsferðir i sumarbú- staði. Þá eru yngstu synir manns- ins, 13 og 14 ára gamlir, grunaðir um að hafa átt hlutdeild i afbrot- unum með föður sinum og eldri bræðrum. Þessa dagana standa einmitt yfirheyrslur yfir þeim. rétti. „t Kalkútta hátta allir leikararnir og við það hefur enginn hið minnsta að athuga, heldur er nektaratriðinu klappað lof i lófa. Þegar svo nokkrir á áhorfendapöllunum opinbera nekt sina, þá ætlar allt vitlaust að verða. „Og ungi maðurinn er allur eitt spurningarmerki. ,,Rétturinn skripaleikur" Úti fyrir réttarsalnum talaði berrassaður við fréttamenn. „Við getum ekki tekið danskt réttarfar alvarlega,” sagði hann. Þess vegna var það, sem við mættum með rauðmáluð nef og bera bossa. „Hann úrskýrði fleira. „Við erum i samtökunum SEXPOL, þau en þau samtök reyna að gera lýðnum ljóst, að nekt er bara nekt og hvorki betri né verri hvort sm hún kemur fyrir á listasviðinu eða annarstaðar.” Dómarinn sló á frest frekari réttarhöldum i máli stripalinganna, þegar parið hafði talað út. Lét hann þá svo ummælt, að ungmennin yrðu látin gjalda þess ef þau mættu þá enn á ný berrössuð. Málið hafði ekki verið tekið til meðferðar að nýju þegar siðast fréttist frá Köben. Berrössuðum vísað úr réttarsalnum

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.