Vísir - 22.06.1972, Qupperneq 5
VÍSIR. Fimmtudagur 22. júni 1972.
É MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN GUNNAR GUNNARSSON ÚTLÖND
Hóta stjórnmálaslitum
— fimm S-Ameríkuríki senda Frökkum sameiginlega yfirlýsingu
Fimm lönd á vestur-
strönd Suöur-Ameriku
hafa krafizt þess af
frönsku stjórninni, aö hún
hætti þegar i staö við fyr-
irhugaðar tilraunir meö
kjarnorkusprengjur á S-
Kyrrahafi. Franska
stjórnin þegir enn og
þumbast viö kröfum S-
Ameríkuríkjanna.
Utanrikisráðherrar Bóliviu,
Chile, Kolumbiu, Ekvadors, og
Perú hittust i Lima i Perú i gær
og sendu frá sér sameiginlega
yfirlýsingu, mjög harðorða.
Sögðu þeir að fyrirhugaðar
tilraunasprengingar hefðu i för
með sér hættu — hættu íyrir
mannkyn allt, en einkum þar
syðra vitanlega. Sprengingar
sem þær fyrirhuguðu væru stór-
hættulegar fyrir allt plöntu- og
dýralif, sérstaklega i Andes-
fjöllunum, sagði i yfirlýsing-
unni. Rikisstjórn Perú hefur
þegar hótað að slita stjórnmála-
sambandi við frönsku stjórriina
verði af sprengingunum.
Perúmenn hótuðu einnig stjórn-
málaslitum þegar Frakkar ætl-
uðu að sprengja i fyrra — og
brezkir visindamenn hafa kom-
izt að þvi, að tilraunir Frakka á
þessum slóðum hafa leitt af sér
geislavirkt belti i loftið ofan við
eða kringum Perú, norðan til
yfir Chile og vestan til i Boliviu.
Frá Melbourne berast nú þær
fregnir, að þar séu 92 hásetar á
brezku og frönsku skipi i höfn-
inni. Skipverjar þessara
tveggja skipa ætla sér að biða
og sjá til hvort sprengt verður i
S-Kyrrahafi. Siðan ætla þeir að
hjálpa til-við umhverfisvernd ef
hægt er, þvi þeir búast við að
vindurinn beri geislavirkt úr-
felli inn yfir eyjuna Pitcairn,
sem liggur i 800 km fjarlægð i
suðaustur frá tilraunastaðnum.
Frönsk yfirvöld sögðu siðast
að enn væri beðið eftir réttu
augnabliki til að sprengja og
munu stjórnendur sprenging-
anna væntanlegu halda sig um
borð i franska herskipinu ,,De
Giasse”, sem nú er sunnarlega
á Kyrrahafi.
Toyota rafmagnsbíll
Rafmagnsbfll fer nú að komast
á almennan markað. Talsmenn
Toyota Motor Company, stærsta
bila f ra m leiöa nda ns i Japan,
sögðu i morgun i Tokyo, að fyrir-
tækinu hefði tekizt að hanna og
þróa rafmagnsfólksbil, sem alls
ekki mengaði andrúmsloftið.
Toyota hefur undanfarið unnið
að hönnun rafmagnsknúöra fólks-
bila i samvinnu við Nihon Denso
og Nihon Denchi, rafmagnsfyrir-
tæki i Japan, en verkefnið hefur
verið skipulagt og fjármagnað af
viðskipta- og iðnaðarráðuneyti
landsins.
Talsmenn Toyota sögðu að raf-
magnsbill þeirra gæti tekið þrjá
til fimm farþega og æki með 80
km (49 milna) hraða á klst. á
einni rafmagnsfyllingu. Tals-
mennirnir lofuðu bráðlega að
færa mönnum nánari upplýsing-
ar, tæknilegar, af bil þessum.
Pjotr Yakir í fangelsi
Pjotr Yakir, sovézkur
sagnfræðingur, sem
mjög hefur barizt fyrir
auknu frelsi sovézkum
borgurum til handa, var
i gær handtekinn á
heimili sinu i Moskvu.
Það var sovézka leynilögregl-
an, KGB, sem handtók Yakir og
fór með hann burtu, akandi i bif-
reið. Ekkert hefur verið látið uppi
um núverandi dvalarstað sagn-
fræðingsins, og vinir hans, sem
spurzt hafa fyrir um hann, hafa
engin svör fengið. Eiginkona
Yakirs, Valentina, var i ibúð
þeirra, er handtakan fór fram, og
var henni ekki leyft að fara út úr
ibúðinni eftir að Yakir var farinn,
og ekki leyft að hafa samband við
fólk sem safnaðist saman utan
hússins.
Yakir er sonur sovézks hers-
höfðingja, sem tekinn var af lifi
árið 1937.
Fannst eftir 18 ár!
Yfirvöld i Brasiiiu uppgötvuðu i
gær, að maður einn hefur setið i
fangeisi í RIó de Janero I 18 &r
fyrir að berja konu sina. Maður-
inn barði eiginkonu sina fyrir 18
árum fyrir þær sakir, að hún
reykti tóbak i trássi við bann
hans.
Celino Pinto, en svo heitir mað-
urinn, var handtekinn 1954 eftir
að eiginkona hans kallaði á lög-
regluna. Pinto, sem þá var 31 árs,
hafði komið að konu sinni við að
reykja heimagerðan vindling, að
þvi er segir i skýrslum lögregl-
unnar. Hann var úrskurðaður i
öryggisgæzlu og sendur í meðferð
hjá sállækni.
Núverandi lögregluforingi
komst svo nýlega að því að Pinto
sat enn i gæzlu, aldrei hafði verið
réttað i máli hans, en oft hafði
hann verið fluttur milli fangelsa.
Yfirvöld slepptu Pinto i gær. Þá
sagði hann fréttamönnum að i öll
þessi 18 ár, hefðu dætur hans tvær
og eiginkona aðeins heimsótt
hann einu sinni.
„ÉG VERÐ FRAM-
BJÓÐANDINN"
— segir McGovern — „vil ekki verða
varaforseti", — segir Kennedy
Edward Kennedy, þingmaður
tók af skarið endanlega i gær og
sagði að ekki kæmi tii mála að
hann yrði varaforseta-
efni demókrata i forsetakosning-
unum i haust. Lýsti þing-
maðurinn þessu yfir i grein er
hann ritaði i blaðið New York
Times.
Bæði McGovern og Hubert
Ilumphrey hafa sagt að þeir gætu
vel hugsað sér að Kennedy yrði
varaforsetaefni þeirra.
McGovern sagði i gær, að hann
reiknaði sterklega með þvi að
verða forsetaefni demókrata að
afloknum fundi flokksins i Miami
i júlibyrjun, en þá kemur flokkur-
inn saman til að útnefna fram-
bjóðanda sinn. Til að ná
útnefningu þarf McGovern að
eiga vis atkvæði 1509 kjörmanna.
Nú virðist hann hafa tryggt sér
1341 kjörmannn.
ísraelsmenn drápu 40
— Líbanonstjórn krefst aðgerða af hálfu Öryggisráðsins
hefndaraðgerðir Israels komu ekki á óvart
Ríkisstjórn Líbanons kom
i morgun saman að ræða
um hvað taka skyldi til
bragðs gegn árásum ísra-
elsmanna á þorp í Líbanon
í gær. Þá réðust ísraelskar
sprengjuflugvélar og land-
hermenn á þorp í Suður-
Líbanon og drápu 40
manns.
Stjórn Libanons sendi mótmæli
til öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna um leið og árásin hófst, og
eftir þvi sem óstaðfestar fregnir
hermdu i morgun, kom stjórnin
saman i morgun til að ræða hvort
fara ætti þess á leit við öryggis-
ráðið að það kæmi saman til
fundar að ræða stöðuna i máli
Israels og Araba.
Eftir þvi sem opinberir tals-
menn Libanonstjórnar segja, þá
réðust israelskir fótgönguliðar
og bryndrekar á land á þorp um
100 metra innan Ifbansks yfir-
ráðasvæðis i s-vesturhluta
landsins. Israelsmennirnir tóku
þar til fanga fjóra sýrlenzka for-
ingja, sem voru i heimsókn i
Líbanon. Siðar um daginn réðust
israelskar flugvélar á þorpið
Hasbaya og loguðu þar miklir
eldar eftir árásina.
Þessar árásir komu ekki
alveg i opna skjöldu, þvi i
Libanon hafa menn lifað i
stöðugum ótta um hefndarað-
gerðir af hálfu Israelsmanna eftir
atburðinn á Lod-flugvelli við Tel
Aviv þegar Palestinu-skæruliðar
drápu 26 manns.
Solomon Halberstam, rabbi i New York, skálar þarna við McGovern i Israelsku brennivíni. McGovern
fullvissaði rabbiinn um stuðning við israel og sagði: ,,Þið munuð eiga velviljaðan og samúðarrlkan vin i
llvita húsinu.”
Baktjaldamakk um frið
— Hugh Scott, foringi repúblikana
segir mikið á seyði bak við tjöldin
— Kissinger verður í Peking til
morguns — harðar loftórásir
Bandaríkjamanna á Quang Tri.
Bandariskar sprengju-
flugvélar af geröinni B-52
geröu i gær fjórar kröftug-
ar árásir á stöðvar i Norður-
Víetnam — þ.e. i norður-
hlutum héraðsins Quang
Tri.
Þá gerðu s-víetnamskir
hermenn harðar árásir á
svæði sem norðanmenn
tóku i vor, og herma fregnir
frá herstjórninni i Saigon,
að báðir aðilar, norðan
menn og sunnan, hafi orðið
að þola mikið mannfall.
Segjast S-Víetnamar hafa
eyöilagt 16 sovézk-byggða
skriðdreka. Stórskotahrið
var haldið uppi af hálfu S-
Víetnama á bæinn An Loc.
Kissinger i Peking
Meðan menn striða enn i
Vietnam þessa dagana, situr
Kissinger á fundum i Peking með
kinverskum ráðamönnum. Kin-
verjar halda fast við að engar
fréttir af viðræðunum leki út
meðan á þeim stendur — hins
vegar mun Kissinger og hans lið i
Peking ráða yfir senditækjum
um borð i forsetaþotunni, sem
býður þeirra á flugvellinum i
Peking. Hugsanlega fara þvi að
berast nánari fregnir af viðræð-
unum á morgun eða föstudag, en
þá er ráðgert að Kissinger haldi
heimleiðis. t gær flaug þaö fyrir,
að Kissinger hefði áhuga á að
heimsækja Hanoi á leiðinni vest-
ur — en sá orðrómur er heldur
ótrúlegur, þar eð Bandarikja-
menn lita svo á að friður verði
ekki saminn i Vietnam meðan N-
Vietnamar slaka ekki á kröfum
sinum.
Krafa um tafarlausa
friðarsamninga
Leiðtogi repúblikana á Banda-
rikjaþingi, Hugh Scott, sagði i
gær, miðvikudag, að Bandarikja-
stjórn undirbyggi
nú verulega
umfangsmikla
starfsemi eftir
diplómatiskum
leiðum — og mið-
aði starfsemin að þvi aö komast i
sumar að sam komulagi við rúss-
neska og kinverska ráðamenn um
endalok striðsins i Vietnam.
Kissinger mun leika eitt aðal-
hlutverkið i þessum friðarumleit-
unum, og herma fregnir, að þegar
hann kemur heim frá Peking á
föstudaginn, muni hann færa
Bandarikjastjórn kinverska áætl-
un um fyrirkomulag væntanlegra
friðarsamninga.
Hugh Scott ræddi við blaða-
menn i gær og sagði að hann gæti
ekki skýrt nákvæmlega frá þeirri
diplómatísku starfsemi, sem þeg-
ar færi fram, en mikið væri þó á
seyði — benti hann m.a. á heim-
sókn Podgornys, forseta Sovét-
rikjanna, til Hanoi
1 Washington virðast menn nú
sannfæröir um, að Kinverjar séu
ekki lengur svo mjög andvigir
friðarsamningum i Vietnam — og
eigi Kinaför Nixons i vor sinn þátt
i breyttri afstöðu þeirra.