Vísir - 05.07.1972, Blaðsíða 1

Vísir - 05.07.1972, Blaðsíða 1
„ENGILL í RAUÐBLEIKUM KJÓL" NOTAÐUR Á SPASSKÍ Þegar ná þarf i fréttina er um a6 gera að hugsa rökrétt og nota hin réttu meðul. Það gerðu tveir brezkir blaðamenn, þegar þeir þurftu að fá svör viö spurning- um, sem Spasski einn gat veitt. ...og þá kemur að borðinu þeirra eins og engill af himni sendur ung kona brosleit I rauð- bleikum kjól...” segir Björn Bjarman, rithöfundur i frásögn sinni af viðburðum dagsins i skákinni. Þaö þarf ekki að orð- lengja það, að ungi stúlkunni var vel tekið, hvar er þeim ekki vel tekið? Og hún flutti góð tlð- indi sem veittu mönnum von þrátt fyrir allt. —Sjábls.2 Nóg af list til tveggja ára „Þegar liðnar eru tvær vikur frá iokum Listahátiðar er islenzkt listaiif að færast aftur i sitt eðiilega horf: leik- húsin lokuð, 7. flokks myndir i bióunum, vikur eða mán- uðir til næstu tónleika, 2-3 myndlistasýningar i gangi, aðrar listgreinar gleymdar, allir búnir að fá nóg af list til tveggja ára — sumir meira en nóg. Það er Elisabet Gunnars- dóttir, sem skrifar svo hreystilega um kúitúrlifið, en skrifar samt „nokkrar linur” um listalifiö Sjá bls 7. Byrjaðir á Odd- skarðsgöngum Þá loksins er áratuga draumur Norðfirðinga að rætast, jarðgöng undir Odd- skarð eru að sjá dagsins Ijós. Framkvæmdir eruhafnar, en fyrirtækið kostar upp undir 60 milljónir króna Sjá bls 3. Kjarnorku- kvenmaður frá Fœreyjum Sumir eru alltaf i tima- þröng, meðan aðrir virðast hafa tima til alls og hafa nægan tima afgangs i ofan- álag. A þessu er engin skýring, — svo vitað sé. Ein af þessum heppnu manneskjum er Hana Lis- berg frá Færeyjum. Auk þess að eiga heimili og tvo syni er hún kennari van- gefinna, bæklaöra, heyrna- daufra og blindra barna. Hún er ritstjóri, blaða- maður, á sæti i ýmsum opin- berum nefndum, þýðandi, stjórnmálamaöur og barna- timastjórnandi hjá færeyska sjónvarpinu. i dag birtum við viðtal við þennan kjarn- orkukvenmann. Sjá bis 9 Leikföng hinna lœrðu „Ekki verður bókvitið i askana látið” er gamalt máltæki, sem núna hefur sennilega verið algjörlega hafnað. Hitt er svo annað mál að bókvitið eitt, ef brjóstvitið vantar, er litils- virði. — Sigurði Jónssyni (flug), sem heldur kýs að kalla sig „7877-8083” I sam- ræmi við tiöarandann, finnst „hinir lærðu” vera orðnir full — fyrirferðarmiklir og að þeir gleymi að taka tillit til aðstæðna hérlendis, þegar þeir fletta upp i erlendu handbókunum sinum. Sjá bls. 13 ★ Þingmaður þjálfar strákana á Sauðárkróki Sjá iþróttaopnu ★ Einn saknaði sjónvarpsins Sjó bls. 2 Stórveldin tefla þráskák Heimskulegt af Rússum að heimta afsökun Fischers segir Euwe ,,Ég held að Fischer telji sig ekki hafa neina ástæðu til að biðja Sp asski afsökunar, þannig að sú athöfn fer aldrei fram” sagði Fred Cramer i gærkvöldi. Forseti FIDE, dr. Euwe sagðist telja það heimskulegt af Rússum að krefjast afsökunarbeiðni; frá Fischer. Hann sagði að nú væri málum svo komið að bæði Rússar og Bandaríkjamenn gagnrýndu sig ákaft. En staöreyndin væri sú að hér væri um hreina þráskák stórveldanna að ræða og FIDE skipti sér ekki af málinu I bili. A blaðamannafundi kl. 19 i gær sat séra Lombardy fyrir svörum stutta stund. Hann er þekktur skákmaður og góðvinur Fischers. Lombardy sagði að viðræður fulltrúa Fischers og Spasskis færu mjög vinsamlega fram. Hann neitaði að upplýsa hver stjórnaöi viðræðunum af hálfu Rússa og hver væri þeirra túlkur. Samkvæmt áreiðanlegum upplýsingum sem Vfsir aflaði sér er það Geller sem er samninga- maður Spasskis og er hann gall- harður i þeim samræöum. Túlkurinn er starfsmaöur i sendiráði Rússa og hann fylgist að sjálfsögðu náið með málunum. Greinilegt er að hér er orðið um stórveldatafl að ræða þar sem Fischerog Spasski eru i hlutverki taflmanna i skák sem tefld er af embættismönnum, eða svo fullyrti einn erlendur frétta- maður sem náði tali af Spasski I morgun. Þegar Visir bar þessa stað- hæfingu undir dr. Euwe I morgun varðist hann allra frétta en sagði þó aö nú væru það Rússar og Kanar sem deildu sin á milli og hann hefði ekki afskipti af deilunni að svo komnu máli. AÐEINS EITT HANDTAK VANTAR „Manni finnst að hér jvanti aðeins eitt einasta handtak, — þá verði allt klappað og klárt og ein- vígið geti hafizt", sagði Ásgeir Friðjónsson, vara- forseti Skáksambands (s- lands, í gærdag eftir blaðamannaf undinn á Hótel Esju. Vitanlega átti hann við handtakið, sem vantartil að útkljá „skák- ina fyrir skákina", þegar þeir kapparnir Spasskí og Fischer takast í hendur sem keppinautar og sann- ir íþróttamenn. Á meðan þetta handtak gerist ekki halda vandamál áfram að hrannast upp og spennan í loftinu magnast, þar til þetta handtak afraf- magnar loftið. Nú er það bara að finna því stað og stund að þeir Fischer og Spasskí geti hitzt og samið um að gera út um allan ágreining við skákborðið mikla, sem bíðurþeirra i Laugardals- höllinni. —JBP— —SG GRUNAÐIR UM HASSSMYGL „Aðstaðan ó- þœgileg núna" - sagði Spasskí í morgun Fimm unglingar, sem komu með flugvél frá Kaupmannahöfn í gær- kvöldi, voru kyrrsettir af tollgæzlumönnum á Kefla- vikurflugvelli og afhentir lögreglunni, vegna gruns um smygl á hassi. Nokkrir ungiingar voru meðal farþega vélarinnar og vöktu grunsemdir tollvarðanna, þegar farþegahópurinn fór I gegnum tollskoðunina. Var leitað sérstak- lega i föggum þeirra, og sú leit ieiddi til þess aö að fimm piltar voru afhentir lögreglunni til sérstakrar rannsóknar. Þrir piltanna voru enn i haldi i morgun og stóðu þá yfirheyrslur yfir.GP Sálarstríðið um skákein- vígi aldarinnar er farið að setja mark sitt á Spasskí ekki síður en Fischer. Blaðamaður Vísis hitti Spasski að máli í morgun í lyftunni á Hótel Sögu. „Aðstaðan er mjög óþægileg núna", sagði hei msmeistarinn við blaðamann Vísis. „Hvort teflt verður á morgun er algjörlega óvíst eins og málin standa", sagði hann, enda óvissan sjald- an meiri en nú. ' Með Spasskí var Geller, stórmeistari, en hann kvaðst helzt ekki vilja svara spurningum að sinni. —SG/JBP Róðin forstjóri Norrœna hússins Maj-Britt Immander, 37 ára Norrænahússins. Tekur hún við; deildarstjóri við bókaforlagið Starfi 9. október n.k. L.T. i Stokkhólmi var um Umsækjendur voru 23 frá öllum hádegið ráðin sem forstjóri Norðurlöndunum,_______I HVAÐ GERA RÚSSAR? SJÁ BAKSÍÐU

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.