Vísir - 05.07.1972, Blaðsíða 3

Vísir - 05.07.1972, Blaðsíða 3
Visir. Miðvikudagur 5. júlí 1972. 3 „Engan skuttogara handa okkur takk..." „Nei, nei, nei.ég ætla sko alls ekki að kaupa svona skuttogara, þegar ég verð stór”, sagði ungur og upprennandi bæjarbúi i Neskaupstað, hann Siggi litli, sem er aðeins 5 ára, þegar við tókum hann tali i fjörunni þar. Gamlir bátar eru sannarlega vinsæl leiktæki barna þar eystra ekki siður en i höfuðborginni og rcyndar hvar sem þá er að finna. Krakkarnir á myndinni* Sigurður og með honum eru leiksystkinin Viðir, sem lika er 5 ára og Jóhanna 4 ára. —Og hvaða skip ætlið þið þá að kaupa? spurðum við i granda- leysi. „Kkkert skip, bara hann Trigger hans Roy Rogers”, var svarið. Og þá vitum við það, og vissum reyndar áður, þau eru alls staðar eins börnin. — JBP— Gífurleg sókn í peninga — gullpeningarnir löngu uppseldir — en samt óframleiddir enn Gifurleg sala hefur verið i minnispeningum þeim sem Skák- samband tslands gefur út i tilefni heimsmeistaraeinvigisins i skák. Undanfarið hefur verið mikil sala i silfurpeningum, en þeir eru framleiddir i serium og upplag þeirra talsvert á þriðja þúsund. 200 gullpeningar verða fram- leiddir — en þeir hafa allir verið pantaðir og seldir fyrirfram á' 10.000,00 krónur stykkið. Bárður Jóhannesson teiknaði peningana, og smiðar þá, og var Visi tjáð hjá Skáksambandinu að Bárður hefði alls ekki undan að framleiða peninga — hins vegar biða menh óþolinmóðir eftir gull- peningum sinum, einkum þeir sem keypthafa af öðrum en skák- sambandinu — heyrzt hefur að menn hafi selt sinn 10.000 króna pening á fimmföldu útgáfuverði nú þegar. GG. JARÐGONGIN I ODDSKARÐI KOMIN AF STAÐ INN í BERGIÐ Hafizt var handa við gerð jarðgangna i gegnum Oddsskarð á leiðinni milli Eskifjarðar og Norðfjarðar i siðasta mánuði. „Snjó hafði ekki leyzt upp, þegar vegagerðarmennirnir byrjuðu verkið, og hefur þvi miðað hægt til að byrja með, enda ævinlega seinlegt að komast af stað inn i bergið,” sagði Jón Birgir Jónsson, verkfræðingur hjá Vegagerð rikisins, aðspurður um gang framvkæmdanna. Gunnar og Kjartan, i félagi með Húsiðjunni á Egilsstöðum áttu lægsta tilboðið i verkið og vinna það i félagi við Istak sem undir- verktaka, er annast mun sprengingar við gangagerðina. 29 manns vinna nú þar uppi I fjallinu við gerð vegarins og gangnanna. Gangnamunninn er kominn það langt, að mennirnir vinna núna undir bergþaki en þeir fara i gegnum f jallið Eskif jarðar- megin. Samhliða gerð gangnanna, sem verða 600 metra löng, er unnið að gerð vegarspotta beggja megin við göngin, samtals á þriðja km að lengd. Oddsskarð, sem er hæsti fjall- vegur landsins, hefur oft og einatt lokazt i nóvember eða desember og ekki opnast aftur fyrr en i mai. Við tilkomu jarðgangnanna, sem verða i 620-630 m hæð yfir sjó, er þó ekki gert ráð fyrir að leiðin til Norðfjarðar opnist allt árið i kring. En hinsvegar mun timinn lengja mikið, sem vegurinn verður opinn, við það að vegurinn er lækkaður um 100 m. Gert er ráð fyrir að allt verkið kosti 57 milljónir króna. Dýrasti hlutinn er gerð gangnamunn- anna, forskálanna, og væntanleg styrking gangnaloftsins, sem gert er ráö fyrir að kosti allt að 26.6 milljónir króna. Sprengingar i göngunum eru áætlaðar um 20.9 milljónir kr., en gerð vegarins beggja megin að kr. 9,5 milljónir,- GP Kynna sér ýmiss störf borgarinnar Fræðsluskrifstofan i Reykjavik hefur gengist fyrir sumarnám- skeiðum fyrir börn á aldrinum 10 -12 ára, i þvi skyni að kynna þeim hin ýmsu störf sem fram fara hér i höfuðborginni svo og þroska þau. Námsskeiðum hefur verið skipt i tvö timabil, og hófst það siðara i gærdag og stendur yfir til 21. júli. Börnin sem sækja námskeiðið eru úr Breiðagerðisskóla, Austur- bæjarskóla og Laugarnesskóla. Meðan á námskeiðinu stendur,er farið með þau i ýmis fyrirtæki i borginni, og i Breiðagerðisskóla og Laugarnesskóla, læra þau föndur, hjálp i viðlögum, stunda iþróttir og ýmislegt fleira. Fyrra námskeiðið hófst 5. júni og stóð yfir i þrjár vikur, sem og hið siðara og sóttu það 170 börn. Siðasta dag námskeiðisins var farið með þau til Þingvalla þar sem þau skemmtu sér sérstak- lega vel. Fyrstu dagana á námskeiðinu eru þau að mestu i skólunum en hvorú námskeiðinu fyrir sig er skipt i tvo hópa, og er annað fyrir hádegi frá kl. 9-12 en hitt eftir hádegi frá kl. 1-4. -EA Ný gjaldskrá á döfinni hjá Rafmagnsveitunni Um þessar mundir er Raf- magnsveitan að taka upp nýtt vinnsiukerfi sem aðallega er fólgið i meiri vélvæðingu við álestur og meðferð reikninga. Einnig er fyrirhugað að taka upp nýja gjaldskrá með lágmarks- gjaldi til einföldunar i stað fer- metra og herbergjagjalds, sem nú er i notkun. Verður þetta lág- marksgjald þó svo lágt, sam- kvæmt tillögunum, að það á ekki að snerta venjulega notendur, sem flestir nota meira rafmagn að staðaldri. Endnanlcg gerð gjaldskrárinnar liggur ekki fyrir ennþá, og þótt hún verði sam- þykkt fljótlega kemur hún ekki til framkvæmda á þessu ari. þs Jarðboranir á þremur nýjum stöðum í sumar „Það eru ekki svo miklar fram- kvæmdir hjá okkur núna við jarð- boranir, yfirleitt er þetta allt saman framhald af þvi, sem áður hefur verið unnið,” sagði Isleifur Jónsson hjá Jarðhitunardeild Orkustofnunar i viðtali við blaðið. 1 Mosfellssveitinni er unnið við boranir á vegum Hitaveitunnar og einnig var fyrir nokkru borað á Eyrarbakka, en árangur þar varð miklu minni en búizt var við. Þar fannst ekkert vatnsmagn en ein- hver jarðhiti. Borunum er nú lokið,en eins og ísleifur sagði urðu þessar boranir þar þó ekki alveg árangurslausar. Við Hliðardalsskóla er unnið við lagfæringar á holu, sem þar var boruð á árinu 1967, og unnið er að dýpkun holu austur i Sogni á vegum Náttúrulækningafélagsins Einnig er unnið að borunum norðan við Hrafnagil i Eyjafirði og vestur i Laugabakka i Miðfirði. í sumar og jafnvel ekki fyrr en i haust, er svo ætlunin að gufu- borinn verði að Nesjavöllum i Grafningi og er ætlunin að bora þar fyrir Hitaveituna. Einnig verður gerð könnun rétt fyrir utan Keflavik á þvi sem hugsan- lega gæti veriö um að ræða þar. Á Krýsuvikursvæðinu verður bætt við einni holu I sumar, en þar eru nú þrjár holur fyrir. Þó er þar ekki um neitt notagildi að ræða heldur fara þar aðeins fram rann- sóknir. -EA Sumarhefti lceland Review fjollar m.a. um þjóðarsamstöðuna um landhelgismálið Sumarhefti timaritsins Atlantica & ICELAND REVIEW er nú komið út og er stærra en venjulega, lOOsiður með fylgiriti. Ovenju margar og vandaöar myndir prýða mestan hluta blaðsins sem er prentað i fullum litum. Meðal efnis er grein eftir Eggert Jónsson hagfræðing um visindaleg og hagfræðileg rök landhelgismálsins. Árni Johnsen blaðamaður skrifar um Eldeyjar- för sina og tekur sérstaklega fyrir fuglalif I eyjunni og birtir myndir þaðan. Jóhann Hjálmarsson skáld skrifar um listaverk Al- freðsFlóka. Þór Magnússon þjóð- minjavörður ritar um sögu Is- lenzka drykkjarhornsins, en viða- mesta efni blaðsins er að þessu sinni helgað islenzkum land- búnaði frá upphafi i samantekt Inga Tryggvasonar blaðafulltrúa Búnaðarfél. tsl. Þá er þarna og grein eftir Árna Björnsson cand. mag. um sumardaginn fyrsta auk margs annars efnis sem birtist I blaðinu núna. Vandað fylgirit fylgir ICELAND REVIEW I þessu sumarblaði og fjallar það um landhelgismálið og yfir- lýsingar um það frá helztu stjórn- málamönnum okkar. Ritstjóri ICELAND REVIEW er Haraldur J. Hamar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.