Vísir - 22.07.1972, Blaðsíða 2

Vísir - 22.07.1972, Blaðsíða 2
Visir. Laugardagur 22. júli 1972 natsmi Mynduð þér sakna þess að komast ekki á bar á sunnudaginn ef til þjónaverkfalls kæmi? Steinar Júliusson, feldskeri: Nei alls ekki. Hirgir (iunnarsson, lögreglu- þjónn: Þaö skil ég varla i. Ég held aö það kæmi sér ekkert illa fyrir mig þótt þjónar færu i verkfall. Birgir Sigurösson, prentari: Nei. Ég hef bara ekki haft aöstöðu til þess aö stunda bar i heilt ár vegna •» anna. Áhugi manns er lika bund- inn viö allt annaö þessa dagana svo ég held ég sakni þess ekki þó þjónarnir færu i verkfall núna. Háll R. Stefánsson, fram- kvæmdastjóri: Nei. Ég sé ekki neina ástæöu fyrir mig að sakna þess þó ég kæmist ekki á bar ann- að kvöld. Svo er bara lágmarks- hvild fyrir þá sem sækja bar og i framtiöinni aö loka á öðrum dög- um en miðvikudögum. Kristinn Benediktsson blaöaljósm.: Ja, þaö er ekki slæmt fyrir mig en slæmt fyrir þjóöina vegna túristanna. Sigurjón Marinósson, stýri- maöur: Nei, ég held ég liföi það af. Ég er lika búinn að fá nóg af barlifi i bili, nýkominn að utan. FJÖGUR FYRIRTÆKI GREIÐA YFIR 20 MILLJÓNIR HVERT Eftir leiöréttingar á skattskrá- nni kemur í Ijós aö eftirtalin fyrirtæki greiða mest i opinber gjöld. OHufélagið h.f. 38,3 millj., Skeljungur 22,3 millj. Heildverzl- unin Hekla h.f. 20.197.961, StS 20.087.576. Þessi fjórir aðilar greiða 20 milljónir og þar yfir.Sfð- an Eimskip með 17,8 millj. og Loftleiðir 16,6 Kassagerðin 9 millj. IBM 8,7 og Sláturfélag Suð- urlands greiðir 8,6 milljónir. Þetta eru samanlögð gjöld og landsútsvar ollufélaganna er reiknað meö I þeirra tölum. Ilæstir eins og áður. „Viö höfum verið hæstir undan- farin ár og því kemur þetta okkur ekki á óvart” sagði Vilhjálmur Jónsson forstj. Oliufélagsins i samtali við Visi. — Fyrirtækiö dafnar þvi vel? „Þaö skulum viö vona. Þetta er eflaust rétt útreiknaö og viö greiöum skatta eftirsömu reglum og önnur fyrirtæki. Þaö þýöir þvi ekkert að kvarta þótt upphæðin sé há.” Meginhlutinn er veltuútsvar. „Stærsti hlutinn af okkar gjöld- um er landsútsvarið sem er reiknaö 1,33% af heildarveltunni burtséö frá afkomu fyrirtækisins og þvi er þetta hreint veltuút- svar” sagöi Indriði Pálsson for- stjóri Skeljungs, þegar viö spurö- um hann álits á sköttunum. „En þetta er svipuð upphæö sem okk- ur er gert aö greiða og viö höföum Vilhjáimur Jónssqn. Indriöi Pálsson. reiknaö með, eftir þeim skatta- lögum sem sett voru á alþingi i vetur, og kom okkur þvi ekki á óvart.” Gerðum ráð fyrir þessu „Viö vorum búnir aö gera ráö fyrir aö okkur yröi gert aö greiða eitthvað nálægt þessu” sagði Ingimundur Sigfússon, forstjóri Heklu, er Visir haföi samband viö hann. „En viö vorum dálitiö hissa i gær þegar skráin var lögö fram og Hekla var aöeins meö liölega tvær milljónir i tekjuskatt, en sú upphæö var siöan snarlega hækk- uð um 10 milljónir, og þá kom út réttari tala.” -SG. „ Ingimundur Sigfússon. GÖNG STEYPT UNDIR VESTURBERG Búið er að steypa göng undir Vesturbergi i Breiðholti III, en eftir er að ganga frá uppgöngum, sem vcrður gert á næsta ári, þeg- ar undirgöngin verða tekin i notk- un. Kleiri undirgöng fyrir gang- andi vegfarendur eru i bigerð. 1 viðtali viö gatnamálastjóra kom það fram aö ráðgerð eru tvö undirgöng undir Bústaöavegi. Annað veröur á móts við nýju verzlunarmiðstöðina i Fossvogin- um Grimsbæ en hin veröa austar milli Réttarholtsvegar og Tungu- vegar. Ekki verður ráöist i þessar framkvæmdir strax,þar sem eftir er að leggja aðra akreinina i Bú- staðavegi. Ennfremur er gert ráö fyrir undirgöngum i aðalskipulagi, aöallega i nýju hverfunum i borg- inni en einnig viöa i gömlu hverfunum. —SB— ÞINGMANNASTETTIN TEKIN AF AUSTURVELU Austurvöllur kemur við sögu samgönguæðarinnar fyrirhuguðu um Kirkjustrætið. Götubreiddin við Austurvöll verður hin sama og er núna á móti nýja landsimahús- inu. Gatnamálastjóri sagði i viðtali viö Visi, að gatan muni ná yfir gangstéttina við Austurvöll, sem snýr að Alþingishúsinu. Breikkunin mun ekki verða framkvæmdi sumar. Ætlunin er, að gangstétt með hellum verði siðan lögð i sjálft grasið á Austur- velli. Breikkunin á Kirkjustræti mun ná allt frá Aðalstræti að Pósthús- stræti. —SB— LESENDUR HAFA ORÐIÐ „Fischer mætti vera stoltur af þvi að islendingar hafa boðið hon- uin til islands og tekið vel á móti bonum. islenzka þjóðin hefur aö geyma mikla skákáhugamenn, sem fvlgst hafa mcð skákiþrótt- inni i langan tima, og sem per- sónulega hafa kosið hann sem sinn uppáhaldsleikmann, hvað sem nú er. Fischer er betur þekktur á islandi en hérna i New York, þar sem margir hafa aldrei heyrt á liann minnst." Þannig er tekið til oröa, i bréfi sem barst blaðinu frá ameriskri konu búsettri I New York, Mrs. Hope Knutsson, þar sem hún gagnrýnir harðlega framkomu Fischers á Islandi. Bréf þetta sendi hún til timaritsins Life, eftir að hafa lesið þar mjög slæman vitnisburð Fischers um tsland. Bréfið fékkst þó ekki birt hjá timaritinu, frekar en aðrar af- FISCHER MINNA ÞEKKTUR ( NEW YORK EN Á (SLANDI Bréf amerískrar konu sent til Life sannanir á ósönnum vitnisburöi Fischers. Afrit af bréfinu hefur hún svo sent blaöinu, og hún segist oft lesa Visi, þar sem eiginmaöur hennar sem er Islendingur og vinnur fyrir Loftleiðir i New York, fær blaðið. Kaflar þeir sem hér fara á eftir, eru teknir úr bréfi hennar. Bobby Fischer er mikill skák- meistari, hefur hún bréfiö, en ég fæ ekki skilið hvers vegna hann þarf aö gagnrýna og rifa allt og alla i sig, nema sjálfan sig. Sem Amerikani er hefur heimsótt Island sex sinnum, ánægjunnar vegna, þá finnst mér ég veröa aö verja þessa sérstöku þjóö. Full- yrðing Fischers um aö ekki sé nema eitt gott hótel á öllu landinu er hrein og bein móögun. Ég gæti nefnt fjöld nýrra og góöra fyrsta flokks hótela á ameriskan og islenzkan mælikvaröa, sem fyrir- finnast i Reykjavik, svo ekki sé minnst á þau úti á landi. Aö segja aö ísland og tslend- ingar séu frumstæö þjóö, þar hef- ur Fischer valiö skakkt land. Siöan telur Mrs. Knutsson upp alla þá kosti sem Island hefur upp á að bjóöa. Island er eitt mesta velferöarriki i Evrópu, segir hún meðal annars. Hún minnist á skólakerfiö, nýjar og fornar bók- menntir, heilbrigðiseftirlit, póli- tik, tizku, Nóbelskáldið sem þjóö- in á og fleira. Hún segir: List, músik, nætur- lif, nefndu það aðeins og ísland getur boðiö upp á þaö allt saman. Að siöustu segir hún i bréfinu aö tslendingar hafi gert allt sem i þeirra valdi stóð til þess að gera heimsmeistaraeinvigið i skák sem bezt úr garöi, en það eina sem þeir fá í staðinn, er lftillækk- un af Fischers hálfu. -EA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.