Vísir - 22.07.1972, Blaðsíða 8
STAÐANí
1. DEILD
Staöan i 1. deildinni eftir
Breiöablikssigurinn gegn Val er
þá þessi:
Valur-Breiöablik 1:0 (0:0)
Fram 7 5 2 0 15:6 12
Akranes 7 5 0 2 15:8 10
Keflavik 7 2 4 1 14:11 8
Breiðabl. 8 3 2 3 8:13 8
KR 6 3 1 2 10:8 7
Valur 7 1 3 3 11:13 5
Vestm.e. 5 1 1 3* 8:11 3
Vfkingur 7 0 1 6 0:13 1
Markhæstu menn eru:
Eyleifur Hafsteinss. Akran. 8
Ingi Björn Albertss., Val, 6
Steinar Jóhannss. Keflav., 5
Atli Þór Héöinss. KR, 5
Tómas Pálss. Vestm., 4
Kristinn Jörundss., Fram 4
Teitur Þóröarson, Akran., 4
Alexander Jóhanness.,VaI, 3
Hinrik Þórhallss., Breiöabl. 3
Marteinn Geirsson, Fram 3
Frjálsíþróttir
1 47. sinn fer Meistaramót ts-
lands I frjáisum iþróttum fram
um helgina og veöur þaö haldiö á
Laugardalsleikvanginum. Mótiö
hefst i dag kl. 14 en heldur áfram
á sama tima á sunnudag og lýkur
á mánudagskvöld. Metþátttaka
er i mótinu, 119 keppendur frá 14
féiögum og héraössamböndum.
Greinilegt er aö margir munu hér
keppa um OL-lágmörkin, ekki
siöur en islandsmeistaratitlajog
má búast viö snarpri viöureign i
mörgum greinum.
Sund
Þaö má búast viö hörku-
spennandi keppni i dag og á
morgun i Laugardalslauginni. Þá
fer aðalhluti Sundmeistara-
mótsins fram. Ekki aðeins
spennandi milli einstaklinga,
heldur og baráttan við OL-
lagmörkin, em margir keppa nú
viö þau. Keppnin i dag hefst kl. 16
en á morgun kl. 15.
Knattspyrna
Um helgina stendur knatt-
spyrnan i fullum blóma um land
allt. A flestum völlum veröur
ieikið og í öilum deildum. t
Eyjum mætast IBV og FRAM,
toppliðið gegn ööru neösta iiöinu.
Oft hefur Fram reynzt erfitt að
eiga viö Eyjamenn á heimavelli
IBV. A Akranesi leika svo Akra-
nes og KR. Þetta eru einu 1.
deildar leikir helgarinnar og
hefjast báöir kl. 16 I dag.
t 2. deildinni veröa leiknir 2
leikir, Völsungar og tsafjörður á
Húsavikurvelli kl. 16 i dag, og
Akureyri gegn isfiröingum á
morgun kl. 15 á Akureyri.
Þá er þaö 3. deildin. Þaö verður
fjör um allt land, þar fara fram 8
leikir um allt land og I öllum
riölum, samkvæmt leikjabókinni,
en ekki vitum við til aö neinar
breytingar hafi veriö geröar á
leik jaskipan.
Valur fékk tœkifœrin
— en Breiðablik markið
Hvernig getur lika nokkur al-
vöru-knattspyrnumaður, sem ber
einhvern snefil af viröingu fyrir
sjálfum sér, og þá ekki siður fyrir
öllum áhorfendunum, sem kvöld
eftir kvöld leggja það á sig aö
,,fara á völlinn” og vonast til að
sjá fallega knattspyrnu, veriö
þekktur fyrir aö hitta ekki markið
af 5-10 metra færi, þó svo hann sé
einn frammi fyrir galopnu mark-
inu. Þetta geröu Valsmenn oftar
en einu sinni i leiknum, og virðist
þarna ráða mestu kæruleysi og
megn oftrú á getuleysi and-
stæöingsins. Alla vega er þaö vist,
að þessir ágætu ungu menn hafa
meiri hæfileika til að bera en þeir
láta i ljósi leik eftir leik. Þaö er
dálitið napurt að lélegur árangur
þessara manna skuli aðeins stafa
af óvandvirkni og alvöruleysi,
þegar svolitill vilji til að gera vel
mundi gera gæfumuninn.
Allt öðru máli viröist gegn um
Breiðabliksliöið, sem að leik-
mönnum þess ólöstuðum verður
að teljast mun lakara lið en lið
Vals. Fremsta sóknin virðist oft
algerlega úr tengslum við miðju-
mennina, og vörnin stundum opin
eins og flóðgátt, en samt sem
áður ná þessir menn árangri,
aðeins með þvi að leggja sig alla
fram. Á þann hátt stenzt Breiða-
bliksliðið oft betri liðum snúning,
og mættu þau margt af þessu
læra.
Markið, sem Breiðablik skor-
aði, kom á 31. minútu fyrri hálf-
leiks. Valsmönnum tókst að verja
þrumuskot Breiðabliksmanna á
marklinu, en þá hafði Sigurður
Dagsson hlaupið út án þess að ná
að gripa inn i leikinn. Boltinn
hrökk út til Ólafs Friðrikssonar,
sem ekki var seinn á sér að skora
i markvarðarlaust markið.
Markvöröur Breiðabliks hafði
ærið nóg að gera meðan á leikn-
um stóð, og var hann tvimæla-
laust bezti maður liðsins. Hjá
Valsmönnum sýndi Þórir Jónsson
á köflum ágætan leik. - gþ
iliiin ágæti inarkvörður Breiðahliks, Ólafur llákonarson, gripur inn i leikinn, umkringdur
Valsmönnuin. Ljósm. BB.
EKKI STRAX FLOYD!
Ekki strax Floyd, hrópar Cassi-
us Clay á gamanmyndinni
þcirra hjá I)aily Ncws, og á við
að leikur þeirra sé ekki hafinn,
og þvi engin ástæða til að fara
að falla strax.
Og vitaskuld hefur teiknarinn
skákeinvigi aldarinnar fyrir
augunum, þegar liann setzt viö
teikniborðið, þeir Spasski og
Fischer smita úl frá sér og nú
hugsa allir um skák, Ifka þeir
sem aldrei hafa lært manngang-
inn.
i vikunni vann Clay sigur yfir
bandariska kappanum Lewis,
sem sýndi mikla dirfsku gegn
Clay og veitti lionum harða
keppni. 1 5. lotu var Lewis hætt
kominn, en i þeirri elleftu var
hann allur.
Og næsl er það vist Floyd
Patterson, og hvað úr hverju
má kannski búast við þeim Mu-
hammed Ali og Frazier i
hringnum, það er keppnin sem
heðið cr eftir.
hreinasta ráðgáta, hvernig Vals-
mönnum tókst i 90 minútur aö
komast hjá þvi aö skora mark
gegn hinu frekar sunduriausa liði
Breiðabliks. A miðjunni höfðu
Valsmenn algera yfirburði, og
buðu tengiliöirnir framlinunni
upp á mjög góð tækifæri til að
skora, en það var sama hvernig
allt veltist, ekki vildi boltinn inn
fyrir marklinuna hjá Breiöablik.
Ilið harðsnúna og seiga lið úr
Kópavoginum, Breiðablik, kom
enn einu sinni á óvart, og sigraði
Val á Laugardalsvellinum i gær-
kvöldi meðeinu marki gegn engu.
Það með hefur Breiðablik hlotið 8
stig það sem af er mótinu, og er
nú i 4. sæti. Þrjú af þessum átta
stigum hefur Breiðablik unnið af
Val. en fyrri leik liðanna lauk,
eins og menn muna með jafntefli.
Ekki voru þessi úrslit i neinu
samræmi viö gang leiksins, og
hefði 3-1 eða 4-1 fyrir Val verið
sanngjarnari úrslit. Allan timann
hreinlega óðu Valsmenn i mark-
tækifærunum, áttu hvert tækifær-
ið öðru betra, en allt rann út i
sandinn, þegar aöeins átti eftir aö
þrykkja tuðrunni i netiö.
Þaö
verður mönnum
NYR IÞROTTAVOLLUR KEMUR
í LAUGARDAL
— með óhorfendasvœði fyrir fimm þúsund
manns, útboðslýsing tilbúin
Útboðslýsing hefur
verið gerð af nýjum
knattspy rnuvelli i
Laugardalnum, áhorf-
endasvæði og kastsvæði.
Nýja knattspyrnuvellin-
um er ætlaður staður
milli iþróttahallarinnar
og vallarins. Hann á að
vera varavöllur, þannig
að hægt sé að flytja leiki
frá Laugardalsvellinum
yfir á hann, en ineð þvi
móti verði hægt að
vernda grassvæðið.
Áhorfendastæði verða
við völlinn fyrir fimm
þúsund manns.
Stefán Kristjánsson iþróttafull-
trúi veitti Visi þessar upplýsing-
ar. Hann sagði nýja völlinn verða
fyrst og fremst varavöll, og
notaðan þegar álag væri á
Laugardalsvellinum. Þessi nýi
völlur verði stærri en gamli
völlurinn. Hann kvað vera þörf
fyrir nýjan grasvöll,þar sem mik-
ið álag sé á Laugardalsvellinum
og komið hafi fyrir að þurft hefði
að loka vellinum, þegar veðrátta
hafi verið óhagstæð.
Um kastvöllinn sagði Stefán, að
frjálsiþróttamenn geti ekki æft á
aðalvellinum, þar sem hann þoli
það ekki og því eigi að koma upp
kastvelli þar sem m.a. verði æft
sleggjukast.
Þá séu i undirbúningi fram-
haldsframkvæmdir við bygging-
ar i Laugardalnum. Ljúka eigi viö
völlinn aö norðanverðu þar sem
eigi að koma tvö geymsluhús og
sýningartafla á milli þeirra. Aö
austanveröu eigi að koma ný
snyrtiherbergi og fleira, sem yrði
fyrsta stigiö að stúku, sem siöan
kæmi ofan á byggingarnar. Þessi
verk hafi verið boöin út.
—SB—