Vísir - 15.08.1972, Page 1

Vísir - 15.08.1972, Page 1
A7ISIR (12. árg. — Þriðjudagur 15. ágúst — 183 tbl. Eigum heimtingu ó að sjó lœkrris vottorðið, segir Fred Cramer „Við höfum farið fram á það, að við fengjum að sjá læknisvottorð Spasskis", sagði Fred Cramer fulltrúi Kischers i stuttu samtali við Visi i morgun. ,,Það var leyft i fyrra tilfellinu. þá fengurn við Ijósrit af vottorð- inu en nú fáum við ekkert að sjá. Það er lágmarkskrafa að við sé- um sannfærðir um að veikindi séu fyrir hendi hjá Spasski.” (Cg vona að Boris sé við góða heilsu og gcti teflt i dag. Ég vissi til þess að hann var á fótum igær- kvöldi, þannig að hann hlýtur aö tefla i dag, sagði Cramer að lok- um. — GF Sjá fleiri skákfréttir bls. 3 Allt einum að kenna? „Greinilegt er, að ráðamenn Framsóknarflokksins standast félögum sinum i Alþýðubandalaginu ekki snúning”, segir i leiðara Visis i dag. Þar er sagt, að Alþýðubandalagsmönnum sé að takast að láta óvinsældir rikisstjórnarinnar út af sköttunum og öðrum málum koma niður á Framsóknar- flokknum einunt og að þeir hafi undirbúið að skella skuldinni af efnahagsöng- þveitinu á hann lika. — Sjá bls. 6. Hefur unnið sér inn 22 milljónir á golfi í ár Bandariski gullbjörninn i golfinu, Jack Nicklaus, vann fimmta stórsigur sinn á árinu i golfi i gær og þeir mala sannaricga gull þessir bandarisku golfleikarar. Verðlaun Nicklaus i ár nema nú 22 milljónum islenzkra króna. — Sjá iþróttir i opnu V ið fjöllum dálitiö um útsölurnar á innsiðunni i dag, en þær eru nú i fullum gangi um allan bæinn. Svo segjum við frá merkilegri tilraunastarfsemi sem fer fram i Kaupm annahöfn þessa dagana, en þar er starfrækt ráðleggingastöð utn geðheilbrigði og þar fást góð ráð, en helzt engar töflur eða lyf. „Töflur eru yfir- borðslækning” segja þeir, sem þarna vinna, en það er læknir, sálfræðingur og félagsráðgjafi. Sjá nánar á bls. 7 Yfir 800 hundruð hafa farizt í flugslysum í ár Annað mesta flugslys sögunnar varð i gær og mesta flugslys, þar sem ein flugvéi á i hlut. Alls hafa rúmlega 800 látiö lifið i meiriháttar flugslysum i ár, og eru þá ekki talin saman minni flugslysin, þar sem fáir hafa átt i hlut. — Sjá bls 5. Börn haturs Börnin grýttu hcrmanninn til dauða, 7-10 ára börn á Norður-írlandi. Þau ráku upp siguröskur, þcgar maðurinn dó. Þetta eru afkvæmi hatursins i Norður- irlandi, i rauninni tauga- veiklaðir vesalingar eftir þriggja ára átök. — Sjá bls. (i. Byrjað að bora eftir gullskipinu Það eru engin smátæki að verki austur á Skeiðarársandi, þar sem leitarfiokkar gera nú lokaieit að hollenzka indiafarinu, sem á að vera sokkið i sandinn með gulli og gersemi. í nótt kom vörubifreið austur að Kirkjubæjarklaustri með mjög fullkominn bor, senvflogiö var til landsins beint frá Bandarikjunum nú um helg- ina. Vegur hann yfir 2 og 1/2 tonn og á hann i dag aö vera kom- inn á staðinn, sem leitartæki hafa visað á. Fæst væntanlega úr þvi skorið alveg á næstunni, hvort skipið er þarna undir. Við fengum þær upplýsingar hjá innflutningsdeild varnarliðs- ins að flugvél frá varnarliðinu hefði flogiö þessum mikla grip til landsins um helgina og i gær var hann sóttur út á flugvöll og haldið með hann rakleitt austur að Kirkjubæjarklaustri. Borinn er i fjórum hlutum, en hægt á að vera að setja hann upp á stuttum tima. Strax i nótt, þegar borinn var kominn austur á Klaustur, var hann settur yfir á stóra vatnabif- reið, og siðan ók Lárus Siggeirs- son með borinn austur til leitar- flokkanna, þar sem þeir eru aust- ur undir miðjum Skeiðarársandi. Engri venjulegri bifreið er fært þarna til þeirra og hefur Lárus séð ,,Ég þurfti að biða I fimm tiina á flugvellinum i Paris, eft- ir móttökunefndinni”, sagði hún okkur hún Katrin Gisladóttir, fulltrúi ungu kynslóöarinnar, þegar við röbhuöum við hana, en er nú nýstigin á islenzka grund, eftir að hafa tekið þátt i keppninni um Miss Young International i Japan. Ja, skömm sé karlkyninu að vera ekki herralegri en þetta. Þvi vist voru það karlmenn sem skipuðu móttökunefndina, i miklum meirihluta. Katrin, scm er 18 ára Akureyringur, dvaldi i Tókió i þrjár vikur, en siðustu þrem dögunumeyddi hún ásanit hinum fegurðargyðjunum, á eynni Guam, rétt sunnan við Japan.bls. 2 (Ljósm. A.M.) um samgöngur fyrir þá að mestu leyti. Það eru þeir Bergur Lárusson og Kristinn Guðbrandsson, sem standa fyrir leitinni að skipinu og eru þeir með tvo leitarhópa i tjöldum á sandinum. Þeir eru með ný og mjög fullkomin leitar- tæki, og hafa þau gefið mjög ákveðnar bendingar um hvar skipið muni vera. Hefur leitin að þessu skipi staðið yfir i mörg ár, en nú hafa þeir leitarmenn látið svo ummælt, að ekki verði snúið við fyrr en skipið sé fundið. Borinn verður settur strax upp á þeim stað, sem talið er liklegt að skipið sé undir, og ætti þá að koma i Ijós mjög fljótlega, hvort gullskipið er i raun og veru fund- ið. — ÞS Verða flug- véla- flðkin kort- Iðgð? — geta villt um við leit að týndum flugvélum Það er fjöldi flugvélaflaka uin allt land, og iðulega verið að tala um að festa þau á kort, scgir Skúli Sigurðsson hjá Loftferðaeftirlitinu. Ilann segir að hér sé um að ræða flugvélar frá striðsárunum. Hann segist hafa m.a. vitneskju um tvö fiugvélaflök i Bláfjöllum og eitt, sem áé norðan i Akrafjalli. Yfirleitt komi þessi flugvélaflök i ljós, þegar það hafi borið við, aö flugvél hafi týnzt og mikil leit verið gerð. Þá hafi flugmenn ósjaldan séð flugvélabrak. — Sennilega verða flug- vélaflökin kortlögð áður en langt um liður, segir Skúli. Bæði vegna þess, að þau geta villt um, þegar leit á týndri flugvél stendur yfir og að sumu leyti er sögulegt að vita um þessa hluti. Nú starfa hér menn, sem þekkja til þessara flugvéla en það er ekki vist, að þaö veröi alltaf svo. Skuli taldi ekki, að um verðmæti væri að ræða i þessum flugvélaflökum. Búið væri að tina það verðmætasta úr þeim og þar að auki hefði strigi verið notaður i margar þessarra véla. — SB —

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.