Vísir - 29.08.1972, Blaðsíða 1
VISIR
«2. árg. — Þriðjudagur 29. ágúst — 19S tbl.
„REYNA AÐ KÓGA NORRÆN- KELTNESKA
ÞJÓÐ ÍSLANDS"
„Englendingar hafa um aldarað-
ir reynt að þvinga minni þjóðir til
að fallast á sinar skoðanir, eink-
um keltnesku þjóðirnar. Nú ætla
þeir enn að reyna að kúga litlu
sjálfstæðu norrænu og keltnesku
þjóðina á tslandi. Það mun mis-
heppnast. Við munum aldrei gef-
ast upp fyrir svivirðingu oks Eng-
ilsaxa, heldur berjast fyrir sigri
islenzka iýðveldisins."
Þetta segir i yfirlýsingu frá
fiokki skozkra þjóðernissinna i
tiiefni 1. september. Yfirlýsingin
er undirrituð af VVilliam
McDougall.
— HH
Sjá fleiri fréttir urrt
helgismál á baksíðu
land-
Sögufrœg
kirkja rifin
Reykjahliðarkirkja i Mý-
vatnssveit hefur iöngum ver-
ið viðkomustaður ferða-
manna vegna sögunnar, sem
tengd er kirkjunni.i sumar
gTipu ferðamenn i tómt,
kirkjan haföi verið rifin. Um
Reykjahliðarkirkju, Mý-
vatnselda og álit þjóðminja-
varðar má lesa á bls. 2
„Endurreisn
leikhúslífsins"
— segir Gunnar
Eyjólfsson um
leikhússtjóra-
skiptin
— sjá bls. 3
„Jack
skerari"
var víst kona
Alræmdastur allra morð-
ingja, „Jack the Ripper”,
var kona eftir alit saman.
Það segir leynilögreglumað-
ur, sem hefur eytt eftir-
launatima sinum til rann-
sókna málsins. Hann telur
það tengt fóstureyðingum.
Siá hls. 5
Ótti Fischers
við skáktölvur
ástœðulaus
Tölvur geta ekki séð jafn
langt og djúpt i skákinni og
snjallir menn. Fischer er
sagður hafa óttazt, að tölvur
tækju öll völd i skákheimin-
um. Það verður ekki i bráð,
en þeim fer fram.
Sjá bls. 6
Aðalstign
fyrir sjórón
„Eðiilegast væri, að brezk
stjórnvöld fari nú að hugsa
til þess að aðla einhvern tog-
araskipstjórann, t.d. tugt-
húsliminn Dick Taylor, eins
og Drake var aðlaður á sín-
um tima. Það væri vel við
hæfi, að Bretar kveddu
heimsveldi sitt á sama hátt
og þeir heilsuöu þvi fyrir
fjórum öldum.” Svo segir i
dag i niðurlagi leiðarans, þar
sem borin eru saman sjórán
Breta fyrr á öidum og nú á
timum.
Sjá bls. 6
Dúkkur til að
skreyta eða
sjálfstœðar
mannverur?
A Innsiðunni i dag birtum við
nokkrar myndir af hentug-
um skólaklæðnaði á börnin.
Sjá bls. 7
Fox kyrrsettur?
Chester Fox hinn ame-
ríski á nú i enn einum
málaferlum þessa dagana.
Hann hefur nefnilega alls
ekki greitt starfsmönnum
sinum kaup í þann tíma
semþeir hafa starfað fyrir
hann!
Heimta þeir þ.e. kvikmynda-
fyrirtæki Gisla Gestssonar, Við-
sjá kauptryggingu og ef hann
verði ekki búinn að gera það fyrir
kl. 2,30 i dag krefjast þeir kyrr-
setningar á Fox sjálfum og eigum
hans, þannig aö hann kemst ekki
úr landi fyrr en hann hefur borg-
að kvikmyndatökumönnunum.
Kunnugir segja að Fox hafi
reyndar starfaö sem staðgengill
ABC-sjónvarpstöðvarinnar með
leynd og þegið laun hjá þeim fyrir
störf sin hérlendis. Þá telja is-
lenzku kvikmyndagerðarmenn-
irnir að Foxþurftiskki að örvænta
fjárhagslega vegna kvikmynda-
tökunnar i einviginu. Af þeim 20
milljónum isl. kr. sem hann hafði
upphaflega ráðgert að færi i
kostnað ef einvigið hefði allt verið
kvikmyndað hafi hann aðeins eytt
einni milljón.
Hins vegar hafi hann selt drjúgt
af ljósmyndum og komi jafnvel til
með að hafa 15-20 milljónir upp úr
þeim kvikmyndum sem teknar
hafa verið þ.e. 1. og 8. skákarinn-
ar. Auk þess eigi hann nú á filmu
hinn stórkostlega aðdraganda
einvigisins allt frá þvi að óvissan
um Fischer hófst og þar til skákin
var tefld.
Telja islenzkir starfsmenn
hans, að þar sé raunar ómetanleg
heimildarkvikmynd sem Fox
muni vafalaust græða stórfé á.
Erlendir blaðamenn og reyndar
fle^tir sem fylgst hafa með
gangi mála telja að Fox hafi illi-
lega hlunnfarið Skáksambandið
með þvi að semja svo við það að
þeir fái nú engar tekjur af vænt-
anlegum gróða við kvikmynda-
tökuna.
Eru margir undrandi yfir Skák-
sambandinu að semja svo af sér i
— ef hann leggur
ekki fram kaup-
tryggingu til starfs-
manna sinna fyrir
kl. 2,30 í dag!
viðskiptum sinum við hinn slæga
Bandarikjamann. En eins og
málin standa nú er Fox sannar-
lega i klipu. Leggi hann ekki fram
kauptryggingu til starfsmanna
sinna fyrir kl. 2,30 i dag verður
hann kyrrsettur ásamt öllum eig-
um sinum hérlendis!
Gisli Gestsson forstjóri Viðsjá
vildi ekkert segja um máliö að
svo stöddu en kvað það skýrast
betur i dag og þá yrði þaö aðeins
spurningin: Leggur Fox fram
kauptryggingu eða ekki?
GF
„BRETAR HELGA
SÉR ÚTHAFIÐ"
Heath gagnrýndur í blöðum fyrir að vilja í
íslendingar eiga sér sina mál-
svarsmenn i Bretlandi — enginn
skyldi ætla að allir brezkir
togaramenn séu blindir gagnvart
réttindum okkar til útfærslu land-
helginnar. Visi hefur t.d. borizt
afrit af opnu bréfi til Edwards
Heath, forsætisráðherra Breta,
og er bréfiö frá manni að nafni
James Mason. Bréfið sendir
hann til Daily Express og The
Times i London
Segir þar m.a.: „Ég vil mót-
mæla harðlega þeim aðgerðum
sem rikisstjórn yðar hefur hafið
vegna útfærslu islenzku land-
helginnar i 50 mflur.
Nýja landhelgin er Islendingum
lifsnauðsyn, ef Island á að
tryggja sér efnahagslega fram-
tið. Þessi fiskimið sem um ræðir
eru einu auðlindir tslands.... Rök-
semd Breta er sú, að þeir eigi
sögulegan rétt til að fiska i
islenzkum sjó. Þetta er goðsögn,
þvi að Amazon birtist á þessum
miðum fyrstur brezkra togara
árið 1897.... hins vegar hófst ekki
rányrkja brezkra og þýzkra
togara á þessum slóðum fyrr en
1950. Þetta er varla hægt aö kalla
sögulega hefð;
Brezkir togarar eiga sér hins
vegar óvéfengjanlegan rétt.
Réttinn tilaðveiöa fisk i eigin sjó
við eigin strendur. Rétt, herra
forsætisráöherra, sem þér fyrir-
gerðuö til þess aö bjarga yðar
hluta i Efnahagsbandalaginu.
Þér haldið þvi fram að Island
geti ekki varið auðlindir sinar
með þvi að færa landhelgina út i
50 mflur. Samt hefur rikisstjðrnin
selt mörgum alþjóðlegum fyrir-
tækjum þúsundir fermilna af út-
hafinu. Hafsvæði sem munu skila
auði i formi oliu og jarögass.
Siðasta verkfall náði yfir svæði
lOOmflur út frá Shetlands-eyjum.
Tvöfalt á við þau mörk sem
tsland fer fram á, Hver færir
landi okkar guðlegan rétt til aö
neita einu landi um 50 milna land-
helgi um leið og við færum út
okkar eigin landhelgi þegar um
er að ræða annars konar auðlindir
hafsins....?
.... Island er hornsteinn
varnarkerfis Norður-Atlantshafs-
ins. Hvi ættu Islendingar að gefa
þorskastríð
sig aö þvi að vera meginskot-
markið i einhverju striði fram-
tiðarinnar einvörðungu i þágu fá-
einna Evrópurikja. Þar sem eini
áhuginn sem þessi sömu riki hafa
á Islandi er aö ræna það auð-
lindum þess... ræna það þannig aö
það mun ekki eiga sér viðreisnar
von.
Ef Island fer úr NATO fá
Rússar Hvalfjörð fyrir flota-
stöð... ég hef frétt af þvi að
brezkir togarar hafi veitt fisk
góðan spöl innan gömlu þriggja
milna landhelginnar. Enn hef ég
þó ekki frétt að þvi að brezkir
togarar hafi veitt fisk i landhelgi
á rússneska Hvita hafinu....
...Úrskurður Alþjóðadómstóls-
ins i Haag er ekki þess virði að á
hann sé eytt örðum.
Úrskurðurinn var aðeins úr-
skurðurlanda.sem hafa fyrirgert
eigin auðlindum i sjó, og beina nú
gráðugum augum til norðurs.
Alla vega er svona úrskurður,
sem beint er gegn eyju sem er i
1000 milna fjarlægð ekkert annað
en hótfyndni”
—GG.
Þrístirni
þýzkra kvik-
mynda og
sjónvarps
Þau scm hér cru að horfa út
i islenzka suddann eiga tals
vert mikið undir veðrinu þessa
dagana. Þau eru Christine
Wodetzky, sviös og sjónvarps-
leikkona, scm þarf að
komast á æfingu i Zúrich á
miðvikudagskvöld. Pctcr
Hásscnstein og Rolf Hádrich,
kvikmyndatökumaður og leik-
stjóri Brckkukotsm y ndar-
innar, en þeir biða eftir góðuin
degi til útitöku á myndinni.
Christinc er hér að heimsækja
mann sinn, Peter, cn þau hlutu
öll þrjú „gull-myndavélina”, i
Þýzkalandi fyrir leik, stjórn,
og töku árið 1968. Með þeim 'er
Jón Laxdal, sem nú leikur
Garðar Hólm i Brekkukots
myndinni, en hcfur undan-
farin ár leikið i þýzkumælandi
löndum.
— ÞS