Vísir - 29.08.1972, Page 2

Vísir - 29.08.1972, Page 2
2 Visir Þriðjudagur 29. ágúst 1972 visiiism: í siðustu skákum ein- vigisins hefur Spasski haft frumkvæði en ekki tekizt að sigra. Teljið þér Fischer vera ósigr- andi? Friðrik ólafsson, stórmeistari: Nei. Það held ég að enginn maður geti orðið. Að visu hefur Spasski haft frumkvæðið i nokkrum sið- ustu skákum en það er ekki gott að benda á afgerandi vinnings- leiðir fyrir hann. Með mjög nákvæmri taflmennsku má segja að hann hefði getað notfært sér örlitla stöðuyfirburði eins og i siö- ustu skák (19.) t.d. með þvi að drepa ekki á d5 með riddaranum eins og hann gerði. Staða hans var þá þegar orðin mjög ákjósan- leg. Annars er álagið farið að segja til sin, svo það er erfitt að segja til um hvoru megin vinn- ingarnir ættu að lenda, i siðustu skákunum. En þetta eru vafa- laust tveir sterkustu skákmenn heimsins núna. Þó Kússarnir telji ýmsa landa sina fremri Spasski t.d. Kortsnoj, Petrosjan og jafn- vel Karpov. Jónas Þorvaldsson, bókbindari: Ég fer að halda það. Ef ég væri i sporum Spasskis þá væri ég löngu búinn að gefast upp á að vinna þennan dreng. Hann virðist alltaf sleppa með skrekkinn. Auð- vitað nálgast hann titilinn með þvi að tefla upp á jafntefli eins og að undanförnu en Spasski hefur haft frumkvæðið i siðustu skákum og teflir núna miklu betur en hann gerði fyrst i einviginu. En það er ekki gott að benda á hvar honum urðu á mistök, ef einhver voru — Fischer teflir lika vörnina frá- bærlegavel. Þaðer enginn vafi að þetta er- tveir sterkustu skák- menn heims(ég tel vist að Spasski verði næsti áskorandi ef Fischer vinnur sem hann hlýtur að gera. Jón Þorsteinsson, lögfræðingur: Það er erfitt að segja. Aö visu hefur Spasski haft heldur meiri möguleika i siðustu skákum en Fischer hefur lika brennt af vinn- ing eins og t.d. i 18. skákinni. Ég hef enga trú á þvi að einn maður geti haft langvarandi foryztu i skákheiminum, svo það er spurn- ingin hvað lengi heldur Fischer þessum styrkleika sinum. Hann er fyrst og fremst frhbær varnar og endataflsmaður en þegar út i opnar sóknarstöður er komið, þá teflir hann ekki eins vel. ReykjahSíðakirkja í Mývatnssveit rifin: „Ég þvœ hendur mínar" segir þjóðminjavörður Gamla Reykjahlíðarkirkjan i Mývatnssveit hefur verið rifin. Þessi steinkirkja frá siðustu öld, sem stóð á gömlu kirkjustæði var löngum viðkomustaður ferða- manna. Þótti hún merk fyrir þær sakir, aðsagnir hcrma að i jarð- eldum hafi hraunið klofnað, þeg- ar það var komið að kirkjunni, sem þá stóð, og runnið sitt hvoru megin við hana. Arið 1962 var ný kirkja vigð á staðnum og hin gamla lögð niður. Visir hafði samband við þjóð- minjavörð Þór Magnússon, sem sagði. — Þegar búið er að byggja nýja kirkju þá er náttúrlega um leið búið að fórna hinni gömlu. Getum við nefnt mörg dæmi þessa t.d. kirkjubyggingarnar á Reykhól- um og i Heydölum, auk Reykja- hliðarkirkju. Menn eru nefnilega dálitið fljótir á sér að dæma þess- ar eldri kirkjur ónýtar, sem eru á tiðum illa leiknar vegna algjörr ar vanhirðu. Þá er fenginn smið- ur, sem segir i einu orði ,,þetta er ónýtt.” Það er ráöizt i nýja kirkjubygg- ingu þótt það kosti ekki nema litið að gera þá gömlu upp og lögð á söfnuðinn stórkostleg skulda- byrði, sem söfnuðurinn stynur undan i mörg ár. Sem betur fer hefur okkur hér i Þjóðminjasafn- inu tekizt að afstýra þvi i nokkr- um tilfellum að slikt niðurrif ætti sér stað. Og ég vil leggja áherzlu á það, að hefði Þjóðminjasafnið vitað að til stóð að byggja nýja kirkju, þegar það var gert á sin- um tima hefðum við vafalaust reynt að afstýra þvi, en um hina nýju Reykjahliðarkirkju vissi enginn fyrr en hún var risin. Siðar sjá menn eftir þessu og koma og vilja, að Þjóðminjasafn- ið taki að sér varðveizlu. Kirkjan i Reykjahlið var stein- kr.ikja frá um 1880 og skemmti- lega byggð en veggir mjög sprungnir ofan frá og niður úr og virtist sem grunnurinn hafi sigið. Við hana hefði eflaust mátt gera. Hinsvegar er nokkuð seint að hugsa um varðveizlu þegar ný kirkja, sem staðsett er þannig, að hún skyggir á hina gömlu er risin. A Reykhólum og i Heydölum hefur hið sama gerzt, að ný kirkja var byggð á stað hinnar gömlu og er nú verið að tala um möguleika á að flytja gömlu kirkjuna i Hey- dölum á annan stað. Svo hefur okkur lika tekizt að bjarga ýms- um gömlum kirkjum. Tvö nýleg dæmi um það eru Auðkúlukirkja i Húnavatnssýslu og Kirkjuvogs- kirkja i Kirkjuvogi i Höfnum. Það er mikil eftirsjá að Reykja- hliðarkirkju en eftiratvikum ekki annað hægt að gera en það sem var gert. Annars er það ekki mitt mál og þvæ ég hendur minar af þvi. —SB— Um hraunrennslið og Reykja- hlíöarkirkju hefur verið ritað og segir Ebeneser Henderson m.a. svo i Fcrðabók sinni: „Þegar hraunflóðið nálgaðist útnorður- horn torfgarðs þess, er lykur um kirkjugarðinn, hefir það stöðvast um það bil tvö fet frá garðinum, þar sem það hefur klofnað i tvær kvislar, likast þvi sem það vildi þyrma hinum helga reit. Siðan hafa kvislarnar tvær haldið áfram um það bil tuttugu skref og þá sameinast á ný, svo að kirkjan stóð ósködduð umlykt logunum. Sumsstaöar er hraunbakkinn al- veg uppi við vegginn helmingi hærri en kirkjan”. Þorvaldur Thoroddsen kom að Reykjahlið og segir, að hraunið hafi farið hægt og hafi ekki getað náð til kirkjunnar af þvi að hún hafi staðið á ávölum bakka. 4 Aðeins grunnurinn af gömlu kirkjunni stendur nú eftir. I* eröamenn hafa ekki lengur erindi sem erfiði, ef þeir ætla sér aö sjá gömlu kirkjuna i Reykjahlið, sem nú hefur verið rifin. Hún var reist af Pétri Jónssyni árið 1876 og stóð á milli hraunkvislanna, sem runnu kringum kirkjuna i Mývatnseldum á 18. öld. A myndinni sést nýja kirkjan og sú gamla. LESENDUR Jk HAFA Cm ORÐIÐ Furðuleg hugmynd r að Island skatt- leggi Fischer og Spasskí Komið hafa fram i blaðaskrif- um hugmyndir um það, að skatt- leggja hér á islandi tekjur heims- meistara og ákoranda, sem þeir fá greiddar fyrir „einvigi aldar- innar” i skák hér á hhii. Ég tel þessa hugmynd svo nei- kvæða frá hálfu islands, að ég get ckki annaö en birt um hana nokk- ur orð: Það skal i upphafi þessa máls tekið fram, að ég þekki litið til skattmála, nema ef nefna mætti tvö atriði: 1 fyrsta lagi, að ég hefi greitt öll opinber gjöld sem á mig hafa ver- ið lögð siðan ég náði tilskildum aldri. I öðru lagi það að skattalög á tslandi virðast mér ætið hafa ver- ið i endurskoðun, svo langt er munað verður og eru það enn. Er þvi varla un neina „absalút for- múlu” að ræða i þeim efnum. önnur atriði er snerta þetta mál þekki ég nokkuð. I fyrsta lagi mátt og gildi aug- lýsinga á aðstöðu og atvinnulifi þjóða. 1 öðru lagi gildi þekkingar hins almenna borgara, þjóða um aðr- ar þjóðir, þvi almenningsálit er ætið mjög sterkt. Þeir sem mikið hafa ferðast er- lendis hafa orðið mjög mikið var- ir við það, að þegar sleppt er þeim aöilum erlendis sem stunda bein verzlunarviðskipti við tsland, sendifulltrúum annarra þjóða er hér dveljast, svo og fámennri tölu erlendra fræðimanna, vita almennir borgarar erlendra þjóða harla litið um hagi islenzku þjóðarinnar, menningu hennar, lifsbaráttu o.s.frv. Um þetta gæti ég nefnt ótal dæmi frá ierðum minum erlendis, en það verður ekki gert hér. Með einvigi aldarinnar i skák hafa heimsmeistari og áskorandi auglýst tsland og islenzkar að- stæður meira en við tslendingar mundum hafa ráð á eða mögu- leika að gera i náinni framtið. Vegna skákeinvigisins hafa dvalið hér hundruð fréttamanna erlendra fjölmiðla, tsland orðið og verður vikum og mánuðum saman á forsiðum heimsblaða i sjónvarpi þeirra og hljóðvarpi. Það er meðal annars alls ekki ólikt að svona gifurlegar aug- lýsingar geti haft mikil áhrif á mál málanna, sem tsland stendur frammi fyrir nú — útfærslu land- helginnar, svo og markaðsmál, aukningu erlendra ferðamanna ofl. Komið hefir fram i blaðagrein eða greinum, að likleg upphæð sköttunar tslands á þá Boris Spasský og Robert Fischer gæti numið sex milljónum ísl. króna. Fyrir þessa upphæð væri t.d. unnt að koma fáeinum mátt- litlum augl. i erlenda fjölmiðla. Þetta er nánast verð á einu sæmi- legu einbýlishúsi eða nokkurra smálesta fiskibát. Hins vegar hefi ég einhvers staðar séð skrifað, að við Islend- ingar höfum gert samninga um kaup á fiskiskipum er kosta muni sex milljarða islenzkra króna. Byggt á framanrituðu er það einlæg ósk min að við tslendingar föllum ekki i þá litilmennsku og vanþakklæti gagnvart heims- meistara og áskoranda hans i skák, að skattleggja væntanlegar tekjur þeirra hér — látum vald- hafa fósturlanda þessara ágætu snillinga um það atriði. Reykjavik 21. ágúst 1972. B.A. Bergsteinsson. Óánœgja austanfjalls með fréttaflutning útvarps og sjónvarps af einvíginu Pétur Pétursson frá Selfossi sim- ar: Hvernig er það, er ekki nokkur leið að fá almennilega fréttaþjón- ustu útvarps og sjónvarps frá ein- viginu? Þær eru nefnilega mjög lélegar fréttirnar úr Laugardals- höllinni sem þessir fjölmiðlar sjá um. Það er mjög bagalegt fyrir okkurfólkiðúti á landi að fá ófull- nægjandi upplýsingar frá skák- unum. Núna i gær t.d. i biöskák- inni, sem var búin rétt fyrir 3yþá kom frétt i útvarpinu þess efnis að það hefði orðið jafntefli. Nú, nú. Gott og vel. En siðan ekki sög- una meir. Engir leikir eða neitt, bara sögð úrslit skákarinnar. Munaði nokkuð um að lesa þessa 3 eða 4 leiki sem leiknir voru? Eða átti maður bara að geta sér til hvað kapparnir hefðu leikið? Svona fréttaflutningur er fyrir neðan allar hellur. Við heimtum það dreifbýlismenn að meira tillit verði tekið til okkar og auðvitað allra hlustenda útvarps. Vonumst við til, að úr þessu verði bætt, þó langt sé nú liðið á einvigið.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.