Vísir - 29.08.1972, Page 3

Vísir - 29.08.1972, Page 3
Visir Þriðjudagur 29. ágúst 1972 3 „Líkar bezt að leika konur með „bakgrunn ,,Ég hiýt aö koma með vonda veðrið, að minnsta kosti rigndi hressilega eftir að ég kom. Ég get aðeins verið hér i þrjá daga og er með hlutverkiö mitt með mér til þess að læra það. Ég á að mæta á æfingu i Zúrich á miðvikudags- kvöld, og það er eins gott að það verði hægt að fljúga,” sagði þýzka leikkonan Christine Wodetzky, en hún kom hingað til landsins á sunnudagskvöld til þess að hitta mann sinn, Peter H'ássenstein, sem er kvik- myndatökumaður I Brekkukots- myndinni. Christineerein þekktasta sviðs og sjónvarpsleikkona Þjóðverja og hefur á undanförnum árum leikið i ýmsum helztu leikhúsum m.a. i Hamborg, Stuttgart, Dilsseldorf, Köln og nú i Zilrich i Sviss, auk þess sem hún hefur leikið i fjölmörgum sjónvarps- myndum og kvikmyndum. Við hittum Christine stutta stund, þar sem hún og maður hennar búa hér i Reykjavik. Með henni var Jón Laxdal, en hann er einmitt fastráðinn leikari við leikhúsið i Zúrich, þar sem Christine æfir nú. ,,Þvi miður lendum við vist ekki saman i sýningu að þessu sinni’’ sagði Jón og þótti auðsjáanlega miður. ,,Ég er núna að æfa Charlotte Corday i Marat Sade og fer siðan að æfa Pollý i Túskildingsóperunni.” sagði Christine okkur. „Hvort likar þér betur að leika i kvikmynd (sjónvarpi) eða á sviði?” W „EG SE FYRIR MER ENDURREISN . . . — segir Gunnar Eyjólfsson leikari um leikhússtjóraskiptin. Nýr þjóðleikhússtjóri tekur við starfi sínu nú, þegar nýtt leikár hefst 1. september. Sömuleiðis byrjar nýr leikhús- stjóri starf sitt hjá Iðnó I haust. Visir fór á stúfana um daginn að reyna að fá það upp úr leik- urum, hvað þeim fyndist um húsbændaskiptin. Hvort þeir i báðum leikhúsunum, Iðnó og Þjóðieikhúsinu, kviðu ný- breytni, sem þeir sæju fyrir, eða væru kannski i sjöunda himni yfir breytingunni. En, nei! Leikarar eru afskap- lega varkárt fólk. Og áreiðan- lega ekki mikið gefnir fyrir að bera hugsanir sinar á torg — a.m.k. ekki þegar um er að ræða stjórn leikhúss, sem i þeirra augum er afskaplega viðkvæmt mál. Jú — flestir voru á þvi, að nú væri von til að samstarf tækist með húsunum. Að samgangur yrði meiri en verið hefur og jafnvel samræmi i verkefna- vali. Við gátum samt (með þó nokkrum fortöíum), fengið hann Gunnar Eyjólfsson til að spjalla ögn um útlitið i leikhús- málum: „Ég sé fyrir mér endurreisn”, sagði Gunnar. „Leikarar ættu nú að gera sér ljóst hvaða tæki- færi þeir hafa til að endurskoða og endurnýja afstöðu sina til starfs sins. Til listarinnar. Leik- arar, ég á við þá eldri og ráð- settari, verða að notfæra sér þetta tækifæri, sem nú gefst. Ég get ekki gefið nákvæma forskrift fyrir þeirri endur- reisn. Ég hins vegar ber mikið traust til Sveins Einarssonar, hins nýja þjóðleikhússtjóra, og er sérlega ánægður með að fá hann til þessa starfa”. Gunnar Eyjólfsson liggur þessa dagana á Borgarsjúkra- húsinu, „það tók sig upp gamalt mein i baki. Ég slasaðist fyrir 14 árum i Bandarikjunum. Hefði átt að láta laga þetta fyrir löngu, en þóttist aldrei hafa tima til þess. Svo var allt i einu ekki um annað að ræða — ogþá sýndi það sig, að éghafði nógan tima. Og þá komst ég lika að þvi, að enginn er ómissandi. Ég stóð i heyskap austur i sveit, þegar ég fékk vont kast. Og þegar ég var lagztur hér inn, kom i ljós að aðrir menn gátu alveg eins bjargað heyinu handa hest- unum og ég hefði gert.” Gunnar fékk frábæra dóma gagnrýnenda i fyrravetur fyrir leik sinn i hlutverki Jagó i óþelló eftir Shakespeare — og við spurðum hvort Jagó myndi aftur sjást á sviðinu i haust? „Nei — ég má ekki reyna neitt á mig. Verðað slappa algerlega af til áramóta. 1 mesta lagi að ég megi lyfta hnifapörum. Hann vinur minn, Guðni i Sunnu leit til min um daginn og rétti mér farseðil til Mæjorka. Þar fæ ég ibúð til afnota i mánuð og ætla svo sannarlega að nota timann og slappa vel af”. — GG. ,,,Þegar ég er i leikhúsinu, langar mig til þess að leika i kvik- mynd og öfugt. Mér finnst hvort- tveggja nauðsynlegt, en leikhúsið sjálft er nú samt háskóli fyrir leikarann og þar lærir maður mest. t leikhúsinu verður að leika allt út, alveg aftur á aftasta bekk, en þegar maður leikur fyrir kvikmyndavélina, er maður al- gerlega einn. Maður verður að temja sér að hvorki heyra né sjá allan tækniútbúnaðinn i kringum mann”. Og hér koma þeir Peter Hassenstein og Rolf Hadrich, þeir eru i matarhléi frá upptökunum. Rolf og Jón Laxdal setjast beint að taflinu, sem biður þeirra á borðinu. Þeir eru geysilegir tafl- áhugamenn og hafa skroppið nokkrum sinnum inn i Laugar- dalshöll að fylgjast með skák- inni. „Já, Fischer vinnur þetta, það vissi ég reyndar alltaf” segir Rolf og athugar stöðuna. Peter og norski framleiðandinn Sölve Kern hafa annað áhugam&l hér á Islandi, en þeir eru báðir farnir að læra að fljúga. „Peter skiptir umáhugamálum leið og hann skiptir um land” segir Christine. „En þetta getur komið sér vel ef hann skyldi þurfa að fljúga með mig út svo að ég verði ekki of sein á æfinguna”. „Hvað þykir þér mest gaman að leika?” „Ég held mest upp á innhverfar og brotnar konur eða „konur með bakgrunn” eins og ég kalla þær. Mér leiðast einhæfar persónur, það eru ekki manneskjur. Við erum jú öll brotin og flókin og slik hlutverk held ég mest upp á”. Jón Laxdal fræðir okkur nú á þvi, að þau þrjú, Peter, Christine og Rolf hafi öll fengið sjónvarps og kvikmyndaverðlaun Þýzka- — ein þekktasta sjónvarps- og sviðsleikkona Þjóðverja — Christine Wodetzky í stuttri heimsókn. Hún, maður hennar Peter Hassenstein kvikmyndatökumaður í Brekkukotsmyndinni og leikstjórinn, Rolf Hddrich, hlutu öll þýzku sjónvarps og kvikmyndaverðlaunin arið 1968. „Sakna leikhússins, þegar ég vinn aö kvikmynd” Ei.tt siðasta vcrkcfni Christine i vor var að leika visindakonuna Madamc Cuirs i sjónvarpsmynd, sem sýnd veröur i Þýzkalandi I haust. lands árið 1968, „gull-mynda- vélina”. — Christine fyrir leik sinn i kvikmyndinni Dybuk, þar sem hún lék gyðingastúlku, Peter fyrir 4—5 verkefni og Rolf fyrir sjónvarpsmyndina „Morð i Frankfurt”. Það er þvi skemmti- leg tilviljun að þau skuli öll vera hér samankomin. En nú megum við ekki tefja lengur og kveðjum þau öll og vonum að Christine mæti timanlega á æfinguna á miðvikudag i Sviss. — ÞS Þessa mynd hafa þeir Brekkukotsmenn látið gera af Jóni Laxdal, en hún er notuð i kvikmyndinni. Þarna er búiö að „yngja” Jón upp eftir beztu getu, enda á hann að vera rúmlega tvítugur á henni, nýbúinn aö syngjá I Kairó fyrir Mohammed Ben AIi.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.