Vísir


Vísir - 29.08.1972, Qupperneq 4

Vísir - 29.08.1972, Qupperneq 4
Lennonhjónin um New York: Hér er miðstöð listamanno ## ## Visir Þriðjudagur 29. ágúst 1972 JD lili® 11, John Lennon og eiginkona hans, Yoko Ono hafa nú fundið sér hinn bezta samastað i New York, og nú kepp- ast þau við að læra að lifa og búa eins og Amerikanar. Þau taka það þó skýrt fram að það sé ekki sami lifn- aðarháttur og and- styggilegra Ameri- kana. Þessara sem reykja stóra feita vindla, og róma striðið i Vietnam. Þau umgangast aðeins lista- menn i Greenwich Village, og John segir: „New York er orðin miðstöð listamannanna, rétt eins og Parisvanáður fyrr. Það er gott að búa hér meðal allra þessara hæfileikamiklu manna og kvenna.” Það fer ekki svo ýkja mikiö fyrir „lúxus” i ibúð þeirra hjóna. Eitt stærsta húsgagnið i ibúð þeirra er fyrirferðarmikið hjónarúm, en beint fyrir framan það hefur verið komið fyrir sjónvarpi. A daginn hjóla þau um borg- ina á sinu tvihjólinu hvert, og koma við hjá pylsuvagninum og fá sér pylsu i svanginn. Þau eru sögð lifa einföldu lifi þarna meðal listamannanna i New York, en hve lengi þau fá að dveljast þar veltur allt á yfir- völdunum. „Ef þú kemur með mér, fœrðu 300.000 krónur" — En Spies gat ekki freistað ungfrú Feldsted Ums/ón: Edda Andrésdóttir Margt hefur verið rætt og ritað um Simon Spies, þann vel fjáða Dana, enda löngum verið tilefni til. Nú er hann orðin 50 ára gamall, og elli kerling far- in að elta hann uppi. En i æskuna ætlar Spies að halda sem lengst með alls kyns brellibrögðum, og hann er sifellt opinn fyrir ölium nýjungum. Og Simon hefur gaman af aðbregða sér á rall. Nóg er af peningun- um, og allt fæst ef þeir eru fyrir hendi, eða hvað. Það furða sig ef til vill ekki margir á þvi að allar ungar stúlkur skuli ekki snúast i kringum hann, en það sætir þó furðu i hvað hann getur krækt. Oft eru það þó aðeins peningarnir sem laða að. ,,Ef þú vilt koma mér mér heim, færðu 300.000 krónur bauð Simon Spies mér”, segir dönsk stúlka Marianna Feldsted. ,,Ég hefði enga löngun til þess og afþakkaði boðið.” Þegar Simon kaupir sér stúlkur skiptir engu fyrir hann hve háa upphæð hann verður að láta af höndum. Þær fá hátt greitt ef þær vilja vera með honum einar, og ennþá hærra.ef hann fær að gera við þær það sem honum þóknast, og meðhöndla þær eftir eigin geðþótta. Þær hafa sumar verið til i tuskið, en margar hverjar farið illa út úr þvi,þegar þær vilja fá sem mesta peningana og hann fær að meðhöndla þær að eigin vild. Ein kom með gapandi sár á eyra eft- ir að hann hafði bitið hana. Hann spurði eina af þeim stúlkum sem hann dansaði við hve gömul hún væri. Þegar hann fékk það svar að hún væri 26 ára gömul, sagði hann henni að hún væri allt of gömul fyrir hann. Fyrirferðarmesta húsgagnið i ibúðinni er hjónarúmið. A daginn fá þau sér pylsu i pylsuvagninum og hjóla um borgina. Hippum vísað fró Malaysiu öllum „hippum" verður bannaður aðgangur til Malaysia frá og með 1. september núkomandi, að því er yfirvöld þarlend hafa tilkynnt. Nú er hafin leit að öllum sem eru með sitt hár, illa viðhöldnu skeggi og sem ganga i skitugum og snjáðum fötum. Og allir hipp- arnir eru færðir til yfirvalda. og þeim erlendu þegar i stað visað úr landi. Þetta eru öryggisráðstafanir fyrir æsku landsins. Yfirvöld telja hippa og þá sem nota eiturlyf hafa skaðvænleg áhrif á þá sem eru að vaxa upp, og aðra. Skólar og aðrar stofnanir taka þátt i þessum aðgerðum, og hafa lofað að láta yfirvöldin vita ef vart verður við hippa. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það, hvað verði gert við innfædda hippa.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.