Vísir - 29.08.1972, Síða 6
6
Visir Þriðjudagur 29. ágúst 1972
vism
Útgefandi:
Framkvæmdast jóri:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingastjóri:
Auglýsingar:
Afgreiðsla:
Ritstjórn:
Reykjaprent hf.
Sveinn R. Eyjólfsson
Jónas Kristjánsson
Jón Bii-gir, Pétursson
Valdimar H. Jóhannesson
Skúli G. Jóhannesson
Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Hverfisgötu 32. Simi 86611
Siðumúla 14. Simi 86611 (5 linur)
Askriftargjald kr. 225 á mánuöi innanlands
i lausasölu kr. 15.00 eintakið.
Blaðaprent hf.
Aðalstign fyrir sjórán
Sjóræningjar áttu mikinn þátt i að leggja grunn
að brezka heimsveldinu á siðari hluta sextándu ald-
ar og á þeirri sautjándu. Menn eins og sir Francis
Drake sigldu um höfin og rændu spönsk og portú-
gölsk gullskip. Um þessar mundir fór veldi Spán-
verja og Portúgala hnignandi á höfunum, og Bretar
tóku brátt við sem mesta sjóveldi heims. 1 krafti
þessa sjóveldis byggðu þeir upp heimsveldi sitt ái
átjándu og nitjándu öld.
Formlega séð voru Drake og aðrir slikir ævin-
týramenn á eigin vegum og á eigin ábyrgð i ferðum
sinum. Brezk stjórnvöld höfðu þó hönd i bagga að
tjaldabaki. Þau veittu sjóræningjunum skjól og
vernd og létu þá beina byssum sinum gegn höfuð-
andstæðingum sinum meðal nýlenduveldanna.
Enda var Drake ekki látinn gjalda sjórána sinna,
heldur var hann aðlaður fyrir þá glæpi.
Nú er þetta heimsveldi liðið undir lok. Nýlendurn-
ar hafa brotizt undan móðurlandinu og fara sinar
eigin leiðir. Og það merkilega er, að i kjölfar þessa
hruns hafa Bretar nú aftur tekið upp sjórán, þótt
ekki sé það framið á sama hátt og það sjórán, sem
var aðdragandi þess veldis, sem nú er hrunið.
Brezki togaraflotinn, sem er á leið á íslandsmið,
brýtur nú lög heimalands sins, islenzk lög og al-
þjóðaiög með þvi að sigla eins og sjóræningjar án
nafns og númers. Markmið þeirra er að fremja sjó-
rán á efnahagslegum verðmætum i fiskveiðilögsögu
Islands án þess að þekkist, hverjir séu þar á ferð.
Nöfn og númer skipanna voru afmáð, áður en þau
létu úr brezkum höfnum. Þegar tryggingafélög þar
i landi fóru að kvarta um, að þetta væri ekki lögum
samkvæmt, var nöfnum og númerum lauslega
komið fyrir á ný. Þessi nöfn og númer voru siðan
horfin aftur, þegar togararnir komu til Færeyja til
að taka vatn. Færeysk stjórnvöld brugðu við hart og
neituðu að láta afgreiða vatn til slikra hulduskipa.
Færeysk stjórnvöld hafa sóma af þvi að standa
svona traustan vörð um lög og reglur, þótt Færey-
ingar verði fyrir bragðið af viðskiptum við þessi
skip. Þvi miður kemur þetta ekki i veg fyrir sjórán-
in, þvi að togararnir munu hér eftir sennilega hafa
nafn og númer, þegar þeir koma til Færeyja, og af-
má það siðan á leiðinni til Islands.
Brezk stjórnvöld segja þetta ekki vera sina ráða-
gerð, heldur samtaka togaraeigenda. Hræsnin erl
þar á háu stigi eins og fyrri daginn. Auðvitað áttuj
þau að gripa snarlega i taumana, þegar ljóst var
orðið, að togaraeigendur voru farnir að fremja við-
tæk lögbrot. Það gerðu brezk stjórnvöld ekki og
kusu að gerast vitorðsmenn með sjóræningjunum.
Hitt fer ekki heldur á milli mála, að allar þessar að-
gerðir brezka togaraeigenda eru skipulagðar i sam-
ráði við stjórnvöld þar i landi.
Eðlilegast væri, að brezk stjórnvöld færu nú að
hugsa til þess að aðla einhvern togaraskipstjórann,
t.d. tukthúsliminn Dick Taylor, eins og Drake var
aðlaður á sinum tima. Það væri vel við hæfi, að
Bretar kveddu heimsveldi sitt á sama hátt og þeir
heilsuðu þvi fyrir fjórum öldum.
Frá skákmeistaramóti talva:
Féll á tíma
eftir 51 leik
Skákmótið á Sheratonhó-
telinu i Boston minnti litið
á einvígið í Reykjavik.
Enginn þátttakandi kvart-
aði um slæma lýsingu, há-
vaða eða borðröndina.
Enginn bar sig illa yfir
elektróník, enda varla von.
Þarna áttu tölvur í hlut.
Fram fór „bandarískt
meistaramót tölva í skák".
Ahorfendur hlógu ofboðslega
annað veifið, öskruðu og sótbölv-
uðu. Stundum var klappað, þegar
leikirnir voru sýndir á sýningar-
töflunni. Slikt þætti ekki gott i
Laugardalshöll, en hláturinn var
stundumafsakanlegurþvi að fyrir
kom, að tölvurnar léku af sér eins
og unglingar, tefldu sýnu verr en
Spasski i sinum verstu afleikjum.
Það var augljóst, að tölvur höfðu
ekki náð i skottið á mönnum i
skáklistinni, af þvi að alla forsjá
skorti, engin áætlun kom fram,
aðeins misjafnlega góðir mögu-
legir leikir i hverri stöðu voru
leiknir. Þó voru tölvurnar mjög
misjafnlega snjallar, og gamli
meistarinn hélt titli sinum gegn
hörðum áhlaupum áskorenda.
Sigur Bobbys ylli betri tölv-
um
Botvinnik, fyrrum heimsmeist-
ari er i óða önn að gera fullkomn-
ari tölvur, sem geti teflt skák bet-
ur en aðrar tölvur. 1 Boston voru
Bandarikjamenn einir um hituna,
en orðrómur hermir, að sovézkar
skáktölvur séu betri en banda-
riskar, þótt bandariskar tölvur
séu kannski mun betri yfirleitt.
Eftir sigur Bobby Fischers i
heimsmeistaraeinviginu, mætti
búast við verulegum framförum
bandariskra skáktölva. Skákæði
er sagt fara um Bandarikin, og
visindalegar framfarir á þvi sviði
munu vafalaust koma i kjölfarið.
Sögðu, að tölvur myndu
verða betri en menn
Ekki er langt siðan margir
sögðu i alvöru, að tölvurnar muni
leggja undir sig skákheiminn,
verða mönnum miklu fremri.
Jafnvel er sagt, að Bobby Fischer
hefði haldið þetta, sem er með
ólikindum um skákmann, en er þó
haft fyrir satt. Um 1955 fóru að
koma fram „skákprógrömm”
fyrirtölvur. Menn sögðu sem svo,
að vegna hraðans, sem tölvan
gæti metið mögulega leiki i hverri
stöðu, ætti hún að hafa yfirburði
yfir menn með svo miklu seinni
hugsun. Þar gleymdist, að skák
krefst miklu meira en þessa. Hún
er meira en útreikningur, krefst
skapandi hugsunar. Er ekki
einungis þraut, heldur „list”,
krefst nokkurrar „geggjunar” ef
ná á til yztu endimarka skák-
snilli. Sem sé margs sem tölvur
ráða ekki við, sem betur fer.,
Tölvurnar reyndust ekki megna '
að „gera sér grein fyrir” þvi
flókna viðfangsefni, sem skákin
er. Þær eru þvi enn nokkuð „ein-
faldar” i skák, en þeim fer stöð-
ugt fram.
Tölva hefði ekki fórnað
riddaranum
Fyrstu tiu leiki i skák má til
dæmis leika á 170 milljón, trilljón,
trilljóna mismunandi vegu, sem
er meiri tala en við getum hugsað
okkur af viti, og hvað þá um 40
leikja skák? Jafnvel hin full-
komnasta tölva getur aðeins
„gripið’” nokkra sæmilega rök-
rétta leiki, sem hún gerir með þvi
að gefa öllum möguleikum stig
eftir þvi, hversu liklegir þeir eru
til að vera rökréttir, samkvæmt
„prógramminu”, sem tölvunni
hefur verið gefið i upphafi. Þegar
tölvan hefur fengið upp gefinn
leik andstæðingsins, „litur hún á”
alla mögulega leiki. Hún „kann-
ar” aðeins dýpra leikina sem
flest stigin fá, reynir að rekja litið
eitt lengra, hvernig þeir reynast.
Hún hefði vafalaust aldrei fórnað
riddaranum, eins og Spasski
gerði á sunnudaginn, en hún hefði
vafalaust drepið þann riddara
strax, ef sá leikur hefði verið leik-
inn gegn henni, og með þvi hefði
skákin verið tölvunni töpuð, þótt
Fischer gengi betur i þeirri stöðu.
Fengu 2 tíma fyrir 40
leiki og viðgerðahlé
Tölvur geta þvi teflt nokkuð vel
„taktik”, sem kallað er i skák-
inni, krækt i menn, sem eru illa
staddir, en hún er máttlitil i
„strategiunni”, áætlunum til
langs tima, sem kannski skilur
góða skákmenn frá lélegum. Ein-
hver orðaði þetta svo, að tölvurn-
ar gætu slökkt i kjarri en skildu
ekki, að skógurinn allur var að
brenna.
I keppni tölvanna fengu þær
tvær klukkustundir fyrir 40 fyrstu
leikina hvor, sem er hálftima
minna en Spasski og Fischer, en
þó nokkuð algengur timi i skák-
um, þegar minna er i húfi. Þær
fengu siðan hálfa klukkustund á
hverja 10 leiki þar eftir. En einnig
voru allt aö þrjú hlé veitt, tuttugu
minútur hvert, fyrir viðgerðir.
Aðeins einn keppandi var i raun
viðstaddur i Boston, „smátölva”
áð verðmæti rúmar tvær milljón-
ir króna, sem stúdentinn George
Arnold hafði „prógrammerað”.
Hinar voru allar hundruð millj-
óna króna skessur, hver i sinum
háskóla út um Bandarikin, sem
fengust við alls kyns önnur verk-
efni jafnframt þvi, að þær tefldu
skákirnar. Tilkynnt var um leiki i
sima.
Skemmtilegasta skákin var i
fyrstu umferð, segir i timaritinu
Newsweek, þegar smátölvan
tefldi gegn meistaranum, Control
Data Corporation-tölvu i North-
western háskólanum, sem þrir
verkfræðingar höfðu prógramm-
erað. Þetta var 77 leikja skák,
sem Northwestern vann. North-
western tefldi siðan við Pro-
grammed Data Processor-tölvu i
Carnegie-Mellon háskóla. Eftir 51
leik hafði Northwestern-tölvan
unnið menn, og hún hélt titlinum,
þegar hin féll á tima.
200 þús. undir, að tölva sigri
skákmeistarann 1978
Meistaratign Northwestern
verður brátt i hættu, þvi að verk-
fræðingar i Suður-Kaliforniuhá-
skóla eru i óða önn að gera „pró-
gramm” fyrir tölvu, þar sem þeir
reyna að taka áætlun til langs
tima með i reikninginn. Brezki
skákmaðurinn David Levy er
sagður hafa látið sér um munn
fara, að „öll tölvuprógrömm séu
vitleysa”. Tölvumenn hafa veðj-
að við hann 200 þúsund krónum,
að tölva muni sigra hann i skák
árið 1978.
Kvenfólkið í íþróttunum:
Heimsmet kvenno í 100 m
hlaupi hefði nœgt til sigurs!904
VEIZTU,
...að Ljúbov Búrda frá Voronéz
varð yngsti ólympiusigurvegari
allra tima i fimleikum, en hún var
aðeins 15 1/2 árs, þegar hún
hreppti gullið á 19. ólympiu-
leikjunum.
.að „rosknasti” sigurvegari i
fimleikum kvenna var Galina
Úbranovitsj frá Moskvu. Hún var
á 36. aldursári, þegar hún sigraði
|i fjölþraut á 15. Ólympiuleikjun-
,...að Larisa Latynina geymir 18
ólympiska verðlaunapeninga.
Aðeins henni og annarri úkrain-
skri fimleikastúlku, Polinu
Astakhovu, hefur tekizt að vinna
gull i fimleikum .á þremur
Ólympiuleikjum.
....að egypzkar konur lögðu stund
á langstökk fyrir meira en 4000
árum. Þetta sýna ristur i grafhýsi
Benn-Hasane, sem byggt var
2000 árum fyrir Krists burð.
...,að fyrsta frjálsiþróttamót
kvenna i Rússlandi var haldið
1910.
....að heimsmetið i 100 metra
hlaupi kvenna 11,0 sek., eiga þær
Wyomi Tayes frá Bandarikjun-
um, Chi Chen frá Kina og Renta
Meissner frá Austur-Þýzkalandi.
Sá árangur hefði nægt þeim til
sigurs i karlakeppninni i
Ólympiuleikunum 1904.
....að 1964 kastaði Jelena Gortsja-
kova frá Moskvu spjóti fyrst
kvenna yfir 60 m. Heimsmet
hennar, sem hún setti á leikjun-
um i Tokio, var 62,40 m.
....að rússneska máltækið „Það
stekkur enginn hærra en upp á nef
sér” er löngu úrelt orðið, einnig
meðal kvenna. Austurriska stúlk-
an Maria Ilona Gusenbauer er 179
sm á hæð en hefur stokkið 192 sm
....að á 20. Ólympiuleikjunum
munu konur keppa um 14 gull-
medaliur i frjálsum iþróttum.
....að yngsti þhtttakandi allra
tima á ólympiuleikjum var 11 ára
sundkona frá Puerto Rica, Liana
Vicens. Það var i Mexikó 1968.
(APN)