Vísir - 06.10.1972, Blaðsíða 1

Vísir - 06.10.1972, Blaðsíða 1
13 ÁRA MINKABANI ■ OG GLÆFRAMENNI A baksiöu Visis i dag segjum við frá 13 ára gömlum minka- bana, sem á tveim dögum vann fjóra minka með aðstoð smala- hunds föður sins. En þessi sami drengur sannaði seiglu sina með öðrum hætti um likt leyti. Það var i gangnaferð, en þá lét hann sig ekki muna um að handlanga sig eftir syllur, sem kölluð er Dala- girðing og er þverhnipt niður af henni. Þessi sylla hefur alltaf verið talin ómanngeng — þó til séu sögur af tveim löngu liðnum mönnum, sem hana hafa farið. „Hvortég hafi ekki verið loft- hræddur á meðan ég fikraði mig eftir syllunni? Nei, ekki vitund. Enda hefði ég þá ekki komizt yfir,” segir hann Jón Sigurðsson. sjó baksíðuna KLEMMDUR í BÍLFLAKI — forvitnir vegfarendur með logandi vindlinga þrjóskuðust við fyrirmœlum logreglunnar vegna eldhœttu ökumaður þessa bfls hlaut beinbrot og var mikið slasaður, en lögreglu- þjónar og sjúkraliðar urðu að losa hann, þar sem hann sat fastur I bfl- flakinu. beðnir aö vikja,” sagði Bjarki Eliasson, yfirlögregluþjónn, eftir harðan árekstur, sem varð á Bú- staðavegi kl. 7.30 i morgun. Bilarnir tveir, sem þar voru — annar á leið vestur Bústaðaveg og hinn á leiö austur — skullu saman með framendana saman. Báðir ökumennirnir slösuðust og voru fluttir á slysadeild Borgarspitalans. Var annar þeirra mikiö slasaður, m.a. brot- inn á vinstra fæti, en þó ekki tal- inn i iifsiiættu. Hinn skarst á höfði þegar hann hlaut höfuðhögg. Nánari atvik þessa slyss lágu ekki Ijós fyrir, þegar blaðið fór i prentun i morgun, þvi að forvitnir vegfarendur höfðu spillt mjög ummerkjum á vettvangi, og engir sjónarvottar höfðu gefið sig fram við lögregluna. Ilins vegar virtist af öllum að- stæðum að dæma, að öðrum biln- um hefði vcrið ekið á röngum vegarhelming. GP Beinbrotinn og stórslas- aöur ökumaöurinn sat fast- ur i bílflakinu/ meöan björgunarmennirnir fengu varla komizt að til þess að ná honum úr flakinu fyrir ágengni forvitinna vegfar- enda. Meö logandi vindlinga í munninum og á milli hand- anna tróöust menn yfir bensinið, sem flaut úr bi!- flakinu, til þess að geta sem bezt séö, hvaö um var að vera. „Enginn skeytti neinu um eld- hættuna eða um nauösyn þess, að lögreglumenn og sjúkraliðar kæmust að til þcss að bjarga manninum úr bilnum og koma honum undir læknishendur. Sum- ir svöruðu lögregluþjónunum að- eins illu einu, þegar þeir voru NIXON SAGÐUR HAFA SAMIÐ LEYNIFRIÐ í VÍETNAM Sjó bls. 5 ★ Skóksveitin í taphœttu island tefldi við Kanada i í). umferð á Olympiuskák- mótinu i gærkvöidi og er i taphættu. Þremur skákum lauk og hefur Kanada 2 vinn- inga gegn einum islands. Jón Kristinsson og Ólafur Magnússon geröu jafntefli, en Björn Þorsteinsson tap- aði. Ein skák fór í bið. i 1. riðli úrslitakeppninnar hafa Sovétrikin nú náð Júgóslöv- um aö vinningum. Sjá iþróttir i opnu ★ Eru þeir oð finna réttu vörnina gegn krabbameini? - Sjá Innsíðu á bls. 7 ★ „Ef þeir vilja ekki selja mér Colosseum þá kaupi ég bara skakka turninn í Pisa" Sjá erl. fréttir, bls. 5 ★ 14 ára og slapp úr fangelsi Timothy Davey, hinn 14 ára brezki drengur, sem dæmdur var i sex ára og þriggja mán- aða fangelsi I Tyrklandi fyrir eiturlyf jasmygl, slapp úr fangelsi i morgun. Tyrkneska dómsmálaráöu- neytið hefur boðaö út fjöl- mennt liö til að leita að Davey. Hann var hafður i haldi i Kalaba endurhæfingar- fangelsinu, en þar voru 309 fangar og aðeins 12 verðir. Mál Davey var mjög frægt á sinum tima, þvi að brezkum almenningi þótti óhæfa, að svona ungur drengur fengi svo þungan dóm. . m Ökumaður þessa bfls hlaut höfuðhögg og skarst á höfði, en eftir þvi, sem hann gat — á leiðinni á slysavarðstofu — sagt frá atvikum, hafði hinn billinn komið á móti honum á öfugum vegarheiming. HANANU! KOMNIR YFIR STRIKIÐ 22 umferðaróhöpp sem urðu í gær, gerðu aldeilis strik í reikninginn hjá okkur, þvi að þá eru komnir 72 árekstrar á fyrstu fimm dögum mánaðarins — i staö 65, eins og við höföum spáö. Þar með eru ökumennirnir i Reykjavik komnir yfir strikiö, eins og sést á linuritinu hérna. Hefur nú linan tekið óhugnan- lega stefnu — einhversstaðar langt fyrir ofan 398 árekstra, sem við spáðum að yrðu i októ- ber. Af þessum 72 árekstrum eru 9 slys. — GP HOPE, SPITZ OG FISCHER f REYKJAVÍK EÐA KEFLAVÍK? Heimsmeistarinn I skák Bobby Fischer og hinn sjöfaldi Olympiu- meistari Mark Spitz komu fram i þætti Bob Hope i gærkvöldi sem sjónvarpaö var af The National Broadcasting Company. 1 byrjun komu þessir meistarar fram sem leikarar og léku i skemmtiþætti hvor fyrir sig ásamt Bob Hope. Siðar i þættin- um komu þeir fram i eigin per- sónu, Fischer sem heimsmeistari iskák, Spitz sem glæsilegur sund- maður. Spitz sem nú hyggst halda áfram við tannlæknanám sitt eins og kunnugt er, fékk að reyna hæfni sina á sviðinu, þvi að hann kom fram i gerfi taugaóstyrks tannlæknis, sem er aö hefja sinn fyrsta vinnudag. Að sjálfsögðu var Bob Hope hans fyrsti við- skiptavinur. Eftir að hafa tekið eina ranga tönn úr munni Hope, reyndi Spitz við aðra, sem hann sagðist vona innilega að væri hin rétta. „Þetta erekkitönn, þetta er gullfylling”, sagði Hope. „Þarna kemur þá þjálfun min frá Olympiuleikun- um”, svaraði Spitz. „Ég er alltaf á eftir gullinu.” Fischer tók þátt i leik sem f jall- aði um skák. Bob Hope kom þar fram sem mótleikari hans frá Sovétrikjunum og sat við skák- borðið með rússneskan kósakka- hatt á höföi og beið eftir hinum óstundvisa mótleikara sinum. Að lokum birtist þó Fischer, og eftir nokkra leiki á taflborðinu, hélt Hope aðhann hefði loks unnið, og skiptust þeir þá á bröndurum. I skeyti frá AP segir að þáttur- inn hafi tekizt ágætlega. Spitz hafi verið örlitið taugaóstyrkur, en Fischer heföi komið fram örugg- ur sem konungur. Blaðið hafði samband við Jón Þórarinsson hjá Sjónvarpinu, til þess að forvitnast um það hvort þessi þáttur væri væntanlegur hingað til lands. „Þátturinn hefur ekki verið á boðstólum”, svaraöi Jón, „og þaö er afskaplega vonlitið að fá svona einstaka þætti hingað. Það er sagt að Fischer hafi fengið 10 þúsund dollara fyrir að koma þarna fram, svo af þvi má dæma hvaö þetta allt kostar.” „Það er engin von til þess að fá þáttinn nýjan hingað, þvi aö það mundi kosta offjár, það yrði þá ekki fyrr en eftir lengri tima, en ég vii ekki vekja neinar vonir.” Ekki er heldur vitað hvenær þátturinn mun verða sýndur i Keflavikursjónvarpi, að þvi er blaðafulltrúi varnarliðsins, Commander Hess tjáði blaðinu. „Ég vildi að það yrði sem allra fyrst, en þegar við fáum sent efni, kemur það i einum pakka ásamt mörgu öðru frá Los Angeles. Þáttur Bob Hope á eftir að fara á margar sjónvarpsstöðvar áður en hann kemur til okkar, svo það er ekki hægt að segja um þaö hve- nær hann verður sýndur hér.” —EA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.