Vísir - 06.10.1972, Síða 3
Visir Föstudagur 6. október 1972.
3
Áœtlanir unt framtíð
Gróttu í gangi
Sveitarstjórn Seltjarnarnes-
hrepps hefur nú i athugun
ýmsar tillögur um hvað gera
skuli við Gróttu i framtíðinni.
Mikill áhugi er meðal félags-
samtaka innan hreppsins,
hvernig bezt sé að vernda
eyjuna og fuglalif þar. Borizt
hafa tillögur frá ýmsum aðilum
t.d. hefur björgunarsveitin Al-
bert mikinn áhuga á málinu.
Sveitarstjóri hreppsins sagði
i viðtali við blaðið að enn væri of
snemmt að segja nokkuð um
tillögur þessar, en þar væru
meðal annars atriði sem lytu að
verndun fuglalifsins á eyjunni.
Einnig hefði komið til greina að
koma þar upp útivistarsvæði
fyrir ibúa Seltjarnarnes-
hrepps. Mjög erfitt væri þó að
sameina þetta tvennt, náttúru-
vernd og útivistarsvæðið. Hefur
verið i athugun að hreppurinn
fengi Gróttu afhenta til eignar,
en hún hefur verið i eigu rikisins
hingað til. Sagði sveitarstjóri
að vel hefði verið tekið i það mál
af öllum þeim aðilum sem þegar
hefði verið rætt við og hefðu
eitthvað með málið að gera.
Undanfarið hefur enginn fastur
vörður verið i Gróttu en félagar
úr björgunarsveitinni Albert
hafa fylgzt með mannaferðum
þar á sumrin. Mjög er hætt við
þvi að fólk flæði á eyjunni, enda
hefur það oft komið fyrir. Hefur
jafnvel komið fyrir að fólk hafi
setið fast á steinum i miðjum
garðinum á leið sinni til lands.
Hættast er við þessu þegar
útlendingar og börn eiga i hlut,
sem gera sér ekki grein fyrir
hinum mikla mun á flóði og
fjöru.
Vitamálastjóri sagði að enn
hefði ekki verið talað við sig um
að afhenda Seltjarnarneshrepp
Gróttu, og gæti hann þvi ekki
tekið afstöðu til þessa máls enn
sem komið væri. Hafði hann
ekki heyrt að uppi væru neinar
áætlanir um að selja eyjuna.
Gæti verið að eyjan yrði notuð
til að kenna og þjálfa vitaverði.
Engin ákveðin plön hafa verið
gerð um það ennþá. — ÞM
Verður Grótta cf til vill framtiðar útivistarsvæði Seltirninga?
Kristnihaldið slær öll met
Þeir Jódinus og Umbi eigast
ekki neitt gott við á myndinni, en
146 sinnum hafa þeir Steindór
Hjörleifsson og Þorsteinn
Gunnarsson farið i þessar stell-
ingar i Kristnihaldi Laxness á
fjölunum i Iðnó. Sýningar eru að
hefjast á ný á þessu vinsæla leik-
verki, og verður sýningin á
laugardagskvöldið 146. sýningin.
Er fyrirsjáanlegt að metið i
sýningarfjölda fýkur alveg á
næstunni, en það met átti Hart i
bak Jökuls Jakobssonar.
Leikritið var sýnt 152 sinnum á
sinum tima.
Guðmundur Böðvarsson
heiðursfélagi
Ilithöfundafélags
íslands
A framhaldsaðalfundi Rit-
höfundáfélags tslands á dögunum
var Guðmundur skáld Böðvars-
son á Kirkjubóli kjörinn heiðurs-
félagi. Aðrir heiðursfélagar eru
Gunnar Gunnarsson, Halldór
Laxness, Sigurður Nordal, Tómas.
Guðmundsson og Þórbergur
Þórðarson. í stjórn R.l. eru nú
þessi: Vilborg Dagbjartsdóttir
formaður, Stefán Hörður Grims-
son varaformaður, Ingólfur
Jónsson frá Prestbakka ritari,
Sigurður Róbertsson vararitari
og Jón frá Pálmholti gjaldkeri. A
árinu bættust 7 nýir félagar við og
eru félagar nú 91 talsins.
o
IVIaria varaformaður
Samvinnu hjúkrunar-
kvenna
A fulltrúafundi Samvinnu
hjúkrunarkvenna á Norður-
löndunum var Maria Pétursdóttir
kosin varaformaður ásamt Helgu
Dagsland frá Noregi. Formaður
var endurkjörin Gerd Zetter
ström Lagerwall frá Sviþjóð.
Fulltrúafundurinn fór fram i Abo
i Finnlandi 19. til 22. september
og mættu þar 7 fulltrúar frá
íslandi.
HÖFNINNI
LOKS LOKAÐ?
Við þeim slysum sem verða við
liöfnina virðist litið hægt að gera,
það er að segja þeim slysum
þegar menii Calla á milli skips og
bryggju sem mjög oft vili verða. t
athugun er að loka einhverjum
liluta hafnarinnar, þannig að
engir fái að komast inn fyrir
vissa linu, nema þeir eigi þangað
erindi.
Enn hefur þó engin ákvörðun
verið tekin, en að þvi er yfirhaf-
sögumaður, Einar Thoroddsen
tjáði blaðinu er slikt gert viða er-
lendis og þá er jafnvel heilu höfn-
unum lokað.
A 40 stöðum við höfnina hér i
Reykjavik eru björgunarhringir
og á 14 stöðum krókstjakar.
„Ekki held ég að það kæmi að
nokkru gagni að bæta vjð fleiri
björgunarhringum”, sagði Einar,
„þvi ég hef aldrei heyrt um
nokkurt slys, þar sem ekki hefur
strax náðst í björgunarhring á
höfninni”.
Lögregluvakt er vissulega á
höfninni, en engir eftirlitsmenn
eru þar yfir nætur sérstaklega til
þess að vakta höfnina og þá sem
þar eru á rölti. „Ef vakt ætti að
vera á höfninni, yrði hún að vera
mjög fjölmenn ef fylgjast ætti
með öllum. En ég held að það
væri æskilegtað loka höfninni að
einhverju leyti”,sagði Einar enn-
fremur.
„En sennilega er ekkert full-
komlega öruggt og mér vitandi
engar sérstakar varuðarráð-
stafanir til, ja nema þá að menn
fari gætilega. Landga'ngár eru
öruggari núna en áður var, en það
hefur verið farið i gegnum þá
þrátt fyrir handrið beggja
Jarðsunginn eftir 50 ár
Tvö framhandleggsbcin,
scm talin cru vera af skips-
verja scm féll i sjóinn af
Hlikanum fyrir 50 árum voru
jarðsungin á Grundarfirði i
gær.
Það var i fyrradag, sem
þessi tvö bein komu i skelja-
plóg Sæhrimis, fjórar til fimm
milur vestur af Hergilsey. Var
haldið með þau til hafnar og
þeim komið til sr. Magnúsar
Guðmundssonar strax
morguninn eftir.
I fyrstu var ráðgert að biða
með jarðsetninguna þar til
fleiri bein væru komin fram,
en frá þvi horfið og voru þessi
tvö framhandleggsbein þvi
jarðsungin i gær, sem fyrr
segir.
„Ég hafði enga fyrirmynd
að jarðsetningunni, enda
óvenjuleg”, sagði sr. Magnús i
viðtali við Visi i morgun. „Ég
framkvæmdi athöfnina með
umsjónarmanni garðsins. Fór
með bæn og kastaði rekum.
Annað var það nú ekki”.
Kvað sr, Magnús með ólik-
indum, að fleiri bein kynnu að
finnast nema þá með ærinni
fyrirhöfn. „Bátarnir hafa
rótað svo mikið þarna á
botninum, að beinin geta verið
dreifð yfir stórt svæði,” sagði
prestur.
—ÞJM
GJAFAÚRVAL
í hverri viku tökum við upp nýjar
vörusendingar.
M.a. fengum við nú mjög fallegt
úrval af handskornum kristal með
22ja karata gullhúð. Einnig mikið
úrval af mótuðum og lituðum kristal.
— Gjörið svo vel og lítið inn —
Kjörorð okkar er:
vörur fyrir alla - verð fyrir alla
ö TÉKK - KRISTALL
Skólavörðustig 16 simi 13111