Vísir - 06.10.1972, Síða 7
Yisir Köstudagur (>. október 1972.
7
Slika tvöfalda aðstöðu á ýmsum
sviðum geta Danir nú notfært sér
til að verða norræn forustuþjóð.
Einnig verður mjög fróðlegt að
fylgjast með þvi, hvernig Danir
sinna þvi hlutverki, sem þeir hafa
nú sett sér, að verða brú milli
Norðurlanda og Evrópu. Jörgen-
sen fær þar stóru hlutverki að
gegna á Parisarfundinum.
Þvi er ekki að leyna að bryddað
hefur á hefndar- og refsihug i
bækistöðvum EB gegn Norð-
mönnum. Hefur heyrzt hvina i
þeim tálknum að Norðmenn
skyldu i refsingarskyni, svo þeir
viti hvar Davið keypti ölið ekki fá
neinn viðskipasamning við EB,
fyrst þeir gerðust svo djarfir að
móðga samtökin með þvi að
hafna aðild. Svona viðhorf
embættismanna i Brússel eru
náttúrlega alger óhæfa og nú
verður að krefjast þess að Danir
beiti öllum sinum áhrifum sem
nýr fullgildur aðili i ráðum EB til
að koma i veg fyrir að niðzt verði
á Norðmönnum.
Það verður lika mjög forvitni-
legt að sjá, hvort Ðanir taka
hanzkann upp fyrir okkur íslend
inga i landhelgismálinu til að fá
afnumið það ósæmilega skilyrði
sem okkur var sett um að
vera þæg börn i þvi.
Málið er Dönum lika skylt, þvi að
þeim ber að hyggja að hags-
munum fiskveiðiþjóðanna i
Færeyjum og Grænlandi. Það er
enginn vafi á þvi að ibúar þessara
landa og sömuleiðis Norður-
Noregs eiga fullkomna sann-
girniskröfu um að mega tryggja
framtiðar lifsafkomu sina með 50-
milna eða landgrunns-landhelgi.
Þegar voldugt EB reynir að
hamla gegn þvi er það ekkert
nema svivirðileg ásælni og
kúgunartilraun. Hér hafa Danir
stóru hlutverki að gegna sem brú
inn i EB og munum við fylgjast
spenntir með, hvernig þeir
standa þar i stykkinu. Kannski
eru áhrif þeirra ekki stór en betra
er þó að eiga þá þar að innandyra.
Ef þeir ekki standa i stykkinu og
EB viðheldur kúgunar- og
ániðslustefnu sinni gegn fiski-
þjóöunum. þá getur ekki liðið á
löngu áður en þær taka höndum
saman um hagsmuni sina. En
eins og ég hef áður skilmerkilega
lýst, þá gengur það ekki lengur að
við íslendingar vanrækjum leng-
ur að taka upp náið samstarf við
fiskifólkið i Færeyjum, Græn-
landi og Norður Noregi. Gagnvart
EB-risanum þurfum við að
standa saman til að gæta hags-
muna okkar. Þar eigum við ekki
að bauka hver i sinu horni, sam-
starfið gerir okkur öfluga.
Þessi vandamal i stefnu EB
sem ég hef hér drepið á, hefndar-
hugur i garð Norðmanna og
ániðslan á fiskimönnunum, sem
höfðu ekki varann á að sameina
sig leiðir svo hugann að valda-
skipulaginu innan EB. Fyrir utan
ofuráhrif stóriðju, er embættis
mannastjórn EB mjög undarlegt
fyrirbæri á efri hluta 20. aldar.
Hún starfar eingöngu á embættis-
legum grundvelli, i embættis-
ráðum og forstjórasætum, án alls
þingræðislegs eða lýðræðislegs
aðhalds. Það veit enginn lifandi
maður, hvernig stefna er mótuð.
Þannig sýnist kerfi EB á góðri
leið með að koma á fót alveg nýju
þjóðskipulagi forstjóraveldis, likt
og bankavaldið hér á landi. Þeir
drottna þarna eins og smákóngar
einhverjir istrubelgir, sem eng-
inn þekkir. Flestir eru þeir þröng-
sýnir súpersérfræðingar á ein
hverju takmörkuðu sviði hag-
fræðinnar. Þaðer þvi engin furða,
þó farið sé að kalla hið sérkenni-
lega EB-þjóðskipulag, hið „óupp-
lýsta einveldi 20. aldarinnar”.
Gagnrýnin á þessu furðulega
fyrirbæri gaf hvað hæstan tón i
andstöðunni við EB bæði i Noregi
og Danmörku og hún á fullkom-
lega rétt á sér. Það er eitt allra
mikilvægasta, en um leið erfið-
asta viðfangsefni innan EB að
koma, ef svo má segja, ein-
hverjum lögum yfir einvalds-
sinnaða stjórnendur þess. Og ein-
mitt til þess eiga Norðurlanda-
þjóðirnar erindi inn i bandalagið
til að geta með frjálslyndum lifs-
viðhorfum sinum haft nokkur
áhrif á þróun sinnar eigin álfu.
Þvi hvernig sem við horfum i
gaupnir okkar inn i kýrmaga
þjóðernislegrar einangrunar,
erum viðfyrst og fremst Evrópu-
menn og það skiptir okkur máli,
hverslags Evrópa er.
Þorsteinn Thorarensen
Umsjón:
Edda Andrésdóttir
Er lækning á krabba-
meinssj úkdómum að
finnast? Enn er ef til vill
ekki svo gott að segja um
það, en sérfræðingar í
krabbameinssjúkdómum
eru þó næstum farnir að
gefa góðar vonir.
80 sérfræðingar i krabba-
meinssjúkdómum frá 10 þjóðum
munu koma saman næstkom-
andi þriðjudag i Maryland i
þeim tilgangi að prófa og reyna
efnið bcg, sem gæti jafnvel ver-
ið ný læknisaðferð við krabba-
meini.
Kjarni sjálfrar bakteriunnar
sem talin er valda krabbameini
hefur um áratug verið álitin
framtiðar lækning á krabba-
meinssjúkdómum, að þvi er
LYF VIÐ KRABBAMEINS-
SJÚKDÓMUM?
Alþjóðakrabbameinsstofnunin
hefur upplýst, en þessar rann-
sóknir fara allar fram á hennar
vegum.
Enn er þó að sjálfsögðu ekki
vitað hvort efnið bcg mun virka
eða ekki, en rannsóknir þær sem
gerðar hafa verið virðast þó
spor i rétta átt, og hafa meðal
annars verið gerðar rannsóknir
á krabbameini i dýrum.
Efnið bcg hefur um langan
tima verið notað gegn berkla-
sjúkdómum, og er i raun og
veru samsett af fjölda af
berklabakterium, sem valda
berklum i nautgripum en ekki i
mönnum.
Hugmyndin að þvi að nota
efnið gegn krabbameini i mönn-
um er byggð á þeirri staðreynd,
að flestir menn hafa eðlilega
mótvörn gegn berklum, en með
Krabbameinsfruma, 3.000 sinnum stækkuð. 1 hverju grammi
vefsins eru milljarðar fruma.
Krabbameinsrannsóknir i
Handarikjunum. Kostaö er jafn
miklu til rannsóknanna og lend-
ingu geimfars á tunglinu.
þvi að vekja eða lifga þá mót-
vörn upp, kæmu berklabakteri-'
urnar til með að ráðast gegn
krabbameinsbakterinunum og
ef til vill yfirvinna þær.
Liklega vegna þeirra atburða
sem nú munu eiga sér stað i
Maryland hefur Alþjóðakrabba-
meinsstofnunin gefið út yfir-
lýsingu varðandi tilraunir þær
og árangur sem náðst hefur i til-
raunum við lækningu krabba-
meins á takmörkuðum fjölda
manna. Er þar tekið skýrt fram,
að þrátt fyrir það að árangurinn
sé mjög svo hvetjandi, sé hér
ekki um neina algjöra lækningu
að ræða.
Er þar einnig sagt að lyfið bcg
sé ekki tilbúið til notkunar nema
á stofnunum sem eru undir stöð-
ugu eftirliti og myndi sennilega
aldrei verða notað eitt sér til
lækningar á sjúklingi með
krabbamein á háu stigi, og þvi
er bætt við að árangur af til-
raunum með menn sé ekki af-
gerandi.
Það er þó tekið fram að undir
vissum kringumstæðum hafi
lyfið bcg orsakað algjöra
eyðingu þeirra bakteria sem
valda krabbameini i dýrum.
Skýrsla þessi frá Alþjóða-
krabbameinsstofnuninni var
gefin út, vegna þess að þann 22.
september siðastliðinn var gef-
inn út skýrsla af Dr. Michael
Hanna, sem er starfandi hjá
stofnuninni, þar sem hann vek-
ur vonir fóks einum of mikið, að
þvi er talið er. Þar segir hann að
bcg hafi sýnt 100 prósent árang-
ur i tilraunum við lækningar á
krabbameini dýra.
Krabbameinstofnunin segir
hins vegar i skýrslu sinni að
þessi árangur á dýrum þýði ekki
neina algjöra lækningu á mann-
skepnunni. En skýrsla Hanna
hafði vakið gifurlegar vonir hjá
almenningi, sérstaklega meðal
krabbameinssjúklinga og fjöl-
skyldna þeirra.
Hanna viðurkenndi að sjálf-
sögðu, að sá árangur sem hann
sagði hafa náðst i tilraunum
viðvikjandi dýrum væri að visu
ekki nein : algjör lækning á
krabbameini i mönnum, en
hann sagði þó að þarna hefðu
verið opnaðar dyrnar að lækn-
ingu krabbameins.
Arangurinn sem náðst hefur
er þó viðurkenndur mjög góður
og þær rannsóknir sem gerðar
hafa verið á dýrum stuðla að
stöðugt meiri framgangi til-
rauna á lækningu krabbameins.
Krabbamcinsrannsóknir i Vest-
ur-Þýzkalandi. Vestur-Þjóð-
verjar cru komnir mjög langt i
rannsóknum sinum á krabba-
NÝ AÐFERÐ VIÐ NÝRNAUPPSKURÐ
Stöðugt koma læknar og
visindamenn fram með nýjar og
nýjar hugmyndir um þaö
hvernig megi lækna þennan
sjúkdóm eða annan. Margar
þeirra hugmynda komast i
framkvæmd og reynast vel,
aðrar ekki.
í San Francisco var fyrir
stuttu gerð tilraun á nýrna-
veikum mönnum. Tvær að-
gerðir voru gerðar á þann hátt
að hið sjúka nýra var flutt burt
úr likama viðkomandi aðila,
það var grætt og siðan flutt i
likamann aftur.
Þegar nýru eru flutt á milli
manna, það er að segja þegar
máður fær nýra úr öðrum, er
hætta á sýkingu, eða að
likaminn hafni hinu nýja nýra
og það geti ekki starfað. Með
þessari nýju aðferð sem áður er
sagt frá, er ekki talin nokkur
hætta á að slikt kunni að koma
fyrir, enda heldur viðkomandi
sinu rétta nýra.
Þegar nýrað hefur verið tekið
úr likamanum er það sett i kælt
vatn með saltupplausn, en sjálf
skurðaðgerðin tekur sex til átta
tima. Er aðgerðin sögð mjög
nákvæm og á ekki að valda
nokkrum skaða á starfsemi
nýranna. Talið er að þessi að-
gerð á nýrunum muni einnig
vera hægt að nota við önnur lif-
færi, sem annars væri ekki hægt
að gera skurðaðgerð á.
Þegar nýrað er fjarlægt og
engar bólgur reynast i þvi má
setja það þegar á sinn stað aftur
án nokkurrar aðgerðar, ef hins
vegar bólgur reynast i nýranu,
er öðru máli að gegna.
Aðgerðirnar tvær, sem áður
var sagt frá voru gerðar á 31 árs
gömlum manni, sem lagður var
inn á sjúkrahús vegna þess að
blóðs gætti i þvagi og svo á 21
árs gamalli stúlku, sem hafði
verið nýrnaveik i fimm ar.
27 tonna vél i skuttogara
á land
Verkamenn Hafskips h.f. fengu
i gærdag það verkefni að skipa á
land úr Rangánni 27 tonna þungri
aðalvél i hinn nýja skuttogara,
sem Stálvik h.f. er að smiða.
Skuttogarinn er hinn fyrsti sem
smiðaður er innanlands og er
áætlað að hleypa honum af stokk-
unum um mánaðamót marz/april
næsta ár. 1 framtiðinni á að vera
hægt að raðsmiða slika togara á
10-12 mánuðum segja þeir Stál-
víkurmenn. Eru nú i pöntun tveir
togarar i viðbót. Er það sam-
dóma álit skipasmiða þarna
suður frá að það sé siður en svo
viðameira verkefni að smiða tog-
arana en 105 skipin sem þar hafa
verið smiðuð.
■ ■■
Þá er Asthon komin út i
bókarformi
Eitt af þvi fáa sem unnið hefur
sér óskiptar vinsældir fólks á
öllum aldri eru þættirnir um
Ashton-fjölskylduna. Og nú eru
komnar út á islenzku tvær bækur
frá Erni og örlygi um þessa
vinsælu fjölskyldu. Ná þær yfir
allt sögusvið sjónvarpsþáttanna,
einnig það sem ósýnt, er, en
sýndir hafa veriö 25 af 52 þáttum.
Bækurnar hafa verið gefnar út
um allan heim og notið mikilla
vinsælda. ö&ö gefur bókina út i
kiljuformi og nefnist fyrsta bókin
1 skugga striðsins, önnur bókin
Straumhvörf i vændum og þriðja
bókin sem nær til ársins 1945 mun
heita Senn vinnst sigur.
„Þakkir, Færeyingar”
Landssamband Iðnaðarmanna
hefur nýlega sent samtökum
iðnaðarmanna i Færeyjum
þakkir fyrir drengilegan stuðning
þeirra við málstað Islendinga i
landhelgismálinu með þvi að
neita að vinna að viðgerðum ’
togurum, sem hafa stundað ólög-
legar veiðar innan 50 milna land-
helginnar. Eins og fréttir hafa
skýrt frá hafa Færeyingar lent i
basli vegna þessa, og hafa eflaust
reiknað með mótstöðu i Englandi
vegna þessa drengilega stuðnings
við málstað okkar.
Flest er nú keypt
Það eru ekki bara bilar sem
fluttir eru inn til tslands.
Notuð bilhús eru lika keypt frá
Þýzkalandi og þetta rákumst við
á niður við höfn, og eflaust á það
eftir að fara á einhvern vörubil-
inn hjá okkur áður langt um liður.