Vísir - 06.10.1972, Page 16
Aðeins tveir
y
kílómetro
kaflar eftir
til Selfoss
„Þrátt fyrir hábölvaö veður i
sumar hefur vegagerðinni austur
miðað mjög vel áfram og virðast
allar áætlanir ætla að standast”,
sagði Sigfús ö. Sigfússon,
deildarverkfræðingur hjá Vega-
gerðinni, í viðtali við VIsi I
morgun.
„Vesturlandsvegurinn er þegar
opinn allt upp að Hlégaröi og er
Kaldakvisl og Þingvallavega-
mótin þá ekki langt undan. Og i
byrjun næsta mánaðargerum við
ráð. fyrir að vera komnir með
veginn upp i Kollafjörð og er þá
áfanga sumarsins lokið”, sagði
Sigfús ennfremur.
Bannið á kvik-
myndatöku á
skákeinvíginu
FOX KREFST 284
miJÓNA AF BOBBY
— Heimsmeistarinn fœr 20 daga frest áður en málið verður tekið fyrir
Chester Fox hefur lagt
fram skaðabótakröfu á
hendur Bobby Fischer
samtals að upphæð 284,5
milljónir króna vegna þess
að Fischer neitaði kvik-
myndun skákeinvigisins.
Hefur málið verið lagt fyrir
dómstóla i New York.
Heimsmeistarinn hefur
fengið 20 daga frest til að
undirbúa málsvörn.
Það var á þriöjudaginn sem
Fox lét til skarar skriða og lagði
fram kröfu aö upphæð þrjár
milljónir dollara i skaðabætur
vegna fjárhagslegs tjóns sem
hann kveöst hafa orðið fyrir
vegna þess að ekkert varð af
kvikmyndun. Þá krefst hann
250.000 dollara til viðbótar vegna
samningsrofs. Þessi krafa er
byggð á samningi milli Skáksam-
bands tslands og Alþjóðaskák-
sambandsins þar sem samið var
um að verðlaun yrðu samtals
125.000 dollarar og einnig fengju
báðir keppendur 60% af nettó-
hagnaði af sölu kvikmynda frá
einviginu sjálfu. Siöan samdi
Skáksambandið við Chester Fox
um að annast allar myndatökur i
höllinni og veitti honum einka-
leyfi þar.
Ekki þarf að rekja þau læti sem
urðu þegar Fischer neitaði að
leyfa kvikmyndatöku og hótaði aö
fara heim ef myndatökuvélar
yrðu ekki fjarlægðar. Samningur-
inn milli Fox og Skáksambands-
ins gerði ráð fyrir, að ef nauðsyn
bæri til gæti Fox höfðað mál bæði
fyrir sina hönd og sambandsins,
ef vandamál kæmu upp. En áöur
en einviginu lauk afsalaði Skák-
sambandið sér þessum rétti og
mun ekki koma nálægt þessum
málaferlum.
Áður en Chester Fox hélt af
landi brott lét hann þess getið við
blaðamann Visis að Fischer ætti
eftir að heyra betur frá sér og
hefur hann nú svo sannarlega
staðið við orð sin. Fyrir beiðni
Skáksambandsins féllst Fox á að
gera ekki kröfu i verðlaun Fisch-
ers þegar þau voru afhent, enda
duga þau skammt þegar um
svona gifurlegar upphæðir er að
ræða. —SG
13 ARA
VANN FJORA MINKA
Ekki þvertók hann fyrir þann
möguleika, að einstaka „austur-
farar” hefðu nú þegar tekið i
notkun nýja kaflann niður Kamb-
anat þó enn beri þeim að fara
heiðina. „Annars er ekki svo
langt þar til við getum opnað
nýja kaflann allri umferð”, sagði
Sigfús. „Núna er aðeins verið að
vinna við að koma upp varnar-
leiðurum þar sem uppfyllingin er
hvað hæst. Og eins hefur verið
nauðsynlegt að taka upp einstaka
vegarspotta til lagfæringar. En
þó aðeins þar sem hleypa þurfti
þungavinnuvélunum yfir meðan á
verkinu stóð”.
Þá lét Sigfús þess getiö, að það
sem vegagerðarmenn við Hvera-
dalabrekkuna þörfnuðust nú,
væri uppstytta i samfe]!da 'víku
og væri þá hægt að ljúka þeim
kafla. En búið væri að ieggja i
brekkuna og henni þvi litið að
vanbúnaði undir oliumölina.
Að Hveradalabrekkunni með-
talinni væri nú aðeins um þaö bil
tveir kilómetra kaflar ófullgerðir
til Selfoss. —ÞJM.
RAFSTRAUMUR
VARPAÐI
MANNINUM
UM KOLL
Slys varð i slippnum i Ytri--
Njarðvik I gærdag, þegar einn
starfsmannanna varð fyrir raf-
losti. Ilann var um borð i m.b.
Keili, scm lá við Karvelsbryggju
hjá slippnum. og var að vinna
ofandckks með rafknúinn hand-
hefil. Fékk maðurinn svo sterkan
rafstraum úr heflinum, að höggið
varpaði honum i þilfarið. og kom
liann niður á hnakkann. Við
— með aðstoð smalahunds föður síns
„Smalahundurinn hans pabba á
nú eiginlcga mestan heiðurinn af
minkadrápinu. Það var hann sem
fann greni þeirra, en ég vann á
minkunum þegar þeir svo sýndu
sig,” sagði 13 ára gamall drengur
i Grundarfirði, sem fyrir skömmu
vann fjóra minka.
Jón Sigurðsson heitir stráksi og
þetta voru ekki fyrstu minkarnir,
sem hann vann á. „En ég hef
aldrei unnið svona marga i einu,”
segir hann.
„Ég var bara á leiöinni til að
hjálpa pabba við heyskapinn þeg-
ar hundurinn okkar varð skyndi-
lega svo órólegur inn við
Hamarsfell. Hann byrjaði að
krafsa i jörðina og var ófáanlegur
til að halda áfram ferðinni. Ég
þóttist vita, að hann hefði ein-
hverja ástæðu til þessara tiltekta,
náði i skóflu heim og byrjaði að
grafa með henni þar sem hundur-
inn hafði ólmast mest. Og viti
menn: minkur sýndi sig fljótlega
•*- og stuíaöi honum.”
Og Jón heldur áfram: „Það var
svaka fint að ég skyldi vera með
skófluna þegar við nokkrum
minútum seinna komum að Ber-
hól, þvi þar byrjaði hundurinn
með sömu látum allt i einu. Ég
beið ekki boðanna og byrjaði að
grafa — með sama árangri og
áður.
Pabbi var lika voða hissa þegar
ég kom með tvo minka þangað
sem hann var.”
Það var með sama hætti, sem
Jón litli vann tvo næstu minka.
„Ég náði þeim daginn eftir. Báð-
um i Lárósum Maður fær 700 kall
fyrir skottið, svo að ég þénaði vel
á þessum tveim ferðum minum
með smalahundinum.”
„Annars va.r nú nærri farið illa
fyrir iveim seinni skottunum,”
segir Jón allt i einu. „Ég hafði
sett þau i poka og inn i frystihólf
isskápsins okkar. Svo þegar
mamma fór að hreinsa út úr
skápnum þennan sama dag tók
hún pokann og fleygði honum út i
tunnu. Ég rétt gat bjargað þeim
— 1400 krónunum minum.”
—ÞJM
Nú eru þœr farnar að
smyrja bíla, blessaðar
Kvcnþjóðin lætur æ meira að
sér kveða í atvinnulifinu og
vilar vart lengur fyrir sér að
ganga til allra verka, eða svo
má álykta, eftir að hafa komizt
á snoður um að á smurstöð
Aðalstöðvarinnar i Keflavik,
starfar ung stúlka frá Sand-
gerði, Steinunn Bryndis
Heiðmundsdóttir. Gengur hún
þar til allra verka, eins og aðrir,
smyr I koppa, skiptir um oliu-
feiti á vél og drifi og girkassa,
jafnt á hrikalegum vörubif-
reiðum sem léttbyggðum fólks-
bilum.
„Ég kann ágætlega við
starfið, þótt þetta sé kannski
ekki beinlinis þrifaleg vinna, en
kaupið er gott og vaktavinnan
gerir það að verkum, að friin
eru mikil”, sagði Steinunn, um
leið og hún var að losa tappa á
drifi, með stórum stjörnulykli.
Ekki sagðist hún vera rauð-
sokka, en það eina sem verkaði
svolitið óþægilega á hana ennþá
væri að fara undir stóra vöru-
bila ef ske kynni að lyftan færi
að siga, sem reyndar er alveg
ástæðulaus ótti.
„Jú, menn hafa rekið upp stór
augu, þegar þeir hafa séð mig.
stúlkuna, við að smyrja. Starfið
er ekki þrifalegt sérstaklega
fyrirhendurnar, sem jafnan eru
huldar dökkri feiti, en eina ráðið
við þvi er bara að þrifa sig nógu
vel,” sagði Steinunn brosandi og
neri feitina og óhreinindi af
nöglum sér, svo að glytti i
lakkaðar neglurnar.
„Það hrifsar hver eins grimmt
og hann getur af laununum"
— segir formaður Iðju á Akureyri um innheimtu hins opinbera
höggið missti hann meðvitund, en
vaknaði fljótt aftur og var þó
lcngi að átta sig.
— GP
Nýtt fisk-
verð í dag?
Verðlagsráð heldur enn einn
fund um fiskverðið i dag og eru
taldar likur á að samkomulag ná-
ist á þeim fundi. Þeir fulltrúar i
ráðinu sem Visir ræddi við i
morgun vörðust allra frétta en
töldu að talsvert hefði miðað i
samkomulagsátt og ekki óliklegt
að verðið yrði ákveðið á fundinum
i dag. Nýtt fiskverö átti að taka
gildi þann I. október sl.
—SG
„Af hálfu þessara opinberu að-
ila hrifsar hver eins grimmt og
hann getur af kaupi verkafólks-
ius. Það virðist ekkert koma
þeim við hvcrnig fólk á að draga
fram lifið. Það cr harkan sem er
alls ráðandi” sagði Jón Ingi-
marsson formaður Iðju á Akur-
cyri i samtali við Visi.
Stjórn og trúnaðarmannaráð
| Iðjuhefursi mþykktað mótmæla
I harðlega þe. -ri aðgangshörku i
innheimtu opinberra gjalda, út-
svara og annarra skatta sem átt
hefur sér stað hjá iðnverkafólki.
,,Ég get nefnt fjölmörg dæmi
þess að menn fái tóm launaum-
slög i hendur þegar skatturinn
hefur fengið sitt”. sagði Jón.
„Svo eru menn að streitast við að
vinna aukavinnu eins og þeir
geta til að hafa i sig og á. Hvers
konar lif er það að geta aldrei
litið upp úr þrældómnum? Auk
þess er aukavinnan einnig tekin
af mönnum ef fastakaupið nægir
ekki til.”
Þá nefndi Jón dæmi um mann
sem lá á sjúkrahúsi frá ára-
mótum fram i mai. Honum var
gert að greiða um 100 þúsund i
opinber gjöld og nú er tekið af
honum um 20 þúsund á mánuði en
hann hefur 20.500 krónur á
mánuði. „Þetta fólk getur ekki
fengið lán i peningastofnunun til
að borga skattana nema þá eftir
ýmsum pólitiskum krókaleiðum.
en svo eru fjölmörg dæmi um
menn sem vinna sjálfstætt, að
þeir komast upp með að borga
sin gjöld þegar bezt stendur á. En
það er harkan sem gildir gagn-
vart þeim sem standa i skilum
nauðugir viljugir þar sem hægt
er að hrifsa af launum þeirra
mánaðarlega”, sagði Jón Ingi-
marsson. Það yrði að setja skýr
ákvæði um innheimtur hins opin-
bera sem hægt væri að una við.
—SG