Vísir - 20.10.1972, Side 3

Vísir - 20.10.1972, Side 3
Vísir Föstudagur 20. október 1972. 3 Haustmót T.R. sett í nýju félagsheimili Haustmót Taflfélags Reykja- víkur hefst á suunudaginn. Mótið verður sett i hinu nýja húsnæði Taflfélagsins að Grensásvegi 46 kl. 14. Tefldar verða niu umferðir eftir Monradkerfi. Á siðasta starfsári TR sióð félagið að 16 skákmótum, þar á meðal Reykjavikurskákmótinu. Félagið stóð einnig að skákæfing- um fjórum sinnum i viku yfir vetrartimann. Nú i byrjun þessa árs hófst félagið handa um innréttingar i hinu nýja félagsheimili TR að Grensásvegi 46.1 þessum mánuði mun félagið taka i notkun hús- rými sem er um 190 fermetrar að stærð. Áður höfðu um 90 fermetr- ar verið innréttaðir til bráða- birgða. Húsakynni þau sem nú verða tekin í notkun eru hin vist- legustu i alla staði. Byggingar- framkvæmdir þessar hafa kostað um 1.2 milljónir króna. Arkitekt að innréttingunni er Skúli Nor- dahl, en um framkvæmdir af hálfu félagsins sáu þeir Hermann Ragnarsson og Gylfi Magnússon. Taflfélaginu barst fyrir stuttu góð gjöf, þegar Arni Snævarr, ráðuneytisstjóri gaf þvi skák- bókasafn sitt. 1 safninu er mikið af gömlum skákbókum og tima- ritum. Félagið á nú orðið gott safn bóka og timarita sem þvi hefur borizt að gjöf frá ýmsum aðilum. Skákbókasafn félagsins hefur verið fyrirhugað húsrými að Grensásvegi 44, sem væntan- lega verður tekið i notkun seinni hluta næsta árs. —ÞM Geymt, en ekki gleymt Óleyst sakamál í rannsókn Sérstök „tæknileg rannsókn” fer nú fram i Geithálsmálinu svonefnda, að sögn Þóris Odds- sonar fulltrúa sakadómara. Upphaf þessa máls varð, þegar ekiö var á mann nálægt Geithalsi og hann slasaður til ólifis. Enn hefur ekki tekizt að sanna, hver ökumaöurinn var, og ekki fæst upplýst, að hverju þessi rannsókn beinist né á hvaða stig hún er komin. LÓ. „Þjófnaður út um þúfur" ,,Það er óhætt að segja, að þessi þjófnaður fór út um þúfur”, sagði Sigurður Jónsson, lögregluvarð- stjóri á Selfossi, i samtali við Visi. Brotizt var inn i bensinstöð, sem einnig er sölubúö, á Stokks- eyri i fyrrinótt. Þar voru þrir menn að verki. Þegar nokkrir siöförulir ibúar á Stokkseyri áttu leið hjá á þriðja timanum um nóttina, sáu þeir einhvern á ferli inni i bensin- stöðvarhúsinu. Þeir námu staðar fyrir utan til að aðgæta, hvað þarna væri á seyði. Safnaðist þó nokkur fjöldi fólks til að virða þetta fyrir sér, en á meðan hafði einhver samband við lögregluna. Þjófagarmarnir þorðu sig hvergi að hræra, vitandi að kæmu þeir út myndu þeir þekkjast af fjölda vitna. Þegar lögreglan kom á staðinn gat hún gengið að innbrots- mönnunum visum. Á þessu sést, að þó stundum hafi viljað brenna við að hinn almenni borgari þvælist fyrir og valdi löggæzlunni óþægindum við störf sin, þá getur orðið góður ávöxtur af samvinnu þessara aðila. Innbrotsmennirnir voru fluttir i varðhald á Litla-Hrauni. Menn fá allt að 380 þús- undum fyrir nefndarstörf Mentamálaráðuneytið á metið 126 nefndir við störf sem kosta 7.4 milljónir Það er menntamálaráðuneytið, sem ber höfuö og hcrðar yfir aðrar stofnanir hvað viðkemur fjölda nefnda. Samtals störfuðu á þess vegum 126 nefndir, sem i ciga sæti 627 menn. Fá nefndar- menn 7.4 milljónir i þóknun. Sjávarútvegsráðuneytið kemur næst hvað kostnaði viðkemur. Þar starfa 29 nefndir með 178 meðlimum. Þiggja þeir 6,2 milljónir fyrir störf sin. Af ein- stökum aðilum mun rikisskatt- stjóri fá mest fyrir sin nefndar störf, eöa um 280 þúsund krónur. Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið hefur á að skipa 40 nefndum, sem i eiga sæti 193 menn. Fá þeir 5,6 milljónir króna fyrir. Dóms- og kirkjumálaráðu- neytið hefur 39 nefndir á sinum særum með 189 meðlimum. Þeir fá hins vegar ekki nema 1900 þúsund fyrir sin störf. Það er ýmsan fróðleik að finna i skýrslu þeirri um nefndir og ráð, sem nýlega erkomin út. Nær hún yfir allt árið i fyrra, en ekki eru þar nefndir, sem skipaðar hafa verið á þessu ári. Það er ákaflega misjafnt, hve menn fá mikla þóknun fyrir setu i nefndum. og sumar eru ólaunaðar. Bezt launaða nefndin er rikisskatta- nefnd. Formaður hennar er Sigurbjörn Þorkelsson rikisskatt- stjóri, og fær hann greiddar 291.666 krónur i laun. Varafor- maður i þeirri nefnd, Ævar ísberg, fær 275 þúsund og aðrir nefndarmenn 136 þúsund. Tekið er fram, að þóknun formanns og varaformanns feli i sér auka- vinnu við úrskurði nefndarinnar. En þar sem ýmsir eru reiðubúnir að svikja undan skatti er einnig til nefnd, sem heitir skattasekta- nefnd. Þar er rikisskattstjóri einnig formaður og fær þar 87.500 en aðrir i þeirri nefnd 58 þúsund krónur. Ef einstaklingar eru teknir út úr af handahófi kemur i ljós, að Björn Jónsson alþingismaður á sæti i nokkrum nefndum og hefur þegið 194 þúsund fyrir á sl. ári. Gunnar Vagnsson. fjármálastjóri útvarpsins, á einnig sæti i ýmsum nefndum og fær 174 þúsund i laun. Jón Sigurðsson skrifstofustjóri situr i fjölmörgum nefndum og fékk 218 þúsund fyrir þau störf. Nafni hans Jón Sigurðsson ráðu- neytisstjóri hefur fengið liðlega 150 þúsund fyrir nefndarstörf á liðnu ári, svo einhver dæmi séu nefnd. Margar af þeim nefndum, sem taldar eru upp i skýrslunni, hafa nú lokið störfum, en aðrar aftur á móti verið skipaðar. t skýrslunni eru nokkrar nefndir, sem greini- lega hefur gleymzt að leggja niður. Má þar nefna manneldis- ráð, sem skipað var árið 1945, en hefur ekki starfað árum saman, og er lalið óskipað i það ráð núna. 1 fjarlagafrumvarpinu fyrir árið 1973 stendur, að þrátt fyrir itrekaðar tilraunir hafi ekki tekizt að fá fjárlagatillögur frá sildarút- vegsnefnd. Nefndin hefur þó greinilega starfað i fyrra, þvi for- maður hennar þiggur 133 þúsund fyrir störf sin i nefndinni, og aðrir nefndarmenn flestir fá greittyfir 100 þúsund krónur. Og það er rétt að láta þess getið að endingu, að það var ekki nefnd, sem sá um útgáfu skýrslunnar, sem hér hefur verið gluggað i. Það var fjárlaga- og hagsýslu- stofnun rikisins. —SG „Loksins verður líft á íslandi" — Sigurður Helgason, Garðar Siggeirsson verzlunarstjóri, Guðmundur Þorsteinsson og Matthías Matthiasson. „Loksins verður þú lift á is- landi", varð einum hinna þriggja hávöxnu að orði. Það er vist óhætt að segja að fyrir tilstilli Visis fcngu þeir á sig alklæðnað þeir Guðmundur Þorsteinsson, Matthias Matthiasson og Sigurð- ur Helgason, sem allir eru um og yfir tvo metra á hæð. voru komnir i allt, skyrtu, buxur og jakka. Þeir þurfa nú ekki lengur aö halda út fyrir landsteinana til þess að klæða sig. Skórnir eru þó enn vandamál, þvi að enn hefur engin verzlun komið með skó sem hæfa þeim hávöxnu. i En byrjun þeirra þriggja i fata- kaupum hérlendis er ekki ama- leg, þvi að þeir héldu út i nýjum fatnaði sem ekki tók eina krónu úr pyngju þeirra. —EA Strœtisv.ferðir í Breiðholt breytast í nœstu viku „Við gerum ráð fyrir að i næstu viku verði gerð sú breyting á ferðum strætisvagna i Breiðholti, að leiö 12 verði látin leggja lykkju áleiðsina úr Vesturbergi og yfir i Norðurfell” sagði Eirikur As- geirsson, forstjóri SVR i viðtali við blaðið. „Við erum tilbúnir að gera strax þessa breytingu, en núna er unnið við framkvæmdir til þess að hægt sé að koma henni i verk. Þarna er til dæmis verið að ganga frá rafmagni og fleiru. En strætisvagnaferðirnar ættu að vera komnar i bráðabirgðalag i næstu viku, og ekki ætti þessi breytinga að þurfa að hafa með sér nokkra timabreytingu. Það munar þá að minnsta kosti ekki nema um 1-2 minútum”. Eirikur sagði þetta hafa verið vandamál með ferðir strætis- vagnanna eins og oft er i nýjum hverfum, en hann sagði enn- fremur að á næsta ári ættu ferð- irnar að vera komnar i lag, ef ekkert breyttist. „En mér sýnist að allt gangi þarna eftir áætlun, og við fylgjumst með byggingafram- kvæmdum og fólksfjölgun i nýju hverfunum og leggjum leiðir eftir þvi”. —EA Bóndi úr Skagafirði fram- kvœmdastjóri Landverndar Eftir ,að þeir höföu hér i blaðinu sagt frá erfiðleikum sinum með að ná i föt á sig ,bauö Garðar Sig- geirsson verzlunarstjóri Herra- garðsins þeim að klæða þá upp. „Þetta hef ég barizt við i 12 ár”, Svartsýnir komu þeir allir þrir á sagði Guömundur, og brosti blitt staðinn, og létu ekki sannfærast þegar skyrtan hæfði honum al- um að þeir gælu fengið hæfilega veg. stór föt i Reykjavik fyrr en þeir Umsiðastliðin mánaöamót tók við starfi framkvæmdastjóra Landverndar llaukur Hafstað, bóndi á Vik i Skagafiröi. Haukur hefur búið á Vik siðan 1944. Hann hefur um margra ára skeið verið mikill áhugamaður um gróður- og náttúruvernd. Hann hefur verið formaður Gróðurverndanefndar Skaga- fjarðar frá upphafi. Haukur er varaformaður Náttúruverndar- samtaka Norðurlands. Hann hefur mikið starfað að félags- málum á Héraði og viðar. Hefur Haukur mikinn áhuga á að koma á meira samstarfi Landgræðslu Rikisins og áhugamanna úti á landi. Einn megintilgangur Land- verndar er að stuðla að aukinni þekkingu á gróðurvernd og um- hverfismálum. Samtökin hafa þegar gefið út tvö rit undir heitinu Rit Landverndar. Fyrra ritið „Mengun” kom út i april sl. og það siðara nefnist „Gróður- vernd”. Otgáfu og fræðslustarfsemi á að vera einn meginþátturinn i starfi Landverndar. 1 marz eða april nk. hyggst Landvernd boða lil landsráð- stefnu ásamt öðrum aðilum, um efni sem kallað er „Nýting Islands”. Er þar ætlunin að leiða saman fulltrúa frá sem flestum aðilum, til að ræða um nýtingu landsins á sem breiðustum grundvelli. —ÞM

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.