Vísir - 20.10.1972, Side 8
Öll heimsmetin
bœtt nema þrjú!
— það sem af er árinu 1972 í sundi karla og kvenna
Það, sem af er árinu 1972
hafa öll heimsmetin á öll-
um vegalengdum og meö
öllum sundaöferðum i
kariagreinum veriö slegin.
Og stúlkurnar koma
skammt á eftir. Þær hafa
bætt öll heimsmetin i sund-
um á árinu — nema á þrem
ur vegalengdum. Svo stór-
kostlegur árangur var i
sundinu á Olympiuárinu
1972.
l>au þrjú heimsmet, sem eru
eldri en Irá þessu ári, eru í 200
metra bringusundi kvenna,
Kathie Hall, 100 metra baksundi
1 minútur, sem suður-afri-
kanska stúlkan Muir á, og i 1500
metra skriðsundi, en ástralska
sundkonan mikla Shane Gould
setti þar met i lyrra 17:00.0 min.
og þar sem 1500 meirarnir voru
ekki Olympiugrein var ekki lögð
mikil áhverzla á þá vegalengd á
árinu.
l>að er venjan, að mikil framlör
helur verið þau ár, sem keppt er á
Olympiuleikum bæði i sundi og
frjálsum iþróttum, þar sem bezt
er að mæla árangurinn. En árið
1972 slær þó öll fyrri mel i þvi
sambandi. Sundkóngurinn mikli,
Mark Spitz, Bandarikjunum setti
mestan fjölda heimsmetanna.
Ilann bætti metin á öllum siyttri
vegalengdunum i skriðsundi og
flugsundi. Og Mark mátti ekki
stinga sér i laugina i Munchen i
úrslitasundum án þess að setja
nýtt heimsmet. Hann hlaut sem
kunnugt er sjö gullverðlaun á
leikunum i Munchen og setti
sjálfur i einstaklingssundum eða
var þátttakandi boðsundum
heimsmet alls slaðar, þar sem
hann hlaut gullið. Auk þess hafði
Mark Spitz sett nokkur heimsmet
á árinu i keppni i Bandarikjunum,
áður en að Olympiuleikunum kom
og þá ekki sizt á jardavegalengd-
um.
Shane Gould kom skammt á
cftir og heimsmetin hennar voru
mörg á árinu - þar á meðal setti
hún heimsmei i Miinchen. Þessi
ivö voru sundkóngur og drottning
ársins 1972 — en i kjölfar þeirra
kom mikill fjöldi afreksfólks i
sundinu - sundmenn eins og Ro-
Iand Matthes og Gunnar Larsson,
svo aðeins tveir séu nefndir, sem
náðu Irábærum árangri.
Aðalfundur handknattleiks-
deildar Vikings verður haldinn
fimmtudaginn 26. þessa mánaðar
kl. átta. Venjuleg aðalfundar-
störf.
SuiKldroUniiigin ástralska, Shanc Gould, i heimsmetssundi sinu i 200
metra fjórsundi á ólympiulcikiinum i Munchen.
Hún sparkar
knetti í Róm
Þær eru orðnar skæðar i knattspyrnunni, stiilkurnar, og knattspyrna
kvenna er nú ein vinsælasta iþróttagrein á italiu. Áhorfendur þar á
lciki skipta jafnvel tugum þúsunda. italir hafa sótzt eftir knattspyrnu-
stúlkum frá öðrum löndum —einkum hafa þeir náð þeim dönsku til sin.
I>ær hafa lika náð beztum árangriá mótum i kvennaknattspyrnu — það
er að segja alþjóðlegum mótum, og Danmörk orðið þar oftast sigur-
vegari.
Myndirnar hér að ofan eru af einu atvinnukonu Norðmanna i knatt-
spyrnu. Hún heitir Sif Kaivö og er frá Álasundi, en kcppir með Lazio í
Kóm, þar sem hún hefur nýlega skrifað undir samning við félagið og
hlaut góðan pening fyrir. Myndirnar voru teknar fyrir nokkrum dög-
um, en þá var Sif heima i Noregi i nokkra daga.
Rýmingarsala Litavers — Rýmingarsala Litavers — Rýmingarsala Litavers — Rýmingarsala
t/>
L_
(1)
>
O
o
</>
1—
o
o>
c
• —
E
</>
<D
>
o
o
</>
t—
o
o>
c
E
CtZ
</>
Q>
>
o
LITAVER
LITAVER
Q
<
(D
</>
Kaupin gerast ekki betri á eyrinni
LITAVER BÝÐUR ÞEIM VIÐSKIPTAVINUM SÍNUM, SEM ERU AÐ
BYGGJA - BREYTA - BÆTA
VEGGFÓÐUR I 1001 LIT, KERAMIK VEGGFLÍSAR í SÉRFLOKKI OG TEPPABÚTA Á
súper-rýmingarsölulitaverskjörverði
ÞAÐ ER AO SEGJA Á VERÐl, SEM ER NÆRRI ÞVÍ AÐ VERA GJÖF.
ÞETTA TÆKIFÆRI BYÐST f EINA VIKU
- LfTTU VHI f UTAVEI -
ÞAÐ HEFUR ÁVALLT BORGAÐ SIG
73
ZJ
(Q
Q
</>
Q
Q
<
(D
“i
</>
7D
3
(Q
Q
-t
</>
Q
Q
<
(D
</>
D|DSJD6uJUJÁy SJeADin D|DSJD6ujUJÁy SJ0AD|J1 D|DSJD6uiUJÁy SJQADjJI DjDSJDÖUJUJÁy
9
Visir Köstudagur 20. október 1972.
íllur Símonarson
Stefnum í 1. deild
ó leiktímabilinu!
— Viö i Queens Park
llangers stefnum að þvi að
sigra i 2. deildarkeppninni á
þessu leiktiniabili og ná aft-
ur sæti i 1. deild, sagði
James Gregory, milljóna-
mæringurinn margfaldi og
aöaleigandi Lundúnaliðsins
QPR i gær, en QPR var ein-
mitt fyrsta atvinnuliðið,
sem lék hér á landi, og sýndi
íslendingum listir sinar.
Það var 1945 og QPR vann
alla leikina á Melavellinum
með miklum mun — frá sex
upp i niu marka mun. Svo
segja menn, að engin fram-
lör hafi átt sér stað I
islenzkri knattspyrnu. QPR
var nefnilega i 3. deild, þeg-
ar liðið kom hingað.
En hvað um það. QPR náði í gær i.
Dave Thomas frá Burnley fyrir 160
þúsund sterlingspund — en Thomas,
sem Don Revie hjá' Leeds hefur sagt
mesta efni i enskri knattspyrnu, hefur
leikið i landsliði Englands, leikmenn
undir 23ja ára aldri. Hann er mjög
góður kantmaður eða framvörður.
Burnley gat ekki haldið honum lengur,
þó svo liðið sé nú i efsta sæti í 2. deild,
og var framkvæmdastjóri Burnley, sá
áður frægi leikmaður Jimmy Adam-
son, mjög leiður yfir þvi að missa
Thomas. ,,Það eru prósenturnar, sem
leikmennirnir fá af sölunum (5%),
sem eiga þátt i þessu, að lítil lið geta
ekki haldið i sina beztu leikmenn”,
sagði hann í gær.
Þetta eru ekki fyrstu kaup QPR á.
leiktimabilinu. Nýlega keypti liðið
Stan Bowles frá Carlisle fyrir 100 þús-
und pund og irska landsliðsmanninn
Don Govens frá Luton i sumar. Þeir
Stan og Don léku áður fyrr meö
Manchester-liðunum, City og United.
QPR er nú i öðru sæti i 2. deild, en
varð fyrir áfalli i leiknum gegn Ful-
ham i vikunni. Hinn ágæti framherji
liðsins Martyn Busby — bróðir Viv hjá
Luton — fótbrotnaöi þá illa og verður
lengi frá knattspyrnu.
►★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
Sjónvarpsþulurinn
lék 105 landsleiki
Jú, Billy Wright er einn fræg-
asti knattspyrnumaður, sem
England hefur átt. Hann var
fyrirliði enska landsliðsins í
næstum áratug og lék 105
landsleiki, sem var lands-
leikjamet í heiminum, þar til
Bobby Charlton lék sinn 106.
landsleik 1970. Það er Billy
Wright, sem kemur i heimsókn
til okkar í stofuna á hverjum
sunnudegi á sjónvarpsskermin-
um, þegar hann hefur viðtöl
við leikmenn og segir síðan frá
siðari leik dagsins. Og þar sem
margir hafa spurt um þennan
kappa koma hér nokkur svör.
Billy Wright lék alla tið með Úlfun-
um og liðið náöi frábærum árangri
með honum sem fyrirliða. Hann lék
sinn fyrsta landsleik 1946 og missti
varla landsleik i þrettán ár — þar til
1959 að hann lagði skóna á hilluna. Þá
hafði hann leikið 105 landsleiki, oftast
sem fyrirliði. Þegar hann hætti að
leika gerðist hann framkvæmdastjóri
Arsenal. Hann gerði þar ýmsa góða
hluti eins og sést bezt á þvi, að enn
leika margir leikmenn i Arsenal-lið-
inu, sem hann tryggði félaginu. En
árangur liðsins var ekki nógu góður —
uppbyggingin tók of langan tima að
áliti forráðamanna Arsenals og þvi
var Wright látinn vikja. Hann réðist þá
til sjónvarpsins i Miðlöndunum og hef-
ur notið þar mikilla vinsælda, enda
langfrægasti leikmaður frá liði i Mið-
löndunum. Hann er kvæntur dægur-
lagasöngkonu — sú skemmti hér á ts-
landi fyrir um það bil tveimur áratug-
um ásamt systur sinni — en i svipinn
man ég ekki hvað þær nefndu sig þá.
Billy hafði þá ekki náð i hana.
Hér á eftir fer listi yfir þá leikmenn,
sem leikið hafa flesta landsleiki fyrir
England frá striðslokum (1946-1972):
Bobby Charlton, Manch. Utd 106
Billy Wright, Wolves 105
Bobby Moore, West Ham 97
Tom Finney, Preston 76
Gordon Banks, Leicester, Stoke 73
Ray Wilson, Huddersf., Everton 63
Jimmy Greaves, Chelsea,
Tottenham 57
Alan Ball, Blackpool, Everton,
Arsenal 57
Jimmy Haynes, Fulham 56
Martin Peters, WH, Tottemh. 54
Ron Flowers, Wolves 49
Geoff Hurst, West Ham 49
Jimmy Dickenson, Portsm. 48
Jimmy Armfield, Blackp. 43
F'lest mörk i landsleikjum hafa skor-
að Bobby Charlton 49, Jimmy Greaves
44, Tom Finney 30, Nat Lofthouse
(Bolton) 30, Geoff Hurst 24 og Stan
Mortensen (Blackpool) 23.
A myndinni er Billy Wright til hægri
— i enska landsliðsbúningnum. Hann
byrjaði sem innherji i knattspyrnunni,
en var fljótt færður aftur i framvarð-
arstöðu. Flesta landsleiki lék hann
sem miðvörður, þó hann sé ekki hár i
loftinu.
Féll ó EM í Helsinki, en
hlaut silfur í Miinchen
Kranski grindahlauparinn Gay
Drut var talin öruggur með sigur
i 110 mctra grindahlaupi á
Evrópumeistaramótinu f llelsinki
1971 —en myndirnar hér að ofan
sýna hvernig þeim draum hans
lauk. Á þeirri efri hefur Drut rek-
izt i grind — féll við og öllu var
lokið. Þetta skeði i undankeppn-
inni og það er hrotinn iþróttamað-
ur, scm á ncðri myndinni horfir á
eflir keppinaulum sinum, gegn-
um eina grindina. En Drut lét
ekki hugfallast þrátt fyrir þetta
áfall. Ilann æfði rnjög vel fyrir
Olympiuleikana i Munchen — og
hlaut þar silfurverðlaun á frá-
hærum tima. Ilonum lókst að
komast upp á milli bandarisku
svertingjanna og það eitt sýnir
hver afburðamaður Drut er i
grindahlaupinu. Hann réð þó ekki
við Milburn, scm varð Olympiu-
meistari, en sá heimsfrægi hlaup-
ari Davenport varö að láta i
minni pokann fyrir franska
grindahlauparanum.
Enn bœtir Hreinn sig
Strandamaöurinn sterki,
Hreinn Halldórsson, bætir sig
stöðugt i kúluvarpinu. I gær varp-
aði hann 17.99 metra á kastmóti
ÍR — 20 sm lengra en hann átti
hezt áöur og það afrek vann hann
i fyrri viku.
Hreinn hefur nú bætt árangur
sinn frá i fyrrasumar um 1,46
metra — og það á nokkrum dög-
um um sextiu sentimetra. Það fer
nú að verða stutt i íslandsmet
Guömundar Hermannssonar hjá
honum, en það er 18.48 metrar
eða Hreinn þarf að bæta sig enn
um 50 sm til að ná metinu.
Kastséria hans i gær var mjög
góð — hann varpaði alltaf yfir 17
metra strikið. F'yrsta var ógilt —
siðan 17.40— 17.59— 17.99— 17.24
og 17.69 metrar.
Til gamans má geta þess, að
þegar Gunnar Huseby setti
Evrópumet og varð Evrópu-
meistari fyrir 22 árum varpaði
hann 16.74 melra.
Jafntefli í Las Palmas
Einn leikur var háður í
undankeppni heims-
meistarakeppninnar í
knattspyrnu. Spánn og
Júgóslavia léku i Las
Palmas og varð jafntefli 2-
2. Þetta er góður árangur
hjá Júgóslövum, sem nú
verða taldir sigurstrang-
legastir í riðlinum, en
þriðja iandið þar er Grikk-
land.
Spánn skoraði bæði mörk sin i
fyrri hálfleik, sem var heldur
slakur af beggja hálfu. Eftir leik-
hléið breyttu Júgóslavar um leik-
aðferð — hættu algjörum varnar-
leik, sem áður hafði einkennt all-
ar aðgerðir liðsins — og hófu
mikla sókn. Þetta gaf fljótt
árangur. Eftir aðeins 7 min. skor-
aði miðherjinn Dusan Bajevic og
sami leikmaður skoraði einnig
siðara mark Júgóslaviu, sem hin-
ir þrjátiu þúsund áhorfendur létu
i Ijós mikla óánægju með.