Vísir - 23.12.1972, Síða 3
Visir. Laugardagur 23. desember 1972
3
Hvað er um að vera um hótíðarnar?
Skem mtanalifið blómgast
nokkuð um jólaleytið i ár eins og
vant er. Bióin eru með jólamynd-
ir. leikhúsin með jólaleikrit, og
svo eru það allir jóla- og nýárs-
fagnaðirnir.
Til glöggvunar þeim, scm eitt-
livað hyggjast lyfta sér upp með
þvi að sjá kvikmynd eða fara i
leikhús, höfurn við tekið hér sam-
an smáklausu, þar sem flest ætti
að koma fram, sem á boðstólum
er.
1 Austurbæjarbíói verður sýnd
bandarisk mynd er heitir Klute.
Það eru þau Donald Sutherland
og Jane Fonda, sem leika aðal-
hlutverkin i henni. Jane Fonda
fékk óskarsverðlaunin fyrir leik
sinn i þessari mynd. Þetta er
glæpamynd.
Love Bug heitir myndin, sem
Gamla bió sýnir. Hér er um
gamanmynd að ræða, gerða af
fyrirtæki Walt Disneys. Helztu
leikarar eru Dean Jones og
Michele Lee.
Mynd fyrir alla fjölskylduna er
á boðstólum i Hafnarbiói, heitir
sú Jóladraumur.
Doris Day er aðalmanneskjan i
jólamynd Hafnarfjarðarbiós.
Þetta er amerisk gamanmynd,
sem heitir Njósnamærin. Á móti
Doris Day leikur Rod Taylor.
Carry on, eða Áfram segja þeir
Háskólabiósmenn og eru með
nýja áframmynd, sú heitir Carry
on Henry og f jallar um Hinrik átt-
unda og kohurnar hans allar.
Hitchcock mun leitast við af
fremsta megni að skelfa gesti
Laugarásbiós með mynd sinni
Frenzy. Það er glæpamynd, sem
ábyggilega verður bönnuð börn-
um innan I6ára aldurs, fari sann-
ar sögur af þeim spenningi, sem
hún vekur með áhorfendum.
Nýja bió sýnir myndina Patton,
sem fjallar um George S. Patton,
einn af hershöfðingjum Banda-
rikjamanna i siðari heims-
styrjöldinni. Þetta mun vera
nokkuð óvenjuleg striðsmynd.
George C. Scott var sæmdur
óskarsverðlaunum fyrir túlkun
sina á Patton, en hann haínaðí
þeim, eins og ýmsir muna sjálf-
sagt.
Ævintýramennirnir heitir
myndin, sem Stjörnubió býður
upp á. Þar leikur núverandi
heimilisvinur á flestum islenzk-
um heimilum aðalhlutverkið. Það
er Tony Curtis, annar Fóst-
bræðra. Með honum leika þau
Charles Bronson og sú forkunnar-
fallega Michele Mercier, en hana
kannast sjálfsagt margir við, sið-
an hún lék i Angeliquemyndun-
um.
1 leikhúsunum verður mikið
það sama á boðstólum áfram
nema hvað Leikfélagið frumsýnir
franska farsann „Fló á skinni”,
ALMANNAVARNAFLAUTURNAR
ÓHÁÐAR RAFMAGNI
Hvað gerist i sambandi við al-
mannavarnir, þegar rafmagnið
fer af Reykjavik? Geta flautur
Almannavarna Reykjavikur ekki
gert borgarbúum viðvart um
yfirvofandi hættu, ef ekkert raf-
magn er fáanlegt? Margir kunna
að hafa velt fyrir sér spurningum
likum þessum i nótt og morgun
þegar rafmagnið var sifellt að
hverfa og fárviðri geisaði eða var
rétt að slota.
Svarið við þessum spurningum
er það, að Almannavarnir
Reykjavikur geta gert borgarbú-
um viðvart, þó ekkert rafmagn sé
til. Flautur þær, sem stundum
heyrast glymja i æfingaskyni, eru
loftflautur, og i sambandi við þær
eru ævinlega loftkútar fullir af
samanþjöppuðu lofti. Borgarbúar
þurfa sem sé ekki að vera hrædd-
ir um að verða ekki varaðir við,
áður en hraun rennur yfir
Reykjavik eða einhver gerir loft-
árás á hana. Gallinn er kannski
bara sá, að fáir skilja hljóðmerk-
in. — Ló.
og i Þjóðleikhúsinu verður leikrit-
ið Maria Stúart frumsýnt á annan
i jólum. Einnig verður barnaleik-
ritið ,,Ferðin til tunglsins” frum-
sýnt i Þjóðleikhúsinu einhvern
fyrstu dagana i janúar. Nokkuð
hefur verið greint frá Mariu Stú-
art hér i blaðinu áður, en nánar er
sagt frá hinum leikritunum i dag-
bók aftar i blaðinu. —LÖ
VIXLAR SEM
BER AÐ VARAST
Upph«-ð: (jjaldda,;i:
12731 7.9 75. 2o 1/2 '73
12*30 11.860. - 1/2 '7 3
12 729 106. .6 7. 6o 1/2 '7 3
12 728 1 2. 1 /0. - 1/2 '/3
12733 460. 250. 2o 1/2 '73
1 2 < -lö 22. 460. - 1/2 '73
12*47 3.952. 4o 1/2 '73
12746 6. 855. 4o 1/2 '73
12745 26. 003» - 1/2 '/3
12.44 539.758.- 1/2 '7 3
12743 20.038. - 1/2 '73
1 2741 44.920. - 1/2 '7 3
12/40 10. 234.8o 1 /2 '73
12/32 17.350.8o 5/2. '7 3
12737 5. 788. 8o 5/2 '7 3
1 2736 9. 129.6o 5/2 '7 3
' .739 76. 277. 2o 10/2 '73
U742 116. 487. /o 10/2 '73
1 2734 6. 070. - 10/2 '73
1 2735 1 10. 1 15. - 10/2 '7 3
12738 16. 354. - 15/2 '7 3
12656 6. 00 ). - 15/2 '73
HafnarbúSin. Akurcyri.
llarCarbakari, Akraneai.
Karl Kriutmann, JKestm,
Vx. Hvammur, ftlai'svík.
Ila^kjup, bkviiunni'15, R.
Kl’. Ilöln, Seliossi.
SOtuskálinn, Rcykholti, liorguríiröi.
Kaupícla^ PatrekaijarSar.
Jón S. njarnason vz. , Bildudal.
Kí. KyiirSinga, smjörlfkisjjerB, Akureyri.
Hótcl Sa,;a, Rvfk
Kaupléla^ið txSr, liellu, Rang.
Kaupíéla^; l»int;eyinj;a, HÚsavfk.
Vx. Kcykjaloss, Hverujerdi.
c/ovz. Ilalli I'órarins, Rvfk.
N. I,. F. -búSin, bólhe.inum, Rvfk
N. I,. 1- . -búöin, Tyagötu, Rvfk.
ifsli (ífslason h. I. , Vestm.
Valdernar Daldvins6on. I'ryggvabr. 22, Akureyri
Oöal, v/AusiurvöU, Rvfk.
Saclkcrinn, Haínarstrarti 19, Rvfk
VerxlunarfélagiO Círund, Grundarfirði.
Ma^nús Inj;óltoaon, iirekkubraut 2U, Akrancsi.
1.656.817.7o
Eins og skýrl er frá i frétt á bak-
siðu, liurfu vixlar að uppliæð
nær 1.7 millj. króna, þegar inn-
lieinituniaður var rændur á
dögunum. Sennilegt má telja, að
vixlar þcssir séu i umferð og
reynt verði að koina þeiin i
verð, og birtum við þvi hér lista
yl'ir vixlana og jafnframt undir-
rituii aðalgjaldkera Smjörlikis
og slimpil fyrirtækisins, sem á
vixlunum ér, á baksiðu.
Dregið í jólagetrauninni í gœrdag:
12 ÁRA STRÁKUR í FOSSVOGI
FÆR ÚTVARPSTÆKIÐ 6ÓÐA
K
'9 L?
h-iajiR'.
±i^
5C
Tp. £ ■■ ■ 7 - m ' v _ -• x ~~7
Sá heppni reyndist vera
Hannes Heimisson, Hjallalandi
26, Reykjavik, 12 ára gamall.
Hann fær i verðlaun geysigott
útvarpstæki, Grundig Satellit
1000, að verðmæti hátt i 50 þús-
und krónur.
Þvið miður gátum við ekki
látið Heimi fá tækið i gærdag,
eins og til stóð. Eins og við
skýrðum frá, hvarf talsvert
magn af tækjasendingu til
Nesco, og virðist þvi hafa verið
stolið á flugvelli i Þýzkalandi.
Siðan hefur allt verið gert til að
fá tæki i stað þess, sem hvarf
með hinum vörunum, en ekki
tókst að fá það fyrir tilsettan
tima, og verður sigurvegarinn
þvi að biða nokkra daga eftir að
reyna nýja tækið sitt.
Fjöldamargar lausnir bárust,
alls 2788 úrlausnir, og langflest-
ar réttar, enda ekki mjög erfitt
að ráða gátuna. Vitaskuld erum
við Visismenn mjög ánægðir
með þátttökuna, sem hefur auk-
izt um helming frá i fyrra, þeg-
ar um 1400 lausnir bárust.
Við drógum i jólaget-
rauninni i gærdag. Það
bar svo vel i veiði, að
einmitt þegar átti að
fara að draga, komu
tvær yngismeyjar úr
Garðahreppi í heim-
sókn og féllust þegar á
að draga, enda hlut-
lausir aðilar eins og
vera ber. Helga
Margrét, 3 ára, dró út
umslag sigurvegarans,
meðan litla systir, Sig-
riður María, aðeins
eins árs, fylgdist með
af andakt.
Þökkum við lesendum fyrir
þátttökuna og vonum, að þeir
hafi haft gaman af að glima við
verkefnið.
Meðfylgjandi birtum við svo
réttu lausnirnar á jólagetraun-
inni.
—JBP—