Vísir - 04.01.1973, Blaðsíða 9
8
Visir. Fimmtudagur 4. janúar 1973
9
Visir. Fimmtudagur 4. janúar 1973
Spjoll um getraunir:
Mœtir gömlu
félögunum í
fyrsta leik!
Þá er komiö aö getraununum
á ný eftir hléiö/ sem gert var
um jólin og áramót að venju.
Fyrsti seðill ársins 1973 er meö
leikjum næstkomandi laugar-
dag 6. janúar. Nokkuð var um
það sl. laugardag að leikjum
var frestað— en þokan spilaði
þar meira inn i en inflúenza sú,
sem hefur verið að hrjá leik-
menn nokkurra liða siðustu
vikurnar. i gærhafði ekki verið
tilkynnt um neinar frestanir á
leikjum, sem fram eiga að fara
á laugardaginn — hvaö sem
síðar verður— en varla verður
þó mikið um það, þvi ef leikj-
um er frestað vegna veikinda
leikmanna er vitað um það
með nokkrum fyrirvara.
Við skulum þvi frekar reikna með
þvi — ef veður spila ekki inn i — að
leikirnir fari fram eins og ákveðið
hefur verið og þá er bezt að lita fyrst á
spá blaðsins i leikjunum tólf.
Arsenal—Manch.Utd.
Coventry—Leicester
C.Palace—Birmingham
Derby—Norwich
Everton—Stoke
Ipswich—N ewcastle
Leeds—Tottenham
Manch.City—Chelsea
Sheff.Utd.—WBA
West Ham—Liverpool
Wolves—Sotuhampton
Aston Villa—Burnley
Fyrsti leikurinn ætti að vera sá
„öruggasti” á seðlinum — reyndar tvö
fræg lið, en Arsenal i öðru sæti,
Manch.Utd. neðst. Nyju leikmennirnir
hjá Manch.Utd. Skotarnir Graham og
Forsyth leika þarna sinn fyrsta leik,
en það breytir varla miklu, og það þó
Graham þekki Highbury ekki siður en
mótherjarnir eftir mörg ár með
Jackie Charlton er nú aftur byrjaöur
aö leika meö Leeds eftir meiösli, sem
hrjáöu hann um tima. Og gamli „gir-
affinn", sem oröinn er 37 ára, hefur
sýnt, aö enn veröur biö á þvi, aö yngri
leikmennirnir nái stööu hans eins og
taliö var þó öruggt i haust. Myndin
sýnir Charlton bjarga á marklinu I leik
gegn Chelsea.
Arsenal. Lundúnaliðinu hefur gengið
vel á heimavelli á leiktimabilinu —
unnið 10 leiki af 14, tapað einum.
Coventry og Leicester eru bæði úr
Miðlöndunum og þvi ekki langt að
ferðast, en Coventry er sterkt lið á
heimavelli og ætti að vinna. Crystal
Palace hefurleikið mjög vel á leikvelli
sinum i Lundúnum að undanförnu —
unnið tvo siðustu leikina með átta
mörkum gegn engu.
Meistarar Derby færast stöðugt upp
töfluna og eru nær ósigrandi á heima-
velli — aðeins tapað þar einum leik af
12. Hins vegar hefur Norwich varla
hlotið stig siðustu vikurnar. Stoke
hefur gert það gott i siðustu leikjum —
hlotið fjögur stig i þremur siðustu — og
leikið þar við jafn góö lið og Derby,
Arsenal og Manch.City. Liðið ætti aö
hafa góða möguleika á stigi i Liverpool
gegn Everton.
Tottenham hefur „slappað af” i
deildinni siðustu vikurnar, en hefur
ýmis spjót i eldinum á öörum sviðum
eins og UEFA-keppninni og deildabik-
arnum. Liöiö hefur þó oft náðum góð-
um árangri i Leeds, en mjög óvænt
væri þó ef liðið nær þar stigi nú. Sama
er að segja um Chelsea hvað deildina
snertir — og Manch.City er afar sterkt
lið á heimavelli. Leikur Sheff. Utd. og
WBA er erfiður, en WBA er i sókn og
ætti að minnsta kosti að ná jöfnu. West
Ham hefur beitta sóknarlinu, en hvort
það nægir gegn efsta liðinu er önnur
saga. Liverpool virðist nær ósigrandi
— hlaut „fullt hús” i jóla- og nýárs
leikjunum. úlfarnir eru að „rétta við”
aftur á heimavelli og ættu að vinna
Dýrlingana, og efsta liðið i'2. deild
hefur enn ekki tapað leik á útivelli —
unnið sex og gert sex jafntefli.
George Grahani — leikur sinn fyrsta
leik mcð Manch. Utd. gegn sinu gamla
félagi, Arsenai.
Liverpool 25 16 6 3 49-26 38
Arsenal 26 14 7 5 34-24 35
Leeds 24 13 7 4 45-25 33
Ipswich 25 11 9 5 36-25 31
Newcastle 25 11 6 8 42-34 28
Derby 25 11 5 9 32-37 27
Tottenham 24 10 6 8 33-28 26
Chelsea 25 8 10 7 34-31 26
Wolves 24 10 6 8 37-35 26
West Ham 25 9 7 9 43-35 25
Manch. City 25 : 9 6 10 35-37 24
Coventry 25 9 6 10 25-27 24
Southampton 25 7 10 8 25-27 24
Norwich 25 8 7 10 25-37 23
Everton 24 8 6 10 26-25 22
Stoke 25 6 8 11 38-38 20
Leicester 25 6 8 11 28-36 20
WBA 24 6. 7 11 24-32 19
Birmingham 26 5 9 12 31-43 19
Sheff. Utd. 24 7 5 12 23-38 19
C.Palace 24 5 8 11 25-32 11!
Manch. Utd. 24 5 7 12 22-38 17
Þríveldin nýju í EBE
unnu sexveldin gömlu
— í knaftspyrnuleiknum 6 Wembley-leíkvanginum í gœrkvöldi með 2-0
Þrtveldin nýju í EBE,
Bretland, Danmörk og
irland, unnu sinn fyrsta
sigur gegn sexveldunum
gömlu á Wembley-leik-
vanginum i Lundúnum í
gær. Þá mættust úrvalslið
frá löndunum i knatt-
spymuleik vegna inngöngu
nýju landanna og urðu úr-
slit þau, að þríveldin
sigruðu með 2-0 i skemmti-
legum leik að viðstöddum
yfir fjörutíu þúsund áhorf-
endum. Mörkin í leiknum
skoruðu Henning Jensen
frá Danmörku og Colin
Stein, Skotlandi.
Leikurinn var mikill sigur fyrir
tvo leikmenn liöa þríveldanna
nýju — Bobby Charlton og Alan
Hunter hjá Ipswich. Hunter fékk
það hlutverk að gæta hættuleg-
asta markaskorara heims nú,
Þjóöverjans Gerd Muller, og
geröi þaö svo vel, að Muller fékk
raunverulega aðeins eitt tækifæri
til að skora i leiknum — á loka-
minútunni.
Og Bobby Charlton, sem nú er
35 ára og var fyrirliöi liösins, „gat
ekki valið betri tima til að dreifa
hinum frábæru sendingum sinum
i allar áttir — sendingum, sem
gert hafa hann að einum dáðasta
knattspyrnumanni heims um
langt árabil”, eins og BBC komst
að orði i gærkvöldi.
Það var eftir slikar sendingar,
sem liðið skoraði. Á annarri
minútu siðari hálfleiks gaf< Bobby
frábærlega velá Danann Henning
Jensen, sem leikur með þýzka liö-
inu Borussia sem atvinnumaður,
og Henning kastaði sér fram og
skallaði i mark óverjandi fyrir
italska markvörðinn hjá
Juventus.
Siðara markið var skorað
þegar um tuttugu minútur voru
eftir. Þá unnu þeir saman Alan
Ball, sem haföi komiö inn sem
varamaður fyrir Henning Jensen,
og Bobby Charlton og árangurinn
varð mark Coventry-leikmanns-
ins Colin Stein. Eftir það voru úr-
slit leiksins ráðin, þrátt fyrir
góðar tilraunir liðs sexveldanna
og á lokaminútunni slapp Muller
loks úr gæzlu Hunters, en átti þá
misheppnaö skot á mark, sem
Tottenham-leikmaðurinn irski
Pat Jennings varði auðveldlega.
Liö sexveldanna var skipað
mjög þekktum leikmönnum —
sex úr vestur-þýzka landsliðinu,
fjórum leikmönnum frá Ajax, liði
Evrópumeistaranna — og auk
þess léku tveir Frakkar, einn frá
Luxemborg, Pilov, sem er at-
vinnumaður hjá belgisku liði, og
italski markvörðurinn.
Netzer var langbezti maður
liösins og komst næst þvi aö
skora með frábærri aukaspyrnu i
fyrri hálfleik. Hann sendi þá
mikinn snúningsknött framhjá
vörninni — en knötturinn lenti i
stöng. Tvö önnur skot i fyrri hálf-
leik vöktu einnig mikla athygli —
þrumuskot frá Dobby Charlton af
25 metra færi, sem sleikti þver-
slá marksins og annaö frá Peter
Lorimer, sem einnig fór rétt yfir.
Danir áttu tvo góða fulltrúa i
þessum leik. Henning Jensen er
áður nefndur og hann skoraði
fyrsta markið, en siðasta
stundarfjórðunginn kom John
Stein Olsen inn á i stað Colin Bell
hjá Manch, City, og lék vel, en
hann er atvinnumaður i Hollandi.
Uppistaða liðs þriveldanna
voru enskir leikmenn. Sex enskir
landsliðsmenn léku þar — auk
þeirra Charltons, Ball og Bell,
þeir Storey, Arsenal, Bobby
Moore, West Ham, og Emlyn
Hughes, Liverpool. Þrir irskir
leikmenn sýndu mjög góðan leik
— Pat Jennings i markinu. Alan
Hunter og Johnny Giles — miðju-
maðurinn kunni hjá Leeds. Þá
voru Skotarnir tveir — Stein, sem
virtist mun hættulegri miðherji i
þessum leik, en hinn frægi
Muller, og Peter Lorimer hjá
Leeds.
Tveir kunnustu knattspyrnu-
þjálfarar Evrópu völdu liðin —
Helmuth Schön, vestur-þýzki
landsliðsþjálfarinn, valdi lið sex-
veldanna, en Sir Alf Ramsey
valdi sigurliðið.
Það verða Tottenham og
Norwich City, sem leika til úr-
slita i deildabikarnum enska á
Wembley-leikvanginum hinn 3.
marz næstkomandi. Myndin til
hliðar er frá síðari leik Totten-
hain við úlfana i undanúrslit-
um. Það er Martin Pcters, sem
faðmar Martin Chivers aö sér
eftir að sá síðarnefndi hafði
jafnað fyrir Tottenham i fram-
lengingunni og þar með tryggt
Tottenham rétt i úrslit. Ralph
Coates cr fyrir aftan þá, en Phil
Parkes, markvörður Úlfanna,
er vonsvikinn fremst á inynd-
inni.
Einliðaleikur
í borðtennis
Norwich sigraði og
leikur í úrslitum
Aðstoðar
Docherty
Pat Crerand, einn
kunnasti knattspyrnu-
maður Manch.Utd.
siðasta áratuginn og oft
kallaður „heili” liðsins,
var i gær ráðinn að-
stoðarframkvæmda-
stjóri hjá félaginu.
Hann mun þvi verða hægri hönd
hins nýja framkvæmdastjóra
liösins, Tommy Docherty.
Crerand lék fjölmarga landsleiki
fyrir Skotland hér áður fyrr, og
var afar taktiskur framvörður.
Stjórn Manch.Utd. réð hann á
fundi i gær og þar var jafnframt
itrekaö, að George Best mundi
ekki leika framar með
Manch.Utd.
Tottenham og Crystal Palace
keppa nú um hinn kunna leik-
mann Derek Possee hjá Millvall
og hafa bæði félögin boðið yfir 100
þúsund sterlingspund i leikmann-
inn, sem áður lék með Totten-
ham. Ian St. John hjá Tranmere,
sem lengi lék með Liverpool,
meiddist það illa sl. laugardag i
leik, að talið er að hann leiki ekki
knattspyrnu framar.
— Við erum með ýmis-
legt á prjónunum !
Grninum, sagði Björn
Finnbjörnsson, þegar
við hringdum i hann i
gær. Arnarmótið verður
20. janúar og aðalfundur
félagsins verður á
laugardag.
Arnarmótiö svokallaða er opið
mót og er þar keppt i einliðaleik
karla i borðtennis. Af þeirri
reynslu, sem við höfum fengið af
þátttöku i fyrri Arnarmótum, má
búast við metþátttöku nú.
Til þess að hægt verði aö undir-
búa mótið sem bezt fyrirfram
Margir af beztu skiðastökksmönnum heims hafa að undanförnu keppt í Oberstoorf i Vestur-Þýzkalandi.
Þar verður keppt fjórum sinnumog úrslit samanlagt ráöa úrslitum. 1 fyrstu keppninni sigraði Rainer
Schmidt frá Austur-Þýzkalandi, en hún var háðJO- desember. Hann stökk 102.5 metra og 105 metra og
myndin hér aðofan er tekin isiðara stökkinu. Schmidt hlaut 237 stig.
— sigraði Chelsea öðru sinni í undanúrslitum
þurfa þátttökutilkynningar að
berast fyrir sunnudaginn 14.
janúar til Sigurðar Guömunds-
sonar, simi 81810, eða Björns i
sima 13659.
Aðalfundur Borðtennis-
félagsins örninn verður haldinn
að Hótel Loftleiðum n.k. laugar-
dag og hefst kl. þrjú.
Norwich City tryggði sér
rétt i úrslitaleikinn i deilda-
bikarnum enska, þegar
liðið sigraði Chelsea öðru
sinni i undanúrsiitum með
1-0 í Norwich i gærkvöldi.
Norwich vann þvi saman-
lagt 3-0 i báðum leikjunum
i undanúrslitum.
Úrslitaleikurinn verður háður á
Wembley-leikvanginum 3. marz
næstkomandi og leikur Norwich
þar við Tottenham, sem talið er
nær öruggt um sigur i leiknum að
áliti veðmangara.
Leikurinn i Norwich var lengi
vel tvisýnn i gær. Chelsea, sem
tapaði fyrri leiknum meö 0-2 á
leikvelli sinum, lagði mikla
áherzlu á sóknarleik, en tókst
aldrei að skora i leiknum. Þó
munaði stundum litlu og Tommy
Baldwin fór illa aö ráði sinu i fyrri
hálfleik, þegar hann spyrnti yfir
markið af sex metra færi.
Steve Govier skoraði eina mark
leiksins á 5 min. i siðari hálfleik
og er það fyrsta markið, sem
hann skorar fyrir Norwich á leik-
timabilinq. Það nægði til sigurs i
leiknum,’en indverski mark-
vörðurinn hjá Norwich, Kevin
Keelan, sýndi snilldarmarkvörzlu
lokaminútur leiksins — tvivegis
varöi hann á hreint ótrúlegan
hátt.
1 marki Chelsea lék Peter
Bonetti og er þaö fyrsti leikur
hans með aðalliöinu frá þvi hann
meiddist i október og átti góðan
leik, en Bonetti hefur sem
kunnugt er oft leikið i marki i
landsliði Engiands.
Norwich hefur mjög komið á
óvart i deildabikarnum og leikur
nú i fyrsta skipti úrslitaleik á
Wembley — og það á sinu fyrsta
leiktimabili i 1. deild. Liðið
sigraöi Chelsea örugglega i fyrri
leik liöanna i Lundúnum — og var
aðeins nokkrum minútum frá
Wembley, þegar dómari varð að
stööva leik liðanna fyrir nokkrum
dögum i Norwich vegna þoku.
Norwich hafði þá yfir 3-2 og að-
eins um þrjár minútur. til leiks-
loka. I gær mættust liðin svo öðru
sinni i Norwich.
Byrjaðir
að œfa
Heimsmeistarinn í
þungavigt, Joe Frazier,
hefur hafið undirbúning að
leik sínum við George
Foreman um heimsmeist-
aratitilinn.
Keppnin verður háð i Kingston
á Jamaika og eru kapparnir
komnir þangað til æfinga. Meö
Foreman er Archie Moore, fyrr-
um heimsmeistari i létt-
þungavigt, og sér hann um þjálf-
un hans. Leikurinn um heims-
meistaratitilinn verður 22. janú-
ar.
Karl G.
þjólfari
hjó KR 0'
Karl Guðmundsson, einn
kunnasti knattspyrnuþjálf-
ari okkar islendinga, og
áður fyrr fyrirliði islenzka
landsliðsins, mun þjálfa 1.
deildarlið KR i sumar.
Karl hefur ekki þjálfað hjá
félögum siðustu árin, en hefur
mikla reynslu að baki á þvi sviði,
bæði sem þjálfari hjá landsliðinu
og Fram, og náð góðum árangri.
Hann er iþróttakennari að mennt.
Karl lék fyrstu sex landsleiki
lslands i knattspyrnu og var oft
fyrirliði landsliðsins.
OrnSteinsen, sem þjálfað hefur
KR siðustu árin, mun taka við
þjálfun FH i sumar.