Vísir - 02.02.1973, Side 5

Vísir - 02.02.1973, Side 5
Vísir. Föstudagur 2. febrúar 1973 5 ÁP/NTB ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson ------ ---------------------------------- --------:--------------------------:- • ■ - - -------- ---:------ -------- „Bið um loftórúsir, ef./# - segir Nguyen forseti S-Víetnam við skœruliða Víet Cong Nguyen Van Thieu sagði i gærkvöldi, að svo kynni að fara, að hann bæði um aðstoð bandariska lofthersins, ef skæruliðar Viet Cong virtu ekki vopnahléð. „An slikrar aðstoðar mun Suður-Vietnam komast undir yfirráð kommúnista”, sagði Thieu i viðtali við fréttamenn CBS-útvarpsstöðvarinnar. — En hann bætti þvi við, að stjórn hans mundi aldrei biðja banda- riskar hersveitir um að koma aftur til S-Vietnam, jafnvel þótt skæruliðar þverbrytu vopna- hlésskilmálana og hæfust handa fyrir fullri alvöru. „Mér er vel ljóst, að S-Viet- nam verður aðeins bjargað með aðstoð Bandarikjanna”, sagði Thieu. ,,Ef skrúfað verður fyrir fjárveitingar, vopn og skotfæri, lendum við án nokkurs vafa á valdi kommönista. En við munum lifa það af. Við getum barizt mánuði og fleiri ár”. „Það er hugsanlegt, að Bandarikin snúi baki við S-Viet- nam, en Ráðstjórnarrikin og Kina munu aldrei svikja Norður-Vietnam”, sagði for- setinn. „En veiti Bandarikin okkur áfram efnahags- og hern- aðaraðstoð, munum við sigra”. Aðspurður um, hver hefði beðið ósigur i Vietnamstriðinu, svaraði Thieu: „Ég held að allir hafi tapað. Enginn hafi sigrað”. Ef kommúnistar vinna kosn- ingarnar, sem halda skal sam- kvæmt friðarsamkomulaginu, verður Suður-Vietnam auðvitað kommúnistariki — En ef við vinnum, verða kommúnistar að sætta sig við það og virða vilja þjóðarinnar”. „Hugsanlegt að Bandarikin snúi við okkur baki,” segir Thieu forseti, aðeins tveim dögum eftir að Agnew vara- forscti heimsótti Saigon til þess að fullvissa S.-Vietnama um aðstoð USA eftir vopna- hlcð. Sáttir við Egypta Sendinefnd rússneskra hernað- arráðunauta kom til Kairó i gær, en það eru fyrstu gestirnir frá Rauða hernum, sem komið hafa i heimsókn til Egyptalands, eftir að Egyptar visuðu Rússum úr landi i fyrra. — Jafnframt hefur verið tilkynnt, að öryggismála- ráðgjafi Anwars Sadats, forsætis- ráðherra, nefnilega Hafez Ismail, fari til Moskvu i heimsókn i næstu viku til þess að ræða ástandið fyrir botni Miðjarðarhafsins. Þessar heimsóknir þykja benda til þess, að sambúðin milli Rússa og Egypta fari nú batnandi. En þar hefur verið kalt á milli eftir brottflutninga Rússa úr Egypta- landi og um nokkra mánuði svo, að Sadat, forsætisráðherra, tók ekki á móti ambassador Rússa. Kunnugir lita svo á, að yfir- lýsingar Nixons forseta um, að Bandarikin munu leitast við að beita áhrifum sinum til lausnar deilunni milli Araba og lsraels- manna, strax og friður kæmist á i Vietnam, hafi ýtt undir Rússa að fara af stað og láta ekki Banda- rikjamenn eina um heimsathygl- ina. En ýmsar heimildir benda þó á, að gagnrýni Sadats á hendur marxitiskum stúdentum i Egyptalandi kunni að spilla aftur fyrir vináttunni við Rússa. Egypzkir ráðmenn voru ekki á flugvellinum til þess að bjóða Rússana velkomna, heldur tók ambassador Rússa, Vladimir Vonogradov, á móti þeim. Svíar auðvelda skilnaði hjóna fleiri geti gift sig — svo að Sænska rikisstjórnin lagði i gær fram laga- frumvarp, sem felur i sér, að hjónum verði gert mögulegt að skilja með stuttum fyrirvara — ef þau hafa ekki fyrir barni að sjá. Samkvæmt þessu stjórnarfrumvarpi þurfa hjónin ekki að tilfæra neina sérstaka ástæðu fyrir umsókn sinni um hjónaskilnað, ef þau eru bæði sam- mála um að leysa upp hjónabandið. En i þeim tilvikum, þar sem þau eiga fyrir barni að sjá, gerir frumvarpið ráð fyrir sex mánaða umhugsunartima, og á sá umhugsunartimi að koma i stað þessa heila árs, sem hjón eru skilin að borði og sæng, áður en þau fá fullan lögskilnað. 1 frumvarpinu er komizt svo að orði, að ævinlega skulu hags- munir barnsins vera látnir sitja i fyrirrúmi — bæði þegar um er að ræða skilnað hjóna eða að- Skakki turninn hallar 1 mm Skakki turninn i Pisa hefur hagað sér vel á árinu 1972, og sérfræð- ingar eru vongóðir um, að hann geti þess vegna staðið af sér jafnvel seinlæti skrif- stofubáknsins á ítaliu, unz hann fær með- höndlun, sem tryggir það, að hann standi til eilifðar. Stjórnskipaða nefndin, sem fylgist með halla þessa fræga turns, sagði núna i vikunni, að „engar slæmar fréttir væru af þessum 8 alda gamla turni”. Nefndarmenn sögðu, að halla- aukningin hefði ekki verið til- takanleg á árinu. Turninn stóð jafnvel af sér jarðskjálfta á árinu. En efsti hluti hans er núna 4,4 metra utan við rétta lóðlinu, og eykst skekkjan um millimetra á ári eða svo. En i jarðskjálftakippnum i október siðastliðnum jókst hallinn um 1,8 millimetra, sem er nær tvöföld árleg hallaaukn- ing. En nefndin segir i árs- skýrslu sinni, að turnin hafi sveiflazt aftur i fyrri stöðu sina. Er þvi þakkað ótrúlegum hæfi- leika sands- og leirsundirlags- ins, sem turnin stendur á. „Það er hughreystandi”, segja nefndarmenn, sem i átta ár hafa unnið að þvi að fyljgast nákvæmlega með turninum, mæla hverjar breytingar, sem á honum verða og lpita að leiöum til þess að viðhalda þessu furðu verki —-Siðustu árin hafa menn haft þungar áhyggjur af þvi, að Skakka turninum i Pisa yrði ekki bjarðað frá timans tönn. Nefndin, sem efndi til sam- keppni um leiðir til þess að við- halda turninum, segir, að n.k. nóvember verði valið úr til- lögunum, og framkvæmdir verði svo hafnar siðar. Meðal þess, sem nefndin hefur fengið áorkað til verndar turninum, er bann við allri flug- umferð i næsta nágrenni við turninn. skilnað hjónaleysa. 1 báðum til- vikum er gert ráð fyrir, að dóm- stólarskeri úr um, hvort fái um- ráðaréttinn yfir barninu. í greinargerð með frum- varpinu skrifar sænski félags- málaráðherrann, að hjóna- vigslum og hjónaböndum hafi fækkað i Sviþjóð, og hljóti það að benda til þess, að hjúskapar- lögin þurfi endurskoðunar við. Hann bendir á, að fjölda ný- stofnaðra hjónabanda hafi fækkað úr 60.000 árið 1966 i 40.000 árið 1971, -p 27% þeirra barna, sem fæddust i Sviþjóð 1971, fæddust utan hjónabands, en aftur á móti leiddu athuganir i ljós, að tveir þriðju ógiftra mæðra i landinu bjuggu með barnsfeðrum sinum. Kissinger ó leið til N.-Víetnam „Ákvörðunin um að varpa sprengjum á Hanoi og Haiphong i desember er sú erfiðasta og sársauka- fyllsta, sem Nixon for- seti hefur nokkurn tima þurft að taka” sagði dr. Henry Kissinger, ráð- gjafi Bandarikjaforseta,, í viðtali i gærkvöldi. „Forsetinn fyrirskipaði loft- árásirnar til þess að fá Norður- Vietnama til að ræða um samn- ingana i fullri alvöru og einnig til þess að mýkja upp harða afstöðu rikisstjórnar Suður-Vietnam”, sagði Kissinger i útvarpsvið- talinu. — „Það varð að koma báðum aðilum i skilning um, að það gæti orðið þeim dýrt að halda styrjöldinni áfram”. Kissinger fullyrti, að ailt kapp hefði verið lagt á að forðast sprengjuárásir á ibúðarhverfi. „Og tölur norðanmanna um 1000 fallna sýnast manni staðfesta, að þetta hefur tekizt að mestu leyti, þó að einhver ibúðarhverfi hljóti þó að hafa orðið fyrir sprengjum”, sagði hann. Hann sagði, að tilgangurinn með ferð hans til Hanoi i næstu viku væri sá að finna leiðir til bættrar sambúðar milli Norður- Vietnam og Bandarikjanna og hefja viðræður um tilboð Nixons forseta um framlög til endur- byggingar Norður-Vietnam og annarra hluta Indó-Kina. „Ætla að ræða möguleika til bættrar sambúðar.”

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.