Vísir - 02.02.1973, Side 9

Vísir - 02.02.1973, Side 9
Danir eru stoltir af Tom Bogs — hann hefur gert garðinn frægan I hnefaleikahringjum viðs vegar um heim og hefur nú endurheimt Evrópumeistaratitilinn á ný í millivigt. Bogs er hér til hægri á myndinni, þegar hann var að búa sig undir þátttöku i móti I Noregi nýlega. Til vinstri er Norðmaðurinn Sven Erik Pauisen, sem einnig hefur gengið yfir i raðir atvinnumanna, en hann keppti á Olympiuleikunum i Munchen si. sumar. Banks byrjaður að leika ó ný! — Fundur mótonefndar með forustumönnum 1. deildarliða — en verður þó ekki í aðalliðinu hjó Stoke á þessu leiktímabili — Ég er öruggur um að ég fæ fulla sjón aftur á hægra auga. En ég þarf að æfa mikiðáðuren ég kemst í deildalið Stoke á ný — að minnsta kosti meðan John Farmer sýnir slíka af- burðaleiki og að undan- förnu. Það verður ekki á þessu leiktímabili",, sagði Gordon Banks „bezti markvörður heims" við blaðamenn í Stoke á mið- vikudag. Hin nýja mótanefnd Knattspyrnusambands islands hélt nýlega fund meðöllum forustumönnum liða, sem leika í 1. deild í sumarog mættu þar aðilar frá öllum liðunum nema iþróttabanda lagi Vest- mannaeyja, en mikil óvissa ríkir um málefni banda- lagsins, og KR. Jens Sumarliðason, formaður mótanefndar KSI, setti fundinn og stjórnaði honum, en fram- kvæmdastjóri KSI, Arni Ágústs- son, ritaði fundargerö fundarins. Jens Sumarliöason skýrði frá forföllum IBV manna og erfitt væri aö gera sér grein fyrir hvernig málefni þeirra myndu þróast. Hann skýröi og fyrirætlun mótanefndar KSl með þessum Skjaldar- |/ r ~ ““ :: sunnudag 61. Skjaldarglima Armanns veröur glimd I iþróttahúsi Voga- skóla við Gnoðarvog næsta sunnudag, 4. febrúar 1973, og hefst kl. 14.00. 14 glimumenn eru skráðir og meðal þeirra eru flestir beztu glimumenn landsins um þessar mundir. Frá Armanni eru skráðir 5 þátttakendur, frá KR 5 og frá Umf. Vikverji 4. Skjaldarglima Armanns er tvi- mælalaust einn af meiri háttar iþróttaviðburðum i borginni á hverju ári og hefur svo veriö allt frá árinu 1908, er hún var fyrst háð. Skjaldargliman er elzta iþróttamót, sem fram fer i Reykjavik. Eins og fyrr segir verður 61. Skjaldarglima Armanns glimd i Vogaskóla á sunnudaginn, 4. febrúar, og hefst kl. 14.00. fundi, sem væri i aðalatriðum að ræða atriöi, sem nauðsynlegt væri að samkomulag hefði náðst um, áður en nefndin raðaði niður leikjum starfsársins og þannig að auðvelda nefndinni starfið og jafnframt að styðja við bak hennar, svo að henni yröi mögu- legt að standa viö þá skipan leikja, sem hún I upphafi setur. Jens rakti helztu viöburði, sem eru á dagskrá komandi starfs- timabils, sem samanstendur m.a. fyrir utan tslandsmót og Bikar- keppni KSI, að Meistarakeppni KSt, aukaleiknum milli IA og IBK um 3. sætiö i 1. deild 1972, og þar með réttinn til að taka þátt i Meistarakeppni KSI 1973 og UEFA keppninni,7 landsleikjum ogeinum unglingalandsleik, þátt- töku Faxaflóaúrvals i unglinga- keppni i Dunoon i Skotlandi, utan- ferðum og heimsóknum islenzkra og erlendra liða og þátttöku islenzkra liða i hinum ýmsu mótum, sem Knattspyrnusam- band Evrópu stendur fyrir ár hvert (UEFA). Eftirfarandi var samykkt á fundinum: Auglýsingar: Aðili, sem stendur að leik má auglýsa fyrir kr. 10.000.-, en ef aöili vill fara upp fyrir þá upphæð verður hann að fá samþykki mótaðila sins til þess. Aðgöngumiöaverö: Samþykkt var að sama verð yröi yfir allt landiö eða kr. 150.- fyrir fuílorðna og KR. 50.- fyrir börn. Feröalög: Ef ferðast er flugleiðis var álitið heppilegast og eöli- legast aö liöin sem ferðast taki fyrstu ferð daginn, sem leikiö er, ef ekki er hægt aö ferðast daginn áður en leikur á aö fara fram, sem væri það allra bezta. Feröakostnaöur dómara: Mikið var rætt um kostnaö við ferðalög knattsp.yrnudómara varðandi leiki úti á landi. Og var samþykkt að fela mótanefnd KSI að halda fund með stjórn Knattspyrnu- dómarasambands tslands, þar sem gerð yrði tilraun til að ákveða fastar reglur I þessu máli. Timasetning leikja: Samþykkt var aö reikna með að leikir færu fram á laugardögum, sunnu- dögum og mánudögum i 1. deild, en á miðvikudögum i Bikarkeppni KSI. Á laugardögum færu leikir fram i Reykjavik kl. 14:00. en á Akureyriog Akranesi kl. 16:00. A sunnudögum yrði leikið kl. 20:00. nema á Akureyri, þar yrði leikið kl. 16:00 á sunnudögum. A mánu- dögum og miövikudögum færu leikir allstaðar fram kl. 20:00. Samþykkt var jafnframt aö miöa við að leikir úti á landi væru settir á laugardaga, og ef leik er frestað af einhverjum óviðráðan- legum orsökum, þá aö ákvarða strax hvenær leikurinn eigi að fara fram og tilkynna það leik- aðilum. Fundurinn þótti takast mjög vel og lýstu fulltrúar 1. deildar- félaganna ánægju sinni yfir árvekni mótanefndar KSI og samstarfsvilja hennar varðandi skipulag og framkvæmd leikja i 1. deild og Bikarkeppni KSI, en varðandi Bikarkeppni KSI var sérstaklega lögðáherzla á aö ekki mætti rýra virðingu keppninnar með ruglin^slegu fyrirkomulagi og óþarfa frestun á leikjum. Jafn- framt að úrslitaleikir Landsmóta og Bikarkeppni KSl yrðu tima- settir i niðurröðun KSl. Gordon hafði þá lokiö sinum fyrsta æfingaleik siöan hann lenti i bilslysinu i október á leið heim eftir leik. Glerbrot lentu þá i hægra auga hans og missti hann sjónina um tima á auganu. Læknum tókst aö fjarlægja gler- brotin með velhepDnuöum upp- skurðum — og þeir þurftu lika að sauma um 100 spor I höfuð Banks, sem skarst viða i slysinu. — Ég hef verið með á æfingum siðustu vikurnar, en þetta er fyrsti leikurinn, sem ég tek þátt i eftir slysiö. Sjónskyn mitt virðist ágætt — það er ekki erfitt að greina flug knattarins. En ég þarf að æfa, æfa og æfa og þá vonast ég til aö komast aftur i deildaliðiö”, sagöi Gordon Banks ennfremur. Fyrst eftir slysiö sögöu læknar að Banks mundi aldrei framar leika knattspyrnu, en siöan unnu þeir kraftaverk á sinu sviði. Banks var nýlega dæmdur 1 40 sterlingspunda sekt fyrir óvar- legan akstur, þegar slysiö átti sér stað. Hann ók á annað farartæki var á röngum vegarkanti, en ekki slösuöust fleiri en hann i árekstrinum. Einnig þurfti hann að greiöa allan kostnað viö mála- ferlin. Gordon Banks er nú 35 ára og hefur um langt árabil verið aðal- markvörður Englands — varð meðal annars heimsmeistari 1966 — og veikindi hans i heims- meistarakeppninni 1970 i Mexikó, þegar leikið var viö Vestur-Þjóð- verja, komu sennilega I veg fyrir, að enska landsliöiö varði ekki meistaratitilinn i úrslitaleiknum. Peter Bonetti fór i markið I staö Banks og fékk á sig tvö mikil klaufamörk, en Vestur-Þýzka- land sigraöi 3-2 eftir fram- lengingu. Olympíu- meistarar keppa hér Eitt bezta handknattleiksliö heims, Zagreb frá Júgóslaviu, kemur hingað á vegum KR 13. febrúar — og mun leika fjóra Ieiki á timabilinu 14.-18. febrúar — sennilega við FH, Val, Fram og landsliðið. Zagreb hefur fimm landsliðs- mönnum á að skipa, en Júgó- slavar eru sem kunnugt er Olympiumeistarar. Meðal þeirra er markvörðurinn Zoran, sem varði mark Jógóslava frábærlega vel á Olympiuleikunum I Þýzka- landi. Nánar verður sagt frá heimsókninni siðar hér á siðun- um. Það er óvenjulegt að sjá slika mynd af meistaranum mikla i skautahlaupum — Hollendingnum Art Schenk, sem hefur verið aigjörlega ósigrandi siðustu tvö árin. En þarna lá hann! — Myndin var tekin á æfingu fyrir Evrópumeistaramót at- vinnumanna, sem nýlega var háð i Skien i Noregi, og Art var þá að taka myndir af félögum sinum um leið og hann renndi sér sjálfur. Það var of mikið — hann gleymdi sér augnablik — og árangur- inn sést hér að neðan. Erfitt að vita hvernig mólefni ÍBV þróast

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.