Vísir - 02.02.1973, Page 16

Vísir - 02.02.1973, Page 16
VISIR Föstudagur 2. febrúar 1973 Fannst höfuðkúpu- brotinn við danshús Maöur fannst liggjandi á göt- unni fyrir utan veitingahúsiö Þórscafé seint i fyrrakvöld.Maö- urinn var meövitundarlaus, og var hann fluttur á slysadeild Borgarspitalans. Kom I ljós, aö maöurinn var höfuökúpubrotinn, og var hann lagöur inn á hand- lækningadeild spitalans. Maöurinn mun vera kominn til meövitundar núna. Ekki er vitaö, hvaö olli meiöslunum, hvort maöurinn hefur dottiö eöa veriö sleginn. Maöurinn var undir áhrifum áfengis. —j>m Jón fró Akri lótinn Jón Pálmason, fyrrum al- þingismaöur og bóndi frá Akri lézt i héraöshæiinu á Blönduósi i gær, 84 ára aö aldri. Hann fæddist á Ytri Löngumýri i Svinavatns- hreppi I A-Húnavatnssýslu 28. nóvember 1888, sonur Pálma Jónssonar bónda þar og konu hans, Ingibjargar Eggerts- dóttur. Hann lauk búfræðisprófi 1909, en var fyrst kosinn á þing 1933 og sat þar til 1963. Land- búnaöarráðherra var hann 1949-50 og forseti Sameinaðs Alþingis 1945-49 og 1950-53. Jón taldist til helztu áhrifa- manna Sjálfstæðisflokksins, meðan hann sat á þingi. Þó var hann ekki sizt kunnur sem hagyrðingur, og minnast margir þingvisna hans. —VJ Vor stolið úr útibúinu fyrir 12 þúsund ó dag? Mikill áhugi er nú hjá Hvergerðingum um að stofna nýtt kaupfélag á staðnum, það er að segja eigið kaupfélag. Kom það fram i við- tölum, sem Visir átti við nokkra Hver- gerðinga i gær Sem kunnugt er var kaup- félagsstjóranum i Hveragerði fyrirvaralaust sagt upp starfi sinu 1 fyrradag, og var þar borið við óeölilega mikilli rýrnun á vörubirgðum útibúsins i Hveragerði, eða um 2,5 - 3 millj. á siöastliönu ári. „Ætla mætti, að stolið hafi verið úr útibúinu fyrir um 12 þúsund krónur dag hvern”, sagði einn Hvergerðingurinn við Vísi, Mikill hiti hefur rikt i plássinu siðan þessi atburður átti sér stað, enda hefur fyrr- verandi útibússtjóri, Haukur Snorrason, fylgi allra á staðnum. Þegar blaðiö ræddi viö Þórö Snæbjörnsson, deildarstjóra Hveragerðisdeildar KÁ, sagði hann meöal annars, að þann dag sem útibússtjóra var sagt upp starfi, hafi unglingar fjöi- mennt að útibúinu og hafiö feiknar eggjakast og skreytt með þvi veggi verzlunarinnar. Börn gengu um göturnar i kröfugöngu með spjöld, áletruð: „Lifi Haukur” og svo framvegis. A fundi, sem haldinn var I Hveragerði I fyrrakvöld út af þessu máli, komu meðal annars fram þær hugmyndir hjá al- menningi, aö enginn myndi framar verzla ikaupfélaginu og að stofna yröi nýtt kaupfélag. „Svona hefur þetta verið árum saman”, sagði Þórður. „Eilif útibússtjóraskipti og flestum sagt upp starfi. Síöan árið 1971 hefur enginn veriö lengur i starfinu en Haukur Snorrason, sem var tæpt ár. Hinir voru nokkra mánuði I einu”. „Hér i Hveragerði er ekkert bókhald, það er allt á Selfossi”, sagöi Þórður ennfremur, „og þaö er margt, sem getur or- sakað útreikningana á pappírnum. En ég vil lltiö annað segja á þessu stigi máls- ins en það, aö málið er i at- hugun”. „Mér skilst, aö búið sé að ráöa nýjánútibússtjóra hér i Hvera- gerði. Þaðer „flóttamaður” eða með öörum orðum, maður frá Vestmannaeyjum”. „En i fáum orðum, þá erum viö ekki ánægöir með sam- búöina við Selfoss i þessum efnum”, sagði Þóröur aö lokum. —EA Krani valt og skemmdi hús í byggingu Stór krani, sem var við steypuvinnu i Breiðholti, valt i gærkvöldi og skemmdi hús, sem þar er I byggingu. Það var um kl. 6.30 í gærkvöldi, að kranastjórinn var að færa kranann til, en bakkaði honum þá ofan I húsgrunn, sem var þarna viö. Skipti það engum togum, að kraninn valt, og skall bóman yfir hús, sem var þarna við. Bóman braut niður útvegginn i húsinu að norðan og molaði niður millivegg. Einnig skall bóman á syðri út- vegg hússins og stöðvaðist á honum. Enginn varð fyrir slysi, en maður, sem verið hafði að vinna inni i húsinu, var nýfarinn út, þegar atburðurinn gerðist. Hafði hann verið að vinna einmitt þar, sem bóman skall niður. Furðu litlarskemmdirurðu á krananum sjálfum. Þessi krani virðist vera einhver óhappagripur, en hann valt fyrir u.þ.b. ári við H.B. húsið og skemmdist þá mikið. —ÞM Bœjarstjórn Eyja reiddist Einari „Misskilningur", segir hann ,,Við höfum ekki veitt honum neina aðstoð, og bæjarstjórinn hefur rætt um að hætta að verja eignir hans”. Þetta sagði Magnús H. Magnússon, bæjar- stjóri i Vestmanna- eyjum í morgun um Einar Sigurðsson sem almennt er kallaður „riki”. Einar er eini atvinnu- rekandinn i Eyjum, sem hefur reynt að flytja burt atvinnutæki, að sögn Magnúsar. Einar er einhver mesti framkvæmda- maður i fiskvinnslu hér á landi og ræður meðal annars frysti- húsum i Eyjum og I landi. Einar Sigurðsson sagði hins vegar i morgun, að hann væri nær eingöngu að flytja i land veiöarfæri og lagera, svo sem aðrir hefðu gert, og væri um einhvern misskilning að ræða hjá bæjarstjóra. Einar sagðist þvert á móti vera að undirbúa loðnubræðslu i Eyjum. Bæjarstjóri sagði, aö enginn ágreiningur væri i bæjarstjórn um að hamla gegn athöfnum Einars. Hins vegar segist Einar ekki vera að flytja til lands at- vinnutæki sin, utan roðfletti- vélar og lyftara. Hann segir, að fjórir bátar sinir hafi flutt veiðarfæri til lands. Um tiu bátar, sem við sig hafi skipt i Eyjum, muni skipta við hrað- frystihús sin i landi, aðallega Keflavik. Til þess að vinna afla þessara báta þurfi hann að flytja til lands þau tæki, sem ríko nefnd eru, en öll önnur tæki séu kyrr i Eyjum, til dæmis allar flökunarvélar. Hann segist að sjálfsögðu munu hefja starf- rækslu i Eyjum, um leið og kostur sé. Flutningar sinir séu gerðir til hagsbóta fyrir Eyjamenn, sem muni leggja upp afla til frystihúsa sinna i landi. Ennfremur á starfsfólk hraðfrystistöðvar Einars I Eyjum kost á að fá vinnu við hraðfrystihús hans i landi. —HH Áœtlun um mokstur og uppgröft í smíðum „Við ætlum aö reyna að fara yfir alla eyna og hreinsa af öllum þökum. Við munum nota öll tiltæk ráð og erum að reyna að fá um 500 manna flokka til þess,” segir Magnús Magnússon bæjarstjóri. „Ennfremur er veriö að gera áætlun um aö moka frá húsum og grafa upp hús, ef það þykir borga sig”, segir Magnús. Hann segir, að rúml. 300 menn hafi veriö viö þess konar störf i gær. Menn vinna þindarlaust, og bjartsýni rikir i Eyjum. Vand- kvæði voru þó i morgun að koma til Eyja þeim mannskap, sem i boði var til starfsins, ekki flug- veður og illt i sjó. „Við höldum götum opnum”, segir Magnús „og höfninni”. Nú munu menn ganga I hreinsun af þökum með ákefð og siðan taka stærri verkefni við. 1 þeim flokkum, sem fara til Eyja, veröa meðal annars stúdentar og 100 hermenn.—HH Rúmlega 100 stúdentar gáfu sig fram til sjálfboðaliðsstarfa i Eyjum i gærkvöldi. Stúdentar eiga kost á að gerast sjálfboðaliðar I Eyjum eða i landi næstu vikur. Manna er þörf I Eyjuni og einnig i landi, svo sem við skrifstofustörf í tollvöru- geymslu o.fl. Stúdentáráð biður stúdenta að skrá sig til þessa - HH Blíður og notolegur janúar hefur kvatt: HAHN VAI^ SÁ ÞRIÐJI HLYJASTI A ÖLDINNI Sá janúarmánuður, sem nú hefur kvatt, var sá þriðji heitasti á öldinni. Janúarmánuður á siðasta ári var reyndar jafn hlýr, þannig að það mætti kannski kalla þann sem nú er nýliðinn, þann fjórða i röðinni. Meðalhiti i Reykjavik þennan mánuð var 3,1 gráða á Celsius. Mánuðurinn var mjög hlýr og þá sérstaklega fyrri hlutinn, og hitinn var 3 1/2 gráður yfir meðallag. Janúarmánuður I fyrra var nákvæmlega jafn hlýr, en aðeins tvisvar sinnum áður á þessari öld hefur oröið heitara i þessum mánuöi. Það var árið 1947 og árið 1964. Arið 1947 var meðalhiti 3,2 gráður, en árið 1964 var allra heitast eða 3,6 gráður. Úrkoma i janúarmánuði nú mældist 123 millimetrar hér i Reykjavik, og var það 33 mm yfir meðallagi. Orkoma á siöasta ári, það er aö segja i janúar, mældist 26 mm meiri en nú eða 149 mm. Sólskin var helmingi minna i siðasta mánuöi en vanalegt þykir. Aðeins 11 sólskinsstundir voru i mánuöinum, en sól er lika mjög lágt á lofti. Sólskin i janúar árið 1972 var fimm klukkustundum meira eöa 16 klukkustundir alls. Það var Markús A. Einars son, veðurfræðingur, sem gaf okkur þessar upplýsingar, og þegar við spuröum hann hvort ekki væri væntanlegur vetur nú, sagði hann langan tima vera eftir af vetrinum, og á þeim tima gæti talsvert skeð. —EA

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.