Vísir - 03.02.1973, Blaðsíða 8

Vísir - 03.02.1973, Blaðsíða 8
8 Vlsir. Laugardagur 3. febriiar 1973. FERÐAMÁL HÓTELMÁL — Er ágreiningur um gagnsemi erlendra ferðan ferðamanna til landsins? Oft er það, er nýjar atvinnugrein- ar hérlendis eru farnar aö skila hagnaöi til þeirra, er að hafa staöiö, og þjóöarbúsins i heiid, er eins og ýmsum aöilum og hags- munahópum sé ekki sjálfrátt og finna upp heimatilbúin vanda- mál til aö spyrna móti áfram- haldandi framþróun og vel- gcngni. Hér veröur stuttlega drepiö á helztu þætti feröamála og afstööu þeirra kyndugu einangrunar- sinna, sem hafa fundiö upp ný vandamál, varöandi heimsóknir útlendinga til landsins, svo og um þá heiztu þætti, sem enn eru til trafala, I sambandi viö móttöku á vaxandi feröamannastraumi og þjónustu viö hann. Það er staðreynd, að þótt vel hafi gengið, og raunar vonum framar að afla feröamanna, eöa fá þá til að koma til lands okkar yfirleitt (sem eitt sér er mikiö verk og kostnaðarsamt), er Is- land ekki enn þróað ferðamanna- land.hvað þá háþróaö, miðað við flest nálæg lönd austanhafs. Það er þvi nokkur kaldhæöni, þegar einstaklingar og jafnvel félaga- samtök gera þvi skóna að reyna að sporna gegn framþróun i áframhaldandi starfi og gera ályktanir um „mengun af völdum erlendra ferðamanna” og hrópa slagorð undir því yfirskyni að vernda þurfi náttúruna fyrir ágangi ferðamanna, menga ekki vötn landsins og fleira i þeim dúr. Þó tekur fyrst steininn úr, þegar yfirskynið er notað yfir þá fárán- legu framsetningu aö feröamenn verði svo og svo margir, jafnvel milljónir, að nokkrum árum liðn- um, ef svo haldi fram sem horfi, og þá hverfi landsfólkið bókstaf- lega i fjölda erlendra og „týnist”, að þvi er mönnum skilst! Slikar og þvilikar andófs-kenn- ingar eru náttúrlega minna en einskis verðar, en þótt einkenni- legt sé, er slikum kenningum haldiðá lofti af mönnum, sem eru læstir og skrifandi, og meira að segja oft af mestu skriffinnum þjóðarinnar, skáldum, rithöfund- um og öðrum, sem telja sig út- valda til að skammta og skera þjóðinni þann sama þrönga menningarstakk, sem þeir sjálfir hafa iklæðzt, e.t.v. gegnum lang- skólanám við einhvern Noröur- landa-háskólann eða systrastofn- un þeirra. Þegar opinberar upplýsingar staðfesta, að beinar og óbeinar tekjur af erlendum ferðamönnum séu komnar yfir einn milljarð króna á ársgrundvelli, og meðal- eyösla hvers.ferðamanns i land- inu nálgast tiu þúsund krónur, er um aö ræða tekjuöflun, sem ekki má lita hornauga og sizt láta við- gangast að skammsýnum öfga- mönnum haldist uppi að brjóta á bak aftur einstaklinga, sem hafa lagt i þá áhættu að kosta til fjár- munum og tima til grundvallar þessari tekjuöflun. Ef ráð eru i tima tekin af öllum ábyrgum aðilum, sem við málin eru riðnir má firra vandræöum áður en það er um seinan, en tim- inn er naumur. Illa gæti farið, ef áðurnefndar tekjur af ferða- mönnum færu lækkandi á yfir- standandi ári og næstu árum fyrir skammsýni og linkind i þvi aö kveða niður að fullu fyrrnefndar úrtöluraddir. Satt að segja blæs ekkert byr- lega þessa stundina með fjölgun ferðamanna á sumri komanda, a.m.k. ef litið er til þeirra þjóða, sem hafa verið ofarlega á blaði i ferðamannafjölda hingað undan- farin ár, en hér er átt við brezka og þýzka ferðamenn. — Verði landhelgisdeilan ekki leyst fyrir vorið, verður vafalaust um tölu- verðan samdrátt i feröamanna- straumi frá þessum löndum að ræöa, af eölilegum ástæðum. Þetta er þó á engan hátt sannan- legt, en mjög liklegt engu að sið- ur, og er gerst að lita til okkar eigin afstöðu þar aö lútandi. Er þá aöeins eftir að vona, að ferðamönnum frá Bandarikjun- um og öörum Vestur-Evrópulönd- um en Bretlandi og Þýzkalandi fjölgi verulega, til þess að fækkunin lami ekki þá starfsemi, sem þegar er til reiöu, og hefur verið byggð upp fyrir tekjur af nokkuð fyrirfram árvissri aukn- ingu til þessa. Nú er það auðvitað álitamál, hvort sú uppbygging, sem stuðzt hefur verið við i sambandi við ferðamálin hingað til er rétt og hagkvæm fyrir þjóöina i heild, þótt vel og mikið hafi verið að unnið af fjölda aðila. Það er t.d. stór spurning, hvort margir smá- ir og dreiföir aðilar eigi að halda áfram, hver fyrir sig að kosta fé og tima i alla þá undirbúnings- vinnu, sem til þarf, og fram- kvæmd er yfir vetrarmánuöina, áður en hin raunverulega ferða- mannavertið hefst á vorin, með undirbúningi og prentun bæklinga og dreifingu þeirra. 1 þróuðum feröamannalöndum er þetta ekkert vafaatriði, þar er fjölmenni mikið á vinnumarkaði, fjölbreytni það mikil i vali ferða, og tilgangur ferðamanna það margbreytilegur til hinna ýmsu landa, að svigrúm myndast fyrir mikla samkeppni og fyrir margar tegundir ferðaþjónustu, sem aug- lýsir svo hver á sinu sviði og sér- hæfir sitt starfsfólk til móttöku og beinir ferðamönnum til hinna ýmsu staða með mismunandi að- dráttarafl, sem hæfir hverjum og einum. Hér er þessu öðruvisi farið. Þótt oft sé slegið fram setningum sem þeirri, að „landið hafi upp á margt að bjóða” hljóðar þetta nánast sem öfugmæli, miöað við hin þróaðri feröamannalönd. — Það sem Island hefur „upp á aö bjóða” fyrst og fremst er auðvit- að sérstæð náttúra og landslag, sem er mjög frábrugðið öðrum byggðum löndum, og svo hitt, sem er ekki siður fornvitnilegt fyrir erlenda ferðamenn, en það er að kynnast af eigin raun, hvernig fólkið sjálft lifir i þessu afskekkta, norðlæga landi, sem er sannanlega á mörkum þess að vera byggilegt, landfræðilega og veðurfarslega.Enn er einn þáttur, sem hefur þótt forvitnilegur fyrir útlendinga, en þaö eru eldfjalla- stöðvar, sem hafa verið virkari hér, a.m.k. hin siðari ár, en dæmi eru um i flestum löndum, og ferðamenn þvi átt kost að sjá með berum augum þær hamfarir, sem náttúran skammtar landi og þjóð, án tillits til aðstæðna. Segja má þó, að það sé sjaldgæft að feröamenn sem slikir leggi leiö sina til tslands vegna þessara at- burða eingöngu, en noti auövitað tækifærið og fari i skoðunarferðir, sjálfstætt eða i hópferðum til virkra eöa útkulnaðra gosstöðva, ef þeir hafa á annað borð verið hér staddir. Erlendir fréttamenn hafa að sjálfsögðu flykkzt til landsins i slikum tilfellum, að eldfjöll hafa gosið, en einungis til öflunar frétta og mynda fyrir vinnuveitendur sina, eða til sölu til fréttamiðla, ef fréttamenn vinna sjálfstætt. Þess konar heimsóknir til landsins teljast ekki til ferðamennsku, almennt séð, þótt heimsóknir fréttamanna séu færðar inn hjá útlendinga- eftirliti eins og annarra farþega, sem til landsins koma. Eldfjöll og gosstöðvar hafa ver- ið einna stærstir auglýsingaliðir margra landkynninga-bæklinga, og þar lýst, m.a. hvernig komast megi til þessara svæða, klífa eld- fjöll og fara að kulnuðum gfgum og á annan hátt dregið fram, hversu áhugavert það sé aö kynn- ast eldfjallasvæðunum, áhrifum þeirra og umróti. Þótt ef til vill megi segja, að auglýsingar þær, sem geröar eru hér að umtalsefni séu nokkuð tvi- ræðar, og spurning sé um það, hvort svona lagaö þurfi yfirleitt vvv\ $\\\\^\\\\\\\\\\\\\\\3 Vísnaþáttur Vísis: \\\\\\\\\\\\\\\\\\\\\\\$g KOMIÐ NU AÐ KVEÐAST Á vvvvs Vfsnaþættinum áskotnaðist að þessu sinni töluvert minna magn af botnum og vlsum en áður. Tvær ástæður fyrir þvl mætti láta sér detta I hug. Skilafrestur á efni er styttri nú en áöur, en svo er lfka annaö, aö nokkuð margir botnanna, sem bárust þæltinum að þcssu sinni, voru innrimslausir og auk þess tæplega nógu vel gerðir til að setja á prent. Þæltinum hafa borizt allmörg bréf siðan liann „fæddist", ýmist stutt eða löng, og verða Ifklega einhver þeirra birt á næstunni, að minnsta kosti glefsur úr þeim. Sum bréfin eru að nokkru leyti i buudnu máli. Fyrriparturinn frá laugardeginum 27. janúar er þcssi: Saman tengir líf og lit listafenginn maöur. En óli Jó er orðinn ^.bit” og alveg rauðmálaður. Gömul visa (og þó) Man ég ykkar fyrri fund, fornt þó hatrið réni. Nú er eir.s og hundur hund heiðri i sama greni. Fyrrverandi kjósandi óla En oft mun lengi auka strit illa um genginn staður. Fellur gengi, förlast vit, framar enginn glaður. Einar hefur utanlands ýmsu fári hamlaö. Allt fer nóg til andskotans þó uppí vind sé damlað. A.R. Ef þrýtur lengi vinnuvit, verður enginn glaður. 28 ára húsmóðir Finnast engin gerfiglit hjá góðum drengjum Meira vit! Ort um Snæfellska jungfrú I desember 1972. Glugginn er opinn hjá góðri kind, að gambra við jómfrú er engin synd. Hún er þó sköpuð i mennskri mynd og með henni drekk ég af ástarlind. Stefán Rafn Fg þakka þættinum linurnar til min I siðasta þætti; átti ekki von á þvl. Og nú sendi ég tvo botna, sem ég er þó ekki ánægð með. Stundum fær þó fyrir vit fúkyrði og slaður. Saman strengir vilja og vit Vestmannaeyjastaður. Steinunn frá Hvoli. A léreft hengir gull og glit, glæstri er enginn staður. Tvinnar strengi, styrk og vit, stilinn lengir hraður. A sjónar brautir víst ég vik, vafningslaust það segi, að við kynni kærleiksrik „close-up” bregst þeim eigi. Þér vil sannast segja það, sizt fá annir biða. Lægðir hrannast landi að leiðir spanna viða. A.G. Akranesi Sorg ei okkar sálna herð. Senn mun Guð oss náöai af þvi Lúðvik eitt fyrir verð okkur keypti báða. Frá fyrrverandi kjósanda Hannibals og Magnúsar Torfa Hjartans strengi, hugans vit, hrærir drenglundaður. Bragar strengja gullið glit gef ég, drengir, glaður. A.Stef. Það mun enginn stööugt strit standast lengi glaður. S.S. Leiðir drengi á ljóssins vit, leikur á strengi glaður. Sér um vengi geislaglit og gigjustrengi I vindaþyt. Aðaibjörg Zóphonlasdóttir. Hljómastrengi hlýtt með glit hyllir drengur glaður. Fyrir gengið fræðastrit fást mun lengi staður. Og hér er kveðja frá þeim sama til Hannibals. Aður fyrr var allra tal um afbragðsmenn i Selárdal. Nú berst um strönd og bjargarsal, að bölvaldur sé Hannibal. Þetta er mikil sorgarsögn, sönn þvi liggja að henni gögn. Kommúnista klækjamögn kúskuðu hann i þessa lögn. Allir gráta Islending er alltaf snýst i sama hring. Or kommúnista brölti byng brauðs á fótum inn á þing. ST.D. Gömul visa (I nýjum búningi) Elska ég þig manna mest, met af lifi og blóði. Ó, að við hefðum aldrei sézt, elsku Lúlli góði. Fyrrverandi kjósandi Einars A. Sunnudagsvisan Hvaö er þetta? Hvað er aö? Hvað er á seyði við barinn? Hann er að detta. Hann um það. Hann er illa farinn. S.S. Þó veturinn hafi enn ekki yfirgefið okkur, er fyllilega timabært að hugsa til vorsins, og trúlega hugsa flestir hlýlega tií vorkomunnar. Og þvl skulum við hafa næsta fyrripart á þessa leið: Brátt mun þessi vetur víkja, vorið blessað kemur senn. Efni i næsta þátt þarf að berast i siðasta lagi þriðjudaginn 6. janúar. Utanáskriftin er: Dagblaðið Vlsir „Komið nú að kveðast á” Siðumúli 14 Reykjavik. L.T.H. Þegar ég heyröi um átök brezkra togara við Islenzk varöskip, gat ég ekki að þvi gert, að mér rann i skap, og komu þá fram I huga minn eftirfarandi ljóðllnur. Mér finnst hann ólafur eitthvað linur viö andskotans Bretann miöunum á. Hann ætti ekki að segja, elsku vinur, það er útilokað héöan i frá. Þvi Bretinn alltaf að ofbeldi stóð ef annars vegar var fámenn þjóð. Þótt Bretinn sér hreyki hátt að sinni og haldi sig vera stóran mann, þá mun hann þaö finna i framtiðinni hve fáir óska að styöja hann. Ofbeldishneigö er ei til þess aö upphefja mann á hærri sess. J.Kr.Þ. K.vogi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.