Vísir - 27.03.1973, Blaðsíða 3

Vísir - 27.03.1973, Blaðsíða 3
Vísir. Þriðjudagur 27. marz. 1973 3 Sameining Alþýðuflokks og hannibalista nálgast BÚIÐ AÐ GANGA FRÁ FRAMBOÐUM Björn efstur á NA-landi, Karvel á Vestfjörðum, Magnús Torfi líklega í 2. sœti í Rvík — segir Nýtt land Alþýðuflokkur og Hannibalistar hafa að mestu komið sér saman um framboð í næstu þing- kosningum. Svo segir blaðið i,Nýtt land, mál- gagn Bjarna Guðnasonar, andstæðings Hannibals. Samkvæmt fréttinni fá hannibalsmenn nokkur þingsæti, sem heita mega örugg. Þaö er eitt aðalvandamálið við sameiningu flokka að semja um röð á listum, svo að ekki valdi mikilli gremju. Gamlir „toppar” verða að vikja fyrir fulltrúum hins aðilans i samein- ingunni. Gamalgrónir fram- bjóðendur og fyrrum þingmenn Alþýðuflokksins vikja til dæmis fyrir frambjóðendum Hannibal- ista i Norðurlandskjördæmi eystra og á Vestfjörðum, að minnsta kosti, ef marka má Nýtt land. BjörnJónsson verður i efsta sæti i Norðurlandskjördæmi eystra, en Bragi Sigurjónsson vikur. 1 stað Braga segir Nýtt land, að komi fyrir Alþýðu- flokkinn Bárður Halldórsson, og verði i öðru sæti. Hannibalistar fá einnig efsta sæti á sameiginlega listanum á Vestfjörðum. Hannibal segist munu hætta þingmennsku fyrir aldurssakir og segir Nýtt land, að i efsta sætið fari Karvel Pálmason þingmaður. Ólafur Björn Jónsson efsta sæti, en Bragi Sigurjónsson hættir. Hannibalsson verði i þriðja sæti, en ekki sé búið að ganga frá, hver verði i öðru sæti fyrir Alþýðuflokkinn. Pétur Pétursson (A) verði i efsta sæti i Norðurlandskjör- dæmi vestra, en Þorvaldur G. Jónsson (H) verði i öðru sæti, segir Nýtt land. Blaðið segir, að deilt sé um efsta sæti i Suðurlandskjör- dæmi, þar sem Alþýðuflokkur- inn hafi ekki samþykkt Braga Jósefsson. f Reykjaneskjör- dæmi muni Alþýðuflokkurinn hins vegar eiga að hafa tvö efstu sætin og þau skipi þingmenn- irnir Jón Armann Héðinsson og Stefán Gunnlaugsson. Þá sé ekki frágengið, hver verði í öðru sæti í Reykjavik, þarsem EggertG. Þorsteinsson og Sigurður Guðmundson séu tregir til að samþykkja, að Magnús Torfi ólafsson ráðherra verði i öðru sæti, ef marka má Nýtt land. Hins vegar muni Magnús Torfi: 2 sæti á sam- eiginlega listanum. Eggert sagður óánægður með 3. sætið. Gylfi Þ. Gislason verða i fyrsta sæti. Benedikt Gröndal (A) verði efstur i Vesturlandskjördæmi. Margt af þvi, sem Nýtt land segir um þetta framboð, er sennilega miðað við það, sem fréttist úr öðrum áttum. Forystumenn Alþýðuflokks og Hannibalista segja, að samein- ing flokkanna nálgist.Mál þróist „eðlilega” og i þá átt. Engum getum verður leitt að þvi, hversu mörg þingsæti þessi samsteypuflokkur gæti fengið. Nú hafa þessir flokkar samtals 10, þegar Bjarni Guðnason er frátalinn. — HH. ENN MOK VEIÐI Svartur sjór við Snœfellsnes, í Flóanum og víðar Mokafii var hjá loðnuflotanum i gær út af Skarðsvik norðvestan á Snæfellsnesi. Allir eða svo til allir bátar, sem voru þar á miðunum fylltu sig. Aðrir bátar, sem fréttu af þessari mokveiði, komust aldrei lengra en I miðjan Flóann, þar sem sjórinn var einnig svart- ur af loðnu. AIIs tilkynntu 14 bátar um rúmlega 4 þúsund lesta afla. Af einhverjum ástæðum hefur áhugi útgerðarmanna og sjó- manna á loðnuveiðinni dofnaö svo mjög, að nú eru aðeins 25 bátar eftir á þeim veiðum. Flestir urðu þeir eitthvað yfir 80 auk minni trollbáta, sem aldrei voru taldir almennilega með. Aflamagniö i gærdag er þvi alveg sambærilegt við beztu daga vertiðarinnar, ef miðað er við fjölda bátanna. En það er ekki aðeins hér norð- urundan, sem loðnumagnið virð- ist óþrjótandi. Sæberg frá Eski- firði fyllti sig tvo daga i röð austur við Hrollaugseyjar. Bátur- inn var á leið heim til að skipta um veiðarfæri, þegar hann sigldi fram á mikið loðnumagn. Annar bátur, Sveinn Sveinbjarnarson fyllti sig einnig i fyrradag við Ingólfshöfðann, þannig að loðna virðist vera viða, ef útgerðar- mönnum og sjómönnum þóknast að nýta hana. Þó að áhuginn fari nú minnk- andi á loðnuveiðum, má reikna með þvi, að afkastamestu skipin haldi veiðunum áfram. Má telja vist, að margir hringnótabátarnir fari aldrei á þorsk i vetur, heldur fari beint á Norðursjávarsildina, þegar loðnunni lýkur. — VJ Brennur hjá skátum í Kópavogi Bifreið bjargað naumlega — Við lánuðum húsnæði okkar til Vestmannaeyinga fyrir 2 mánuðum og höfðum fyllt bil- skúrinn af allskonar munum,- sagði Friðrik Haraldsson, félags- foringi skátanna i Kópavogi okkur. Tvöfaldur bilskúr með eigum þeirra og Hjálparsveitar- innar i Kópavogi brann i fyrri- nótt. Þarna brunnu húsgögn — borð og stólar- og aðrir gripir i eigu skátanna, auk ýmissa minja og verðlaunagripa, sem safnast saman i löngu starfi. 1 öðrum enda skúrsins var bifreið, sem Hjálparsveitarmenn voru að gera upp og var óökufær. Henni tókst að bjarga á siðustu stundu, ásamt öðrum björgunar- tækjum og áhöldum sveitarinnar. Var það að mestu óskemmt, eftir þvi sem bezt varð séð, nema reykur og sót hafði eitthvað komizt i það. Eldsupptök eru ókunn , en Friðrik félagsforingi taldi ekki óliklegt að ástæðan væri skamm- hlaup i rafmagnskerfi. Eldurinn hefur liklega komið upp nálægt klukkan eitt um nóttina, þvi fólk var á ferli þar við húsið um miðnætti og varð ekki neins vart,en rúmlega hálftvö var farið að loga út um glugga á skúrnum. Friðrik sagði okkur að þeir mundu reyna að fá inni i skólum bæjarins með starfið, sem eftir er vetrarins. Vissulega væri slæmt að tapa öllum munum og gögnum félagsins en þeir mundu gera sitt til að bæta úr þvi hið fyrsta. —ÓG Nokkrir skátanna skoða vegsummerkin eftir brunann. Vinstri villa i Mosfellssveit Þrir ungir rnenn slösuðust nokkuð i árckstri, sem varð á þjóðveginum undir Hamrahlið i Mosfellss veit á sunnudags- kvöldið. Áreksturinn varð með þeim hætti að litlar fólksbifreiðar rákust á, en þær komu úr gagn- stæðri átt. ökumaður þeirrar bif- reiðar sem var á leið til borgar- innar ruglaðist i riminu og ók á vinstri kanti vegarins. Að sögn ökumanns hinnar bif- reiðarinnar, sá hann hvað verða vildi og var búinn að hægja ferðina, þegar þær skullu saman. Mikil hálka og vont veður var á þessum tima og tókst honum ekki að koma i veg fyrir áreksturinn. Bilarnir eru mikið skemmdir og annar jafnvel ónýtur — ÓG • • Fundur HOFN VIÐ "x: SUÐURSTRÖND LANDSINS? „Fundurinn lýsir samstöðu með ályktun húseigendafélags Vestmannaeyja með bótagreiðsl- ur til Vestmannaeyinga”. Svona var önnur tvcggja tillagna, sem einróma voru samþykktar á fundi I Selfossbiói i gær. Það var „HEIMÞRA” félag Vestmannaeyinga á Suðurlands- undirlendi sem gekkst fyrir fundi þessum. Til fundarins höfðu verið boðnir stjórnarmenn Viðlaga- sjóðs, bæjarstjórn og stjórn Húseigendafélagsins. Ekki kom- ust Helgi Bergs eða Magnús Magnússon á fundinn. Tiu manns töluðu, þar á meðal bæjarfulltrú- ar, stjórnarmenn Viðlagasjóðs og Jón Hjaltason, formaður Húseig- endafélagsins. Fólk mátti bera fram skriflegar fyrirspurnir, og kom fram ara- grúi þeirra, að sögn Hermanns Einarssonar. Hann sagði okkur ennfremur, að komið hefði fram á fundinum að mikil fjölgun hefði orðið i Húseigendafélagi Vest- mannaeyja, siðan gosið hófst. Félagstalan væri komin úr um 120 á fimmta hundraðið. önnur tillaga var samþykkt á fundinum, hún hljóðaði svo: „Fundurinn samþykkir að skora á ráðamenn . þjóðarinnar að hefja nú þegar raunhæfa könnun á staðsetningu nýrrar hafnar við suðurströnd landsins. Fundurinn telur að tapist höfnin I Vest- m.eyjum, þá sé um nær 200mílna hafnlausa strandlengju að ræöa og að útilokað muni verða að stunda eðlilegar veiöar á þessum fengsælu fiskimiðum viö slikar aðstæður”. Fleiri samþykktir komu ekki fram á fundinum. Það var aftur á móti skýrt frá þvi i fyrsta skipti þarna að bæjar- stjórnin hyggðist efna til borgarafundar, þegar reglugerð- in er komin frá stjórn Viðlaga- sjóðs. Þetta upplýstist, þegar einhverjar óánægjuraddir kvört- uðu yfir, að ekki hefði verið hald- inn fundur með fólkinu fyrr. Félagið „Heimþrá”, sem gekkst fyrir fundi þessum var stofnað i febrúar og hefur gengizt fyrir reglulegum spilakvöldum og skemmtikvöldum. Þeirri starf- semi mun haldið áfram, en ekki er fyrirhugað að halda fleiri fundi sem þennan. — LÓ.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.