Vísir - 27.03.1973, Blaðsíða 4

Vísir - 27.03.1973, Blaðsíða 4
4 Visir. Þriðjudagur 27. marz. 1973 Takið eftir þessu merki Kannski á þetta merki eftir að birtast viða i byggingum á tslandi á næstu árum. Það er alþjóðlegt og táknar, að byggingin sé að- gengileg fyrir þá, sem feröast um á hjólastólum og fatlað fólk yfir- ieitt. Hér á landi er starfandi nefnd, sena á að kanna leiðir, er tryggi, að bygg- ingar og umferðaræðar fram- tiðarinnar verði þannig, að fatlað fólk eigi þar sem greiðasta götu, en eins og nú er i pottinn búið, er ástandið afskaplega slæmt. Hvernig á fólk i hjólastól til dæmis að skoða Þjóðminjasafn- ið? Nýjasta rEvrópan Nýtt frimerki er væntanlegt 30. april n.k., — ekki nýtt merki vegna eldgossins i Heimaey, eins og einhverjum kynni að detta i hug, heldur nýtt Evrópufrimerki. Verðgildin eru 2. marglitað 13 krónu merki, og 25 krónu merki, einnig prentað i regnbogans litum. Myndin er af merkinu, sem teiknað var af Leif Frimann, norskum teiknara. Sorpílát Plastpokar Tilboð óskast i framleiðslu á sorpgrindum, kössum og plastpokum til notkunar við Ibúðarhús o. fl« staði. Otboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNl 7 SÍMl 26844 BLAÐBURÐARBÖRN óskast i eftirtalin hverfi: Bergstaðastræti Þingholtsstræti Vinsamlegast hafið samband við af- greiðsluna. VISIR Hverfisg. 32 Sími 8661T ENN HJALPA FRÆNDUR Á NORÐURLÖNDUM — efnt til norrœnnar skemmtunar í Reykjavík I.iklega hefur norræn samvinna fyrst undanfarnar vikur byrjað að þýða eitthvað annaö og meira en áður i hugum manna hér á is- landi. Iljálpin frá Norðurlöndum vegna eldgossins i Heimaey varð höfðinglegri en nokkurn óraði fyrir. Og enn ætla Norðurlandamenn að hjálpa, að þessu sinni verður það með skemmtun, sem haldin verður i Háskólabiói á sunnudag- inn kemur, þann 1. april. Það eru 12 félög hér á landi, öll tengd Norðurlandasamstarfi, sem gangast fyrir skemmtuninni og er mörgum beztu skemmtikröft- um Norðurlandanna boðið hing- að. Ekki er enn vitað endanlega hverjir koma, en vitað að Norð- maðurinn Erik Bye, sem stjórn- aði Vestmannaeyja dagskrá norska sjónvarpsins, þegar 5.5 milljónir norskra króna söfnuðust verður kynnir samkomunnar. Þá er og vitað að leikarar frá Lilla Teatern munu koma fram, en þeir komu fram i sjónvarpinu á dögunum og vöktu mikla hrifn- ingu. Aðgöngumiðar verða einnig happdrættismiðar og hafa Eimskip, SAS, Bókaútgáfan Helgafell og F’álkinn gefið góða vinninga. Liklega mun það koma mörg- um á óvart að heyra að 12 félög tengd Norðurlöndum skuli starfa hér á landi. Til gamans skulu þau hér talin upp: Dansk-islenzka félagið, Det danske selskab, Dannebrog, Dansk kvindeklub, Færeyingafélagið, Island-Noreg- ur, Nordmanslaget, Skande- navisk boldklub, Suomi, Sænsk- islenzka félagið, Islands-sven- skornas förening og Heims- kringla. Norræna félagið og Nor- ræna húsið eru með þessum félögum aðilar að þessari miklu skemmtun. — JBP — Loðnupeningar fara i umferð Það er greinilegt að loðnu- peningarnir eru að komast i um- ferð. Stórir hópar i þjóðfélaginu hafa verið heppnir og fá nú meiri laun en þeir eiga að venjast. Bila- salan blómgast lika og um helgina voru þeir hjá Fíat-um- boðinu að afgreiða frá sér 30 bila á einum og sama deginum. „Þetta er algjört met hjá okkur,” sagði Davið Sigurðsson, um- boðsmaður bilanna hér á landi. Mest var selt af Fiat 127 og 128, sem kosta 340 og 370 þús. Má þannig áætla að salan á einum degi hafi verið fyrir allt að 11-12 milljónir króna. Þarna voru ekki bara sjómenn og sjómannskonur frá loðnuhöfnunum viða um land að sækja sér vagna, heldur hittum við lika fyrir heppinn vinningshafa úr getraununum nú nýlega. Myndin sýnir hvar kaupendur eru að ná i gripi sina. Harmstafir og formœlingar Það er i tizku að „harma” ýmsa hluti, og hefur útvarpsráð vist gengið á undan með fordæmi þar. Og þá eru aðrir hópar, sem „for- dæma” alla skapaða hluti. í frétt frá vélskólanemum er hvort tveggja viðhaft: „Nemendur Velskólans harma stefnu sam- göngumálaráðuneytisins og samgönguráðherra i veitingum undanþága. A fundinum var gerð fundarsamþykkt, borin undir at- kvæöi og samþykkt einróma. Hún er svohljóðandi: Fundur Vélskólanema haldinn 20. marz 1973 fordæmir þær undanþágur til vélstjórnar til handa ómenntuðum mönnum, sem sifellt eiga sér stað,og telur þær ruddalega litilsvirðingu við það nám, sem nemendur skólans stunda, auk þess sem þeir telja engum, sem áhuga hefur á þvi vorkunn að koma i skólann og stunda þar nám, þar eð nemendur hans hafa nú aðild að lánasjóði is- lenzkra námsmanna.” Þeir fengu dans- kennara í Hrísey „Við höfðum danskennara i Hrís- ey i eina viku og fögnuðu þvi hinir mörgu, sem tóku þátt i þeirri kennslu. Hitt þótti okkur lakara, þegar hann fór frá okkur, þvi að þetta var falleg og dugleg stúlka, sem við hefðum viljað hafa lengur.” Þetta segir fréttaritari Dags á Akureyri um góubraginn i eynni, en i Degi eru oft skemmti- leg og mannleg tiðindi eins og þessi, en ekki bara einblint á veður og veiði. & DlMg ArMOSPHERE íNGASAUIR Komu og skiluðu skildinum aftur Einhver eða einhverjir skrúfuöu niður skjöldinn fallega hjá öðali, þegar dómur hafði verið kveðinn upp I Wine & Dine máiinu á dögunum. Hver svo sem þetta hefur nú verið, hefur maðurinn eða mennirnir (nema þetta hafi verið kvenfólk) lengið einhverja bakþanka. Alla véga fannst skjöldurinn á tröppum veitinga- hússins við Austurvöll einn morguninn. Og hér heldur mat- sveinn hjá Óðaii á skildinum góða.-sem þegar var settur á sinn stað.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.