Vísir - 27.03.1973, Blaðsíða 7

Vísir - 27.03.1973, Blaðsíða 7
Visir. Þriðjudagur 27. marz. 1973 7 Umsjón: Þórarinn Jón Magnússon — Má ekki bjóða yður mjólk/ frú mín góð. Hún er svo Ijómandi góð. Og það kostar ekki nema þrjár krónur glasið. Með þessum orðum stöðvaði ungur piltur eina frúna, sem var að koma af þing- pöllunum í gær. Þegar hún þáði mjólkursopann var pilturinn fljótur að renna handa henni í glas úr fernu. Og svo á meðan lögreglan fjarlægði stuðningsmann mjólkursopans, gaf frúin sér tima til að svara spurningum Visis. — Ég hafði mikla lyst á mjólkinni, sagði frúin, sem heit- ir Rannveig Jónsdóttir. Og hún hélt áfram: — Ég keypti nefni- lega ekki neina mjólk i morgun og við i fjölskyldunni drukkum bara vatn með hádegismatnum. Og hvað var það, sem hún gaf fjölskyldunni að borða? Var það dilkakjöt? — Nei, það var fiskur. Alveg ágætur fiskur, svaraði Rann- veig. Hvort hún héldi, að henni og fjölskyldunni tækist sem skyldi, að neita sér um landbúnaðar- afurðir? — Ætli við verðum ekki að gera það, hvað sem nú öllum mótmælaaðgerðum liður. Þetta er orðið svo dýrt allt saman, var svarið. Ekki kvaðst hún vera búin að leggja það niður fyrir sér, hvort það nú væri ódýrara að borða fisk eða kjöt. — Ég veit bara það, að kjötið er orðið óheyri- lega dýrt og það verður að gripa til almennra og róttækra að- gerða til að fá leiðréttingu þess- ara mála. Og svo mikið er vist, að núna er margfalt ódýrara, að gefa börnun ávaxtasafa i stað mjólkur. Á þvi leikur enginn vafi. Við spurðum Rannveigu, hvernig henni hafi þótt um- ræðurnar i Alþingi. Hún svar- aði þvi til, að hún hafi komið svo seint og farið fljótt, þannig að hún hafi ekki náð að hlýða á nema litið brot af þvi, sem þar var haft á orði. — Ég náði þó að verða fyrir vonbrigðum með Svövu, sagði Rannveig. — Þessi alþingis- kona, virtist ekki bera hag hús- mæðra fyrir brjósti. Það var rétt eins og hún hefði aldrei kynnzt starfi húsmóður af eigin raun. Eða það var ekki að heyra. Og eins vakti það furðu mina, hversu mikið Svava „Má ég ekki bjóða yður mjólkursopa?" — fylgzt með mótmœlum húsmœðra og stuðningsmanna mjólkursopans við Alþingi í gœr Hún var svo ósköp þakklát piltinum, sem gaf henni mjólk að drekka úti fyrir Alþingishúsinu. „Ég hafði nefnilega drukkið vatn með hádegismatnum,” sagði hún okkur..... gjammaði frammi þegar næsti ræðumaður hafði tekið til máls. Ég vissi ekki, að þeir sem sitja á þingi ættu slikt til.... Svava sagði.... An þess að hér verði farið að rekja umræður á þingi, ætti að vera óhætt, að hafa nokkur orð eftir Svövu Jakobsdóttur. Lýsti hún furðu sinni á þeim aðgerð- um, sem Húsmæðrafélagið hafi kvatt til. „Fyrst félagið vill halda þvi statt og stöðugt fram, að kaupmáttur launa hafi rýrn- að, sagði hún, — hvers vegna er þá verið að hvetja húsmæður til að kaupa dýrari vörur, en þær islenzku? Hélt Svava þvi fram, að þess- ar aðgerðir hlytu að mistakast. Hinir lægstlaunuðustu gætu tæpast farið að þessum tilmæl- um, en hinir hærra launuðu, sem hefðu svo rúmgóðar frysti- kistur enduðu ábyggilega með þvi að kaupa bara nóg af hinum forboðnu vörum þá vikuna, sem það væri leyfilegt og þannig neyta jafn mikils af þeim eftir sem áður. — Nei, þá hefði verið raunhæfara, að frystikistur Jónlna Guðmundsdóttir, sem stýrði Húsmæðrafélaginu I 30 ár, mætti á þingpallana. „Ég vil að leitað verði friðsamiegra leiða til að fá verðhækkanirnar ieiðréttar,” sagði hún. væru löglega innsiglaðar aðra hverja viku hélt Svava Jakobs- dóttir. Björn Pálsson frá Löngumýri lét þess getið i sinni ræðu, að sér þætti það hálf spaugilegt, að húsmæður væru að ráðast á þá litlu hækkun, sem gerð hefði verið á landbúnaðarvörum. Hvers vegna hafa húsmæður ekki minnzt á hækkunina, sem orðið hefur á t.d. sykri og gos- drykkjagutli, spurði hann. Taldi Björn fullvist, að húsmæður mundu verða búnar að taka upp sina fyrri neyzluhætti að viku liðinni. Etjtð okkur ekki saman. Það var verulega stór hópur kvenna, sem mættu á Austur- völl i gær og komust þær ekki nærri allar inn. Svo fór, að þær sem komust á áheyrendapallana ákváðu að yfirgefa þinghúsið, þegar þeim þóttu þingmennirnir „sýna þeim ósmekklegheit”, eins og ein húsmæðranna orðaði það siðar. Þeim sem voru útlfyrir gáfu þær eftirfarandi skýringar: Þegar við komum inn voru áheyrendapallarnir þéttsetnir af sveitakonum, sem Jónas Arnason og nokkrir fleiri þing- menn vildu etja okkur saman við. Það fannst okkur afar ósmekklegt og fórum þess vegna út aftur. En við skulum ekki hætta. Við skulum koma saman til fundar aftur hið allra fyrsta. Fengu þessi orð góðar undir- tektir og voru viðstaddar flestar á þvi, að boða skyldi aftur til fundar næsta laugardag. Þá er fri i vinnunni. Það eru svo margar að vinna, sem við vit- um, að vilja vera með, sögðu þær hver við aðra. Þegar hinn mikli fjöldi hús- mæðra hafði gert árangurslaus- ar tilraunir til að kalla Halldór E. fram á svalir þinghússins, ákváðu þær að halda á brott. Jónína sagði: Visir náði tali af Jóninu Guð- mundsdóttur, eftir för hús- mæðra i Alþingi, en Jónina var formaður Húsmæðrafélagsins i um 30 ár, eða þar til fyrir þrem árum. Jónina hafði setið yfir kaffi- sopa með nokkrum vinkonum sinum þegar hún ræddi við blað- ið. — Mest ræddum við vin- konurnar um hinar slæmu mót- tökur, sem við fengum hjá þing- mönnunum, sagði hún. Annars sagði hún orðrétt: — Það olli okkur reykviskum hús- mæðrum mikils sársauka, að sjá stallsystur okkar úr Arnes- sýslu fluttar til Reykjavikur á fölskum forsendum og fylla þingsalina. Þessar konur eru húsmæður eins og við. Og þær eiga sömu erfiðleika við dýrtið- ina að etja og við. Reykviskar húsmæður vita lika, að minnst af hækkuninni fer i vasa bónd- ans. Milliliðir og aðrir gelypa i sig stærsta hlutann. Við óskum vinum ogfrændumi sveitinni alls góðs, og viljum ekkert láta eyðileggja þá vináttu. Mánaðarlegar, vikulegar og jafnvel daglegar hækkanir á öll- um nauðsynjavörum, bæði er- lendum og innlendum, hækkanir frá 25 til 85 prósent. Þetta geta konur minnkað án mikilla vandræða. Land- búnaðarafurðir eru hins vegar þær vörur, sem heimilin hafa notað mest af og mega sizt án vera. Þessar vörur koma þvi verzt við pyngju almennings. Undrun og furðu vakti fram- koma hinna háu þingmanna, sem þjóðin hefur trúað fyrir að vinna að sinum málum, gagn- vart hinum mikla fjölda hús- mæðra, sem voru samankomn- ar við Alþingishúsið, sagði Jónina að lokum. *SB \íw ' „Út með Halldór! — Ct með Halldór!!!!” En Halldór sást ekki og ólafur forsætisráðherra ekki heldur. Þá var úað — og svo dreiföu húsmæðurnar sér. — Ljósm: BG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.