Vísir - 27.03.1973, Blaðsíða 9
8
Visir. Þriðjudagur 27. marz. 1973
•23
Cr leik ÍR og Skarphéðins I I. deildinni á sunnudaginn. Birgir skorar fyrir ÍR.
Mynd. Bjarnleifur
KR-ingar halda
ennþá í vonina
— enn sigur í 1. deildinni í körfunni
Unnu Val með 87 stigum gegn 80
Það var ekki fyrr en á
niundu minútu seinni hálf-
leiks, sem KR-ingum tókst að
ná afgerandi forustu i leiknum
við Val i I. deildinni i körfu-
bolta. En það dugði þeim til
sigurs i leiknum á laugar-
daginn sem að öðru leyti var
mjög jafn og skemmtilegur.
í fyrri hálfleik. höfðu liðin forustu á vixl
og skildu aldrei nema eitt til tvö stig.
Valsarar virkuðu þó sterkari aðilinn en
voru klaufskir á köflum og nýttu illa tæki-
færin. Eftir gangi leiksins hefði ekki verið
ósanngjarnt, að þeir hefðu átt að ná 10 til
12 stiga forystu. Ekki bætti það úr skák,
að Þóri Magnússyni gekk illa aö stilla
„kanónuna” i langskotunum og hitti að-
eins fjórum sinnum i hálfleiknum. En
hvað um það, stigin ráða og leikar voru
jafnir i hálfleik 37 gegn 37.
Fyrstu átta minútur seinni hálfleiks
gekk á sama þófinu og rétt fyrir miðjan
hálfleikinn var staðan enn jöfn 54 gegn 54.
Þá kom þetta „örlagarika augnablik”,
sem svo oft ræður úrslitum i flokka-
iþróttum. KR-ingar gera fimm körfur án
þess að Valsmenn svari fyrir sig og var
munurinn þá orðinn 10 stig. Þar af gerðu
þeir Kolbeinn og Gunnar tvær körfur hvor
og Kristinn eina.
Þessum stigamun héldu KR-ingar að
mestu til loka leiksins en honum lauk með
sigri þeirra 87 stig gegn 80.
Þórir var stigahæstur Valsmanna, enda
hitti hann mjög vel, þegar á leikinn leið
og gerði 29 stig i seinni hálfleik. Bróðir
hans Jóhannes gerði 17 stig. Það háir
óneitanlega Valsmönnum hve háðir þeir
eru þvi i leik sinum, að Þórir skori úr
langskotum. Ef liðið, sem er mjög
ungt nær meiri breidd i leik sinn verður
það erfiður andstæðingur hverju liði.
Kolbeinn átti beztan leik hjá KR-ingum og
skoraði 31 stig. Kristinn skoraði 14 og
Guttormur 12. Kristinn átti góðan leik,
sérstaklega i vörninni. —ÓG
Fjörutíu stig Davíðs
gófu eins stigs sigur
— og Skarphéðinn er kominn í alvarlega fallhœttu
Njarövíkingar sigruöu
Skarphéöin i I. deild
körfuboltans í leik liðanna
á laugardaginn. Munurinn
Stórsigur
Júgóslava
Olympiumeistararnir
frá Júgóslaviu — silfur-
lið Tékka, Danir og
Vestur-Þjóðverjar
keppa nú á handknatt-
leiksmóti, sem stendur
yfir i Ljubljanu í Júgó-
slaviu.
í fyrsta leiknum léku Olympiu-
meistararnir við Dani og unnu
stórsigur. Lokatölur urðu 15-8
eftir að 9-6 stóð í hálfleik. Danir
hafa ekki alla sina beztu menn á
mótinu.
Og silfurlið
Tékkatapaði
í öðrum leiknum á mótinu i
Ljubljanu lék silfurlið Tékka frá
Munchen við Vestur-Þjóðverja.
Það var mjög tvlsýnn leikur lengi
vel, en að lokum stóðu Vest-
ur-Þjóðverjar uppi sem sigurveg-
arar 20-16. Staðan i hálfieik var
10-10. Þetta var fimmti sigur
Vestur-Þjóðverja gegn Tékkum i
19 landsleikjum I handknattleik.
mátti þó ekki minni vera,
aöeins eitt stig.
Leikurinn var mjög jafn, alveg
þar til liðnar voru sextán
minútur, en þá stóðu leikar 26
gegn 25, Njarðvikingum i vil.
Bæði liðin léku varnaraðferðina
„maður gegn manni” og skiptust
á að skora. Timann, sem eftir var
af hálfleiknum, höfðu Njarð-
vikingar nokkra yfirburði og
höfðu sjö stiga forustu i hálfleik,
37 gegn 30. Þar af skoraði Davið
Dewany tæpan helming þeirra
eða 18 stig.
Skarphéðinsmenn sóttu mjög i
sig veðrið strax i byrjun seinni
hálfleiks. Höfðu þeir jafnað
metin, þegar á áttundu minútu og
einu betur — 48 gegn 47. Höfðu
þeir siðan fjögurra til sex stiga
forustu lengst af. Harðastir i bar-
áttunni af þeirra mönnum voru
þeir Birkir og Þröstur.
Á 17. minútu höfðu þeir Skarp-
héðinsmenn enn 6 stiga forskot —
75 gegn 69 — en þá misstu þeir
bæði Þröst og Birki út af með
fimm villur.
Um svipað leyti skiptu Njarð-
vikingar um varnaraðferð, fóru
að leika „svæðis pressu”, þ.e.
þrir liðsmanna sóttu alveg fram
völlinn en tveir voru aftur. Þetta
kom Skarphéðinsmönnum i opna
skjöldu og náðu þeir Hilmar og
Davið að gera tvö stig hvor úr
vítum. Davið bætti siðan við
þremur körfum og höfðu Njarð-
vikingar þá náð forustu 79 gegn 78
og aðeins rúm minúta til
leiksloka. Skarphéðinn byrjaði
sókn en þeir misstu boltann.
Brynjar brauzt i gegn og gaf til
Jóns, sem skoraði fyrir Njarðvik.
Þeir Skarphéðingar gerðu eina
körfu, en siðan héldu Njarð-
vikingar boltanum þar til leik-
timinn rann út og lauk honum
með sigri þeirra 81 stig gegn 80.
Stigahæstur Njarðvikinga var
að venju Davið með 40 stig, en
beztir hjá Skarphéðni voru þeir
Birkir, sem skoraði 20 stig og
Þröstur, með 21. stig. Eftir að
hafa tapað þessum leik og siðan
fyrir IR á sunnudaginn er Skarp-
héðinn kominn i næstneðsta sæti.
Þeireru með 4 stig en einum leik
fleira en Þór, sem er með 2 stig.
—ÓG
Lokagreinarnar
gófu ísl. sigur
tsland sigraði írland á siðustu
greinunum — tveimur boð-
sundum — i landskeppninni i
Dublin fyrir helgi með 134 stigum
gegn 121.
Litlar likur virtust á sigri fyrir
þessar lokagreinar. trska sund-
fólkið hafði unnið upp forskot
tslands frá fyrri deginum og allt
var i járnum. En i boðsundunum
gekk vel — karlasveitin sigraði
örugglega, og irska kvenna-
sveitin gætti ekki að sér I
ákafanum og var dæmd úr leik.
Bezti keppandinn f landskeppn-
inni var Guðjón Guðmundsson.
Hann náði frábærum tima i 200 m
bringusundi — synti á 2:27.8 min.
að visu i 25 m laug, og bætti
islandsmet sitt mjög. Þá jafnaði
Guðjón metið f 100 m 1:09.3.
! Salome Þórisdóttir setti tslands-
i met I 100 m baksundi 1:13.1 min.
islenzku strákarnir voru yfirleitt
betri en írarnir, þó veikindi
Guðmundar Gislasonar, sem þó
keppti, settu þar aðeins strik :-i
reikning.
12 stiga frost beit
ekki á unglinganal
— Mikil þátttaka í bikarkeppni Skíðafélags Reykjavíkur
Þrátt fyrir storm og 12
stiga frost i Bláfjöllum á
laugardag tóku um 100
unglingar þátt i bikar-
keppni Skiðafélags
Reykjavíkur. Þetta var
annað unglingamót
félagsins i vetur.
Tvær brautir voru lagðar.
önnur fyrir keppendur I yngri
flokkunum, en hin innarlega i
dalnum fyrir eldri keppendur og
Staðan í
Fjórir leikir voru háðir i 1. deild
islandsmótsins i körfubolta um
helgina og urðu úrslit þessi:
Kr — Valur 87:80
UMFN — HSK 81:80
HSK — ÍR 71:91
ÍS — Armann 72:81
Staðan i 1. deildinni i körfubolta.
IR 12 12 0 1092: 789 24'
KR 12 11 1 1039: 833 22
Á 11 7 4 786: 783 14
IS 11 5 6 881: 890 10
UMFN 13 5 8 958:1124 10
Valur 10 3 7 817: 856 6
var sú braut lengri. Mótstjóri var
Haraldur Pálsson, en brautar-
stjóri Skarphéðinn Guðmunds-
son. Keppt er um 21 bikar á mót-
inu,sem verzlunin Sportval hefur
gefið, og er eitt mót eftir.
úslit urðu þessi:
Drengir 15 og 16 ára:
1. Guðni Ingvarss. KR 85.3
2. Kristján Kristjánss. Á 87.7
3. Magni Péturss. KR 88.8
Drengir 13 og 14 ára:
1. Ólafur Gröndal KR 85.9
2. Bj. Ingólfsson A 88.1
3. Hilmar Gunnarss. Á 99.0
1. deild
HSK 11 2 9 753 :854 4
Þór 10 1 9 539 :737 2
Stigahæstu leikmenn
Davið Dewany, UMFN 280
Agnar Friðrikss. IR 233
Kolbeinn Pálss., KR 217
Kristinn Jörundss., 1R 211
Bjarni Gunnar 1S 206
Jón Sigurðss, Á, 201
Þórir Magnúss., Val., 186
Einar Sigfúss., 1R, 184
Kolbeinn Kristinss. IR 161
Gunnar Þorvarðars., UMFN, 160
Stúlkur 13, 14 og 15 ára:
1. Jórunn Viggósd. KR 93.5
2. Guðbjörg Arnad. Á 117.3
Drengir 11 og 12 ára:
1.-2. Lárus Guðmss. Á 58.5
1.-2. Sig. Kolbeinss. A 58.5
3. PállValss. 1R 62.8
4. Helgi Geirharðss. Á 64.6
Drengir 10 ára og yngri:
1. Rikharður Sigurðss. Á 44.6
2. Jón Bergs SR 51.4
3. Kormákur Geirharðss.A 51.9
Stúlkur 11 og 12 ára:
1. Steinunn Sæmunds. A 55.6
2. Maria Viggósd. KR 57.3
3. Helga Magnúsd. KR 69.4
Stúlkur 10 ára og yngri:
1. Asa H. Sæmundsd. A 49.9
2. Auður Pétursd. A 57.3
3. Bryndis Pétursd. A 60.0
Anna María Pröll var búin a{
tryggja sér heimsmeistaratitil
inn í alpagreinum kvenna áðui
en keppnin hófst i Himnarfkis
dal I Kaliforníu. Hún var róleg i
keppninni þar — enda ekk:
keppt I bruni — en keyrði þá
fallega brautirnar, einkum i
stórsviginu. Þá var þessi mynd
tekin af heimsmeistaranum —
ineistaranum þriöja árið í röð
Visir. Þriðjudagur 27. marz. 1973
9
n:-,j
Silfurmaðurinn slóst
við keppnisstjórann!
— en Gustavo Thoeni skrifaði nýtt blað í sögu heimsbikarsins,
þegar hann varð heimsmeistari þriðja órið í röð
Franska stúlkan Patricia
Emonet/ sem er aðeins 17
ára, gerði sér lítið fyrir og
vann bæði svig og stórsvig í
Himnarikisdal í Kaliforniu
á föstudag og laugardag.
Það voru tvö síðustu mótin
i keppninni um heims-
bikarinn hjá kvenfólkinu
og með þeim 50 stigum,
sem Patricia hlaut, skauzt
hún upp í þriðja sæti
samanlagt i keppninni.
Anna Maria Pröll, Austurriki,
var fyrir nokkru orðin sigur-
vegari þriðja árið i röð, og
Monika Kaserer, Austurriki,
hafði einnig jafn örugglega tryggt
sér annað sætið.
Lokastigatalan var þannig.
1. Pröll, Austurriki, 295
2. Kaserer, Austurriki, 229
3. Emonet, Frakkland, 164
4. R. Mittermaier, V-Þ. 151
5. H. Wenzel, Lichtenst. 111
6. W. Drexel, Austurr. 106
7. J. Rouvier, Frakkl. 103
8. M. Cochran, USA, 84
9. I. Gfölner, Austurr. 83
10. Lukasser, Austurr. 65
1 stórsviginun á föstudag
sigraði Emonet á 1:41.86 min.
Konika Kaserer varð önnur á
1:43.79 og Christine Rolland,
Frakklandi, þriðja á 1:44.33 min.
I svigkeppninni hafði Emonet
einnig yfirburði — varð fyrst á
88.82 sek. Fabience Sejrat,
Frakklandi, varð önnur á 90.14
sek. Þá Zechmeister, Vestur--
Þýzkalandi, á 90.41. Monika
Kaserer varð fjórða á 90.71 sek.
A laugardag sigraði Jean Noel
Augert i svigkeppni karla i
keppninni um heimsbikarinn.
Frakkinn fékk timann 106,02 sek.
Bobby Cochran, Bandarikjunum,
varð annar á 106.38 sek. og þriðji
varð Italinn Pietrogiovanna á
107.63 sek. David Zwilling,
Austurriki, varð þar i sjötta sæti,
en Gustavo Thoeni i 10. sæti.
Fyrir siðustu keppnina hafði
Thoeni samtals 155 stig, en
Zwilling 151. I stórsviginu á
sunnudag hlaut Thoeni svo sex
stig og tryggði sér heims-
meistaratitilinn þriðja árið i röð.
Zwilling komst þá ekki á blað, og
varð að láta sér nægja annað
sætið. Hins vegar vakti hann
mikla athygli deginum áður,
þegar hann lenti i slagsmálum
við mótstjórann Eric Auer og það
rétt áður en keppnin hóft i
sviginu. Þeir skiptust á höggum,
en voru skildir áður en þeir höföu
slasað hvorn annan. Zwilling
hafði þá farið inn á lokakafla
brautarinnar á leið upp á rás-
staðinn. Auer rak hann á brott
með fyrrgreindum afleiðingum r—
Zwilling sagði að mótstjórinn
hefði slegið til sin, en hann sagði
aftur á móti, að enginn mætti fara
inn á brautina. Það er of hættu-
legt og sjónvarpið leyfir það ekki.
Með sigri sinum i keppninni
hefur Gustavo Thoeni skrifað nýtt
blað i sögu heimsbikarsins. Hann
varð þriðja árið i röð heims-
meistari. Slikt hefur ekki skeð
áður — skiðakapparnir frægu,
Jean-Claude Killy.Frakklandi,
og Karl Schranz, Austurriki,
sigruðu tvivegis hvor i keppninni.
Killy nú
fremstur
Skiðakappinn kunni, Jean
Claude Killy, hefur nú náð forustu
i alpakeppni atvinnumanna. A
laugardag sigraði hann i stórsvigi
á móti Benson og Hedges I Colo-
rado. Fyrir sigurinn hlaut hann 25
stig og rúmlega tvö hundruð þús-
und krónur i verðlaun. Killy hefur
nú 273 stig I keppninni, en i öðru
sæti er Austurrikismaðurinn Har-
ald Stuefer með 255 stig, svo ekki
munar nú miklu. Killy hefur
unnið sér inn 2.5 milljónir kr. i
keppni atvinnumanna I vetur.
— Víðavangshlaup
Islands var afar
vel heppnað
Það var mikið fjör í
Víðavangshlaupi Is-
lands, sem háð var í
Laugarda Inum á
sunnudag. Keppendur
voru um 200 og var
keppt í þremur flokk-
um karla og einum
flokki kvenna.
Athyglin beindist mjög að
kvennaflokknum, þar sem
enska stúlkan Lynn Ward,
sem sigraði svo örugglega i
Alafosshlaupinu, var meðal
keppenda. En nú létu þær
Ragnhildur Pálsdóttir og
Lilja Guðmundsdóttir engan
bilbug á sér finna og sigruðu
ensku stúlkuna örugglega.
Ragnhildur var fyrst á 3:48.5
min. Lilja hljóp á 3:55.0 min.
en Lynn varð þriðja á 4:02.2
min. 21 stúlka lauk hlaupinu.
Agúst Ásgeirsson, 1R, er
kominn I sérflokk i lengri
hlaupunum hér á landi og
verður gaman að fylgjast
með þessum efnilega hlaup-
ara, þegar á brautirnar
kemur i sumar. Hann sigraði
með yfirburðum i karla-
flokki — hljóp á 13:35.3. min.
Jón H. Sigurðsson, HSK,
varð annar á 13:42.5 min. en
hann hafði haft forustu fyrri
hringinn. Þriðji varð efni-
legur hlaupari úr KR, Emil
Björnsson, á 14:03.9 min.
I piltaflokki sigraði Einar
Óskarsson, hinn ágæti hlaup-
ari úr Kópavogi, eftir mjög
harða keppni við Július
Hjörleifsson, IR. Einar hljóp
á 6:15.5 sek., en Július
varð tveimur sekúndubrot-
um á eftir. I piltaflokki —
keppendur 14 ára og yngri —
var þátttaka mest, eða um
60. Þar sigraði Guðmundur
Geirdal, UMSK, á 3:13.6
min. og hafði talsverða yfir-
burði. Annar varð Ásgeir
Þór Eiriksson, 1R á 3:21.5
min.
Á mynd Bjarnleifs hér efst
á siðunni má sjá, þegar
keppendur i kvennaflokki
lögðu áf stað. Enska stúlkan
Lynn Ward er fremst (nr. 6),
en Ragnhildur Pálsdóttir,
sigurvegarinn, við hlið
hennar. Ekki komum við
auga á Lilju i hópnum, en
það er greinilega mikið
kapp i stúlkunum.