Vísir - 27.03.1973, Qupperneq 16
VÍSI
Þriðjudagur 27. marz. 1973
Húsmœður
y
hafa ekki
dregið
saman
seglin
Svo virðist sem húsmæður á
höfuðborgarsvæðinu hafi ekki
dregið eins störlega úr kaupum
á landbúnaðarafuröum og við
var aö búast. Þær verzlanir,
sem Vlsir hafði tal af I morgun,
gátu að minnsta kosti ekki
greint neinn samdrátt enn sem
komið væri. „En þær hafa mikiö
talað um hækkunina, og þaö er
ekki ósennilegt, að þær eigi eftir
að minnka eitthvaö við sig
kaupin á næstu dögum,” hélt ein
afgreiöslustúlkan.
,,Ég sem formaður Hús-
mæðrafélags Reykjavlkur,”
sagöi Dagrún Kristjánsdóttir I
stuttu spjalli viö VIsi, „vil, aö
þaö komi skýrt fram, aö frá
upphafi hef ég verið á móti þvi,
aö aögeröir húsmæöra beindust
einvöröungu aö landbúnaðaraf-
uröum. Þaö hefur svo margt
annað hækkað óþægilega. En
sjálfsagt á röðin eftir aö koma
slöar aö fleiri vörum.”
Þá vildi Dagrún jafnframt,
aö sá mikli misskilningur væri
leiöréttur, aö húsmæður væru
aö gera árás . á bændastétt-
ina. „Okkur reykviskum hús-
mæörum þótti miöur, hvernig
þingmenn reyndu aö túlka að-
geröir okkar á þann veg og etja
okkur saman við bændakonurn-
ar, sem sóttar höfðu verið
austur fyrir fjall. Já, ég segi
sóttar. Þaö þarf enginn að segja
okkur, aö koma þeirra hafi
komið þingmönnum aö óvörum.
Þeirra beiðmeiraiaösegja kaffi-
borö I þinghúsirtu. Það vitum
við,” sagöi Dagrun.
Hún lét þess aö lokum getiö að
stjórn Húsmæörafélagsins
stefndi að þvi aö halda fund með
húsmæörum hið allra fyrsta.
„Og þá gerum við okkur vonir
um að fá jafnvel einhvern ráð-
herranna til að svara spurning-
um okkar,” sagöi formaðurinn.
— ÞJM
DESMOND
BAGLEY
HINGAÐ
Skáldsagnahöfundurinn frægi
Desmond Bagley kemur hingaö
til lands I júnl næstkomandi.
Hann veröur viö fimmta mann.
*Meö honum veröa hér auk konu
hans, Jeffery Iteeves, sem hefur
réttinn til aö kvikmynda bókina
„Út I óvissuna” og tveir menn aö
auki.
Markmiðið meö ferðinni er aö
kanna aöstæöur hér fyrir væntan-
lega kvikmyndatöku sögunnar.
Hún er fyrirhuguð sumarið ’74.
Bókin „Út i óvissuna” gerðist
eins og kunnugt er á Islandi og á
að taka hana i þvi umhverfi, sem
sagt er frá i bókinni. Meðal
annars við Kleifarvatn og i
Asbyrgi.
Ein bóka rithöfundarins hefur
þegar verið kvikmynduð, er það
„Gildran’. Var þvi verki lokið um
siðustu jól. Aðalhlutverk i þeirri
mynd léku þau Paul Newman og
Dominiqe Sanda. Mun hún, þegar
þar að kemur, verða sýnd i
Austurbæjarbiói. —Ló
Gas að aukast í vesturhluta bœjarins
FÆKKA ííYJUM
UM 150 MANNS
Gas viröist nú vera aö aukast I
vesturhluta Vestmannaeyja-
kaupstaöar. Gas var reyndar
lltið fyrrihluta gærdagsins, en I
gærkvöidi var þaö fariö aö auk-
ast aftur, þar sem veöur lygndi
talsvert. Læknanemar, sem nú
eru staddir I Eyjum viö gas-
mælingar, fræddu Vlsismenn á
þvi I gær, aö eftir þeim mæling-
um sem gerðar hefðu veriö I
vesturbænum, væri gasið sýni-
leg að aukast þar.
Akveöið hefur nú veriö að
fækka mannskap i Eyjum um
150 manns, að þvi er lögreglan á
staðnum sagði i viðtali við blað-
ið. Þá munu verða um 250
manns i Eyjum, en eins og er
eru þar talsvert fleiri.
I gær var allt rafmagnslaust i
bænum, og einnig var orðinn lit-
ill kraftur á vatni i krönum.
Menn tóku sig til og söfnuðu
vatni i baðkör og fötur, þvi að
um uppgjöf er ekki aö ræða
strax. Fæstir hafa hug á þvi að
yfirgefa Eyjarnar fyrr en i
lengstu lög, og menn voru jafn-
vel á þeim buxunum að láta allt
fri lönd og leiö, af ótta við að fá
ekki tækifæri til þess að koma
aftur.
Rafmagn var sett á Illugagötu
siðla dags i gær, en notast var
við rafstöð I gúanóinu, en hún er
240kw. Litlar varastöðvarerunú
i gangi við Gagnfræðaskólann
og einnig er von á 500 kw. raf-
stöð til Eyja.
Menn fluttu úr húsum i bæn-
um sem ekki fengu rafmagn, og
fjölmennast er nú á Illugagötu
sem stendur vestast i bænum.
Þó að vatnslaust veröi I Eyj-
um, er þó til vatn sem hægt er af
að taka, svo sem i brunnum við
Hótel HB, Gagnfræöaskólann og
á fleiri stöðum.
Svartsýni eykst meðal
manna, þó að enn sé rikjandi
hrjúf kimni. — EA
Þaö slöasta af einu húsanna llöur undir lok. Þaö er sjónvarps-
loftnetiö, sem veröur eidi og eimyrju aö bráö, hrauniö vellur
yfir þakiö.
Víðtœk athugun
ó landgrœðslu
og landnýtingu
niðurstöður ekki fyrr en í haust
„Þaö veröur ekki fyrr en i haust
eða byrjun næsta vetrar, sem viö
fáum niðurstöður af viötækum
athugunum, sem veriö er aö gera
á ástandinu I landgræöslu og
landnýtingu. Viö reynum aö
meta, hversu stórt verkefniö sé,
bæði að græöa landiö og tryggja
beztu nýtingu á gróöri”.
Þetta segir Eysteinn Jónsson
alþingismaður, formaður land-
nýtingarnefndar. „Nefndin
starfar nú i undirnefndum. Viö
höfum sent búnaðarsamböndum
og gróöurverndarfélögum um allt
land beiðni um álit um ástandið á
þeim svæðum, sem þau taka til.
Ennfremur höfum viö náin tengsl
við Landgræðslu rikisins, Skóg-
rækt rikisins, Stéttarsamband
bænda, Rannsóknarstofnun land-
búnaðarins og fleiri aðila. Ég lit á
þetta sem tvær hliöar sama
máls, annars vegar land-
græðsluna og hins vegar félags-
legu hliðina, það er að segja beit-
arþolið og nýtingu á gróðri”.
„Ég þori ekki að segja, hvort
við séum enn að tapa i barátt-
unni,” segir Eysteinn um eyðingu
lands, uppblástur o.fl. „Vist er,
að alltaf eru einhver svæði að
ganga úr sér, og við stefnum að
þvi að gera myndarlegt átak
þjóðhátiðarárið”.
—HH
Hvert húsiö af ööru brennur I Eyjum, — og I sumum tilvikum horfa íbúar þeirra og eigendur hljóöir á, þegar húsin tortímast I eldi eöa
hrauni. Og gasiö heldur stööugt áfram aö angra Ibúa þeirra húsa, sem enn standa.Minni myndin sýnireinn húseigenda fylgjast með
húsi slnu veröa hrauninu aö bráö. (Ljósm. Guöm. Sigf.)
W'
skutla mér upp í rúm"
„Ætla að vaka 100
tíma og svo..
„Allt, sem ég sé fyrir mér, er
stór, mjúkur koddi I stóru,
mjúku rúmi”, sagði Craig
Johnson maraþonútvarps-
þulurinn I Keflavikurútvarpinu
þcgar við töluðum viö hann I
morgun.
Hann er sem sagt búinn að
vaka um niutiu tima og heldur
ennþá höfði ogvelþað. Röddin
var lág i simanum, og hann
sagði okkur, að það væri orðið
svQlitið erfitt fyrir sig að tala
við 'fólkið i útvarpið.
Við höfum raunar kveikt á
Keflavikurútvarpinu öðru hvoru
til að heyra, hvernig hann hefði
það. I gærkvöldi um kvöld-
matinn var frekar lágt á honum
risiö. Hann kynnti bara einstaka
lag. Um miðnættið siðustu nótt
var hann hins vegar orðinn hinn
sprækasti, og i morgun kynnti
hann lög af fullum krafti.
„Ég ætla að vera það lengi, að
ég nái 100 timum. Það verður
klukkan 10 i kvöld, sem timinn
rennur út, en ég verð kannski
eitthvað lengur. Það verður þó
örugglega i siðasta lagi milli tiu
i kvöld og miðnættis, að ég
hætti.
— Þú hlakkar sem sé til að
fara að sofa?
— Já, ég ætla að ganga héðan
út. Og þegar ég kem að rúminu
minu, þá ætla ég að stökkva upp
i það — og sofna á stundinni!
—LÓ