Vísir - 05.06.1973, Síða 2

Vísir - 05.06.1973, Síða 2
2 Visir. Þriðjudagur 5. júni 1973. risDtm Iivert teljið þér að eigi að vera næsta skref íslendinga í Land- helgismálinu? Ingóifur Gunnlaugsson: Eftir þvi sem Bretar herða á, eigum við tvimælalaust aö heröa á móti. ts- lendingar eiga að sýna hörku. Guömundur lleigason, málara- mcistari: Við eigum að halda ái'ram á sömu braut og verið hef- ur og hvergi að vikja. Einnig eig- um við að taka togara hið lyrsta. (iuðmundur Jónsson. verkstjóri: Halda okkur við efnið, halda áfram á sömu braut, og ef mögu- legt er, eigum við að taka togara. Ég vil engar sérstakar aðgerðir, bara strögla. Sigriður Ilinriksdóttir, húsmóðir: Við eigum sem fyrr að standa á okkar rétti, og hvergi að vikja. Það mætti gjarnan taka togara, og slita stjórnmálasambandinu við Breta. Hafsteinn Heiðarsson, verka- maður: Við eigum að skjóta nokkra togara niöur, taka sem flesta og hirða af þeim veiðar- færi. Sigurður Sigurbjartsson, toll- vörður: Færa út i hundrað milur ogherða aðgerðirnar með þvi að taka togara og færa til hafnar. „Margt líkt með ykkur, okkur, Skotum og írum" — Rœtt við byggðaþróunarróðherra Nýfundnalands, sem ,,Þá daga, sem við höfum dval- ið hér á landi höfum við skoðaö fjölda fyrirtækja bæði hér á Akur- eyri og i Reykjavik og nágrenni”, sagði O’Reilly og sýndi okkur þéttskrifaða minnisbók, með minnisatriðum úr ferðinni. ,,Og svo höfum við jafnframt tekið átta ljósmyndafilmur i hinum ýmsu atvinriufyrirtækjum”, bætti hann við. hér voru ó ferð ,,Það vekur sérstaka athygli okkar, hvað fá- menn pláss á þessu landi geta verið með mikinn og margvislegan iðn- rekstur og aðra starf- semi”, sagði James G. Reid, ráðherra i byggðaþróunarmálum Nýfundnalands. En blm. Visis ræddi stuttlega við hann og aðstoðarráð- herra hans, Gerhard O’Reilly, er þeir lituðust um á Akureyri i siðustu viku. í síðustu viku Hann kvað ferð þeirra O’Reilly hingað stafa fyrst og fremst af þvi, að með þessu landi og þeirra væri svo margt sameiginíegt, og þá fyrst og fremst dreifbýlið. „En það sem lika vekur athygli okkar, er það, hversu áþekkar manngerðir tslendingar og þjóð okkar eru”, sagði ráöherr- ann.Hvaða þriðju þjóð hann hafi hitt fyrir, sem hann aftur vildi likja þessum tveim þjóðum sam- an við? „Skota og tra”, svaraði hann umsvifalaust. Þeir James G. Reid og Gerhard O’Reilly voru báðir þeirrar skoð- unar, að tslendingar væru búnir að ná eins langt og fólksfjöldinn i landinu framast leyfði. Þjóð þeirra mætti margt af okkur læra, en hins vegar voru þeir ekki tilbúnir til að nefna neitt það, sem við gætum af þeim lært. „Ekki eftir þá stuttu dvöl, sem við höf- um átt hér”. Tvennt nefndu þeir, sem þeim þykir athyglisverðast af þvi sem þeir hafa skoðað hér. „Annars vegar eru ullarvörurnar, sem ykkur hefur tekizt að gera að svo stórfenglegri útflutningsvöru. Hitt er svo loðnan, sem þið leggið niður, og hreinlætið við allan fiskiðnaðinn”, sagði Reid. Eins þótti þeim athyglisvert, hversu vel við getum séð okkur fyrir hráefnum. Það væri aðdá- unarvert, hve litið við þyrftum að flytja inn af þeim hráefnum, sem við notuðum til okkar fram- leiðslu, Ráðherrarnir héldu héðan til New York, siðastliðinn föstudag, eftir vikulanga dvöl hér. — ÞJM. Aðspurðir um viðhorf þeirra til landhelgisdeilunnar svöruðu þeir þvi til, að landar þeirra fylgdust vel með þeim málum. „Við höfum nefnilega sjálfir i hyggju að færa fiskveiðilögsögu okkar úr 12 mil- um i að minnsta kosti 50. Nú þeg- ar höfum við rétt á öllu nema fiski i allt að 200 milur”, sagði ráð- herrann. „Ötrúlega margir hafa átt erfitt með að trúa því, að ég væri útlendingur. Er ég svona Islendingsleg- ur?”, spurði aðstoðarráðherrann, sem hér stendur með ráðherrann sinn á vinstri hönd, en til hægri leið- sögumann þeirra á Akureyri, Svein Gústavsson framkvæmdastjóra. 400 FLUGVÉLAR NIÐRI í KJALLARA — og hundrað skriðdrekar Nákvæm likön af tveiinur landhelgisgæ/.luflugvélum eru ntcðal gripa á sýningu, sem islen/.ku plastmódelsa m tökin standa nú fyrir. Flugvélarnar eru TF-Rán l'yrsta landhelgisgæ/Iu- flugvélin og svo cinu af Grumman flugbátunum, sem leigöir voru, en stóðu stutt við vegna ýmissa erfiðleika. Islenzku plastmódelsamtökin eru ung að árum, en þrátt fyrir það er ótrúlega mikið úrval af vönduðum plastmódelum, sem þau eru með á sýningu sinni, en hún er i kjallaranum á Frikirkju- vegi 11. Baldur Sveinsson, for- maður plastmódelsamtakanna, Þetta er hið nákvæma likan af Catalinu flugbát Landhelgisgæzlunnar, sem er á sýningunni. Módelið smiðaði Baldur Sveinsson. Hér sést yfir smáhluta af sýningargripunum. sagði að sumir hinna eldri félaga hefðu fengizt við módelsmiði i allt að 20 ár, en meirihluti sam- takanna skipa ungir piltar, sem eru að fikra sig áfram.i módela samsetningu. Sýningin er opin' frá kl. 18 daglega þessa viku. Má bjóða gestum hvað sem er? Lesendur ■J$L hafa /Jjkim'töé' Leiðrétting Litilleg mistök urðu við úr- vinnslu handrits vegna geðdeildarbyggingar við Landsspitala Islands i VISI 30. maí s.l. — Prentvillur voru ekki meinlegar, en með 49,8 fer- metrum er átt við meðaltalsfer- metratölu ætlaða sólarhrings- vistunarsjúklingum á legudeild- um, en fermetratalið lækkar i 41,5 fermetra, þegar dag- vistunarsjúklingar bætast við legudeildina. — Almennt eru þetta lægri fermetratölur pr sjúkl. á legudeildum en annars staðar tiðkast. Vinsaml. er beðið velvirðingar og leiðréttingar á framangreindu. — Flestum mun efst i huga, að nú er mjög bágborin vistunarað- staða geð- og taugasjúklinga, — hin brýna þörf fyrir aukið vistunarrými — fái viðunanlega lausn sem allra fyrst. Asgeir Bjarnason, p.t. framkvæmdastjóri Geöverndarfélags islands. Reiöur hótelgestur skrifar: Hvernig er það eiginlega, er hægt að bjóða gestum á veitinga- húsum borgarinnar hvað sem er? Úndirritaður var staddur á Hótel Sögu i gærkvöldi i góðra vina hópi. Gerðust menn ölteítir i meirá lagi fen héldu þó fullu minni. Kona nokkur gaf sig á tal við bréfritara og fór vel á með þeim um hrið. Lauk þó sam- skiptum þeirra á þann veg að kvenvargurinn jós skyndilega fleytifullu glasi af kámugu vini yfir viðmælanda sinn. Skeiðaði hún siðan á brott eins og ekkert nefði i skorist og virtust dyra- verðir og annað þjónustulið hafa hið bezta gaman af. Ef gestir á veitingahúsum eiga ekki að hafa frið til að drekka sitt vin i friði fyrir kolvitlausum kellingum, þá geta þeir sannarlega átt sig i framtiðinni. G. HRINGIÐ í síma 8-66-11 KL13-15

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.