Vísir - 05.06.1973, Page 4

Vísir - 05.06.1973, Page 4
4 Visir. ÞriOjudagur 5. júni 1973. R. NIXON — G. POMPIDOU Meeting in Reykjavik Pöntuð UMSLÖG óskast sótt í dag og ó morgun, miðvikudag. Eftir það verða þau seld öðrum. Frímerkjamiðstöðin, Skólav.stig 21a. Frímerkjahúsið, Lækjargötu 6a. Rýmingarsala — Verzlunin hœttir Verzlunin Litlakjör auglýsir útsölu á mat- vörum, frá og með þriðjudeginum 5. júni. Verzlunin Litlakjör. —S m u rb ra u ðstof a n t/---------------- BJORNINN Niálsgata 49 Sími '5105 MEGA BAÐ- FÖT EKKI BLOTNA? Yfirvöld Marokko tóku viöbragð þegar brezkur ljós- myndari óskaöi eftir að fá að taka ljósmyndir af þrem þekkt- um ljósmyndafyrirsætum á Miðjarðarhafsströndum. Myndirnar áttu nefnilega að sýna nýjustu tízkuna i þvi topp- Iausa. Þeim brezku var svo gefið leyfi til að ljósmynda eins og þá lysti I landinu — en topp- lausar máttu stúlkurnar hvergi sýna sig undir berum himni. Tveir lögreglumenn fengu þann starfa, að fylgja ljós- myndaranum og stúlkunum hans fast eftir til að gæta velsæmisins. Þeir gátu ekki annað en kinkað kolli til samþykkis, þegar ljósmyndafyrirsætan Chekkie Perkins gekk fram fyrir þá og sýndi þeim bolinn, sem hún hugðist vera I á einni myndinni. Að fengnu leyfinu hoppaði stúlkan út i vatnið og kom svo aftur upp á bakkann — og þá komust verðir laganna i mikinn vanda. Þvi hvar er að finna þann lagabókstaf, sem segir að baðföt megi ekki blotna.??!! — Hver er aldur yðar, fröken? — 29 ár og nokkrir mánuðir. — Hversu margir? — t sannleika sagt 136..... K'ennarinn horfði reiðilega á þá félaganna Pétur og Jens, sem sátu hlið við hlið: — Pétur og Jens! Þið tveir haf- ið sömu villurnar i ensku stilun- um ykkar. Hvernig skyldi standa á þvi? — Tja, það skyldi þó ekki stafa af þvi, að við höfum sama enskukennara....??!!!! Arni litli mætti prestinum á götu og notaði tækifærið til að fá svar við brennandi spurningu: — Er það rétt, að hann Guð hafi skapað alla hluti, herra prestur? — Já, Arni minn. — Lika þig? — Lika mig, já. — Og lika mig? — Já, lika þig, Arni. — Ja, þá verð ég nú að segja, að honum hefur bara farið tals- vert mikið fram.... — Nú er ég neyddur til að biðja um launahækkun, herra fram- kvæmdastjóri. — Svona allt i einu? — Já, þvi nú eru börnin min orðin nógu gömul til að komast að þvi, að félagar þeirra fá að borða oftar en einu sinni á dag... Og hér er svo að lokum ágætur samanburður á þvi, hvað búast má við að stúlkur um viða veröld kunna að segja fyrst eftir ástar- leikinn: Sú ameriska: Þú getur reitt þig á það, að við kvenfólkið erum bet- ur að okkur um flesta hluti en þið karlmennirnir. Sú italska: Núna hlýtur þú að hata mig. Sú spænska: Nú er ég þin um ókomna framtið. Sú þýzka: Nú ættum við endi- lega að snara okkur á bjórkrá að fá okkur pylsur að borða.... Sú sænska: Ég held ég láti það nú bara eftir mér að skrópa i skólanum i dag. Sú danska: Fyrirgefðu, en ég hlustaði ekki eftir þvi, hvað þú sagðir. Hvað sagðistu heita? Sú franska: Fyrir þetta fæ ég áreiðanlega nýja kápu, oui? Og svo loks sú islenzka, sem við getum imyndað okkur, að hugsi eitthvað á þessa leið: Skyldi hún mamma verða reiðubúin til að passa krakkann fyrir mig? Dean-Martin — ameriska sjónvarps-og kvik- myndastjarnan — neyddist til aö láta af hendi liðlega einn' milljarð isl. króna til aðfá Igegn skilnað frá fyrri konu sinni. Há- værar raddir höfðu haldið þvi fram, að hann hafi sloppið með sem næst 17 milljónir, en sann- leikurinn hefur nú verið opin- beraður.. Frank Sinatra hefur i hyggu, að fara að dæmi félaga síns, Marteins, og ganga I hjónaband á næstunni. Hann er orðinn gamall og hugmynda- fluginu farið að förlast. Hann ætlar að láta pússa sig saman tyið sina fyrstu eiginkonu á nýj- an leik, nefnilega Nancy Barbato, sem nú er orðin 53ja ára gömul. Ivan Rebroff — þýzk-rússneski söngvarinn — er byrjaður strangan megrunarkúr. Hafði hann náð af sér einum tuttugu og tveimur kilóum þegar siðast fréttist.... I

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.