Vísir - 05.06.1973, Page 7

Vísir - 05.06.1973, Page 7
Visir. Þriöjudagur 5. júni 1973. 7 eftir þvi hvort bústaBurinn er við læk, vatn eða á, þar sem hægt er að veiða og getur það munað á verði 100-200 þús. kr. eða meiru. Það er eiginlega sama sagan með lönd undir sumarbústaði, þar er lika frekar litið framboð Lönd i brastarskógi eru til sölu og kostar 1 hektari frá 350-500 þús. kr. Eitthvað er til löndum i nálægð Reykjavikur við vötn og fara'þau á um 300 þús. kr. Þá er lika töluvert um að bændur láti lönd undir sumarbústaði og eru það þá oftast leigulönd. Það er erfitt að fá keyptar jarðir, þvi hrepparnir reyna yfirleitt að neyta forkaupsréttar sins. Við spurðumst fyrir um verö á þeim sumarbústöðum, sem voru á sýningunni ,,Heimilið 73”. Draumahúsið, sem svo hefur verið nefnt er hægt að fá i mismunandi stærðum og kosta 30fermetrar um 650 þús. kr., 50 ferm. kosta um 990 þús. kr. og 70 ferm. um 1120 þús. kr. innifalið i fermetrafjölda er 10 ferm. verönd undir þaki á hverjum bústað. Talið er að það kosti 100- 120 þús. að reisa þá, en þeir koma i 1 m breiðum einingum og samsetningin tckur um það bil viku. Annebergs-húsið kostar 750-800 þús. það sem er 50 fermetrar að stærð, hægt er að fá þau i fleiri stærðum og koma þau einnig til landsins i pörtum. Umsjón: Erna V. Ingólfsdóftir Hvað kosta sumarbústaðir? Nú, þegar við gerum okkur Ijóst að sumarið er loksins komið, þá rjúkum við upp til handa og fóta og viljum komast út úr bænum. Nú fer fólk m.a. að hugsa um sumarbú- staði fyriralvöru og reyna að láta drauma sína rætast um að geta ein- hvers staðar átt afdrep á fallegum stað í burtu frá amstri dagsins, þar sem ekki þarf að vera i þessu eilífa kapphlaupi við tímann. Við spurðum nokkra fast- eignasala um möguleika á að kaupa sér sumarbústað. Þeir Annebergs-húsið á sýningunni „Heimilið 73”. Drauinahúsið á sýningunni „Ileimilið 73". þar sem þetta fer svo mjög eftir aðstæðum. Ef við svo litum aðeins á innréttingakostnað, þá kosta þær um 200 þús. kr. i 50 ferm. draumahús. Það eru lika margir, sem farnir eru að kaupa sér hjólhýsi og er hægt að fá þau frá 195-37C þús. kr. allt eftir stærð og iburði. T.d. kostar hjólhýsi með svefn- rými fyrir 5 frá Gisla Jónssyni & Co. 366 þús. 1 þvi eru öll mögu- leg þægindi. Það er isskápur, eldavél, sérstakt grill þar sem maður getur snöggsteikt sér kjötrétti og ofn sem hitar upp hjólhýsið, allt er þetta tengt gaskút. Þá er vaskur i eldhúsi og á salerni og er vatnsdæla með, sem gengur fyrir raf- magni. Húsgögnin gerð þannig að þeim er hægt að smella upp og breyta i rúmstæði á svipstundu. Hægt er að skilja hjólhýsin eftir t.d. á Lauga- vatni, eða i Húsafellsskógi gegn vægu gjaldi. Svo er það lika sú hliðin að menn vilji byggja sinn sumar- bústað sjálfir, og það er lika hægt án þess að það þurfi að kosta mjög mikið. T.d. er hægl að fá ágætis eldhúsinnréttingu með þvi að raða og negla saman nokkrum ölkössum, negla siðan hörplötu i þeirri stærð sem hentar, plastleggja hana og fá sér svo eitthvað litfagurt bómullarefni og rykkja i kring, þar með er sá vandi leystur. Húsgögn i bústaðinn mega gjarna vera dálitiö grófgerö og meira að segja eins og þeim sé klambrað saman. Flestir karl- menn hafa gaman af að dunda við smiðar og þarna kemur tækifærið til þess, þvi engum þykir tiltakanlegt hvernig hlut- irnir eru smíðaðir, ef maöur hefur aöeins gert það sjálfur og átt að þvi frumkvæðið, það er bara að þora að fara eftir sinum eigin smekk, meira að segja geta krakkarnir fengið að taka þátt i smiðinni. Þar erum við einmitt komin að einum megin- tilgangi við að fara i sumar- bústað, en þaö er að finna Eldhúsinnrétting f draumahúsinu sameiginlegt áhugamál, sem allir i fjölskyldunni geta tekið þátt i. Það er um að gera að allir taki þátt i fyrirtækinu af lifiog sál. Annað, sem tilvalið er fyrir alla að taka þátt i, er að útbúa sér útigrill og er það hægt ein- faldlega með þvi að skorða teina eða járnplötu milli tveggja steina og þar með er komið fyrirtaks grill. Jarðhús til að geyma silunginn.mjólkina og smjörið i er lika ómissandi og er þá hægt að klæða trékassa að innan með plasteinangrunarplötum, hafa lika einangrað lok á og moka mold yfir og tyrfa siöan. Þarna er þá kominn smáhóll, sem gæti veriö prýði i umhverfinu. Nú er bara um að gera að byrja einhvers staðar og það þarf ekki endilega að vera stórt til að skýla fyrir regni og vindum og hvila mann,þó ekki væri nema fyrir þessum eilifu simhringingum, þó enginn vilji i alvöru vera án simans. E.V.I Sumarbústaður, sem klæddur er með viðhaldsfríum plast- lengjum. voru allir sammála um að mjög litiö framboð væri á sumar- bústöðum en þó aíltaf eitthvað, hins vegar væri mikið spurt um bústaði, sérstaklega á þessum tima. Það tiðkast lika töluvert að selja bústaði manna á milli og koma þeir þá auðvitað aldrei á söluskrá hjá fasteignasölum. Söluverð á sumarbústöðum er ákaflega mismunandi og fer auðvitað eftir ásigkomulagi og staðsetningu. Algengasta stærð er 30-40 fermetrar og þeir kosta allt frá 300-1200 þús. kr. og jafn- vel fara þeir upp i 2.5 milljónir- kr., en þá er auðvitað verið að tala um mikið stærri hús. Einnig fer verðið mjög mikið Þriðji bústaðurinn, sem sýndur var á sýningunni er nú raunar ekki til sölu en var byggður sér- staklega af Andra h.f. til að sýna viðhaldsfria plastklæðn- ingu, sem kostar 840 kr. fer- meterinn. Það kostaði um 400 þús. kr. að byggja hann. Hann er 25 ferm. aö stærð fyrir utan 10 ferm. verönd undir þaki. Allir bústaöirnir eru einangr- aðir til þess að hægt sé aö búa i þeim allt áriö. Svo kemur kostnaðurinn viö grunninn og kostar t.d. aö steypa steinstólpa um 1200-1300 kr. á hvern fermeter, en i rauninni er erfitt að áætla slikt, Smáhugmynd um þær gerðir af hjólhýsum, sem eru á markaðnum I dag, en þessi mynd er frá Bíla- sýningunni 1973.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.